Tíminn - 23.12.1973, Side 18

Tíminn - 23.12.1973, Side 18
ÞETTA TVENNT, þjóötrú og vísindi, hefir átt í strlði um ald- ir, en aldrei cins og nú á öld tækninnar. Þá eru veðurfregnir þar I fremstu röð, sem vonlegt er, eins og Þorsteinn Erlingsson segir öllum öörum betur I þessu erindi I Páskahreti I Eiðnum: Af hyggni skelka heyja bændur enn þann húsgangslýð, sem aldrei skilur vitin. Og veðurspárnar setja svip á menn og sérstaklega á þá, sem eig' ’ann litinn. Þetta erindi sýnir að veður- spárnar hafa ekki komið fyrst með Veðurstofunni og visindum nútlmans, heldur eiga sér jafn- Ianga sögu og maðurinn, sem tók að lita til lofts og huga að veðri eftir þvi. Páll Bergþórsson veður- fræðingur, sem er allra manna uppáhald og það að verðleikum, ræddi um veðurspárnar i út- varpi um miöjan júli I sumar, þvi að þá var ekkert sjónvarp. Páll var hinn ánægðasti og sagði að veðrið væri eitthvað að breytast til hins betra, hunda- dagar væru að byrja og bændur hefðu haft tröllatrú á þeim, þannig að veöurfar, sem byrjaði meö þeim stæöi I reynd nokkuð samfellt til höfuðdags. Svo bætti Páll viö: ,,En þessa trú gerum við ekki aö okkar hér á Veður- stofunni”. Þarna erum við Páll á öndverðum meiö,eins og hann veit. Ég tek þaö fram I upphafi þessa máls, til þess að ekki valdi misskilningi, að ég tek engan mann fram yfir Pál Bergþórsson, hvorki i útvarpi né sjónvarpi, og eru þó margir vissulega góðir. Þegar hann kémur fram i sjónvarpinu, t.d. við mánaðarlok, til þess að gera upp fyrir mánuðinn, þá kemst ^g alltaf I sólskinsskap. Hann er Hverjum manni orðhagari. Ég minnist þess, sem Haraldur hárðráði Noregskonungur sagði við Arnór jarláskáld, þegar hann flutti Magnúsi góða frænda hans kvæðið, sem þetta er I: Haukur réttur er þú Hörðá drottinn, hver gramur er þér stórum verri. Meiri verði þinn en þeirrá þrifnaður allur unz himinninn rifnar. Þá varð Haraldi að orði: ,,A11 ákaflega yrkir þessi maður, en lofaðu svo einn, að þú lastir ekki ahnan”. Þetta vil ég ekki láta béra mér á brýn i sambandi viö Pál. Það er ekki einn lastaður, þótt annar sé lofaður. Þaö fer vart á milli mála, að Páll Bergþórsson trúir á mátt visindanna eða á mátt sinn og megin, eins og það var orðað til forna, og hafa vissulega margir trúaö á minna, sem þann átrún- að hafa haft. Fyrir nærri tvö þúsund árum voru mælt fram þessi orö: „Eins er þér vant”, og þeim vil ég nú leyfa mér aö beina til hans. Páll á að trúa meira á það, sem þjóðtrúin fær- ir honum upp I hendurnar og byggt er á alda gamalli eftirtekt kynslóöanna. Þetta er mér ómetanlegt. Það hefir 70 ára reynsla kennt mér og mörgum rosknum mönnum. Ég hefi alla ævi átt heima á Hrafnkelsstöðum og i 70 ár horft til veöurs af sama sjónar- hól. Hefi ég oft getað sagt fyrir veður um sláttinn, bæði eftir draumum og veðurútliti, svo að ekki hefur skeikað um hárs- breidd. Ég hef næga votta að sliku. T.d. var ég búinn að spá fyrir þessu sumri nokkru áður en Páll kom i útvarpið og auð- vitað ekki eftir loftútliti og skýjafari, heldur eftir þjóðtrú og reynslu. Ég spáði á þessa leið: Það kemur þurrkur með hundadögunum um miðjan júli, og sú veðurreynd stendur til höfuðdags. Hann verður þó daufur 16. vikuna, eins og alla- jafna i þurrkatið. Þegar óþurrkar höfðu gengið framan af slætti, trúðu menn á 16. vikuna næstum eins og á heilaga forsjón, að þá kæmi þerrir. Og það reyndist oft ræt- ast, en gat auövitað brugðizt eins og allt. Þetta var samt reglan, eftir minni reynslu. Og 16. vikan skar sig einnig oftast úr I þurrkatið, en þá á hinn verri veg. Halda menn ekki^ að um verzlunarmannahelgina hafi fólk orðið vart við.að hann væri daufur i miðri 16. vikunni, þ.e. á 16. sunnudag sumars. Ég hefði viljað vera daginn þann staddur hjá kunningja minum, Sigurði á Sandhaugum i Bárðardal, þegar þar var 100 millimetra úrkoma yfir sólarhringinn, eða helmingi meira en meðalúrkoma er allan ágústmánuð. Það hefði verið fróðlegt að sjá slikt veöur. Við, sem búum á þessum rigningar- rassi, sem Suðurland vissulega er, þykir það hálfa nóg, eða 50 millimetrar. Þar kom að þvi, að Hviti Kristur sneri allverulega á Asa-Þór. Það var ekki nema rétt suddi hjá allsherjargoðan- um á Draghálsi þennan dag,hjá þvi sem afkomendur Þorgeirs á Ljósavatni fengu i sinn hlut. Hvaöa vit er það lika að bjóða sjálfum Asa-Þór upp á gamalt rollukjöt. Er ekki lengur ætt tryppi i Borgarfirði til þess að blóta? Svo ættu þeir að senda Þór gamla austur að Súlu og fleiri vatnsfalla á hringýegin- um til þess að stemma á gö ósi, eins og hann gerði I gamla daga. En nú kem ég að veðurspá frá ungdæmi minu, sem verið gæti, að veðurfræðingar og aðrir heföu gaman af að heyra. Sú saga gerðist. um sláttinn á fyrsta áratug aldarinnar og ér á þessa leið: Það var búinn að vera óþurrk- ur I eina viku, og hafði verið slegið stanzlaust alla dagá. Þá var það um það leyti er við vor- um að drekka siðdegiskaffið i slægjunni, að hann fór að rofa til I vestrinu alveg niður við, og karlmennirnir fóru að tala um, hvort hann ætlaði nú ekki að fara að gera þerri. Þá segir pabbi við mig: „Hlauptu heim og biddu mömmu þina að’fára niöur i kjallara og vita.'hvort ekki hefur lækkað i skyrturinun- um”. Ég man ennþá, hvað mér fannst þetta vitlaust að trúa á skyrtunnur. Það hafði frændi minn, séra Kjartan I Hruna, aldrei nefnt, þegar hann var að búa mig undir fermingu. Sagði hann mér þó margt, sem ég get aldrei fullþakkað. Hvaðum það. Ég elti mömmu niður i kjallara, og við skoðuð- um I allar tunnur, og viti menn! Það var stórt borð á þeim öll- um! Ég man,hvað ég hljóp út á engjar til þess að segja þessi góöu tiðindi. Það var litið rætt um eftirvinnukaup á Hrafnkels- stöðum kvöldið það. Við fórum að rifa upp heyið og höfðum lok- iö þvi, þegar ekki sá lengur handaskil fyrir myrkri. Og hvað haldiö þið? Það kom viku þurrk- ur, svo aö hvert strá var komið I hlööu um næstu helgi. I þá daga var talið, að ekki yrði komizt lengra I þvi að hafa góða sam- vizku heldur en þegar búið var að alhirða á laugardegi eftir stranga vinnu i þurrheyi alla vikuna og þreyttur skrokkur lagðist til hvildar á laugardags- kveldi. Hámarki náði þessi vel- liöan, ef maður vaknaði á sunnudagsmorgni við það, að farið var að rigna. Þá var breitt upp yfir höfuð og tekinn góður blundur til viðbótar. Nú hef ég, eins og gefur að skikja, ekki hundsvitá þvi, hvað liggur til grundvallar skyr- tunnuspánni, liklega einhvers konar háþrýstisvæði, eins og er oftast yfir Grænlandi i þurrrka- tið. Sjálfsagt verkar skyrið i tunnunni sem einhvers konar loftvog. Gaman væri, að Páll vinurvor útskýrði þetta, sem ég tel vist að hann geti. Nú er fátt um skyrtunnur á ts- landi, en Veðurstofan hefur tek- iö við þessu sérstæða hlutverki þeirra. En með hvaða árangri? Ég held að skyrtunnunni hafi ekki skjátlast, en oft hendir það Veöurstofuna, þvi er nú ver og miður, hvað sem veldur. Ekki flökrar það að mér, að þeir ágætu menn, sem með veður- spárnar fara, geri ekki allt eftir beztu samvizku. Það viðurkenni ég fúslega, að veðurfregnirnar eru ómetanlegar fyrir bændur. Þó meö þeim fyrirvara, að þeir hætti ekki sjálfir að lita til lofts og gera sinar ályktanir, á sama hátt og bændur hafa gert frá alda öðli. Um þaö vitnar sagan allt frá landsnámstið. Nú er þaö aldrei vani minn að kasta fram fullyrðingum, án þess að láta rök fylgja, eftir þvi sem kostur er á. Og úr þvi að ég talaði um misbrest á veður- spám, er bezt,að við Páll Berg- þórsson rifjum upp veðurspána um þrjár helgar i sumar, þá 15., 16. og 17. Páll hefur þetta auð- vitað allt tiltækt hjá Veðurstof- unni, en ég verð að treysta á minnið og hefi ekkert skrifað. Og þvi skal ég lofa að hafa held- ur það, er sannara reynist. Við Árnesingar vorum áhyggjufullir um veðrið um 15. sumarhelgina, þvi að þá átti að vera hið árlega Alfaskeiðsmót, útiskemmtun, sern er orðin meira en 60 ára hefð. Það var leiöindaveður á lrugardag, þó að ekki rigndi mikið, og Veður- stofan lofaði engu góðu. Þetta fór nú samt allt vel, og þurrt var allan sunnudaginn, en sólarlitið. Ég sat þennan dag heima og hlustaði á útvarp, ferðaðist i huganum um sögustaði Njálu með Böðvari Guðmundssyni og Jóni Böðvarssyni og skemmti mér konunglega. Ég var i sól- skinsskapi á eftir og fór að at- húga veðurútlit. Eftir minu viti var hann að gera þurrk og hafði orð á þvi við frændur mina, þeg- ar þeir komu heim af skemmtuninni á Alfaskeiði. Eins og ungum bændum sæmir, trúa þeir meira á Pál Bergþórs- son heldur en mig, og þótti eng- um mikið. Svo kemur veðurspá- in um kvöldið og var eitthvað á þessa leið: Eitt þúsund milli- bara lægð við Grænland á hreyf- ingu norðaustur, rigning um allt land. Þá fékk ég nú orð i eyra, en ég beit á jaxlinn og bölvaði i hljóði. Spursmál, hvor okkar Páls er þrjóskari, ef i það fer. Það var ekki langt liðið á sjö- unda timann um morguninn, þegar ég fór að gá til veðurs. Þá var glampandi sólskin, og i hönd fór einn bezti þurrkdagur sumarsins. Þegar Veðurstofan geröi upp eftir daginn, var það eitthvað á þessa leið: Þurrkur og hvergi mælanleg úrkoma á landinu. Þaö, sem gerzt hefur, er sjálfsagt einfaldlega þetta: Lægðin breytti um stefnu og fór austur fyrir sunnan land. Lægð, sem fer noröaustur, kemur ævinlega með rigningu. Auðvit- að er Veðurstofan alveg viss um, hvar lægðirnar eru i byrj- un. En hvernig er það með ferðaáætlunina, er hún alveg óútreiknanleg? Ef svo er, geta veðurfræðingarnir þvegið hend- ur sinar alsaklausir. Ég spyr i gamni: Hlaupa bansettar lægð- irnar útundan sér eins og ótemj- ur og kasta veöurfræðingunum af baki. Sextánda sunnudaginn var meiri úrfelli i Bárðardal heldur en dæmi eru til áður. Þá spáði Veðurstofan ekki þerri, en hún nefndi ekki þessi ósköp. Sunnudaginn i 17. vikunni . nenni ég ekki að ræða um, þvi að þá rak hver vitleysan aðra hjá Veðurstofunni. Það gerir nú litið til, þó að Veðurstofan spái rigningu um slátt,en úr verði góður þerrir. Það verður auðveldlega fyrir- gefið. En ef hún spáir þerri og úr þvi verður slagviðri, getur þaö orðið dýrt spaug fyrir bændurna i landinu, eins og ég skal nefna dæmi um. A mesta óþurrkasumri á þessari öld, 1969, hafði staðið langur rosakafli, þegar brá til þerris I tvo daga, laugardag og sunnudag, og Veöurstofan sagði hiklaust, að þerrir yrði á mánu- dag til viðbótar. Bændur á Suöurlandi voru svo vitlausir að trúa þessu og uggðu ekki að sér. Þúsundir hesta af heyi lágu i beöjum um allt Suðurland, og jafnvel þekktist, að menn breiddu úr hrúgum til þess að nota betur þerrinn næsta dag. Sjálfsagt hefir einhver bóndinn sagt ljótt, þegar hann vaknaði næsta morgun i slagviðri, sem stóð allan þann dag og þann næsta. Hefði réttilega verið sagt til um veörið, mundi enginn bóndi hafa sofnað dúr þessa nótt, og þannig hefði áreiðán- lega verið bjargað milljóna- verðmætum með þeim tækjum, sem nú eru til á hvérjum bæ. Enda er haft eftir gömlum bónda: „Ég held að þeir liti aldrei til lofts þarna á Veður- stofunni”. Og það sem verra er. Veðurstofan hefur vanið bændur af þvi að lita til lofts, og þvi fer sem fer. Aður en Veðurstofan kom, voru bændur yfirleitt ekki þeir aular, að þeir sæju ekki fyrir, ef von var á slagviðri næsta dag. ril aö sanna, aö þetta er ekki sagt út i bláinn, ætla ég að nefna tvennt, sem bændur töldu Sruggt rigningarmerki næsta iag áður fyrr. Annað var það, ef alveg var heiðskirt og engin fyrirstaða i suðrinu. En fyrir- staða var það nefnt, ef skýja- oakki var niðri viö hafsbrún. Næði heiðrikjan aftur á móti niður ihafsauga, eins og það var kallað, boðaði það ekki gott. Hitt dæmið um aðsteðjandi rigningu er i þvi fólgið, að fari það sam- an, að bliku leggi upp i vestur- loftið og gangi svo hratt inn á vestrið, aö blikan komist upp fyrir sólina, áður en hún sezt. má eiga visa úrkomu fyrir fóta- ferð næsta dag. Þetta gerðist einmitt þennan minnisstæða dag 1969. Ef blikan náði hins vegar aldrei sólinni, áður en hún settist aö kvöldi, mátti búast við þurrum degi að morgni. Fyrr- greinda helgi áriö 1969 var allt hey komið i lanir á Hrafnkels- stöðum, áöur en háttað var, og fyrsta verkiö i rigningunni næsta morgun var aö breiða yfir þær striga, og þar meö var allt tryggt á þeim bæ. Netþykkni undan sól veit á storm og úrfelli, segir Atli, bú- fræðirit Björns i Sauðlausksdal. Þetta hefir aldrei brugðizt mér, frá þvi að ég fór fyrst að veita þessu athygli. Þetta eru aðeins litil dæmi af mörgum veðurat- hugunum bænda öld eftir öld. Hjátrú og raunvisindi hafa allt- af þrifizt hlið við hlið. Stað- reyndakarlar nútimans gera lit- ið úr mörgu þvi, sem byggt er á eftirtekt kynslóðanna. En mér er spurn: Hafa þeir efni á þvi, ekki vissari en þeir eru i sinni sök? Þegar þetta er ritað i lok hundadaga, er búinn að standa forláta þerrir, og bændur um Suðurland eru að hirða siðustu töðuna. Hvort spá min stenzt, að hin góða veðurreynd haldizt til höfuðdags — þegar þetta spjall mitt verðuq flutt útvarpshlust- endum — hefur ekkert að segja úr þessu, þvi að fáir dagar eru til stefnu. Nú fer norðanátt að verða hættuleg, vegna frosta, sem henni fylgja, og sjálfsagt megum við búast við frostskúr- um núna, hvað sem meira verð- ur. Þetta er orðiö eitt bezta sum: ar um árabil Veðurguöinn hafði vit fyrir bændum eins og bezt varð á kosið. Þeir fengu þerri- um miðjan júll og gátu slegið og hirt þau tún, sem ekki voru beitt I vor. Hin voru ekki tilbúin til sláttar, og hefði verið stórskaði að slá þau strax. En þá kom væta 1 bili og forláta grasveður, einmitt það allra bezta, sem á varð kosttð, svo aö allt varð kaf- sprottið, og þá kom þurrkurinn aftur alveg á réttum tima. Það er. óþarfi aö nöldra viö Guð i þetta sinn. Eg þori að segja, að vinstri stjórnin hefði ekki stjórnað tiðinni 'betur en þetta, þó að hún hefði verið þess megnug, og „léngra veröur ekki rakið en til 'Bollants”, eins og þar stendur, Hitt er hræðilegt, hvað hér munaði mjóu, að þetta yröi hallærissumár. Maður þor- ir varla aö hpgsa þá 'hugsun til enda. Ef rrjetraþykkur klaki hefði verið i jörðu, eins og á kalárunum, að undangengnum einum kaldasta júni mánuði á þessari öld. Hvað þá? Það er eins og Páll Bergþórsson sagði um miðjan júli: „Það er vetrar- veðráttan og klakleysið, sem þarna bjargaði”. Allt er þá þrennt er. Og nú er bezt að ljúka þessu spjalli með þriðju veðurspánni frá gömlum tlma. A fyrstu tugum aldarinnar bjó roskinn merkisbóndi i nágrenni við Hrafnkelsstaði. Hann var allra manna veðurgleggstur. Færi hann áö snúa heyi sinu á sumardegi, var óhætt að fara eftir þvi, og það gerðum viö oft heima, þvi að vel sást á milli bæjanna. Eitt sinn fórum við að spyrja þennan bónda, hvernig hann færi að þvi að sjá vona veðrið út fyrirfram. Hann sagði frá á þessa leið: „Ég hefi ands- viti mikla trú á skýjafarinu. Það hlær stundum að mér fólkið, þegar ég er að gá til veðurs. Ég tek hrifu og rek skaftið niður i völlinn, svo að það stendur fast. Siðan leggst ég á bakið hjá hrif- unni og miða fariö á skýjunum við hrifuhausinn. Ef skýin halda til suðurs, er vis norðanátt I vændum”. Hugsum okkur svo aö siöustu myndina þannig: Veður- fræðingur stendur við veður- kortið og hefur fengið mynd og fréttir úr öllum áttum. Aö hinu leytinu er gamli bóndinn og hef- ir aðeins hrifuna sina. En hann notar hana þannig, að hausinn á henni slagar upp I hausinn á hinum visa vísindamanni.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.