Tíminn - 04.01.1974, Síða 13

Tíminn - 04.01.1974, Síða 13
Föstudagur 4. janúar 1974 TÍMINN 13 EITT af þvi, sem marga unga menn fýsir að kynnast, er radió- tækni, og þeir, sem eldri eru og reyndari, eru reiðubúnir til þess að leggja þeim lið, er langar til þessaðgerast radióamatörar. Nú vill svo til, að næsta alheims- skátamót drengja, Jamboree, sem haldið verður sameiginlega af öllum Norðurlandaþjóðunum við Litla-Hamar i Noregi sumarið 1975, verður að miklu leyti heigað radióskátun , er svo er nefnd, Þess vegna fékk Timinn tvo verk- fræðinga, Vilhjálm Þór Kjartans- son og Kristján Benediktsson, sem er formaður samtaka radíó- amatöra til þess að ræða við sig. — Ég fekk ungur mikinn áhuga á radiórækni, sagði Kristján, og það er kannski þess vegna, að mig langar til þess að hjálpa unglingum, sem eru svipaðs sinnis, til þess að feta sig áfram á þessari braut. Við, sem að þessu störfum, finnst við séum að færa unglingunum, sem til okkar leita, eitthvað, er eykur þekkingu þeirra og getur orðið þeim til ein- hvers gagns. En þröskuldur er i vegi i þessu starfi, þvi að það er ærið margt, er radióamatörar þurfa til sinna nota, og það er ekki hlaupið að þvi að fá slíkt hér á landi. Þetta stendur mjög i vegi fyrir öllum, sem við radiótækni fást. Hér er skortur á radióvörum, allt siðan Viðtækjaverzlun rikisins var lögð niður, og erfitt að fá sitt- hvað, er við þörfnumst. Einkum gengur stirt að fá smávægilegum pöntunum sinnt. En það eru einmitt margir og mismunandi smáhlutir, sem radióamatörar þurfa að fá — fleiri smáhlutir en menn almennt gera sér grein fyrir i fljótu bragði. En samtök radióamatöra eru reiðubúin til þess að liðsinna þeim, er það vilja þekkjast, en þar er ýmsa erfiðleika að yfir- stiga, einnig við útvegun þess, er nota þarf. — Á undanförnum árum hefur það færzt i vöxt, að skátaforystan i nágrannalöndum okkar vinni skipulega að þvi að flétta radió- og rafeindatækni inn i skátastarf- ið, sagði Vilhjálmur Þór Kjart- anss. Sums staðar eru starfandi flokkar eða sveitir radióskáta, hliðstætt sjóskátum og flugskát- um. Það talar sinu máli, að skátamótið i Litla-Hamri verður að miklu leyti helgað þvi, sem kallað er radióskátun. HVAÐ ER HADIÓSKATUN? — Radióskátun er hvers kyns starfsemi með radió- og rafeinda- tæki. Af hugsanlegum viðfangs- efnum má nefna, að með litlum tilkostnaði er hægt að smiða ein- föld viðtæki, tóngjafa fyrir mors, litla magnara o.þ.h. Með heldur meiri tilkostnaði er hægt að smiða stereó-magnara, sæmileg fjarskiptaviðtæki og senditæki fyrir nýliða, svo eitthvað sé nefnt. Senditækin má ekki nota nema að afloknu amatörprófi. Auk þess að hlusta á fjarskipti og útvarp sér til ánægju, þá eru margir sem reyna að „safna” sem flestum löndum. Þá hlusta þeir eftir útvarpsstöðvum, radió- amatörum eða hvoru tveggja og senda stöðvunum, sem þeir ná, hlustunarskýrslu i von um að fá staðfestingarkort (QSL) til baka. „Refaveiðar” kallast leikur, sem skátar iðka. „Refurinn” felur sig með senditæki, en „veiðimennirnir” eru vopnaðir miðunarviðtækjum, landabréfum og áttavitum. Refurinn lætur i sér heyra með vissu millibili, og veiðimennirnir keppast um að finna hann á sem skemmstum tima. Margir skátaflokkar erlendis hafa smiðað eigin mið- unarviðtæki i þessum tilgangi. KADtÓ-AMATÖRAR Þeir skátar, er mestan áhuga fá á þessu, vilja gjarnan fá leyfi til að smiða og nota eigin senditæki. Ef þeir eru minnst 14 ára gamlir, læra sendingu og viðtöku mors- merkja og grundvallaratriði i fjarskiptareglum og radiótækni, þá geta þeir tekið próf og fengið kallmerki og nýliðaleyfi hjá Landsima lslands. Tæki nýlið- anna geta dregið um land allt og stundum til útlanda i góöum skil- yrðum. Með viðbótarprófi fást full réttindi, og þá opnast mögu- leikar á viðskiptum um allan heim. jafnvel um gervihnetti. Skátar á Noröurlöndum og viðar, sem jafnframt eru radió-amatör- ar, hittast reglulega á ákveðnum tiðnum til að ræða áhugamál sin. Rétt notkun „labb-rabb" tækja getur verið ánægjuleg og gagn- legt, t.d. á ferðalögum. Tilgangur notkunarheimildarinnar er samt að fullnægja sambandsþörfum al- mennings i vissum tilfellum, en ekki að fullnægja grúskhneigð og tækniáhuga notandans. Engar kröfur eru gerðar til mors- eða tæknikunnáttu, enda mega notendur ekki smiða eða gera við tækin sjálfir. Langdrægni leyfi- legra tækja af þessu tagi tak- markast að jafnaði við nokkra kilómetra. JOTA (JAMHOREE ON TIIE AIR) Alheimsmótið i loftinu gefur skátum um viða veröld tækifæri til að hittast árlega með aðstoð radióamatöra. Þótt ipegintil- gangurinn sé að efla alþjóðlegt bræðraþel, þá er JOTA lika hald- iö til að koma skátum i snertingu við radiótækni og starfsemi ama- töra. Hjálparsveitir skáta og aðrar björgunarsveitir þurfa sifellt á færum I'jarskiptamönnum að lialda, sem geta starfrækt og haldið við tækjabúnaði sveitanna. Kristján Benediktsson búinn aö ná sambandi. Hiö næsta honum á miöri mynd situr Vilhjálmur Þór Kjartansson, cn kringum þá er ungt áhugafólk. —Timamyndir: GE. Skátastúika hefur náö sambandi viö skáta erlendis, og þaö er rætt um málefni skáta. Til hægri á myndinni eru amatörar, Sigurbjörn Bjarnason og Kristján Benediktsson. HEFUR ÞÚ HUG Á AÐ VERÐA RADÍÓAMATÖR?

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.