Tíminn - 23.12.1973, Side 11

Tíminn - 23.12.1973, Side 11
Sumiudagur 23. desember 1973. TÍMINN 11 BRELLA, SEM BUXNAÞJOFURINN VARAÐI SIG EKKI Á NÚ er öld sérfræöinnar, og Cel Hichards, sjötugur Englending- ur, tollir i tízkunni og hefur helg- að sér sérgrein. Hann stelur kvenbuxum af snúrum. En hér á dögunum fór illa fyrir honum, svo sem nú skal greint. Kona ein var orðin illa hvekkt á þvi, hve illa henni hélzt á buxum sinum, og var svo langt gengið, að hún sá fram á hastarlegt buxna- leysi. Hún fékk þess vegna mann- inn sinn til þess að strengja vir þvert um húsagarðinn, spotta- korn frá snúrunum, og þráður frá virnum var tengdur við flassljós og myndavel, sem komið hafði verið fyrir á heppilegum stað. Þessum fjanda bjóst aumingja buxnaþjófurinn ekki við. Hann datt um virinn i myrkrinu, eins og til var stofnað, og i sömu andrá varð skjannabjart i kringum hann. Það má sjá, hvernig and- litsdrættir mannsins hafa stirðn- að við þetta. Með þessu var létt hreint og beint agalegu buxnatapi af frú June Ford. örlög buxna hennar höfðu legið á henni eins og mara i tvö ár, og hafði til margra ráða verið gripið, áður en það snilli- bragð fannst, er dugði svona vel. Það hafði auðvitað verið marg- leitað á náðir lögreglunnar, sér- stakir vökumenn fengnir og loks gerður hár veggur i kringum húsagarðinn. En allt hafði komið fyrir ekki. Verst af öllu fór það þó með taugarnar, þegar stöku sinnum fundust á morgni á snúrunum buxur, sem horfið höfðu fyrir heilu ári. Það jaðraði við, að þessi ósköp legðu hana i rúmið, enda voru nágrannarnir farnir að fullyrða, að hér væru að verki dularöfl, sem engum mennskum væri fært að kljást við. Svo var þetta bara Cecil Richards, sem lék þennan ljóta leik. Hann meðgekk, enda stoðaði litið að þræta, þegar myndin var lögð fram. Hann kvaðst hafa byrjað að stela buxum á jólunum 1971, og siðan hafði hann haldið þvi áfram — venjulega á föstu- dagskvöldum, þegar þær voru báðar að spila bingo, frú Richards og frú Ford, ásamt fleiri rosknum húsmæðrum i hverfinu. JOÉIN FRÁ RAFMAGNSVEITU REYKJAVlKUR Rafmagnsveitunni er það kappsmál, að sem fæstir verði fyrir óþægindum vegna straumleysis nú um jólin sem endranær. Til þessað tryggja öruggt raf- magn um hátíðarnar, vill Rafmagnsveitan benda notendum á eftirfarandi. 1 2 3 4 5 6 Reynið að dreifa elduninni, þ.e. jafna henni yfir daginn eins og kostur er, einkum á aðfangadag og gamlársdag. Forðizt, ef unnt er, að nota mörg straum- frek tæki samtímis, t.d. rafmagnsofna, hraðsuðukatla og brauðristar — einkanlega meðan á eldun stendur. Farið varlega með öll raftæki til að forðast bruna- og snertihættu. Illa meðfarnar lausa- taugarog jólaljósasamstæður eru hættuleg- ar. Utiljósasamstæður þurfa að vera vatnsþétt- ar og af viðurkenndri gerð. Eigið ávallt til nægar birgðir af vartöppum (,,öryggjum''). Helztu stærðir eru: 10 amper Ijós 20-25 ampereldavél 35 amper ibúð Ef straumlaust verður, skuluð þér gera eftirtaldar ráðstafanir: Takið straumtæki úr sambandi. Ef straumleysið tekur aðeins til hluta úr íbúð, (t.d. eldavél eða Ijós) getið þér sjálf skipt um vör í töflu ibúðarinnar. Ef öll íbúðin er straumlaus, getið þér einnig sjálf skipt um vör fyrir íbúðina i aðaltöflu hússins. Ef um víðtækara straumleysi er að ræða skuluð þér hringja í gæzlumenn Rafmagns- veitu Reykjavikur. Bilanatilkynningar í sima 18230 allan sólarhringinn. Á aðfangadagskvöld og gamlárskvöld til kl. 21 einnig í símum 86230 og 86222. Vér flytjum yður beztu óskir um GLEÐILEG JOL °g FARSÆLD á KOMANDI áRI, með þökk fyrir samstarfið á hinu liðna. Pi. 1RAFMAGNS t \ 1VEITA ■A. 1 REYKJAVlKUR Geymið auglýsinguna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.