Tíminn - 18.01.1974, Page 21

Tíminn - 18.01.1974, Page 21
Föstudagur 18. janúar 1974. TÍMINN 21 Göppingen vann Sviss — en tapaði fyrir Rússlandi í úrslitaleik Göppingenliðið náði mjög góð- um árangri i hraðkeppnismóti i Freiburg sl. sunnudag. Göppingen tók þátt i fjögurra liða keppni, þar sem iandslið Hússa og Svisslendinga léku, ásamt Göppingen og úrvalsliði Suður-Þýzkalands. Geir og félagar lentu i öðru sæti i keppninni, næst á eftir lands- liði Rússa. Leikir Göppingen, sem stóðu yfir i 2x20 min. fóru þannig: Göppingen—Sviss 6:5 Göppingen—Úrval 6:6 Göppingen—Kússland 8:9 Geir skoraði þrjú mörk gegn Sviss, tvö mörk gegn úrvalinu og einnig tvö gegn Rússum. STEFAN ÞÓRÐARSON... hinn eldfljóti leikmaður Fram, sést hér brjótast framhjá Hermanni Gunnarssyni (2) og ólafi Jóns- syni. Stefán lék Ólaf oft grátt I leiknum. (Timamynd Róbert) FRAAAARAR í HAAA r Þeir léku sér að Islandsmeisturum Vals eins og köttur að mús og unnu 27:21 Björgvin Björgvinsson og Axel Axelsson, eða litli og stóri, áttu frábæran leik, þegar Framarar léku tslands- meistara Vals heldur grátt i Laugardalshöllinni á miöviku- dagskvöldið. Framliðið sannaöi þar, að það er okkar bezta félagslið — ekkert lið leikur betur en Framliðið, þegar það er fullskipað I ham. Framarar léku sér að hinni annáluðu vörn Vals, eins og köttur að mús —þeir Björgvin og Axel voru eins og kokkar sem hræðru i grautarpotti. Og hjálparkokkar þeirra voru ekki af verri endanum, nefni- lega hinn útsjónarsami Ingólfur óskarsson og hinn eldfljóti Stefán Þórðarson, sem þeir voru alltaf tilbúnir að hjálpa og bera mörk og mark- tækifæri í borö. Þessir tveir leikmenn léku nú aftur með Framliðinu eftir stutta fjar- veru, og þótti endurkoma þeirra takast frábærlega vel. Þá var varnarleikur Fram stórgóöur, og markvarzla Guðjóns Erlendssonar, var einnig góð. Valsmenn byrjuðu að sjálf- sögðu leikinn á þvi að láta mann taka Axel úr umferð. En Axel sleit sig lausan og opnaði leikinn með góðu marki. Þótt Axel væri tekinn úr umferð, skoruðu Framarar þrjú fyrstu mörkin. Ingólfur og Stefán kunnu svo sannar- lega að láta krók koma á móti bragði — þeir „krossuðu” skemmtilega fyrir framan miðvörö Valsmanna, Ólaf Jónsson, og hanríréð ekki við tvö góð skoi frá Ingóifi, sem sungu i Valsmarkinu. Bergur Guðnason skoraði fyrsta mark Vals úr vitakasti á 9. min. Stefán svaraði með góðu marki, og Valsmenn fóru nú aö sjá, að þeir Ingólfur og Stefán voru orðnir nokkuð ágengir. Þegar staðan var 4:1 fyrir Fram, hættu þeir að láta mann elta Axel. Axel fagnaði þvi að fá að leika lausum hala. Hann gaf stórglæsilega linu- sendingu á Björgvin, og staðan var orðin 2:5. Vals- mönnum tókst að jafna 5:5, og siðan 7:7 og 9:9. Staðan var 12:10 fyrir Fram i hálfleik. Framarar náðu sér heldur betur á strik i siðari hálfleik, þeir juku forskotið smátt og smátt, og um miðjan hálf- leikinn var staðan orðin 21:15. Stuttu siðar mátti sjá 25:18, og lokatölur leiksins urðu 27:21. Sigur Fram hefði getað orðið meiri, ef þeir hefðu ekki slakaðá undir lokin, en þá létu þeir þá Axel og Sigurberg hvila sig. Framliðið, sem lék nú með sina alla sterkustu leikmenn, átti frábæran leik. Liðið hefurá að skipa mjög góðum einstaklingum, sem vinna vel saman i vörn og sókn. Liðiö náði að leika bezta leik, sem islenzk félagslið hefur náð að sýna i vetur. Beztu menn liðsins voru þeir Björgvin, Axel, Ingólfur, Stefán og Guðjón. Þá áttu þeir Arnar, Pálmi, Pétur, Sigurbergur og Andrés góðan leik, sérstak- lega i vörninni, en vörn Fram- liðsins er mjög hreyfanleg. Mörk Fram skoruðu: Axel 8 (2 viti), Björgvin 7, Stefán 5, Ingólfur 4, Sigurbergur, Pétur og Andrés eitt hver. Valsliðið náði »ér aldrei á strik gegn hinni sierku vörn Framliðsins. Það eina skemmtilega við Valsliðið var hvað þeir Hermann Gunnars- son og Gunnsteinn Skúlason voru lagnir við að skora úr hornum. Þessir tveir leik- menn, ásamt Sigurhergi Si- gsteinssyni, eru okkar lang- beztu henamenn. Olafur Benediktsson, markvörður Vals, náði sér heldur ekki á strik, og var það engin furða, þvi að hvaða markvörður hefði ráðið við skotin, sem hann fékk á sig? Oll mörkin, sem Framarar skoruðu, voru óverjandi fyrir hvaða mark- vörð sem var. Mörk Vals i leiknum skoruðu: Gisli 5 (1 viti), Gunnsteinn 4, Hermann 4 (2 viti), Bergur 3 (3 viti), Ólafur 2, Jón K., Jón J. og Þorbjörn eitt hver. Ekki stóð á faðmlögum, stjaki og húkhljóðum i leikn- um, sem þeir Björn Kristjáns- son og Óli Ólsen dæmdu. Það var erfitt að dæma þenna leik, enda sterkir varnarleikmenn á ferðinni Þeir Björn og Óli stóðu sig mjög vel, og var alit annað að sjá til þeirra, heldur en dómaranna, sem dæmdu fyrri leikinn, leik Viking og Þórs. Þann leik dæmdu nýliðarnir Kjartan Steinback og Kristján 0. Ingibergsson. Þeir voru ekki nógu ákv -SOS. AXEL MARK- HÆSTUR... Axel Axelsson I Fram er nú markhæstur eftir fyrri umferðina I 1. deildar keppninni i handknattlcik. Það telst mjög gott hjá Axeli, þvi að hann hefur veriö tekinn úr umferð i nær öllum leikjum tslands- mótsins: Axel Axelsson, Fram 49 (20 víti) Einar Magnússon Vik. 47 (18 vlti) Viöar Símonarson FH 45 ( 6 vítí) Gunnar Einarsson FH 43(14 vfti) Höröur Sigmarsson Haukum 42 (11 vlti) Agúst Svavarsson 1R 38 ( 1 víti) Sigtryggur Guðlaugsson Þór 38 (22 viti) AJAX VANN Meistaraliðið Ajax vann stórsigur ylir A(' Milan i „stórbikarkeppni” Evrópu á miðvikudagskv öldið. Leikurinn, sém fór fram i Amsterdam i Hollandi, lauk 6:0, Fyrri lciknum, scm fór Iram i Milanóá italiu, lauk 1:0 fyrir AC Milan. Ajax vann þvi samanlagt 6:1. CITY OG NORWICH í UNDAN- ÚRSLIT Manchestcr C'ity tryggði sér rétt til að leika i 4-liða úrslit- um ensku deildarbikarkeppn- innar. C'ity vann Coventry 4:2 á miðvikudagskvöldið i spenn- andi leik, sem fór fram i j Manchestcr. Brian Alderson skoraöi fyrsta mark leiksins fyrir C'oventry, en Mick Summerhee jafnaði. Coventry náði aftur forustu, þegar Alderson hætti marki við. Siðan komst C'ity-liðið á skrið, i.ee skoraði tvivegis og Law einu sinni. Norwich tryggði sér einnig rétt til að leika i undanúrslit- um deildarbikarkeppninnar, þegar liðið sigraöi Lundúna- liðið Millvall 2:1 á miðviku- dagskvöldið. Norwich, sem lék til úrslita gegn Tottenham i deildabikarkeppninni sl. keppnistimabil, leikur gegn Úlfunum i 4-liða úrslitunum, og Manchester City mætir Plymouth. Geysileg barótta milli þriggja liða í suður-deildinni. Tvö lið úr suður-deildinni og tvö úr norður-deildinni berjast um Vestur-Þýzkalandsmeistaratitilinn Geir Hallsteinsson og félagar lians i Göppingen, eru nú byrjaðir að berjast fyrir sæti i úrslitunum um Vestur-Þýzka- landsmeistaratitilinn i hand- knattleik. Keppnin er geysi- lega hörð i suður-deildinni, en þar berjast þrjú lið um sætin tvö i lokakeppninni. Það eru Göppingen. Rinteim og lluttenberg. Um siðustu helgi vann Göppingen Dietzenbach 22:19 i gifurlegum slagsmála- leik. Göppingen komst i 0:4 i byrjun, og þá hófust slagsmál- in. Ahorfendur ætluðu vitlaus- ir að verða, og I hvert sinn sem lcikmanni úr Göppingen var visað af leikvelli, brutust úl geysileg fagnaðarlæti en Göppingen-liðið lék nær allan siðari hálfleikinn með einum manni færra. Þegar ein minúta var til leiksloka, var staðan 20:19 fyrir Göppingen. Þá skoraði Geir mjög fallegt mark með langskoti, og stuttu siðar komst félagi hans, Patzer, inn i sendingu og skoraði siðasta mark leiksins, en þá voru 9 sek, til leiksloka. Geir og landsliðsmaðurinn Bucher voru beztu menn Göppingen. Geir skoraði 6 mörk með lang- skotum og Bucher skoraði 7 mörk. Nú er staða efstu liðanna þannig i suður-deildinni: Rinthcim Huttenberg Göppingen Göppingen á eftir að leika bæði við Rintheim og Hutten- herg á heimavelli sinum. GEIR OG FELAGAR í LOKAÁTÖKUNUM

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.