Tíminn - 23.12.1973, Qupperneq 19
Sunnudagur 2:i. desember 1973.
TÍMINN
19
Útgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson.
Auglýsingastjóri: Steingriinur Gisiason. Ritstjórnarskrif-
stofur i Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif-
stofur i Aöalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — aug-
lýsingasimi 19523. Áskriftagjald 360 kr. á mánuöi innan lands,
i lausasölu 22 kr. eintakiö.
Blaöaprent h.f.
Skoðum hug okkar
Mesta hátið ársins er að ganga i garð og hef-
ur það ekki farið fram hjá neinum undanfarnar
vikur, að hún nálgaðist. Hin mikla kauptið og
auglýsingaflóðið minnir menn á. Verzlunin
hefur verið geysimikil og fólk virðist hafa
mikla fjármuni handa á milli til kaupa á jóla-
mat og jólagjöfum.
Jólin hafa verið nefnd hátið friðarins. Boð-
skapur þeirra er friður á jörð. Og jólunum fylg-
ir vissulega aukinn náungakærleikur meðal
kristinna manna. Tillitssemi þeirra hverra til
annarra er meiri á jólahátiðinni en aðra daga
ársins.
Jólahátiðin og það andrúmsloft, sem henni
fylgir, er vel fallinn timi fyrir menn til að skoða
hug sinn og endurmeta viðhorf sin til manna og
málefna.
Við megum þakka, er við setjumst við jóla-
borðið, að lifskjör okkareru góð og þjóðin hefur
nú meiri efni en nokkru sinni fyrr. Þrátt fyrir
óblið náttúruöfl á íslandi á þessu ári, eins og
t.d. gosið i Eyjum og hin langvarandi og hörðu
frost nú, megum við þakka orkuauðgi landsins
og öll skulum við leiða hugann til þeirra ná-
granna- og vinaþjóða okkar, sem þurfa að búa
við köld og myrk jól að þessu sinni vegna orku-
skortsins, sem stafar af takmörkun Araba-
þjóða á oliusölu til þeirra. Við skulum öll biðja
þess, að fimbulfingur frostsins loki ekki fyrir yl
og ljós til okkar um hátiðina, en um leið skulum
við biðja þess að friðarsamningar þeir, sem
loks eru hafnir milli Araba og Israela beri
árangur og létti af oliutakmörkunum Araba
svo þeirri myrku vofu og köldu, sem nú grúfir
yfir jólahátið hjá vinum okkar og frændum á
Norðurlöndum og ýmsum þjóðum Vest-
ur-Evrópu, verði bægt frá.
Og gott væri, ef sú tillitssemi og náungakær-
leikur, sem vex með mönnum á jólum og áður
var á minnzt ilendist i br jóstum manna og blási
ekki á braut að loknum jólum.
Ýmsirhafahaftþað á orði að undanfömu, að
eitt helzta einkennið á þvi allsnægta- og vel-
ferðarþjóðfélagi, sem við höfum búið okkur á
Islandi sé kröfuharka og kröfufrekja og met-
ingur manna og stétta á milli, sem leiðir til
ójafnaðar og sáir fræum öfundar og illsku milli
manna. Of oft hefur það hent okkur á undan-
förnum árum, að krefjast jafnan margfalt
stærri hlutar til okkar hvers um sig, þegar
þeim, sem minnst hafa mátt sin, fá nokkurn
aukinn skerf i sinn hlut. Vonandi festa menn
með sér um þessa hátið það lofsverða hugar-
far, er réð i kjarasamningum BSRB og rikisins
nú fyrir nokkrum dögum, að þeir, sem minnst
hafa skulu fá hlutfallslega mest, en þeir, sem
stærstan hlutinn hafa borið fái hlutfallslega
minnst.
Ef það hugarfar ræður einnig i skiptum
manna að baki jólum þarf islenzk þjóð ekki að
kviða efnahagsörðugleikum, vinnudeilum og
verkföllum. í von um að menn efli með sér slikt
hugarfar á jólahátiðinni óskar Timinn lesend-
um sinum og landsmönnum öllum gleðilegra
jóla.
— TK
Gleðileg jól
ERLENT YFIRLIT
Feisal er voldugasti
forustumaður Araba
Því veldur hinn mikli olíuauður Saudi-Arabíu
SÁ MAÐUR, sem ræður nú
vafalitið mestu meðal leiðtoga
Arabarikjanna, er Feisal kon-
ungur Saudi-Arabiu. Astæðan
er sú, að hann ræður yfir
stærstu oliulindunum og getur
þvi ráðið mestu um stefnu
Araba i oliumálunum. Þótt
hann verði sjálfur ekki við-
staddur friðarráðstefnuna i
Genf, mun óbeinna áhrifa
hans gæta þar öllu meira en
nokkurs annars. Það veikir
ekki aðstöðu hans, t.d. gagn-
vart Bandarikjamönnum, að
hann er minna grunaður um
fylgi við Rússa en nokkur ann-
ar leiðtogi Araba. Feisal hefur
jafnan verið mikill andstæð-
ingur kommúnismans og fer
ekki dult með skoðanir sinar i
þeim efnum. Hann lét lika
deilumál Araba og tsraels-
manna fyrst verulega til sin
taka eftir að hann taldi sig
hafa sannfærzt um, að Sadat
forseti Egyptalands væri ekki
nein undirlægja Rússa, eins og
haldið hafði verið fram, held-
ur héldi fullkomlega hlut sin-
um gagnvart þeim. Það sann-
aði Sadat m.a. i fyrra, þegar
hann sendi heim hina mörgu
rússnesku sérfræðinga, sem
voru komnir til Egyptalands.
Þvi hefði vafalaust ekki ver-
ið trúað, ef þvi hefði verið
haldið fram i lok fyrri heims-
styrjaldarinnar, að land það,
sem nú heitir Saudi-Arabfa,
ætti eftir að gegna jafnmiklu
hlutverki á sviði heimsmál-
anna. Þá var mestur hluti
Arabiuskagans það landsvæði,
sem stórveldin sóttust einna
minnst eftir að ná undir yfir-
ráð sin. Þau létu þaö þvi að
mestu afskiptalaust, þegar
Ibn Saud, faðir Feisals, sem
stjórnaöi aöeins litlu fursta-
dæmi, fór að dæmi Haraldar
hárfagra og lagöi tvo þriðju
hluta skagans undir yfirráð
sin. Þá var litið á mestan hluta
þess lands sem verðlausa
eyðimörk. En svo kom olian til
sögunnar. Nú er Saudi-Arabia
mesta oliuveldi heims og taliö
er, að þar sé að finna um
þriðjung allrar oliubirgða,
sem nú er vitað um i heimin-
um.
FEISAL konungur er 69 ára
aö aldri. Hann er þriðji sonur
Ibn Sauds, en alls átti hann 40
syni, eins og frægt er. Hann
baröist ungur viö hlið fööur
sins, þegar hann var að sam-
eina Arabiu og gat sér þá mik-
ið frægðarorð. Faðir hans
hafði mikið dálæti á honum og
geröi hann að utanrikisráð-
herra sinum 1931, en hann var
þá 27 ára aö aldri. Þaö féll þá i
hlut hans að semja um oliu-
réttindi við bandarisk fyrir-
tæki og hefur hann stöðugt sið-
an haft náin tengsli við ýmsa
forustumenn Bandarikjanna á
þessu sviði. Tengslin milli
Bandarikjanna og Saudi-
Arabiu hafa jafnan verið vin-
samleg, þótt heldur hafi kóln-
að á milli sfðan Bandarikin
gerðust sjálfskipaður vernd-
ari tsraels og tsraelsmenn
hófu landvinninga sina.
Ibn Saud lézt 1953 og tók þá
elzti sonur hans, Saud, við
konungdómi. Hann reyndist
mjög duglitill stjórnandi og
dvaldist mikið erlendis. Hann
gerði Feisal að forsætisráð-
herra og réði hann mestu um
stjornina meðan Saud var
konungur. Árið 1964 var Saud
vikið frá völdum og tók Feisal
þá við konungdómi, en faðir
hans hafði útnefnt hann sem
krónprins. Hann hefur síðan
verið hinn óumdeildi ein.ræðis-
herra Saudi-Arabiu likt og
faðir hans var
SIÐAN Feisal varö konung-
ur, hefur hann beitt sér fyrir
alimiklum framförum, enda
hefur oliugróöinn gert þaö
meira en mögulegt. Meiri-
hluta gróðans hefur veriö
komið fyrir i bönkum erlendis
og er það ætlunin aö geyma
hann til siðari tima. Feisal
konungur telur framfarir
nauösynlegar, en þær megi
ckki koma of hratt, og gildi
þetta þó einkum um þær, sem
ieiða til lifsvcnjubreytinga.
Þetta getur haft við rök að
styöjast, þegar þess er gætt,
að Suadi-Arabia er að mörgu
leyti enn á miðaldastigi og al-
menningur allur heldur fast i
gamlar venjur, Feisal hefur
einkum lagt áherzlu á umbæt-
ur á sviði heilbrigðismála og
kennslumála, auk bættra
samgangna. Þaö kostað
Feisal mikla mótspyrnu að
koma upp sjónvarpsrekstri en
nú eru 300 þús. sjónvarpstæki i
notkun i Saudi-Arabiu, en ibú-
ar landsins eru um 7.7 millj.
Þrælahald, sem áður var
leyfilegt, hefur verið bannaö,
og margir aörir ósiðir bann-
færðir. Annars er lögö mikil á-
herzla á aö halda i gamla siöi
og haga sem ftestu i samræmi
við kenningar Múhameðs.
Feisal konungur telur sig
gegna miklum skyldum i þeim
efnum, þar sem helgustu
trúarstaðir Múhameðstrúar-
manna eru i landi hans aðrir
en Jerúsalem. Sjálfur fylgir
hann kóraninum stranglega
og lifir mjög fábreyttu lifi.
Afengi er bannað á heimili
hans og i návist hans. Hann
hefur ekki verið giftur nema
einni konu siðan hann var kon-
ungur, en áður hafði hann ver-
ið þrigiftur. Núverandi kona
hans er sögð rúmlega fertug
að aldri og eiga þau fjórar
dætur og fimm syni. Sam-
kvæmt venju i Saudi-Arabiu
hefur litið borið á tiætrunum,
en synirnir stunda nám við
ameriska háskóla.
Feisal konungur hefur brot-
ið þá venju, sem áður þótti
sjálfsögð, að fela kóngssonum
eða ættingjum konungsins öll
helztu embætti rikisins. Hann
hefuri mörgum tilfellum valið
ókonungborna menn i helztu
embætti rikisins. Nokkurt
dæmi um þetta er þaö, að nú-
verandi oliumálaraðherra ,
rlkisins, Yamani, er kominn
af miðstéttarfólki i Mekka.
Hann er 43 ára að aldri, en
hefur þó gegnt þessu vciga-
mikla embætti i aratug.
Yamani hafði stundað nám i
Bandarikjunum i allmörg ár
áður en Feisal tók hann i þjón-
ustu sina. Hann hefur unniö
manna mest að þvi að skipu-
leggja samtök Arabarikjanna
um oliumálin, og nýtur mikils
álits viöa um heim sem snjall
skipuleggjari og einbeittur og
hygginn forustumaöur.
ÞÓTT samstaða sé nú hjá
Arabarfkjunum á yfirboröinu,
fer fjarri þvi, aö hún sé eins
traust og ætla mætti. Forystu-
menn þeirra eru mjög ósam-
mála um lokamarkið. Ein-
ræðisherrarnir i Libýu, Irak,
Alsfr og Sýrlands stefna að
róttækum sósialisma, en
Feisal og Hussein Jordaniu-
konungur vilja viðhalda núv.
þjóðskipulagi meö endurbót-
um. Sadat stendur mitt á
milli. Ef ckki nást á friðarráð-
stefnunni i Genf viðunanlegir
samningar fyrir Araba, er
hætt við, að það verði vatn á
myllu róttæku foringjanna.
Fyrir Bandarikjamenn og
lsraelsmenn skiptir þvi miklu
að semja meðan menn eins og
Feisal, Hussein og Sadat geta
haft áhrif á samningagerðina.
Margt bendir til, að Nixon og
Kissinger geri sér þetta ljóst,
en hið sama virðist ekki gilda
um Israelsmenn og ýmissa
leiðtoga demókrata i
Bandarikjunum. Þvi er ekki
fullsýnt hver niðurstaðan
verður á friðarráðstefnunni i
Genf. Þ.Þ.