Tíminn - 01.02.1974, Síða 8

Tíminn - 01.02.1974, Síða 8
8 TÍMINN Föstudagur 1. febrúar 1974. Okkar menn voru búnir aö tapa i öllu, sem hægt var að tapa, og Jón Múli og Siggi Sigurðs, höfðu nokkra daga til umráða. Sá fyrr- nefndi leitaði upp jazzklúbba og fann að lokum „einn að minum skilningi”. Þar var Johnny Dank- worth að spila „þjóðsöng” „be- bopparanna”, Groovin high. Siggi var að verða vitlaus... London ’48> Arni Egilsson, — einn af þeim út- völdu i háborg skemmtanaiifsins vestan hafs, maðurinn, sem „bankaði upp á hjá Sir John” og jazzað hefur mikið með Prévin. Myndin var tekin síðastliðið haust. t vor verður haldin listahátið hér á landi, og þar munu koma fram margir heimsfrægir lista- menn, hver á sinu sviði, svo sem rakið hefur verið i blöðum. Meðal listamannanna, — en á þvi atriði munu menn almennt ekki hafa átt von, — eru fjórir topp-jazzistar. Fyrstan fjórmenninganna skal nefna Arna Egilsson. Þá eru það hjónin Johnny Dankworth og Cleo Laine, og loks snillingurinn André Prévin. Þessi samankoma verður efalaust mesti jazzviðburður hér á landi fyrr og siðar. Ekki erum við ýkja jazzfróðir hér á blaðinu, en okkur þótti full ástæða til að fræða lesendur ögn um þessa listamenn, er heim- sækja okkur á þjóðhátiðarvorinu. Við höfðum tal af Jóni Múla Arnasyni, jazzáhugamanni með þeim meiri hér á landi, sem lét okkur i té upplysingar um kapp- ana i fáum orðum. Að kunna allt i músik — André Prévin flyzt 10 ára Af snillingum og öðrum efnilegum Rætt við Jón Múla Arnason um jazz d listahótíð, „biggbandið" íslenzka o. fl Jazzóhugi ráðherra strákur með foreldrum sinum til Bandarikjanna frá Berlin, en hann fæddist þar i borg 1929. Þá er hann búinn að læra pianóleik frá þvi hann var smákrakki. Hann heldur þvi námi áfram fyrir vestan, en jafnframt kemst hann i kynni við jazzinn. Og brátt fer hann að spila jazz með hinum og þessum af fullum krafti, með sitt klassiska próf upp á vas- ann.Flestir hér á landi munu kannast eingöngu við nafn hans i klassikinni, sem von er, þar sem hann hefur gert þar stóra hluti. En hann er einn af sárafáum klassikmenntuðum mönnum, sem eru ekta jazzpianistar lika. Ég hef mest heyrt hann leika með trióum, þvi miður þó ekki með Arna Egilssyni. A fyrstu jazzplöt- una sina lék hann 17 ára strákur, þá þegar orðinn mikils metinn sem jazzpianisti, en ekki þó sá Andre Prévin, sem hann er nú. Og hann heldur áfram i jazzinum og er alltaf með toppmenn á tromm ur og kontrabassa. Auk þessa hef- ur hann svo mikið samið fyrir kvikmyndir, eins og kunnugt er, og fengið Oskarsverðlaun fyrir. Þegar hér er komið tekur Múli hliðarstökk og fer að segja mér frá Red Mitchel, bandariska jazzistanum, sem seztur er að i Sviþjóð og hefur þar m.a. leikið inn á plötu með Pétri okkar öst- lund, plötu, sem við minnumst nánar á hér á eftir. — Prévin er einn af þessum mönnum, sem nú. fyrst eru að verða til, mönnum, sem kunna allt I músik, ekki bara jazzmúsik og ekki bara sigildri músik, held- ur allt. Og Bandarikjamenn eru farnir að gera þær kröfur til sinna manna. Einn af þeim útvöldu Þetta getur Arni Egilsson lika. Hann er einn af svona 5-600 hljómlistarmönnum i Los Angeles, sem hafa alla vinnu, sem þar er að hafa, i allri músik, I stúdíóvinnu alls konar, i kvik- myndamúsikinni i jazzmúsikinni og sinfóniuhljómsveitunum o.s.frv. Hartn er einn af þeim út- völdu. Þarna eru nokkur þúsund hljómlistarmenn, 500 fá allt, og þessir menn eru þeir beztu. — Arni er liklega 17 ára gam- all, þegar hann ætlar að taka próf hér heima i fluglistinni. En hann fær ekki að taka það próf, vegna þess að augun eru ekki nógu góð, vottur af litblindu. Strákur er á- kveðinn og dugmikill. Þegar þarna er komið, er hann búinn að læra eitthvað á pianó, langar til að leika á kontrabassa, og snýr sér nú að honum frá morgni til kvölds. Þegar hann er búinn að læra eitthvað á hljóðfærið hjá Einari Waage, fer hann út til Hamborgar og er þar alllengi. Og þar æfir hann sig af sama heljar- kraftinum. Þeir segja mér strákar, sem voru þarna úti á sama tima og sóttu böll og knæpur eins og geng- ur og gerist, að það hafi verið ómögulegt að fá hann með sér. Hann æfði frá morgni til kvölds. Einn kunningi Arna segir mér, að honum hefði einu sinni tekizt að fara með Arna út. Þeir voru búnir að fara inn á eina sjoppu og drekka eitt glas af bjór. Þeir vorli ekki einu sinni búnir úr glasinu, þegar Árni sagði: „Ja, ég fer ekki, ég fer heim”. Bankað upp á hjá Sir John — Árni er nú búinn að vera all- lengi þarna úti i Hamborg og far- inn að spila nokkurn veginn hvað sem er. Þá er Sír John Barbirolli staddur þarna I borg að stjórna hljómsveit eða eitthvað. Einn góðan veðurdag er bankað upp á hjá Sir John og við dyrnar stend- ur maður með kassa. Hann hefur engin orð um það, segir bara góðan daginn, labbar inn á mitt gólf og fer að spila. Þegar hann er búinn að ljúka sér af, sér Sir John, að þetta er maðurinn, sem hann hefur verið að leita að, en hann hafði þá verið fenginn af stjórninni i Texas i Bandarikjun- um til að stofna sinfóniuhljóm- sveit, sem þeir áttu enga. Og hann var á leiðinni til Houston vegna þessarar hljómsveitar og var að tina saman menn i hana. Og Arni fer með honum. Þegar Sir John Barbirolli er búinn að koma þessari sinfóniuhljómsveit I gang, verður aðalstjórnandi hennar André Prévin. Þá er Prévin orðinn svo upptekinn sem stjórnandi, pianóleikari og höf- undur kvikmyndatónlistar i Hollywood, að hann er nú ekki mikið i jazzinum. En þegar hann fer að spila jazzmúsik, hefur hann Arna með sér... Með ,,be-bopp” á heilanaum og Sigga Sigurðs i London ’48 — .... Það var dálitið skemmti- legt I sambandi við það. Við Siggi Sigurðs vorum þá frá útvarpinu á Olympiuleikunum i London, 1948, og ég var alltaf með á heilanum þjóðsöng „be-bopparanna”, þeir voru kallaðir það þessir ungu jazzspilarar, sem spiluðu „bopp- ið”. Ég segi nú þjóðsöng, þetta var melódia, sem gekk i gegn hjá þeim öllum. Ég hafði þá eignazt plötur með Charlie Parker og Dizzy, þar sem þeir voru að blása þennan alþjóðasöng „be-boppar- anna”: Groovin high. Ég var allt- af aðblistra þetta og gjörsamlega að gera Sigga vitlausan, en hann var aðstoðarmaður minn þarna. Svo var ég nú að reyna að kom- ast inn á jazzklúbba þarna, þegar við vorum búnir að þvi, sem við áttum að vinna. En þá áttum við 10 daga eftir, áður en leikarnir voru búnir, okkar menn sem sagt búnir að tapa öllu, sem hægt var að tapa þarna, og úr leik. Við vor- um þannig eiginlega i frii eftir það, við Siggi. Það var dálitið skritið, — ég hitti einhverja skarfa i járnbraut- arlest og fór að tala við þá um jazzmúslk, og Bretar eru ekki frekar en við fyrir það að vaða of- an I fólk. En af þvi jazzfólk er nú alþjóðlegur.trúarsöfnuður, þá fór ég að taía við þá. Og þeir visuðu mér á klúbb, sem var jazzklúbbur að minum skilningi. Og þangað dreg ég Sigga með mér. Og um leið og við komum inn, byrjar „bandið” á sviðinu á Groovin high, sem var að gera Sigga vit- lausan, þvi ég var búinn að vera með það i þrjár vikur I eyrun á honum. Og það er Johnny Dank- worth, sem er þar að spila á alt- saxófón, þá, 1948, orðinn topp- maður.... Siðan hef ég alltaf fylgzt með Johnny, heldur Jón Múli áfram, enda vart hægt að komast hjá öðru. Hann hefur ekki bara haldið sig við jazzinn. Það kemur varla sú kvikmynd orðið frá Bretlandi, sem Johnny Dankworth hefur ekki samið músikina við. Svipaða sögu er að segja um sjónvarpið. Og svo hefur hann haft þá „tendensa”, eins og fleiri jazzist- ar, að semja klassik, og raunar spilaði Sinfóniuhljómsveitin eitt af slikum verkum hans hér um árið, Konsert fyrir jazzhljómsveit og sinfóniuhljómsveit eða eitt- hvað svoleiðis. ,,Discovery of The Decade” — Jazzsöngvari er dálitið svona einkennilegt orð. En af þessum svokölluðu jazzsöngkonum i Bret- landi skarar Cleo Laine langt fram úr þeim öllum. Ef hægt er Viðtal: Steingrímur Pétursson Johnny Dankworth, — varð him- inlifandi, er hann frétti af „bigg- bandinu” okkar. Cleo Laine, — tvimælalaust fremsta jazzsöngkona Bretlands. Pétur östlund. Þeir kalla hann „Uppgötvun áratugsins”.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.