Tíminn - 22.03.1974, Blaðsíða 1
w
Auglýsingadeild
TÍMANS
Aðalstræti 7
C
66. tbl. — Föstudagur 22. marz 1974 —58. árgangur
KOPAVOGS
APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga kl. 1 til 3
Sími 40-102
Fréttatilkynning um varnarmálin í dag:
SAMKOMULAG UM MÁLSMEÐFERÐ
Á RÍKISSTJÓRNARFUNDI í GÆR
— verður kynnt utanríkismála
nefnd alþingis í dag
JH—Reykjavik — Rikisstjórnin
mun að undanförnu hafa rætt her-
stöðvamálið, og að þvl er Tlminn
bezt veit hefur náðst fullt sam-
komulag innan hennar um
grundvöll viðræðnanna við
Bandarikjamenn og málsmeð-
ferðina. . Abyrgir aðilar vildu
ekki láta neitt uppi um efnisatriði
þessa samkomulags I gær, en
Byggð skal
það vera
HHJ—Reykjavik. Samband
islenzkra sveitarfélaga efndi
fyrir nokkru til samkeppni
um nýyrði, er komið gæti i
stað orðanna kaupstaður og
hreppur. Páll Lindal
formaður sambandsins
skýrði frá þvi i gær, þegar
hann setti fulltrúaráðsfund
sambandsins, að þátttaka
hefði verið mikil, og hefðu
alls borizt 225 tillögur frá
nokkuð á annað hundrað
manns. Dómnefnd taldi að
orðið byggð væri bezt. Til-
lögur um það orð bárust frá
tiu mönnum, þannig að
draga varð um verðlaunin,
sem i boði voru og kom upp
hlutur Lárusar Salómons-
sonar yfirlögregluþjóns á
Seltjarnarnesi.
Báturinn frá
Færeyjum
finnst ekki
Klp—Reykjavik. I gær var haldið
áfram leit að sjúkraflutningabáti
Færeyinga, Rauða krossinum,
sem geðbilaður maður stal við
bryggju i Þórshöfn um miðnætti
s.l. miðvikudags, og sigldi til
hafs.
Flugvél Landhelgisgæzlunnar
fór tvivegis i gær til leitar austur
af landinu. Fyrst var farið um
klukkan niu i gærmorgun en
menn urðu einskis varir. Vélin fór
aftur af stað um klukkan fjögur i
gærdag, og þegar siðast var haft
samband við hana hafði ekkert
fundizt.
Samkvæmt upplýsingum frá
Færeyjum áttu oliubirgðir báts-
ins að nægja til klukkan fjögur i
gærdag, ef bátnum hefur verið
siglt á fullri ferð allan timann.
Reiknað hefur verið út, að
báturinn heföi átt að vera nálægt
Islandsströndum, ef honum hefur
verið siglt i vesturátt siðari hluta
dags i gær. En ekkert er vitað um
i hvaða átt maðurinn stefndi.
Leitað var einnig frá
Færeyjum, Skotlandi og Noregi i
gær, en sú leit bar heldur engan
árangur.
fréttatilkynning er væntanleg i
dag.
Endanlega mun hafa verið
gengið frá þessu samkomulagi á
fundi rikisstjórnarinnar i gær-
morgun á grundvelli tillagna,
sem þeir ólafur Jóhannesson for-
sætisráðherra og Einar Ágústs-
son utanrikisráðherra báru fram.
— Það er rétt, að fréttatil-
kynning um þetta er væntanleg,
sagði Ólafur, er Timinn sneri sér
til hans i gær. En formsatriði
leyfa ekki, að ég segi neitt um efni
hennar að svo stöddu. Við munum
leggja málið fyrir utanrikismála-
nefnd alþingis, og þegar það
hefur veriö gert, veröur fréttatil-
kynningin birt.
SKELLUR SJOMANNA-
VERKFALL A EFTIR 10
DAGA?
—hs—Rvik. — Ekkert gerðist
á sáttafundinum með undir-
mönnum og útgerðarmönnum
i fyrrakvöld, sem stóð frá kl.
21-0.30. Hefur ekki verið
boðaður nýr fundur, en i
undirbúningi hjá
Sjómannasambandinu er nú
að hefja verkfall 2. april.
t viðtali við Timann, sagöi
Jón Sigurðsson, formaður
Sjómannasambands tslands,
að báðir aðilar stæöu fastir á
sinu, þ.e. sjómenn, að
samningstiminn verði til 1.
janúar 1976, en útgerðarmenn,
að hann verði til 15. mai sama
ár. Sá siöari var samþykktur
af yfirmönnum á bátaflotan-
um, en samningar þeirra hafa
ekki enn verið bornir undir at-
kvæði.
Sagðist Jón álita, að beðið
yrði með það, þangað til
undirmenn væru búnir að
semja, svo unnt yrði að breyta
þeim, ef undirmenn fengju
hágstæðari gildistima.
Jón sagði, að þeir hjá
Sjómannasambandinu væru
ófáanlegir til að samþykkja
gildistimann lengurentil 2ja
ára, en i raun þýddi gildistim-
inn til 15. mai 3ja ára
samning.
Hann sagði að lokum, aö nú
væri verið að gera ráðstafanir
til verkfallsboðunar, sem
liklega hefst 2. april, ef ekki
verður búið að semja fyrir
þann tima.
Mannslíf í veði, ef þekkingu
brestur
SJ—Reykjavik. Það verður sifellt
torveldara fyrir sérfræðinga og
áhugamenn að fylgjast með
nýjungum i hinum ýmsu fræði-
greinum. Þekking mannkynsins
eykst stöðugt að umtaki, og mikil
leit getur orðið að þvi, sem menn
þurfa á að halda hverju sinni.
Mikilvægt er, að læknar og aðrir,
sem aö heilbrigðismálum vinna,
fylgist vel með I greinum slnum
og auki þekkingu sina dag frá
degi. Þar er oft um líf og dauða að
tefla. í dag og á morgun kynnir
sænskur læknir, Gunvor Svartz-
Malmberg, sem starfar við
Karolinsku stofnunina i Stokk-
hólmi, tölvuþjónustu við heil-
brigðisstéttirnar I Norræna hús-
inu og verður m.a. haft beint
simasamband við tölvu i Stokk-
hólmi sem geymir upplýsingar
um læknisfræðigreinar úr tima-
ritum.
Munu islenzkir læknar og aðrir
fá svör við spurningum sinum
nær samstundis, ef ekkert ber út
af. Að sögn Kristinar H. Péturs-
dóttur bókavarðar á Borgar-
sjúkrahúsinu hafa upplýsingar
fengizt frá tölvu þessari hingað
áður, en með pósti og tekur það
viku til tiu daga. Kvaðst hún
sannfærð um, að fleiri myndu
nota sér tölvuþjónustu þessa, eft-
ir að Gunvor Svartz-Malmberg
hefur kynnt hana og flutt fyrir-
lesturhér. — Ég vona að þetta til-
efni verði til þess, að ræddir verði
möguleikar á að koma á slikri
tölvuþjónustu fyrir heilbrigðis-
stéttir hér. Háskólinn mun fá
móttökutæki eins og það, sem
nauðsynlegt er I þessu tilfelli, og
komi samvinna við hann mjög til
greina fyrir heilbrigðisstéttirnar.
Þær þyrftu væntanlega aðeins af-
not af tækinu i nokkrar minútur i
hverri viku.
Medline nefnist tölvukerfi það,
sem Svartz-Malmberg kynnir
aðallega hér. Enginn læknir hefur
tima til að lesa öll timarit um
læknisfræði, sem út eru gefin.
Með kerfi eins og þessu geta
læknar fengið upp gefið hve
margar greinar ritaðar hafa ver-
ið um ákveðið efni, og lista yfir
þær. Við getum nefnt sem dæmi,
að læknir biðji um skrá yfir nýjar
greinar um notkun C vitamins
gegn kvefi. Eins er hugsanlegt aö
læknir hafi gefið sjúklingi ákveðið
lyf, en siðan kemur fram einkenni
hjá sjúklingnum, e.t.v. hliðar-
verkun. I þessu tilfelli getur hann
fengið svör frá tölvunni um hvort
þessi hliðarverkun sé þekkt með
þessu ákveðna lyfi.
Þegar læknir eða annar, sem
notar sér tölvuþjónustuna, hefur
fengið upplýsingarnar frá tölv-
unni verður hann að sjálfsögðu að
fara á bókasafn og leita svara við
spurningum sinum i greinum
þeim, sem tölvan hefur bent hon-
um á. — En ef við skyggnumst inn
I framtiðina, segir Gunnar
Svartz-Malmberg, þá sjáum við
lækna fá ljósrit af greinunum,
sem þeir þurfa á að halda, send
simleiðis. 1 náinni framtið munu
tölvur verða ódýrari i framleiðslu
og eins trúi ég að greiðsla fyrir
tölvusimtöl verði innan skamms
með öðrum hætti en verið hefur til
þess, en simgjöld hafa verið einn
stærsti kostnaðarliðurinn við
þessa þjónustu hingað til.
Medline tölvan i Stokkhólmi
geymir upplýsingar um 400.000
greinarum læknisfræðileg efni og
nýjar bætast við mánaðarlega.
Nýtt efni fá Sviar frá National
Library of Medicine i Washing-
ton, en kerfi þetta var fyrst tekið
upp I Bandarikjunum. önnur
seinvirkari kerfi voru komin áð-
ur. Sviar tóku upp Medline kerfið
1972 og eru nú sextán stöðvar á
Norðurlöndum og i Hollandi sem
njóta þjónustu miðstöðvarinnar i
Stokkhólmi. En kerfi þetta er
einnig notað i Englandi, Frakk-
landi og Vestur-Þýzkalandi.
Svartz-Malmberg kvaðst álita að
svipuð tölvukerfi væru i notkun i
Sovétrikjunum i þágu ýmissa
fræðigreina en upplýsingar eru
ekki fyrir hendi um hvernig
þessum málum er háttað þar.
Gunvor Svartz-Malmberg
stjórnar námskeiðum fyrir fólk,
sem ætlar sér að leita upplýsinga
með Medline tölvukerfinu. Bóka-
verðirnir Guðrún Karlsdóttir og
Kristin H. Pétursdóttir sóttu slikt
námskeið við Karólinsku stofnun-
ina i Stokkhólmi i haust. Raunar
er Medlinekerfið svo einfalt að
læknar eða aðrir, sem þurfa á
upplýsingum að halda, geta notað
það milliliðalaust. En hagkvæm-
ara er að sérþjálfað fólk annist
milligöngu.
— Notkun tölvuþjónustu nýtur
sifellt meiri vinsælda hjá þeim,
em fylgjast með i fræðigreinum
sinum, sagði Gunvor Svartz-
Malmberg, enda hefur fólk nú
greiðari aðgang að tölvum en
verið hefur.
Fyrirlestur Gunvor Svartz-
Malmberg i Norræna húsinu er
kl. 20.30 i kvöld (ekki 21.30 eins og
misritað var i fréttatilkynningu i
blaðinu i gær). A laugardags-
morgun kl. 9.30 verður siðan
kynning á Mediinekerfinu.
Söluskatts-
hækkun
ó mánudag
—hs—Rvik. Nokkuð varð vart við
það i gær, að hamstrað væri I
verzlunum, þvi að ýmsir liéldu,
að söluskattshækkunin kæmi til
framkvæmda i dag.
Söluskattshækkunin, sem eins
og kunnugt er verður 4%, kemur
hins vegar ekki til framkvæmda
fyrr en n.k. mánudag, 25. marz.
Gunvor Svartz-Malmberg við ritvélina, sem hún skrifar á fyrirspurnir
til tölvunnar I Stokkhólmi. Skrifleg svör koma um hæl þaðan, en á
myndinni sést líka siminn, sem I fyrramálið verður I beinu sambandi
við læknisfræðilegu tölvumiðstöðina I Stokkhólmi. (Timamynd Gunn-
ar).
raparadís við Tjörnina — sjá bls. 12-13