Tíminn - 18.01.1974, Side 10
10
TÍMINN
Föstudagur 18. janúar 1974.
Hallveig Fróðadóttir
ar, en bíður hér, unz
Ilallveig Fróöadóttir hefur flutt björg I bú I sem næst fjóröung aldar. Nú á skipifi senn aö fara til Spánar
eftir allt volkiö á tslandsmiöum.
þér getíð veríð
orugg...
sé það
Westinghouse
Westinghouse uppþvottavélin er fáanleg
til innbyggingar, fríttstandandi og med
toppbprði.
Tekur inn kalt vatn, er meö
2000 w elementi og hitar í
í 85° ( dauöhreinsar).
Innbyggð sorpkvörn og
öryggisrofi i hurð.
Þvær frá 8 manna borðhaldi
með Ijósstýrðu vinnslukerfi.
Er ódýrasta uppþvottavélin
á markaðinum.
ÚTSÖLUSTAÐIR
Í REYKJAVÍK
LIVERPOOL
DOMUS
DRÁTTARVÉLAR HF
KAUPFELÖGIN
VIÐA UM LAND
Samband islenzkra samvinnufélaga
VÉLADEILD
Ármúla 3 Reykjavik simi 38900
seld til Spán-
bankaábyrgð
hefur borizt
BÆJARÚTGERÐ Reykjavíkur
hefur selt útgeröarfyrirtæki í
Kadiz á Spáni togarann Hallveigu
Fróðadóttur á nokkuð yfir hálfa
fimmtu milljón króna. Hafa
samningar um þetta verið undir-
ritaðir af báöum aðilum. Sam-
dægurs og samningar voru undir-
ritaöir af Marteini Jónassyni for-
stjóra, 7. janúar, var kaupendum
veitt innflutningsleyfi hjá
spænska viðskiptamálaráöuneyt-
inu.
Söluverðið er miðaö við, að
skipinu verði skilað i spænska
höfn, og var ráögert, að sama á-
höfn og sækja skyldi hinn nýja
Ingólf Arnarson til Spánar, sigldi
Hallveigu Fróðadóttur. Af þvi
varð þó ekki, þar eð óafturkallan-
leg bankaábyrgð á verði Hall-
veigar haföi ekki borizt Land-
bankanum i tæka tiö, og hefur
raunar ekki borizt enn. Vikusigl-
ing er til Spánar, og getur brottför
Hallveigar enn tafizt, ef frekari
dráttur verður á, að gengið verði
frá bankaábyrgöinni.
Ahöfnin, sem sækir Ingólf
Arnarson, fór flugleiðis til Spánar
á laugardaginn var, og mun skip-
ið leggja af staö til Islands nú I
vikulokin eöa um helgina.
Hestur í verð-
laun fyrir beztu
ritgerðina
NOKKRIR félagsmenn i
hestamannafélaginu Fáki.sem
hafa aðsetur í Viðidal viö
Ileykjavik, hafa ákveðið aö
gefa reiöhest i verölaun fyrir
beztu skólaritgeröina um is-
lenzka reiöhestinn fyrr og nú.
Mun Fákur sjá um hiröingu
hestsins fram á næsta haust.
Eru þetta stærstu verölaun,
sem veitthafaveriö I slikri rit-
geröarsamkeppni, en verð
hests er núna milli 50 og 80
þúsund.
Sagði Sveinn K. Sveinsson,
formaður Fáks, á blaða-
mannafundi, sem stjórnin
hélt, að ekki væri búið að velja
hestinn endanlega, en þrir
menn tóku að sér að velja
hestinn, sem verður 5-6 vetra.
Sagði Sveinn, að þessi rit-
gerðarkeppni væri i sam-
vinnu við fræðsluyfirvöld og
æskuiýðsráð.
Fá nemendur tvær
samstæðar kennslustundir til
þess að skrifa ritgerðina i
skólanum. Þeir mega undir-
búa sig með öflun heimilda og
skipulagningu efnisins, en
heimavinna aö ritgerðinni um
fram það er ekki leyfð og alls
ekki heimilt að koma með
skrifaða ritgerð i skólann.
Það verða islenzkukennar-
ar, sem velja beztu ritgerðirn-
ar (1-3 frá hverri bekkjar-
deild), og senda þær siðan til
dómnefndar i fræðsluskrif-
stofu Reykjavikur fyrir 15.
febrúar 1974. Það verður nafn-
leynd á þeim ritgerðum, er
til úrslita koma, en nafn
höfundar og skóla fylgir i lok-
uðu umslagi, er ber sama auð-
kenni og ritgerðin. Dómnefnd-
ina skipa Arni Þórðarson fyrir
Fák, Hinrik Bjarnason fyrir
æskulýösráð, en fræðsluráð á
eftir áð tilnefna einn mann.
Sagði Sveinn K. Sveinsson
að búið væri að grafa grunninn
að hinu nýja félagsheimili
Fáks. Verður húsið reist i
áföngum, og vonast er til að
fyrstu áfanginn risi i vetur.
Sagði Sveinn, að hesta-
mannafélagið Fákur væri ekki
i iþróttasambandinu, en þeir
hefðu hug á að sækja um þátt-
töku, gegnum t.B.R.
Tamningastöð Fáks tók til
starfa upp úr áramótunum, og
eru þar tamdir fyrst og fremst
folar. Einn tamningamaður er
nú starfandi hjá Fák. Skafti
Sveinbjörnsson úr Skagafirði,
en i marz mun Ragnar
Hinriksson einnig taka að sér
tamningu fyrir Fák.
Reiðskóli Fáks tekur til
starfa um mánaðamótin
febrúar og marz. Er hvert
námskeið hálfan mánuð i einu.
I mai flytur skólinn upp i
Slatvik og mun starfa þar i
samvinnu við æskulýðsráð.
— kr.