Tíminn - 01.02.1974, Side 21
Föstudagur 1. febrúar 1974.
TÍMINN
21
MARKAKÓNGA-
KEPPNIN....
Enska bikarkeppnin:
Varnarmenn Arsenal
réðu ekki við hinn
Markakóngakeppnin er geysilega
hörð i 1. deildinni i handknattleik.
Allt bendir til þess, að markhæsti
leikmaðurinn i ár skori yfir 100
ALEX B R U C E. . . t i 1
Newcastle.
Bobby
selur
„BRUCE hefur veitt Preston-
liðinu það sjálfstraust, sem
það þarf”...sagði Bobby
Charlton, framkvæmdastjóri
Preston North End, þegar
hann tók miðvallarleikmann-
inn Alex Bruce og gerði hann
að framlinumanni. Þessi
breyting var til batnaðar, og
Bruce fór strax aö skora
mörk. Þessi 20 ára gamli
Skoti, sem var gerður aö
miðherja, skoraði mörk i nær
hverjum leik Preston i byrjun
keppnistimabilsins. Þar að
auki léku þeir Bruce og Neil
Young, fyrrum Manchester
City-leikmaöur, mjög vel
saman i framlinunni, og
Charlton var mjög ánægður
með Bruce.
Þess vegna kom það eins og
þruma úr heiðskiru lofti,
þegar Bobby Carlton lét
Bruce fara frá Preston nú i
vikunni. Hann var seldur til
Newcastle fyrir 140 þús. pund.
Þetta er ekki fyrsti marka-
skorarinn, sem Newcastle
kaupir frá 2. deildar liði. Þaö
er ekki langt siðan félagið
keypti markaskorarann
Malcolm MacDonald frá
Luton Town fyrir 180 þús.
pund.
Shankly
kaupir
BILL Shankly, framkvæmda-
stjóri Liverpool, tók upp
bpdduna um daginn og keypti
MacDonald frá 4. deildar
liðinu Workington. Shankly
borgaði 35 þús. pund fyrir
McDonald.
mörk og slái þar með met Einars
Magnússonar, sem skoraði 100
mörk i Laugardalshöllinni á
siðasta keppnistimabiii. Axel er
nú markhæstur. Hann hefur
skorað 73 mörk i tiu leikjum, og
þvi þarf hann að skora sjö mörk i
leik, ef honum á að takast að slá
met Einars. Axei á eftir að ieika
fjóra leiki. Markhæstu menn eru
. nú þessir:
Axel Axelsson, Fram 73 (30)
Einar Magnússon.
Vikingi 69 (36)
Gunnar Einarsson, FH 62 (18)
Viðar Simonarson, FH 61 (10)
AgústSvavarsson, 1R 55 (1)
Hörður Sigmarss., Hauk 55 (17)
Guðjón Magnússon, Vik. 44
Gisli Blöndal, Val 43 (15)
Sigt. Guðlaugss. Þór 42 (22)
Vilhj. Sigurgeirss. 1R 42 (23)
I AXEL AXELSSON... sést
I hér reyna markskot i leik
▼ Fram og FH. Hin geysi -
sterka vörn FH-liðsins var
w vel á verði. Axel er nú mark-
▼ hæstur í 1. deildar keppninni.
snjalla Morgan...
Sammy AAorgan skoraði strax á 12 mín.
gegn Arsenal á Villa Park, og við það guggnaði
Lundúnaliðið. AAorgan hefur nú skorað fjögur mörk
í bikarkeppninni, ásamt Tony Brown og AAalcolm AAacDonald
DAVID CROSS skoraði
sigurmark Coventry gegn
Derby á Baseball Ground i
Derby. Það þurfti að fram-
lengja leikinn til þess að fá
úrslitin. Cross skoraði
sigurmarkið i framlenging-
unni.
TONY BROWN, marka-
skorarinn mikli hjá West
Bromwich Albion, er iöinn viö
að skora mörk i bikarkeppn-
inni. Hann skoraði sigurmark
W.B.A. á The Hawthorns.
Brown hefur nú skorað fjögur
mörk i bikarkeppninni, en
hann skoraði þrjú ,,hat trick”
gcgn Notts County i 3. umf.
Þeir Sammy Morgan og
Malcolm MacDonald hafa
einnig skorað fjögur mörk.
Sammy Morgan skoraði tvö
gegn Arsenal, eitt á laugar-
daginn og eitt á miðviku-
daginn, en hann skoraöi tvö
gegn Chcster i 3. umferð.
MacDonald skoraði þrjú mörk
gegn Scunthorpen, eitt á
laugardaginn og tvö á mið-
vikudaginn, og þar að auki
skoraði hann gegn Hendon i 3.
umferð.
DÝRLINGARNIR frá
Southampton þurftu að leggja
sig alla fram á Burnden Park
i Bolton. Þegar venjulegum
leiktima var lokið, þurfti að
framlengja leikinn. Það var
fyrst i framlengingunni, að
Bobby Stokes komst á sporið.
Honum tókst tvisvar sinnum
að senda knöttinn fram hjá
Sladall, markverði Bolton, og
þar með voru Dýrlingarnir
búnir að tryggja sér rétt til að
leika i 5. umferð.
OLD SHOW GROUND-
völlurinn i Scunthorpen var
ekki eins erfiður fyrir New-
castle og heimavöllurinn St.
James Park, þar sem New-
castle náði aðeins jafntefli
gegn Sounthorpen sl. laugar-
dag, 1:1. MALCOLM
MacDONALD, sem skoraði
Framhald á bls. 23
leikmaöur, sem Aston
Villa keypti fyrir 100
þús. 1972, bætti síðan
ööru marki við, og þar
meö voru heimamenn
búnir að tryggja sér rétt
til aö leika gegn Burnley
í 5. umferö bikarkeppn-
innar.
Sammy Morgan var
keyptur frá Port Vale fyrir 25
þús. pund sl. haustog þótti það
gjafverð. Aston Villa þarf þó
að borga Port Vale 1000 pund
fyrir hvert mark sem hann
skorar, eða réttara sagt
fimmtán fyrstu mörk hans
fyrir Villa. Eftir að hann er
búinn að skora 15 mörk, þarf
Aston Villa ekki að borga Port
Vale meira, og hið rétta
söluverð Morgan er þvi 40 þús.
pund.
Urslit bikarleikjanna á mið-
vikudaginn urðu þessi:
Scunthorpe-Newcastle 0:3
Bolton-Southampton 0:2
Aston Villa-Arsenal 2:0
Leicester-Fulham 2:1
Derby-Coventry 0:1
W.B.A.-Everton 1:0
NORÐUR-írski lands-
liösmiöherjinn, Sammy
Morgan hjá Aston Villa,
hefur leikið varnarleik-
menn Arsenal grátt i
bikarkeppninni. Þessi
snjalli miðherji, sem
Villa keypti fyrir gjaf-
verö frá Port Vale,
skoraði mark strax eftir
10. mín. á Highbury á
laugardaginn. Þegar
Arsenal lék á Villa Park
í Birmingham á mið-
vikudagskvöldið, voru
ekki liðnar nema 12 mín.
af leiknum, þegar
Morgan var búinn að
senda knöttinn í netið
hjá Lundúnaliðinu og
eftir það réðu leikmenn
Aston Villa gangi
leiksins. Alun Evans,
fyrrum Liverpool-