Tíminn - 23.12.1973, Qupperneq 33

Tíminn - 23.12.1973, Qupperneq 33
Sunnudagur 23. desember 1973. TÍMINN 33 aumingja Siggi. Og ég veit að mamma verður svo hrædd um mig. — Hvar áttu heima? spurði Frikki. Hann varð reglulega glaður yfir að einhver leitaði til hans og þarfnaðist hjálpar hans. — Ég á heima á Vatnaliljugötu númer hundrað tuttugu og eitt, svaraði Siggi. — Komdu með mér, væni minn, sagði Frikki. Ég skal fylgja þér heim strax, svo að mamma þin verði ekki alltof hrædd. Og það gerði hann. Mamma hans Sigga stóð á tröppunum og skimaði i allar átti. Hún varð ósköp þakklát og fegin, þegar Frikki kom með Sigga litla. Og hún hugsaði með sér, að hann hefði breytzt mikið. Siðan bauð hún honum i kaffi. Frikki var ekki seinn á sér að þiggja boðið. Og hann var viss um, að aldrei á ævinni hafði hann skemmt sér betur. Þegar hann kom heim seinna um daginn, fór hann að hugsa um það, hve gaman væri að vera góður við aðra og hjálpa þeim, sem þess þyrftu. Og hann hét þvi að vera alltaf góður og hjálp- samur i framtiðinni. Allir hinir froskarnir i Vatnaliljuþorpi voru steinhissa. Frikki frosk- ur var orðinn allra froska beztur, og var sifellt að hjálpa til og gleðja aðra. Einn daginn lánaði hann meira að segja litlum andarunga liljublaðið sitt, af þvi að hann var svo þreyttur. Hinir froskarnir trúðu ekki sinum eigin augum og eyrum. Þeir voru vissir um, að Frikki þættist vera svona góður til þess að bliðka þá. En þegar þeir fréttu, að hann gætti litlu uglu- barnanna á kvöldin, svo að móðir þeirra gæti náð i mat handa þeim, fóru þeir loks að trúa þvi, að hann væri raunverulega orðinn svona ósköp göður og hjálpsamur. Skömmu seinna fékk Frikki froskur sitt stærsta tækifæri til að sanna öllum, að han væri raunverulega orðinri góður. Rikki rotta, sem allir frosk- arnir voru dauðhræddir við, hafði tekið Friðu frosk og dregið hana burt með sér. Frikki varð fyrst skelfingu lostinn, þvi að hann vissi, að Rikki var miklu stærri og sterkari en hann. En einhvern veginn varð hann að bjarga aumingja Friðu. Loks datt honum ráð i hug. Hann greip stóran hattprjón, sem gömul kona hafði misst i vatnið daginn áður, og með honum tókst honum að frelsa Friðu og drepa rottuna. Friða varð svo glöð, að hún kyssti Frikka beint á munninn. Nú var Frikki orðinn hetja þorpsins, og allir froskarnir kepptust við að hrósa honum. En hann var ekki fyllilega ánægður þvi að nú var hann svo hræðilega ljótur, að hann þorði alls ekki að biðja Friðu að giftast sér. Og hann óskaði þess af öllu hjarta, að hann hefði ekki verið svona and- styggilegur við Nikkó- linu norn. En svo frétti hann, að Nikkólina hefði brotið töfrasópinn sinn og væri svo fjarskalega leið yfir þvi. Frikki fór strax af stað að safna stráum, og þótt þau væru þung og stór, tókst honum á end- anum að binda þau saman i fallegan sóp, sem hann færði Nikkó- linu. Hún varð svo glöð, að hún fór strax að tauta einhver töfraorð. Og á svipstundu varð Frikki fallegur aftur. Hann stökk af stað, eins hratt og fæturnir gátu borið hann, beina leið heim til Friðu, og bað hana að giftast sér. Og hún sagði auðvitað já, þvi að Frikki var bæði fallegastur og bezt- ur af öllum i þorpinu. Siðan var haldið helj- armikið brúðkaup, sem öllum þorpsbúum var boðið i, og Frikki og Friða bjuggu saman i hamingju og friði upp frá þvi. K U / U í Hvað ætlarv ungur til ] nógU gamap - þú að kjósa?! að kJósa- Hvað myndirðu En ég er V Ef ég get imynd-N þig \ ekkiifram ) aðmér, aðégsé 'vboði, bjáninn nógu gamall, get ég þinn. ^ V alveg eins imyndað

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.