Tíminn - 23.12.1973, Síða 15

Tíminn - 23.12.1973, Síða 15
„Hvað er sannleikur?" Sunnudagur 23. desember 1973. 1 TIMANUM 17. nóv. s.l. er smá- pistill frá Sigurði Þórissyni odd- vita, sem hann kallar leiðréttingu við frásögn undirritaðs af sund- laugarmálum Mývetninga, er birtist i Timanum 26. okt. s.l. t þessari „leiðréttingu” bendir oddvitinn þó ekki á neitt i frásögn minni, er ranglega sé með farið, sem varla er von, þvi að i henni er ekkert missagt. Harmsagan af sundlaugarmál- um Mývetninga er orðin lengri en svo, að hún verði sögð i stuttu máli. Þess vegna varð ég að stikla á stóru i frásögn minni, en ég taldi fulla ástæðu til að skýra frá þessu óvenjulega máli. Upp- lýsingar oddvita, settar fram á hlutlægan hátt, hefðu getað verið ágætt framlag, en þvi miður er þessu ekki til að dreifa um skrif hans frá 17. nóv., og verður ekki hjá þvi komizt að géra athuga- semdir við þau og skýra um leið nokkru nánar frá málinu. Oddvitinn segir svo: ,,A siðast- liðnum vetri ákvað sveitarstjórn, i fullu samráði við ungmenna- og iþróttafélög sveitarinnar, að styrkja byggingu tveggja plast- lauga i sveitinni, þar sem ekki virtist unnt að sameina félögin um eina laug og engin leyfi lágu fyrir frá fjármálayfirvöldum um styrk til stórrar laugar”. Hér koma fram einkennilegar og óná- kvæmar staðhæfingar, svo ekki sé meira sagt. 11. desember 1972 var oddvitanum sent bréf frá If. Eilifi, þar sem óskað er eftir þvi, að fulltrúar félagsins fái að mæta á fundi sveitarstjórnar til við- ræðna um sundlaugarmál og stjórn Umf. Mývetnings verði einnig gefinn kostur á að mæta á fundinum. 1 bréfinu var skýrt frá þvi, að það væri stefna félagsins, að á næsta sumri yrði byggð var- anleg bað- og búningsaðstaða, en plastlaug notuð til bráðabirgða. Var þetta i samræmi við skoðan- ir, sem fram höfðu komið hjá iþróttafulltrúa rikisins. t bréfinu var enn fremur óskað eftir svör- um við eftirfarandi spurningum: ,,A) Hvað liður framkvæmd á samþykkt sveitarstjórnar frá 25. april sl. um byggingu sundlaugar i Reykjahlið? B) Hver er stefna sveitarstjórnar varðandi stærð og gerð sundlaugarmannvirkja?” Engin svör Ekkert svar barst við þessu bréfi, og i bréfi dagsettu 22. janú- ar var beiðni um viðræður itrek- uð. Svar barst eigi að heldur fyrr en um miðjan marz, en þá bárust loks boð um fund þann 19. marz. A fundinum skýrði oddviti frá þvi, ,,að sveitarstjórn hefði litið gert i þessu máli, m.a. vegna þess, að hitaveituvatnið, sem áætlað væri að nota, hefði reynzt mjög illa i fyrravor og fyrri hluta sumars, aðalleiðslur hefðu ekki flutt full- komið vatnsmagn og kisilútfell- ing mikil. Oddviti gat þess, að hann hefði beðið Karl Ómar verk- fræðing að láta rannsaka vatnið með tilliti til þessarar notkunar, og einnig hefði hann leitað til skipulags rikisins um staðsetn- ingu laugarinnar.” Um fjárfram- lag rikisins var ekkert rætt á fundinum, og engin svör fengust við spurningu B, enda hafði odd- vitinn aldrei kynnt bréf Eilifs áð- ur fyrir sveitarstjórn (nema þá e.t.v. meirihlutanum), og stærð og gerð sundlaugar aldrei verið til umræðu hjá þeim. Og við þess- ari spurningu hafa engin svör fengizt enn frá meirihlutanum, svo sem kunnugt er. Frá fulltrúum Umf. Mývetn- ings kom fram, að á aðalfundi fé- lagsins, sem haldinn var tveimur dögum áður, hefði verið ákveðið að festa kaup á rafmagnshitaðri pFastlaug og koma henni upp á komandi sumri. Ekki var fullráð- ið, hvar hún yrði sett upp, en væntanlega i grennd við Skútu- staði. Og tekið var skýrt fram, að með þessari sundlaugarfram- kvæmd væri ekki ætlað að koma i veg fyrir, að byggð yrði varanleg sundlaug i sveitarfélaginu. Á fundinum var ekki að heyra, að sveitarstjórn væri hætt við að koma upp sundlaug i Reykjahlið, en menn voru sammála um, að úr þvi sem komið væri og undirbún- ingur ekki hafinn enn, væri hæpið að áætla, aö sú laug yrði tilbúin til notkunar fyrr en á árinu 1975. Urðu þá umræður um það, hvort hægt væri á skjótan og ódýran hátt að koma upp bráðabirgða- sundaðstöðu á hitaveitusvæðinu i Reykjahlið, sem hægt væri að nota, þangað til hið varanlega sundlaugarmannvirki væri tilbú- ið til notkunar. Þessar hugmyndir hafa e.t.v. verið fremur óraunhæfar, en hafa ber i huga, að hér eru menn orðn- ir óþolinmóðir að biða eftir sund- laug, nær 20 árum eftir að fyrstu ráðagerðir hófust. Og ekki verður annað sagt, en að oddvitinn hafi sýnt þessari bráðabirgðalausn talsverðan áhuga, og kom hann með þá hugmynd, að hreppurinn veitti tf. Eilifi einhvern stuðning við að koma upp bráðabirgða- laug. Við, fulltrúar Eilifs, töldum, að slikur fjárstuðningur yrði hugsanlega þeginn, og óskuðum eftir að sveitarstjórn tæki afstöðu til þess máls. Hins vegar lögðum við sérstaka áherzlu á, að ekki yrði hvikað frá fyrirætlunum um sundlaugarbyggingu af hreppsins hálfu, og létum bóka eftirfarandi um hugsanlegan hreppsstyrk: ,,Þó yrði það fjárframlag, ef til kæmi, að vera háð þvi skilyrði, að það yrði ekki til að draga úr framkvæmdum sveitarfélagsrns við varanlega sundlaug”. Rætt um sameiningu Eftir að fulltrúar félaganna voru horfnir af fundi, var eftirfar- andi bókað m.a.: „Sveitarstjórn var sammála um að styrkja tf. Eilif til byggingar bráðabirgða- sundlaugar, með þvi að leggja fram hreinsitæki i laugina, sem siðar mætti nota i varanlega sundlaug, enn fremur skúra fyrir búningsklefa, böð og salerni.” Á fundinum var enginn afstaða tekin varðandi fjárstyrk til Umf. Mývetnings, og sundlaugarmál voru svo ekki til umræðu i sveit- arstjórn fyrr en 11. júni. Þá las oddviti bréf frá formanni Mý- vetnings, „þar sem farið er fram á lán allt að kr. 300 þúsund til að koma upp sundlaug við iþrótta- völlinn á Álftabáru. Lán þetta endurgreiðist, þegar hreppurinn ræðst i byggingu á varanlegri laug”. Og erindið var afgreitt þannig: „Oddvita heimilað að veita Umf. Mývetningi fyrirgreiöslu við að leysa út sundlaugina. Jafnframt varoddvita og Bóasi Gunnarssyni falið að ræða við stjórnir Umf. Mývetningsog tf. Eilifs, hvort fé- lögin geti ekki sameinað krafta sina við að koma upp sameigin- legri sundlaug og reka hana”. Viðræður um sameiginlega laug fóru fram 1. júlf, en þá ræddu þeir oddvitinn og Bóas óformlega við stjórnir félaganna, hvora fyr- ir sig, og ræddu þeir fyrst við stjórn Eilifs, samkv. ákvörðun oddvita, en Bóas taldi eðlilegra, að þeir ræddu við stjórn Mývetn- ings fyrst. 1 þessum viðræðum lýstu stjórnarmenn Eilifs þvi yfir, að þeir væru til viðræðu um þessi mál og fögnuðu þvi, ef hægt væri að ná samkomulagi um eina sundlaugarbyggingu, en bentu jafnframt á, að eðlilegra heföi verið að ræða við stjórn Mývetn- ings fyrst, þvi að hér hlyti að vera um það að ræða, að þeir hættu við sina rafhituðu sundlaug á Álfta- báru og sameinazt yrði um eina sundlaugarbyggingu á jarðhita- svæðinu i Reykjahlið. Siðar hefur oddvitinn túlkað þessa afstöðu stjórnarEilifs þannig, að hún hafi ekki verið til viðræðu um þetta mál, og verður sú túlkun varla skilin nema á þann veg að hann hafi talið að „sameiginleg sund- laug” ætti að vera á Alftabáru. Aldrei var boðaður sameigin- legur fundur félaganna beggja um þetta mál, svo sem eðlilegt hefði mátt teljast, en á fundi sveitarstjórnar 2. júli er eftirfar- andi bókað: „Oddviti gerði grein fyrir viðræðum þeim og könnun, sem honum og Bóasi Gunnarss. var falið á siðasta sveitarstjórn- arfundi að gera við stjórn Umf. Mývetnings og If. Eilifs um eina sameiginlega sundlaugarbygg- ingu.” Fleira er ekki bókað um þetta. A þessu stigi hafði enn ekki ver- ið rætt um það i sveitarstjórn að veita ungmennafélaginu afgangs- TÍMINN rafmagn frá barnaskólanum til upphitunar laugarinnar, en á þessum fundi, 2. júli, las oddviti „bréf frá formanni Umf. Mývetn- ings, þar sem hann fer fram á að sveitarstjórn eftirláti Umf. Mý- vetningi það umfram rafmagn, sem til kann að verða i barnaskól- anum á Skútustöðum, til hitunar sundlaugar á Alftabáru. Sveitar- stjórn samþykkti fyrir sitt leyti að verða við þessari ósk, þó án allra skuldbindinga um orku- magn.” Engum getur dulizt, að sund- laugin á Alftabáru er byggð með fulltingi sveitastjórnarmeirihlut- ans, þó að þessi samþykkt um af- gangsrafmagnið hafi verið gerð samhljóða. Þá var stjórn ung- mennafélagsins fyrir löngu búin að kaupa laugina, og vitanlega var hún búin að tryggja sér það hjá meirihluta sveitarstjórnar að fá rafmagn til hennar. Enginn boðaður Kostnaðaráætlanir um þessar bráðabirgðasundlaugar lágu ekki fyrir, fyrr en komið var fram á sumar. Kostnaðaráætlun Eilifs hljóðaði upp á rúmar 2 millj. króna, en hún var kynnt sveitar- stjórn á fundinum 2. júli. Svo sem fram hefur komið, var af félags- ins hálfu, horfið frá áformum um slika laug, eftir að þessi áætl. var gerð, og var þá ákveðið að hafa samband við iþróttafulltrúa rikisins og athuga, hvort hann gæti komið hingað og fengið odd- vita til að halda sameiginl. fund málsaðila. Tók iþróttafulltrúnn þessu vel, enda átti hann hvort eð var leið hingað norður skömmu seinna, þ.e. 19. júli. Hafði hann samband við oddvitann, áður en hann kom, og óskaði eftir fundi. En svo einkennilegt sem það var, þá boðaði oddvitinn engan á þenn an fund. Staðfesti hann þetta sjálf ur opinberlega á opna fundinumð 1. nóv. Undirritaður, sem hitti Iþróttafulltrúann fyrir tilviljun á - Húsavik sama dag, mætti þó á þessum fundi ásamt tveimur öðr- um, og einnig voru mættir nokkr- ir menn frá Umf. Mývetningi, sjálfsagt fyrir tilviljun einnig. Enginn sveitarstjórnarmaður sat fundinn nema oddvitinn. Þarna upplýsti iþróttafulltrúinn m.a., að um verul. hallarekstur væri að ræða á öllum sundlaugum hér- lendis. Ýmsar fleiri gagnlegar og athyglisverðár upplýsingar komu þarna fram. Fjárveiting frá rikinu til sund- laugar i Mývatnssveit, stórrar eða smárrar, mun enn ekki liggja fvrir. Samt nefndi oddvitinn aldrei þetta atriði sem ástæðu fyrir aðgeröarleysi sinu fyrr en á opna fundinum 1. nóv., enda er að sjálfsögðu hægt að vinna ýmsa nauðsynlega undirbúningsvinnu, þó að slik f járveiting sé ekki fyrir hendi, m.a. að ganga frá skipu- lagi iþróttasvæðisins i Reykjahl., sem enn er eftir. Ég veit ekki bet- ur, en að vilyrði hafi á sfnum tima fengizt fyrir þvi, að Mývetningar fengju rikisframlag til sundlaug- arbyggingar i Reykjahlið, og um- sókn var send til fjárveitingar- nefndar Alþingis vorið 1972, en hversu fast hefur verið gengið eftir þvi framlagi siðan, af heimaaðila, veit ég ekki. Engin leiðrétting 1 þriðja lið „leiðréttingarinnar” setur oddvitinn fram furðulegar fullyrðingar, en hann hljóðar svo: „Undirskriftarskjalið barst mér i hendur að kvöldi 6. september. Var þá komið að göngurri og slát- urtið, og vegna anna komst fund- urinn ekki á fyrr en 1. nóvember. Var það litið lengri timi en það hafði tekið fréttaritarann, for- mann Eilifs, að koma samþykkt- inni til min.” Undirskriftarskjaliö er dagsett 31. júli og söfnunin, sem ýmsir lögðu hönd að, stóð yfir allan ágústmánuö. Sveitarstjórnar- mennirnir Bóas Gunnarsson og Armann Pétursson sendu skjalið til oddvitans, en ekki undirritað- ur. Og eftir að oddvitinn tók skal- ið sjálfur á pósthúsinu I Reynihlfð um miðjan dag, fimmtudaginn 6. sept., hafði hann fjóra daga til stefnu fram að göngum, sem hóf- ust þriðjudaginn 11. september. Álitu þeir Bóas og Armann, aö á þeim tima ætti aö vera hægt að koma á fundi, ef vilji væri fyrir hendi. En satt er það, að búskap- arannir geta oft verið miklar. Mývetningar höfðu lengi beðið eftir þvi að geta byggt sundlaug, þegar hitaveita kæmi i Reykja- hlið. Þess vegna er von, að menn eigi erfitt með að skilja, að þegar hitaveitan er komin i gagnið og nóg heitt vatn stendur hreppnum til boða i sundlaug. þá skuli odd- vitinn og stuðningsmenn hans, þrátt fyrir gerðar samþykktir, halda að sér höndum ár eftir ár me nauðsynlegan undirbúning, skjóta sér á bak við áformaðar bráðabirgðalausnir áhuga- mannafélaga og gefa þeim hýrt auga, en þó einkum rafhitaðri sundlaug, sem miðað er við að nota, þegar skólinn getur verið án upphitunar, þ.e. rétt yfir hásum- arið. Sem betur fer þarf ekki að efa, að meirihluti Mývetninga er óánægður með slik vinnubrögð og fordæmir þau. En svo vikið sé aftur að skrifum oddvitans, þá er augljóst, aö i þeim er ekki um neina leiðrétt- ingu að ræða, nema siður sé. Og hvort sem það er „heimilisbölið” eða annað, sem veldur, þá hefur honum orðið það á i þessum pistli að hagræða sannleikanum all- verulega. Ætli það sé svo með oddvita Skútustaðahrepps, að hann þurfi að spyrja eins og Pila- tus forðum: „Hvað er sannleik- ur”? Jón Illugason. 15 Jólabækurnar BIBLÍAN VASAÚTGÁFA NÝPRENTUN Þunnur biblíupappír Balacron-band * Fjórirlitir Sálmabókin nýja Fást í bókaverslunum og hjá kristilegu félögunum. HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG (f>ubbranböstofu Hallgrimskirkja Reykjavik simi 17805 opiö3-5e.h. Frá Viðlagasjóði Sveitarfélög sem ekki hafa gert skil á Við- lagagjaldi þurfa að standa skil á gjaldinu fyrir n.k. áramót, ef þau vilja komast hjá frekari dráttarvöxtum. Viðlagagjald má greiða i bönkum eða sparisjóðum inn á reikning Viðlagasjóðs hjá Seðlabanka íslands. Hlégarður Leigjum út sali fyrir árshátiðir, þorrablót og til fundahalda. Framreiðum veizlumat, þorramat, kaffi, smurbrauð, kökur og fleira. Upplýsingar i sima 66195. Áttadags- gleði stúdenta verður haldin i Laugardalshöllinni 31. des. 1973 kl. 23-04. Hljómsveitin Brimkló. Forsala aðgöngumiða i anddyri H1 28.-31. des. kl. 14-17. Kaupið miða timanlega, i fyrra seldust þeir upp. SHl. Jólatrésskemmtun fyrir börn stúdenta og börn háskóla- kennara verður i hátiðasal Háskóla Is- lands fimmtudaginn 27. des. kl. 14. Ókeypis aðgangur og góðgæti. — SHí.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.