Tíminn - 01.02.1974, Side 4
4
TÍMINN
Föstudagur 1. febrúar 1974.
Hamingja
og óhamingja
Við höfum sagt frá þvi hér i
Speglinum, að sálfræðingar i
Bandarikjunum telji, að
Kathleen Kennedy, dóttir
Roberts heitins Kennedy hafi
gift sig röngum manni, manni,
sem hún eigi aldrei eftir að geta
orðið hamingjusöm með. Við
rákumst svo á brúðkaups-
myndir af Kathleen og manni
hennar David Townsend og þau
eru sannarlega glaðleg, enda
nýkomin úr kirkjunni, þegar
myndin er tekin. önnur mynd
er hér af Edward Kennedy, sem
fylgdi brúðinni upp að altarinu i
Kirkju hinnar heilögu þrenning-
ar i Washington, þar sem gift-
ingin fór fram. Daginn, sem
Kathleen gifti sig var fóturinn
tekinn af hinum 12 ára gamla
syni Edwards, en eins og
kunnugt er varð að gera það,
þar sem drengurinn reyndist
vera með krabbamein i hné, og
var þetta gert til að reyna að
koma í veg fyrir að sjúk-
dómurinn breiddist út. Edward
hlýtur þvi að hafa verið
áhyggjufullur i brúðkaupinu,
þótt hann hafi reynt að láta litið
á þvi bera.
Kokkur gerist ieikkona
Glenda Allan var matreiðslu-
kona i heimavistarskóla i Eng-
landi, þegar henni datt allt I
einu I hug, að ef til vill væri hún
ekki á réttri hillu i lifinu. Hún
fann til mikillar löngunar að
verða leikkona, og ekkert gat
stöðvaö hana á framabrautinni.
Hún sagði upp kokksstöðunni,
og nú er hún á góðri leið með að
verða fræg, að þvi er sagt er.