Tíminn - 04.01.1974, Side 19

Tíminn - 04.01.1974, Side 19
Föstudagur 4. janúar 1974 TÍMINN 19 Arni Stefánsson, hinn snjalli markvörður Akureyrar, hefur nú skipt um félag. Það er ekki aö efa, að Arni mun styrkja Framliðiö mikiö, hann er einn af okkar beztu markvörðum, og hefur verið nálægt landsliðinu i knattspyrnu. Arni mun taka stöðu Þorbergs Atlasonar sem hefur átt við meiðsli að stríða sl. ár. A myndinni hér fyrir ofan, sést Arni verja i 1. deildarkeppninni á Laugardalsvellinum sl. sumar. Árni í Fram Frá Hdndknattleiksráði Reykjavíkur: — segir Ólafur Sigurvinsson, fyrirliði Eyjaliðsins í knattspyrnu — Viö veröum með alla okkar sterkustu leikmenn í sumar, sagöi Ólafur Sigurvinsson, fyrirliöi Vestmanna- eyjaliösins, þegar við höfðum samband viö hann í gær. Allir leik- menn liösins koma til Eyja núna upp úr ára- mótum, og það verður byrjaðaðæfa af fullum krafti í byrjun febrúar, en þá kemur þjálfarinn, Duncan McDowell, til landsins. Aðstaöan til æf inga er sú sama og áður. Það er búið að hreinsa öskuna af völlunum, og við mun- um byrja að æfa á malarvellinum. Síðan verður grasvöllurinn tekinn i notkun, þegar hann verður tilbúinn undir átökin. — Telurðu að Eyjaliðið veröi stcrkara i sumar, heidur en sl. sumar? — Það cr pottþétt, aö liðiö verður miklu sterkara. Alveg örugglega, þvi að nú verður miklu meiri regla á æfingum hjá okkur, og nú fáum viö að leikaáokkar heimavelli. Það var mikil óregla á æfingunum hjá okkur sl. sumar, og það var ekki nema von.þvi að leik- mennirnir voru búsettir á mörgum stööum, eins og t.d. Heykjavik, Keflavik, Þorláks- höfn og viðar. Ég cr mjög ánægður með að vera kominn heim, hef aldrei verið ánægðari, sagöi ólafur aö lok- um. Þaö er ckki aö efa, að Eyja- liðið verður sterkt næsta keppnistimabii. Liðið hefur mörgum skemmtiiegum knattspyrnumönnum á að skipa, og áhugann og viljann vantar ekki. SOS. Um áramótin fór fram á vegum Handknattleikssambands tslands mót i iþróttahúsinu i Hafnarfirði. Allir fjölmiðlar, útvarp, sjónvarp og dagblöðin gátu þessa móts, svo sem venja er til og sjálfsagt er. Hafa dagblööin fjallað allmikið um mótið i dálkum sinum, og kennir þar misjafnra grasa. A 31. siðu Morgunblaðsins laugardaginn 29. des. 1973 birtist grein iþróttafréttaritara blaðsins þar sem fjallað er um mót þetta, landsleiki tslands og U.S.A., sem fram fóru 28.12. s.l. og 2.1. s.l., og afskipti H.K.R.R. af hvoru tveggja. Hver heimildarmaður iþrótta- fréttaritara Morgunblaðsins er að þeirri furðulegu ritsmið, eða hvort hún er hans eigið hugarfóst- ur, skal ósagt látið. Hitt er aug- Ijóst, að slfk blaðaskrif sem þessi þjóna engum öðrum tilgangi en að reyna að spilla á milli fram- kvæmdaaðiljanna i málefnum handknattleiksins og skapa tor- tryggni, sem ekki er fyrir hendi og á ekki að vera. Er þessi framkoma iþrótta- fréttaritara Morgunblaðsins þeim mun furðulegri, þegar haft er i huga, að sama daginn birtist á skjá sjónvarpsins i iþróttaþætti þess, viðræðuþáttur, þar sem for- maður samtaka iþróttafrétta- manna, ásamt aðalfréttamanni iþróttamála i Morgunblaðinu, völdu hin háfleygustu og sterk- ustu orð um það, hve mikið og gott gagn iþróttafréttamenn fjöl- miðlanna gerðu iþróttahreyfing- unni i heild. Ekki skal hér úr þvi dregið, en þá verður lika slik starfsemi að byggjast á þvi, sem satt er og rétt og á heimildum frá þeim aðilum, er hlut eiga að máli hverju sinni og gæta fyllsta hlut- leysis. Annars er skotið yfir markið. En þar sem umrædd grein Morgunblaðsins er full af rang- færslum, samfara beinum ósann- ndum, er Handknattleiksráð Reykjavikur knúið til að fordæma slikan fréttaflutning, jafnframt dví að skýra frá eftirfarandi stað- •eyndum i máli þessu, sem m.a. jyggjast á bókunum i funda- lerðabók H.K.R.R.: . Varðandi ummæli greinar- höfundar um afstöðu H.K.R.R. til handknattleiksmótsins i Hafnarfirði og afgreiðslu mála á vegum ráðsins i sambandi við- mótið til H.S.I., segir svo i greininni: „H.S.I. fól H.K.R.R. og H.KR.H. að velja tvö lið frá hvoru umráðasvæði til þátttöku i mótinu og var ekki erfitt fyrir H.K.R.H. að benda strax á Hauka og F.H. Innan Hand- knattleiksráðs Reykjavikur urðu strax miklar deilur um hvaða lið ættu að taka þátt i mótinu. Nokkrir vildu að Fram og Valur yrðu meðal þátttak- enda sem Islands- og Reykja- vikurmeistarar. Aðrir vildú láta draga um þátttökulið frá Reykjavik og var það gert, þó aðeins úr 1. deildar liðunum og kom upp hlutur Vikings og t.R.” Vegna ofanritaðs vill H.K.R.R. taka fram eftirfar- andi: Upphaflega bauð H.S.t. aðeins félagi úr Reykjavik þátttöku i mótinu. Mótmælti H.K.R.R. þeirri tilhögun móts- ins að bæði Hafnarfjarðarliðin yrðu þátttakendur en aðeins 1 af 5 1. deildar liðum frá Reykjavik. Bauð H.S.t. þá tveim liðum þátttöku, og var þvi boði tekið, en rétt er að geta þess, að aðeins um l.deildarlið var að ræða samkvæmt óskum H.S.l. Alls engar sviptingar eða átök hafa átt sér stað innan H.K.R.R. vegna þessa máls. H.K.R.R. hefur staðið einhuga um þá aðferð að draga út þau tvö Reykjavikurfélög, er leyfð skyldi þátttaka i mótinu i Hafnarfirði. 2. Þá segir enn i grein Morgun- blaðsins: „Við þessi málalok gátu fulltrúar Fram og Vals ekki sætt sig, en sneru sér til IBR, sem hefur yfirumsjón með þeim iþróttaviðburðum, sem fram fara i Reykjavik.” Það er hreinn tiibúningur, að féiögin Fram og Valur hafi ekki viljað sætta sig við þessa aðferð um vai á þátttökufélögum i mótinu frá Reykjavík, og þvi einnig alger ósannindi, að Fram og Valur hafi I þessu sambandi snúiö sér til stjórnar íþróttabandalags Reykjavfkur til að fá breytingar gerðar á þessari tilhögun um val þátt- tökufélaga i mótinu. Sannleikurinn er hins vegar sá, að það var H.S.Í., sem skaut málinu til stjórnar Í.B.R. ekki vegna Fram og Vals.heldur til að reyna að knýja fram leik- kvöldið 4. janúar i Laugardals- höllinni fyrir landsleik við Bandarikin, leikkvöld, sem H.K.R.R. hafði ekki getað veitt H. S.t., þar sem ákveðið var, samkvæmt mótaskrá, leik- kvöld I I. deild karla. Er fjöl- miðlum kunnugt um afstöðu I. B.R. til málsins, og þarf ekki að orðlengja það frekar. 3. Þá eru það einnig ósannindi hjá Iþróttafréttaritara Morgun- blaðsins i umræddri grein, að H.S.Í. hafi fækkað Reykja- vikurfélögunum, i umræddu móti i Hafnarfirði, tii að gera Hafnarfjarðarmótið minna I sniðum. Sannleikurinn er hins vcgar sá, að H.S.Í. var búið að samþykkja, á stjórnarfundi áð- ánægðari.... Aldrei verið ur en málið kom til kasta Í.B.R., að fengist ekki leik- kvöldið 4. janúar i Laugardals- höllinni til landsleiksins við Bandarikja I i ðið, skyldi Reykjavikurfélögunum vikið úr Hafnarfjaröarmótinu, þrátt fyrir að áður væri búið að biöja þau og bjóða þeim þátttöku i mótinu.Getur svo hver sem er séð hverjir það eru, sem eru með hefndarráðstafanir, sbr. skrif Þjóðviljans 29.12. s.l. bls. 11. 4. Loks eru það helber ósannindi, að hver höndin sé upp á móti annarri innan H.K.R.R., svo sem áður er vitnað til og sýnt fram á. Þar rikir festa og cin- ing um framkvæmd handknatt- leiksmálanna á þeim grund- velli og samkvæmt þeirri stefnu, sem mörkuð var i byrj- un leikársins, meöal annars i náinni samvinnu og samstarfi við mótanefnd H.S.Í. H.K.R.R. vill svo, að þessu gefna tilefni og samkvæmt framansögðu, alveg sérstak- lega leggja áherzlu á það, aö sú stefnumótun var gerö i upphafi þessa leikárs i handknattleik, að ekki skyidi hagga eða trufla niðurröðun ieikja i isiandsmót- inu i handknattleik með því að skjóta inn á fastákveöin leik- kvöld leikjum við erlend liö eða landsieiki. Þessi stefnumótun og ákvörðun bitnaði m.a. fyrst á júgóslavnesku handknatt- leiksliði, er naut hér gistivin- áttu handknattleiksdeildar Ar- manns i nóvember s.l. Að baki þessari stefnumótun stóð móta- nefnd stjórnar H.S.t. Varð þvi að sjálfsögöu einnig sama regla og stefnumótun að gilda áfram. En þá gerist það furðuiega, að H.S.Í., sem stóð að fyrrgreind- um regium og stefnumótun, vill nú ekki hlita þessum reglum sjálft. H.K.R.R. er einhuga um það að gerast ekki þátttakandi i neinum slikum hráskinnaleik, heldur kappkosta að halda þær reglur, sem settar hafa verið, og fylgja þeim fram. Það skal að lokum tekið fram, að iþróttafréttaritarar dag: blaðanna hefðu fúslega getað fengið sannar og réttar fregnir Framhald á bls. 23 0 LAFUR SIGURVINS- ON... er bjartsýnn. Hann egir, að Eyjaliðið veröi íjög sterkt I surnar. HAFA SKAL ÞAÐ, ER SANNARA REYNIST

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.