Tíminn - 18.01.1974, Blaðsíða 1
Áætlunarstaðir:
Akranes - Blönduós
Flateyri - Gjögur
Hólmavík - Hvammstangi
Rif - Sigluf jörður
Stykkishólmur
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga kl. 1 til 3
Sími 40-102
Fljótandi frystihús á
loðnuvertíðina í vetur
— hólfrar aldar gömul lög hamla
því, að unnt sé að taka á leigu
erlend frystiskip
Fryst loðna er mun verömætari afurð en loðnumjöl. Afkastagetan ykist mjög, að margra Uliti, ef leigja
mætti erlend frystiskip, en hálfrar aldar gömul lög banna það. Tlmamynd (J.E.
SÁTTAFUNDUR í DAG
— svo virðist sem tilboð VSI sé lagt til
grundvallar samningaviðræðum
EINS og mörgum mun kunnugt,
fer það ekki eingöngu eftir þvi,
hve loðnugöngur eru stórar,
hversu mikið við veiðum á hverri
vertið, þvi það er aöeins tiltöiu-
lega lltill hluti þeirra, sem veidd-
ur er. Aflamagnið takmarkast
einnig af veðráttu, og ekki sizt
móttökuskilyröum I landi. Margir
hafa hugleitt, hvernig bæta megi
úr þessu, og i fyrra kom m.a. upp
hugmynd um að leig j a bræðslu-
skip til að auka afkastagetu við
vinnsluna. Nú í vetur hafa komiö
upp hugmyndir um að taka á
leigu frystiskip, með þaö fyrir
augum að fá þannig færanlega
frystigetu, sem myndi væntan-
lega auka mjög gæði hráefnisins,
og vinnslugetan yrði meiri.
Blaðið hafði I gær samband við
Steindór Gislason, sem undanfar-
ið hefur staðið i þvi að fá leyfi
stjórnvalda fyrir þvi að taka sllkt
frystiskip á leigu. Steindór, sem
starfar hjá Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins, sagðist hafa feng-
iö þessa hugmynd, þegar hann,
ásamt fleiri, hafa verið að velta
þvi fyrir sér, hvernig nýta mætti
loðnuna meira til manneldis.
Hann leitaði fyrir sér erlendis
og fann að lokum eitt slikt 1400
lesta skip á Spáni, sem fáanlegt
var til leigu um skemmri tima og
á mjög góðum kjörum. Skipiö á
að geta f ryst nær 60 lestir á sólar-
hring, sem er álika og frystigeta
stærstu frystihúsanna hér, en
mest munu þau geta fryst um 80
lestir.
Sagði Steindór, að sér virtist
þetta mjög hagstæður möguleiki
til að frysta loönu með tilliti til
stuttrar vertiðar og takmarkaðr-
ar f rystigetu. Ennfremur bæri að
hafa það i huga, að unnt væri aö
frysta stöðugt ferskt og gott hrá-
efni, og færa þessa löndunarað-
stöðu eftir þvi, hvar mest væri
þörf fyrir hana hverju sinni.
Steindór sagðist þvi næst hafa
fengið til liðs við sig verkfræðing
til að kanna heimild til leigu á
sliku skipi. Leituðu þeir til
sjávarútvegsráðuneytisins, sem
treystist ekki til að veita heimild-
ina, vegna andstöðu ákveðinna
söluaðila, og ennfremur vegna
þess, aö i gildi eru 52 ára gömul
lög, þ.e. lög um fiskveiðar og fisk-
verkun i islenzkri lögsögu frá
1922. Þar segir m.a, að erlendum
skipum sé óheimilt að verka fisk
innan lögsögunnar.
Steindór sagði að lokum, að sér
f^ndist nauðsynl að endurskoða
þessi lög, svo unnt yrði að nýta
betur hráefnið, og hægt væri að fá
nóg af erlendum frystiskipum
leigð á hagstæðum kjörum, þar
sem mörg útgerðarfélög gætu
ekki gert út skip sin, vegna hins
gifurlega verðs á eldsneyti viða
um heim.
Blaöið hafði samband við Jón
Arnalds, ráðuneytisstjóra i
sjávarútvegsráðuneytinu, til að
afla frekari upplýsinga um þetta
mál. Sagði hann, að fyrst og
fremst hefðu það verið lögin, sem
stóðu i vegi fyrir þvi, að leyfið var
veitt. Unnt hefði verið að setja
bráöabirgðalög, sem hefðu siöan
þurft staðfestingar Alþingis, en
það væri mjög viðkvæmt mál, að
veita erlendu fjármagni inn i
landið, einkum ef arðurinn. þ.e.
leigan, færi út úr landinu, jafnvel
þótt hún væri litil, eins og I þessu
tilfelli.
Hann sagöi ennfremur, að
ráðuneytið hefði beðið nokkra að-
ila um óformlega umsögn varö-
andi þetta mál, og ýmsir stórir
hagsmunaaðilar hefðu veriö
þessu andvigir. S.t.S. hefði veriö
þessu meðmælt, en Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna andvig, þótt
ekki lægi það fyrir formlega.
Blaðið hefur einnig fregnað, að
Félag islenzkra fiskimjölsfram-
leiðenda hafi verið á móti þessu
vegna grundvallarsjónarmiða.
Ingólfur Stefánsson, frkvstj.
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins, var einn aíþeim, sem
spurðir voru álits, og sagðist hann
hafa veriö þessu meðmæltur.
Raunar hefði hann, ásamt öðrum
stofnað hlutafélag til kaupa á
svipuðu skipi árið 1969, meö það i
huga að frysta sild til beitu og fyr-
ir niðursuðu. Það hefði á sinum
tima verið kveðið niður, þótt þá
lægju fyrir upplýsingar frá mörg-
um þjóðum, um að varla væri
hugsanlegt að tapa á þessum
skipum.
1 viðtalinu viö Jón Arnalds kom
það fram, að hann taldi þetta
vissulega allrar athygli vert út af
Framhald á bls. 8.
Sáttafundur var I gær með vinnu-
veitendum og fulltrúum A.S.t.
Hófst hann klukkan tvö og lauk
laust fyrir kvöldmat. Samkomu-
lag varð um það á fundinum aö
skýra ekki frá gangi mála, og
ennfremur að segja ekki frá inni-
haldi tilboðs vinnuveitenda.
Næsti fundur veröur klukkan tvö i
dag, en fyrir hádegi verða undir-
nefndir á fundum.
Þótt enn hafi ekki veriö skýrt
opinberlega frá tilboði Vinnu-
veitendasambandsins, hefur
ýmislegt kvisazt um innihald
þess. T.d. að laun frá 27 og upp i
34 þúsund krónur á mánuði eigi að
hækka um 4%, en önnur laun um
1000 krónur. Enn fremur mun
vera gert áð fyrir þvi, að laun
hækki um 3% 1. marz 1975. Laun
þessi eiga að vera grunnlaun og
kaupgreiðsluvisitalan að færast i
100.
Öiafur Hannibalsson, skrif-
stofustjóri A.S.I., sagöi i viðtali
viö blaðið i fyrradag, aö tilboöinu
fylgdi listi með ýmsum skilyrð-
um, sem raunar geröi tilboöið
neikvætt.
Nokkur þessara skilyröa munu
vera, að kaupgreiðsluvisitaian
verði endurskoðuð til þess að
draga út vixlhækkunum verðlags
og kaupgjalds, krafan um aö 15%
kauphækkun á alla fiskvinnslu-
taxta falli niður, krafan um
breytingu á stjórn lifeyrissjóð-
anna falli niður, reglur um vinnu-
viku verði óbreyttar, að samið
verði um tryggingarfjárhæð og
greiðslur i veikindaforföllum aö
tiilögu Vinnuveitendasambands-
ins og að krafan um framlag at-
vinnurekenda i fræðslusjóð
verkalýðsfélaganna falli niður.
Enn fremur að tryggt verði, aö
vinnuveitendur fái réttláta af-
greiðslu verðlagsmála, að
rammasamningar verði gerðir
um vakta- og ákvæðisvinnu.
Nokkur önnur skilyrði munu vera
fram sett, m.a. að samningar
gildi til 1. nóvember 1976.
A.S.l. hefur tekið þessu tilboði
iila, og m.a. sagði Snorri Jónsson,
forseti A.S.t., eftir að tilboðiö
kom fram, að það hefði ekki þau
áhrif, að fallið yrði frá þeirri
ákvöröun að leita heimilda til
vinnustöðvunar, nema siður væri.
Svo virðist þó sem tilboö þetta sé
grundvöllur frekari viðræöna, þvi
fundir hafa verið nokkuð reglu-
lega siðan það kom fram, og eins
og áður sagði, verður sáttafundur
klukkan tvö i dag.
— hs
FA 1200 UTLENDINGAR KOSNINGARÉTT HÉR?
t HAUST samþykkti Norður-
landaráð að mæla með þvi við
rikisstjórnir Norðurlanda, að
þær létu hið fyrsta kanna
möguleika á þvi, að Norður-
landabúar hljóti kostningarétt
og kjörgengi til bæjar- og
sveitarstjórnakosninga, þar
sem þeir dveljast á Norður-
löndum, þótt þeir hafi ekki
rikisfang i þvi landi.
Finnar áttu hugmyndina að
þessu, og ef til kæmi, hefði
gagnkvæmur kosningaréttur
mest að segja fyrir 200.000
Finna, sem búa i Sviþjóð.
Samþykktin var gerð með 57
atkvæðum, en enginn var á
móti, hins vegar sátu niu hjá,
þ.á m. tveir islendingar, en
hinir fulltrúarnir héðan i
Norðurlandaráði greiddu at-
kvæði með tillögunni.
tslandsdeild Norðurlanda-
ráðs visaði siðan málinu til
umsagnar félagsmálaráðu-
neytisins. Að sögn Guðmundar
Karls Jónssonar fulltrúa þar
er litið af málinu aö frétta.
Breyta þarf lögum, ef Norður-
landabúar búsettir hér eiga að
fá kosningarétt til bæjar- og
sveitarstjórna. Sennilega eru
a.m.k. 1200 manns frá hinum
Norðurlöndunum búsettir hér
á landi, sem hugsanlega
myndu þá fá kosningarétt til
bæjar- og sveitarstjórna, ef úr
þessu verður.
SJ
geðklofar utan sjúkrahúsa á íslandi — sjá opnu