Tíminn - 01.02.1974, Blaðsíða 15

Tíminn - 01.02.1974, Blaðsíða 15
Föstudagur 1. febrúar 1974. iTÍMINN 15 Ferðir til Sóíarlanda á komandi sumri HÖFÐINGLEG GJÖF SYSTKINA ÚR HEGRANESI Tíminn efnir til getraunar fyrir áskrifendur og eru verðlaunin ferðir tii Suðurlanda. — Fyrsti þáttur getraunarinnar birtist i sunnudagsblaði Timans. Þau eru orðin seði mörg, félags- heimilin, sem risið hafa af grunni slðan sett voru lögin um félags- heimilasjóð. öll eiga þessi félags- heimili það sameiginlegt að vera miðstöövar félagslegra athafna viðkomandi byggðarlaga. Hins vegar er sjálfsagt nokkur munur á búnaði öllum, a .m .k. til að byrja með. Ég hygg það muni næsta fátitt, að aöeins eitt eða tvö fjárvana fé- lög standi að byggingu myndar- legs félagsheimilis. Þar sem svo er ástatt, hlýtur framkvæmdum öllum að miða hægar en ella, lengri tlma tekur að fullbúa hús- ið, eins ög það raunverulega þarf að vera, en þar sem fleiri aðilar sameinast um byggingu. Hér I Hegranesi hófst bygging félagsheimilis árið 1968, og er raunar eigi lokið enn, þótt húsið sé fyrir nokkru tekið til notkunar, m.a. til skólahalds. Einn aðili, þ.e. sveitarsjóður Ripurhrepps, hefur aö langmestu leyti staðið straum af öllum kostnaði við framkvæmdir. Það gefur auga leiö, að við nokkra erfiðleika hef- ur verið að glima fyrir lítið sveitarfélag að koma upp þessari byggingu, svo prýðileg sem hún þó er. Þann 10. nóv. s.l. var saman kominn I félagsheimilinu nokkur hópur fólks, þ.á.m. systkinin frá Asi i Hegranesi, þau sem enn eru á lifi: Einar, áður bóndi I Ási, ARMULA 1A. SIMI 86112. REYKJAVIK ólöf.húsfr. á Rip, Lovisa.húsfr. á Asi og Kristbjörg, húsfr. á Sauðárkróki, börn hjónanna Jó- hönnu Einarsdóttur og Guðmund- ar sýslunm. Ólafssonar, er bjuggu I Asi 1890-1936. Við þetta tækifæri færðu þau systkinin félagsheimilinu að gjöf nýtt og vandað pianó. Þessi góða gjöf lýs- ir vel þeim hug, sem þau bera til þessa húss. Hún lýsir skilningi þeirra systkina á þvi, að félags- heimilið á framar öllu að vera griðastaður félagslegs starfs, þar sem söngur og hljómlist verður að vera gildur þáttur. Hún lýsir fúllum skilningi á þvi, að ekkert félagsheimil.i, sem vill risa undir nafni, getur verið, né má vera, án hljóðfæris, það væri sem sálar- laust hrör. Vel sé þeim fyrir þann skilning. Er hætt við þvi, að nokk- ur dráttur heföi orðið á, að félags- heimilið eignaðist hljóðfæri, ef eigi hefði til komið ræktarsemi þeirra systkina, stórhugur þeirra og rausn. Þar sem ég, af sérstökum ástæðum, gat eigi verið viðstadd- ur, er gjöfin var afhent, vil ég f.h. sveitarstjórnar og allra hrepps- búa,votta opinberlega systkinun- um frá Asi einlægar þakkir fyrir þessa stórhöfðinglegu gjöf og þann hug, er þar býr að baki. Árni Gislason oddviti Ripurhrepps Setjaravél Linotype til sölu. Upplýsingar í síma 92-1869 öxlum. Mismunadrif milli afturöxla. Hvert hjól með sjálfstæöa fjöðrun. Vél 212 (Din) hestöfl. Buröarþol 15 tonn. Stálpallur, hliðar- og endasturtur. 11/16 slrigalaga nylon hjólbarðar. Tifbúinn til notkunar um kr. 2.700.000.00 Möguleikar á afgreiðslu i febrúar-april EF PANTAÐ ER STRAX. TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI H.F. AUÐBREKKU 44-46 SlMI 42600 KÓPAVOGI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.