Tíminn - 18.01.1974, Síða 11

Tíminn - 18.01.1974, Síða 11
Föstudagur 18. janúar 1974. TÍMINN 11 Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Heigason, Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðaistræti 7, simi 26500 — afgreiðsiusimi 12323 — aug- ' lýsingasími 19523. Askriftagjald 360 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 22 kr. eintakið. Blaðaprent h.f. V'" —■■■■- ■ .. y Ófrelsi og kúgun Sovézk yfirvöld gera nú harða hrið að nóbels- höfundinum Alexander Solzhenitsyn. Þessi mikilhæfi rithöfundur fær ekki bókmenntaverk sin útgefin i Sovétrikjunum, og hann fékk ekki fararleyfi til að veita viðtöku nóbelsverðlaun- unum i bókmenntum. Kommúnistaflokkurinn, og útibú hans, hafa stjórn á allri útgáfustarfsemi i Sovétrikjunum. Vegna banns á útgáfu bóka Solzhenitsyns i Sovétrikjunum hefur hann orðið að smygla handritum sinum til annarra landa. Nýjasta bók hans, „Archipelag Gulag”, er með þeim hætti nýkomin út i Paris. Hið opinbera timarit rithöfundasamtaka Sovétrikjanna, „Literaturnaja Gazeta”, hefur nú bætzt i hóp þeirra fjölmiðla i Sovétrikjun- um, sem fordæma nóbelsskáldið og snillinginn Solzhenitsyn. Þar er Solzhenitsyn kallaður óvinur Sovétrikjanna og honum hótað brottvis- un úr föðurlandi sinu. Þá er hann sagður i and- legu samfélagi við landráðamenn, og að hann berjist gegn hugmyndum sósialismans. Solzhenitsyn hefur sætt margvislegum of- sóknum lögregluyfirvalda undanfarin misseri og óeinkennisklæddir lögreglumenn standa vörð um hús hans dag og nótt. Solzhenitsyn gagnrýnir vissulega hið ómannúðlega kerfi kommúnismans i Sovét- rikjunum. Það gerir hann ekki af hatri, heldur samúð með þjóð sinni, sem ekki nýtur þess, sem menn i lýðræðisrikjum á Vesturlöndum kalla sjálfsögð, almenn.. mannréttindi. Meðal almennra mannréttinda er málfrelsið, og tveir af þáttum þess er ritfrelsi og útgáfufrelsi. Solzhenitsyn hefur verið sviptur hvoru tveggja, vegna þess að hann skrifar ekki eins og valda- kerfi kommúnismans býður heldur krefst breytinga á þvi ómannúðlega kerfi og meiri réttinda til handa fólkinu. Annar mikilhæfur maður, kjarneðlisfræðing- urinn Zacharoff, sætir nú einnig ofsóknum af hálfu sovézkra yfirvalda vegna sömu kröfu, þ.e. aukinna mannréttinda til handa þjóðum og einstaklingum i Sovétrikjunum. Sovézk yfirvöld telja þessa gagnrýni á valda- kerfi kommúnismans algerlega óraunhæfa, að þvi er bezt verður skilið, og kröfum um aukin mannréttindi fóksins i Sovétrikjunum likir hún við landsráðastarfsemi. Allir, sem kynnthafa sér sovézka þjóðfélags- hætt: réttindi fólks þar til að notfæra sér rit- frelsi, málfrelsi og fundafrelsi eins og hugur þess stendur til, vita, að þessi rettindi eru þar mjög takmörkuð, svo ekki sé meira sagt. Upp- lýsingastreymi til Sovétrikjanna er einnig mjög takmarkað og fer i gegnum margar siur valdakerfisins. Hörð andstaða sovézkra yfir- valda gegn tillögum um frjálsara upplýsinga- streymi sem þátt i bættri sambúð og samskipt- um Vestur- og Austur-Evrópu sýna, að þau ætla sér að viðhalda þessu kerfi. Og viðbrögð þess gegn þeim Solzhenitsyn og Zacharoff sýna einmitt, að gagnrýni þeirra á það er fullkom- lega réttmæt. ERLENT YFIRLIT Japanir óvinsælir í Suðaustur- Asíu Sögulegt ferðalag Tanaka forsætisráðherro Tanaka og Brézjnef — Tanaka fékk góöar móttökur. þegar hann heimsótti Sovétrikin á siöastliönu ári. SIÐASTLIÐINN miðviku- dag lauk Kakuei Tanaka for- sætisráðherra ferðalagi sinu til fimm rikja i Suðaustur- Asiu. För sina hóf hann 6. þ.m. og voru Filippseyjar fyrsta rikið, sem hann heimsótti. Siðar hélt hann til Thailands, Singapore og Malasiu. Ferð- inni lauk hann svo i Indónesiu. Erindi hans var að ræða við forustumenn umræddra landa um efnahagslega samvinnu og viðskipti þeirra og Japans. Tanaka bauð þeim aukna efnahagslega aðstoð, sem yrði fyrst og fremst fólgin i fjár- festingu japanskra fyrirtækja i viðkomandi löndum. Þannig gætu Japanir lagt bæði fram fjármagn og þekkingu til að treysta efnahagslegar fram- farir þeirra. I kjölfarið ætti svo að koma aukin viðskipti og verzlun milli þeirra og Japans. Einkum lagði Tanaka áherzlu á, að Japan héldi áfram að fá hráefni, sem þeir höfðu fengið frá þessum löndum, og yrðu gerðir sér- stakir samningar til að tryggja það. A móti gæti komið, að Japanir tryggðu þeim hagkvæm viðskipti á öðrum sviðum. UMRÆDDU ferðalagi Tanaka hefur verið veitt sér- stök athygli sökum þess, að talsvert hefur verið rætt um að Japanir tækju að sér vaxandi forustu i málum Suð- austur-Asiu, eöa i sama hlut- falli og Bandarikjamenn drægju sig þar i hlé. Bent hefur verið á, að Japanir hefðu bæði fjármagn og þekkingu til þess að geta gerzt forustuþjóð i þessum heims- hluta. Opinberlega hafa Japanir þó talið rétt að fara gætilega i þessum efnum og láta sem minnst á þvi bera, að þeir litu á sig sem sérstaka forustuþjóð i Suðaustur-Asiu. Þetta stafar m.a. af þvi, að þeir unnu sér litlar vinsældir, þegar þeir lögðu löndin þar undir sig i siðari heims- styrjöldinni. Hins vegar hafa japönsk fyrirtæki fjárfest mikið i þessum löndum á siðari árum og keypt af þeim hraefni i vaxandi mæli. Athyglin, sem beindist að ferðalagi Tanaka, stafaði ekki sizt af þvi, að þetta var i fyrsta sinn, sem helzti forustumaður Japans heimsótti þessi lönd i þeim tilgangi að ræða við forustumenn þeirra um efna- hagsmál. Það þótti benda til þess, að Japanir ætluðu sér nú aukinn hlut i málum Suðaustur-Asiu og væru orðnir óragir við að láta það ótvirætt i ljós. ÞAÐ ER ekki ofsagt, að feröalag Tanaka hafi orðiö hið sögulegasta og orðið blaða- mönnum fréttnæmt efni. Viðræður hans i Manila við Marcos forseta og Romulo utanrikisráðherra leiddu i ljós mikinn ágreining milli Filippseyinga og Japana. Tanaka hét Filippseyingum góðum stuðningi til að efla landbUnað þeirra, sem gæti haft mikla framtiðarmögu- leika, þar sem matvæli skorti i heiminum. Marcos og Romulo svöruðu með þvi að leggja fyrir Tanaka áætlun um eins konar Marshall-áætlun um efnahagsaðstoð við Suðaustur- Asiu og leggðu Japanir fram fé til hennar á likum grund- velli og Bandarikin til Mars- halláætlunarinnar fyrir Evrópu á sinum tima. Þessu tók Tanaka fálega. Þá lagði Marcos fyrir Tanaka tillögu um, að boðið yrði til ráðstefnu allra Asiurikja, þar sem rætt yrði um stjórnmálalegt samstarf til að tryggja frið i álfunni. Þessari tillögu tók Tanaka einnig fálega. Verst féll honum þó sU yfirlýsing stjórnar Filippseyja, að hUn mvndi bráðlega tilkynna, að landhelgi Filippseyja næði til allra sunda milli eyjanna, ásamt stóru hafsvæði um- hverfis þær. Útlendingum yrði ekki leyfðar fiskveiðar á þessu svæði, án leyfis, og heldur ekki siglingar um sundin, nema þeir sættu sig við eftirlit stjórnarvalda Filippseyja. Þetta siðastnefnda á m.a. eftir að verða mikið deilumál á hafréttarráðstefnunni, þvi að stórveldin og ýmsar siglinga- þjóðir krefjast, að siglingar verði alveg frjálsar um ýms þessara sunda, eins og verið hefur til þessa. Japanir eru og mjög andvigir stækkaðri fiskveiðiiögsögu F'ilippseyja, þar sem þeir hafa aukið mjög veiðar sinar við Filippseyjar að undanförnu. Það bætti svo ekki Ur skák, að Romulo utanrikisráðherra, sem er einn af þekktustu stjórnmálamönnum i Asiu og var eitt sinn forseti allsherjar- þings Sameinuðu þjóðanna, lét svo ummælt i sambandi við heimsókn Tanaka, að vont gæti verið að bUa við erlend hernaðarleg yfirráð, en erlend efnahagsleg yfirráð gætu þó reynzt enn verri. Engum gat dulizt, hvað Romulo átti við með þessum orðum sinum. ÞÓTT Tanaka fengi þannig heldur andstæðar undirtektir i Manila, tók ekki betra við, þegar hann kom til Bangkok, höfuðborgar Thailands. Þar efndu stUdentar til mikilla mótmæla i tilefni af komu hans og stjórnarvöld munu hafa tekið máli hans likt og i Manila. Mótmæli stUdenta beindust einnig gegn sendi- herra Bandarikjanna, Villiam R. Kintner, en þeir kröfðust, að hann yrði kvaddur heim, þar sem hann hefði eitt sinn verið starfsmaður C.I.A. bandarisku leyniþjónust- unnar. C.I.A. býr við miklar óvinsældir i Thailandi um þessar mundir sökum þess, að sannazt hefur á einn starfs- mann hennar, að hann hafi falsað bréf, sem sagt var vera frá kunnum skæruliða- foringja. Það reyndist sérstaklega óheppilegt fyrir Tanaka, að þetta mál skyldi vera á dagskrá á sama tima og hann kom til Bangkok, og stUdentarnir skyldu tengjs það við heimsókn hans. Þegai Tanaka kom til Kuala Lumpur, höfuðborgai Malasiu, var hins vegar ekki hægt að kenna C.I.A. um, af stUdentar þar tóku honum engu betur en i Bangkok. Þeir efndu þar til meiriháttar mótmælagöngu og mótmæla- funda, enda þótt slikt hefði verið bannað af stjórnar- völdunum. Langmestar urðu þó óeirðir i Jakarta, höfuðborg Indonesiu. Þar efndu stUdentar til svo mikilla óeirða, að lögreglan réði ekki við neitt, og varð herinn að skerast i leikinn og féllu um 10 manns i átökunum. Þar endurtóku þessar óeirðir sig i þrjá daga. Skólum var lokað vegna þeirra og margar aðrar öryggisráðstafanir gerðar. Þegar á leið, beindust þær ekki aðeins gegn Japönum, heldur einnig gegn Kinverjum og stjórn Indónesiu. Tanaka var eins konar fangi i forsetahöllinni meðan hann dvaldi i Jakarta og varð ekkert Ur þvi, að hann heimsækti verksmiðjur og menntastofnanir, eins og fyrirhugað hafði verið. Heimsókn hans þangað fékk þvi mæsta ömurlegan blæ. Singapore var eina rikið, þar sem Tanaka var vel takið. ÞETTA FERÐALAG Tanaka leiddi það ótvirætt i ljós, að Japanir njóta litilla vinsælda i umræddum löndum. Almenningur þar er i þeirri trU, að Japanir hafi hagnazt óeðlilega á skiptum við þau, þar sem þeir hafi keypt hráefni fyrir litið verð og selt i staðinn iðnaðarvörur dýru verði. Þá stafi efna- hagslegu sjálfstæði landanna vaxandi hætta af fjárfestingu japanskra einkafyrirtækja. Svipuð andstaða, sem hér kemur fram gegn Japönum, beinist einnig gegn Kinverjum en þó ekki enn i eins rikum mæli. Segja má, að hUn sé þáttur i viðleitni þróunarland- anna til að rétta hlut þeirra i óhagstæðum skiptum við iðnaðarrikin. Þ.Þ. - - - - - ----- -TK.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.