Tíminn - 22.03.1974, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Föstudagur 22. marz 1974.
Föstudagur 22. marz 1974
Vatnsberinn: (20. jan.-18. febn)
Reyndu nú að hrista af þér slenið. Það er ekki
hægt að láta dagana liða svona og aðhafast ekki
neitt i þessu, sem þú ert að brjóta heilann um.
Það er i raun og veru þess virði að framkvæma
það.
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Það er eins og þú sért eitthvað rólegri i dag en þú
átt að þér, og ef til vill kemur það ekki að sök
svona einn dag, en hitt er annað mál, að það er
eitthvað fjörugt og spennandi, sem biður eftir
þér.
Hrúturinn. (21. marz-19. aprii)
Það litur út fyrir, að þetta verði hálfskritinn
dagur og þú skalt vera við öllu búinn. Það eru
talsverðar likur til þess.að einhver æsi þig upp i
umræðum út af einhverju nauðaómerkilegu,
sem engu máli skiptir.
Nautið: (20. april-20. mai)
Hugmyndir þinar eru ágætar, það vantar ekki,
en eitt verður þú að gera þér ljóst: Það er ekki
möguleiki á að koma þeim öllum i framkvæmd i
einu, öllum saman. Þú þarft að taka til hönd-
unum við skipulagningu.
Tviburamerkið: (21. mai-20. júni)
Þetta er fyrirtaks góður dagur til bréfaskrifta,
og það litur sannarlega út fyrir, að það sé
eitthvað, sem þú hefur trassað i þeim efnum, svo
að þér veitir bara ekkert af að taka nú til
höndunum i þeim efnum.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Það er rétt eins og dragi ský frá sólu i dag, og
þér stendur allt ljósara fyrir hugskotssjónum.
Nú getur þú gengið beint að markinu i staðinn
fyrir að krækja einhverja hliðarstigu, sem þú
varst að hugsa um að fara.
Ljónið: (23. júli-23. ágúst)
Það litur út fyrir, að þetta sé einhver óróadagur,
að minnsta kosti er rétt að vara þig við þvi að
lenda i einhverjum illindum, sem töluverð hætta
virðist vera á,að risi upp i námunda við þig i dag.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. septj
Þetta virðist vera einhver ógurlegur annatimi,
sem stendur yfir hjá Jómfrúnum núna, og þú
ættir að nota timann i dag til að hreinsa frá þér,
það sem fyrir liggur, svo að þú getir umsvifa-
laust snúið þér að öðru.
Vogin: (23. sept-22. oktj
Þetta er einstaklega góður dagur fyrir þá, sem
fæddir eru i Vogarmerkinu, og sérstaklega eru
vinir og starfsbræður upplifgandi og samstarfs-
fúsir i dag og þar af leiðandi allt bjart og fagurt i
umgengni við aðra.
Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
Það eru þó talsverðar likur til þess, að dagurinn
verði allur hinn ánægjulegasti, en á einu skaltu
þó vara þig: gleymdu ekki þeim, sem þér standa
næstir, þvi að það getur leitt til leiðinda, sem
■seint verða bætt.
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.)
Góð samvizka er alveg nauðsynleg til þess að
geta öðlazt sálarlegt jafnvægi, svo að þú skalt
flýta þér að ljúka þvi af, sem vofir yfir þér eins
og mara. Þú ert það röskur, að þetta tefur þig
ekkert.
Steingeitin: (22. des-19. jan).
Það er nú vist einu sinni svo með þetta unga, ást-
fangna fólk, að það er og verður löngum
upptekið af sjálfu sér öðru fremur. En það er
reglulega hugsunarlaust af þér að vanrækja
nákominn aðila, sem vill þér vel.
t 14444 «
25555
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTUN
Reykvískir kennarar í heimsókn
til skóla d Mið-Vesturlandi
A SL. VETRI komu um 100 kenn-
arar frá Kennarasambandi
Vesturlands I heimsókn til skóla
Reykjavikur. Fræðsluskrifstofa
Reykjavikur skipulagði dvöl
þeirra i skólum borgarinnar og
veitti hópnum viðtækar upp-
lýsingar um skólastarf i höfuð-
borginni.
Dagana 14.-16. mars sl. fóru 110
kennarar úr Reykjavik til
Vesturlands i boði Kennarasam-
bandsins til að kynna sér skóla-
mál fræðsluumdæmisins og
stofna til kynna meðal kennara.
Dvöldu kennararnir i skólum á
svæði frá Akranesi vestur á Snæ-
fellsnes og Dali, alls á 18 stöðum.
Bjuggu gestir i heimavistum
eða á heimilum kennara og voru
móttökur með miklum glæsibrag.
Farið var frá Reykjavik sið-
degis fimmtudaginn 14 marz.
Föstudaginn 15. kynntu gestir-
nir sér skólastarf og aðstöðu
kennara og nemenda úti á lands-
byggðinni, en þar er margt frá-
brugðið þvi, sem menn eiga að
venjast i skólum borgarinnar.
Að kvöldi föstudags var siðan
efnt til mikils kvöldfagnaðar að
Logalandi i Reykholtsdal með
þátttöku um 250manns. Þar sýndi
U.M.F. Reykdæla leikritið
Draugalestina eftir A. Ridíey. Þá
var upphafinn almennur söngur,
siðan snæddur kvöldverður og að
lokum stiginn dans. Heim kom
hópurinn siðdegis laugardag eftir
Fjársöfnun til
dvalarheimilis
aldraðra
í Dýrafirði
DÝRFIRÐINGAFÉLAGIÐ i
Iteykjavik hugsar til stórátaks i
fjáröflun til fy rirhugaðrar
byggingar dvalarheimilis fyrir
aidraða i Dýrafirði. Mikill skriður
cr að komast á það mál heima i
licraði, þar sem báðar hrepps-
nefndir fjarðarins hafa samþykkt
að hefja nú þegar fjáröflun.
Tveir hvatar liggja að þvi máli
aðallega. Eru þeir höfðingleg gjöf
þeirra hjóna frú Margrétar
Kristjánsdóttur og Jóhannesar
Bjarnasonar, sem nú er látinn, og
voru það 400.000 krónur, er skyldi
varið til þessa málefnis. Hinn er
svo hin nýju lög frá alþingi, er
skilda rikissjóð til að greiða 1/3
hluta kostnaðar við slika
byggingu fullgerða.
Fyrsta skref félagsins i þessa
átt er að stofna til fundar, sem
haldinn verður i Tjarnarbúð
niðri, sunnudaginn 31. marz n.k.
kl. 14.
Þangað er óskað að allir þeir
komi, er vilja leggja málinu lið.
Þar verður rætt um, hvernig að
fjáröflun verður staðið, kosin
framkvæmdanefnd o.fl. Fundur-
inn verður nánar auglýstur.
ISl
vel heppnaða ferð.
Við heimkomu töldu kennarar,
að ferðin hefði i senn verið mjög
fróðleg og jafnframt skemmtileg.
Þátttakendur I ferðinni senda
kveðjur og þakklæti til allra gest-
gjafa og annarra, sem unnu að
undirbúningi þessarar ferðar.
EMUR
HVAÐ GAMALL
TEMUR UNGUR
^ SAMVINNUBANKINN
ifreida
stjórar
SOLUM;
Afturmunstur
Frammunstur
Snjómunstur
BARÐINNHF.
ARMULA7 V30501&84844