Tíminn - 18.01.1974, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Föstudagur 18. janúar 1974.
Ljóniö (Þórunn Magnúsdóttir) vekur mikla káttnu meö skritnum uppátækjum
trönurnar hjá listamanninum (Hákon Waage), meðan hann snýr sér undan.
Barn úr salnum (Einar Sveinn Armannsson) og sætavisan (Ingunn Jensdóttir) togast á um sögumann
inn (Ævar Kvaran).
„Köttur úti í mýri"
— Við erum öll sam-
mála um það leikararn-
ir, að þetta sé lang-
skemmtilegasta barna-
leikrit, sem hér hefur
verið sett á svið, sagði
Gisli Alfreðsson leik-
stjóri, þegar við spurð-
um hann um nýtt barna-
leikrit Þjóðleikhússins,
,,Köttur úti i mýri”. —
Það er svo lifandi og
skemmtilegt, að við höf-
um öll haft mikla
ánægju af þvi að vinna
við það.
Andrés Indriðason, dagskrár-
maður hjá sjónvarpinu, hefur
skrifað leikritið fyrir Þjóðleik-
húsið. Þetta er i fyrsta skipti sem
Andrés skrifar fyrir leiksvið, en
hann hefur áður skrifað fyrir
Stundina okkar, auk þess sem
hann hefur stjórnað upptöku leik-
rita og þátta fyrir sjónvarpið.
— I byrjun leiksins er börnun-
um kynntur heimur leikhússins,
sagði Andrés. Þeim er sýnt,
hvernig ljósunum er beitt,
hvernig ýmis leiktjöld koma nið-
ur úr loftinu, og aðrar starfsað-
ferðir, sem viðhafðar eru i leik-
húsi.
— Börn utan úr sal eru einnig
þátttakendur i leiknum. Sögu-
maður, sem Ævar Kvaran leikur,
og barn utan úr sal leiða leikinn
til að byrja með og láta hann ger-
ast eftir sinu höfði. Þau skapa
ýmsar sögupersónur, þar á meðal
konung, sem hefur skopskyn i
skritnara lagi, og prinsessu, sem
er mun sjálfstæðari en gengur og
gerist með prinsessur. Einnig fá
börnin i salnum að láta álit sitt i
Aslákur ráðgjafi konungs (Sigurður Skúlason) og konungur (Flosi ólafsson) hafa uppi ráöagerðir um
að gifta prinsessuná (Anna Kristin Arngrimsdóttir), en prinsessan, sem er sjálfstæðari en gengur og ger>
ist með prinsessur, vill pipra og tekur þvi til sinna ráöa.
ljós og koma með tillögur um
gang leiksins.
En svo koma tveir bófar til sög-
unnar, sem taka leikinn i sinar
hendur og ráða alveg ferðinni,
þannig að sögumaðurinn missir
tökin á leiknum. Það er ekki fyrr
en i lok leikritsins, sem sögu-
manni tekst aftur að ná valdi á at-
burðarásinni og reka endahnút-
inn á verkið.
— Hefurðu fylgzt með æfingum
frá þvi að þær hófust, Andrés?
— Ekki get ég sagt það. Það er
ekki fyrr en núna undir lokin, sem
ég hef fylgzt með.
— Hefurðu þurft að breyta ein-
hverju i handritinu?
— Nei, engu, en hnyttin tilsvör,
sem oltið hafa upp úr leikurunum,
hafa verið látin standa.
— Finnst þér betra að skrifa
fyrir börn en fullorðna?
— Börn eru betri viðtakendur.
Það eru þeir Jón Júliusson og
Þórhallur Sigurðsson, sem leika
bófana. Aðrir helztu leikendur
eru Anna Kristin Arngrimsdóttir,
Bófarnir tveir (Jón Júliusson og Þórhallur Sigurösson) eru heldur
betur kampakátir. Það hiakkar i þeim, þvi þeir hafa leikiö á lögguna og
eru nú að gera áætlun um að ræna prinsessunni raunamæddu, en þar
keyptu þeir köttinn I sekknum.