Tíminn - 22.03.1974, Side 3
Föstudagur 22. marz 1974.
TÍMINN
3
16. KJÖRDÆMISÞING FRAMSÓKNAR-
MANNA A NORÐURLANDI EYSTRA
rómur gerður að þessum fróðlegu
og skörulegu ræðum.
Fyrir þinginu lágu drög að
ýmiss konar ályktunum um
landsmál, kjördæmismál og mál
kjördæmissambandsins, sem nú
voru öll tekin til endurskoðunar i
þrem aðalnefndum, þeim breytt i
meðförum nefndanna og svo
þingsins sjálfs að þvi loknu, eftir
þvi sem þurfa þótti og þingheim-
ur óskaði.
Formaður landsmálanefndar
var Hjörtur E. Þórarinsson,
formaður kjördæmisnefndar
Sigurður Jónsson og formaður
fjárhags- og skipulagsnefndar
var Haraldur M. Sigurðsson.
Umræður voru allmiklar á
þingi þessu, en þó að sjálfsögðu
minni en á tveggja daga kjör-
dæmisþingum Þá var þinginu
stjórnað af röskleika af aðalfor-
seta.
Kosin var tólf manna upp-
stillingarnefnd, er undirbúi fram-
boðslista fyrir næstu alþingis-
kosningar, og ný sambandsstjórn
var kjörin.
Nýkjörna stjórn kjördæmis-
sambandsins skipa þessir menn:
Hilmar Daníelsson, formaður,
Þormóður Jónsson, ritari, Hákon
Hákonarson, gjaldkeri, Helgi
Jónsson, varaformaður, með-
stjórnendur; Jóhann Helgason,
Armann Þórðarson og Aðalbjörn
Gunnlaugsson.
1 miðstjórn voru kjörnir:
Haraldur M. SigurðsSon, Ingi
Tryggvason, Hjörtur E.
Þórarinsson, Baldvin Baldursson
og Sigurður Jóhannesson.
Formaður, Hilmar Danielsson,
sjálfkjörinn.
Frá yngri mönnum: Guðmund-
ur Bjarnason, Bjarni Aðalgeirs-
son og Jóhann Antonsson.
1 framboðsnefnd voru eftirtald-
ir menn kjörnir: Sigurður
Jóhannesson, Sólveig Gunnars-
dóttir, Ingvar Baldursson, Árni
Hermannsson, Helgi Jónsson,
Sigurgeir Halldórsson, Guð-
mundur Bjarnason, Indriði
Ketilsson, Haukur Halldórsson,
Benedikt Lund, Jóhann Helgason
og Sigurður Jónsson.
GOLFRYMIÐ VERÐI EKKI
MINNA EN 20x40 METRAR
— tillaga Alfreðs Þorsteinssonar í borgarstjórn um byggingu
íþróttahúsa, jafnframt að leigukjör verði endurskoðuð
SEXTÁNDA kjördæmisþing
Framsóknarmanna f Norður-
landskjördæmi eystra var haldið
á Hótel Varðborg á Akureyri 16.
marz. Það var mjög vel sótt, enda
samgöngur ágætar og áhuginn
vakandi. Þingið hófst kl. 10 ár-
degis og voru þá flestir þingfull-
trúar mættir.
Formaður kjördæmissam-
bandsins, Ingi Tryggvason, setti
þingiðmeðávarpi, bauð gesti vel-
komna, rakti þær ástæður, er
lágu til þessa óvenjulega þing-
tima, en kjördæmisþingin hafa
venjulega verið haldin á haustin,
en var frestað sl. haust af ástæð-
um, er taka varð tillit til. Þá lýsti
hann þvi einnig, hvers vegna nú
yrði eins dags þing f stað tveggja.
Þá minntist hann Gisla Guð-
mundssonar, alþingismanns, er
svo stóran þátt átti i mótun og
störfum fyrri kjördæmisþinga.
Risu fulltrúar úr sætum til
virðingar við hinn látna, virta og
vinsæla þingmann kjördæmisins.
Að venju var skipuð nefnda-
nefnd og var formaður Guðmund-
ur Sigurðsson og kjörbréfanefnd,
en hennar formaður var Sigurður
Jónsson.
Aðalforseti þingsins var kjörinn
Sigurður Öli Brynjólfsson og
varaforsetar Hilmar Danielsson
og Sigurður Jónsson.
Þingritarar voru Aðalbjörn
Gunnlaugsson Björn Hólmsteins-
son og Björn Stefánsson.
Að kosningum þessum loknum
flutti Ingi Tryggvason skýrslu um
störf stjórnar kjördæmissam-
bandsins og. skrifstofunnar á
Akureyri, sölu happdrættismið-
anna, sumarferðina til Grimseyj-
ar, sumarhátiðina, sem var hald-
in á þrem stöðum, árshátfðir
tvær, Framsóknarvistirnar,
stjórnmálafundina viðsvegar um
héraðið o.s.frv.
Gjaldkeri sambandsins, Bald-
ur Halldórsson, las og skýrði
reikningana. Þeir sýndu, að eign-
ir eru meiri en skuldir, en sjóðir
þess eru þó fremur léttir.
Reikningarnir voru samþykktir.
Þá fluttu alþingismenn erindi,
svo sem venja er á kjördæmis-
þingum, þeir Ingvar Gislason,
Stefán Valgeirsson og Jónas
Jónsson, en siðar á þinginu einnig
Heimir Hannesson. Var góður
BH—-Reykjavik — A borgar-
stjórnarfundi i sl. viku flutti
Alfreð Þorsteinsson, borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins, gagn-
merka tillögu varðandi hönnun
iþróttahúsa og reglur um útlán og
leigukjör iþróttasala.
Undirstrikaði Alfreð i greinar-
gerð sinni með tillögunni, að þörf
væri á viljayfirlýsingu borgar-
stjórnar f þeim efnum nú þegar,
þvi að ekki væri seinna vænna að
breyta i þá átt að fá löglega
keppnissali, miðað við hand-
knattleik, svo og áhorfendapalla,
sem enn væru aðeins i sárafáum
iþróttahúsum hér.
Tillaga Alfreðs er svohljóð-
andi:
„Borgarstjórn felur iþróttaráði
að leita samvinnu við fræðsluráð
um það, að við hönnun íþrótta-
húss skóla sé þess jafnan gætt, að
salargólf séu eigi ntinni en 20x40
metrar, og jafnframt sé gert ráð
fyrir áhorfendarými.
Þá samþykkir borgarstjórn að
fela iþróttaráði að endurskoða
reglur um útlán og leigukjör
iþróttasala undir æfingar iþrótta-
félaganna i þvi skyni að lækka
leiguna eða fella hana alveg úr
gildi.”
1 greinargerð sinni með til-
lögunni benti Alfreð á, aö aðal-
lega séu það tveir aðilar, sem nýti
salina, skólar og iþróttafélög. Það
sé hyggilegt og öllum fyrir beztu,
að salirnir nýtist til fullnustu. Nú
hafi iþróttasalirnir fram að þessu
yfirleitt verið miðaðir við þarfir
skólanna og gólfflöturinn 14x27
eða 18x33 m, en með tilkomu hins
mikla áhuga á handknattleik,
sem sifellt færist í aukana, sé það
eðlilegt og sjálfsagt að stækka
gólfflöt salanna.svo að þar verði
löglegir keppnisvellir, 20x40
metrar á stærð.
FORSVARSMENN Varins lands
afhentu i gær Eysteini Jónssyni,
forseta Sameinaðs alþingis, og
Ólafi Jóhannessyni, forsætisráð-
herra, hina margumræddu
undirskriftlista. Samkvæmt
greinargerð forgöngumannanna
eru á skránum 55.522 nöfn., er
brott höfðu verið numdar 549
tviritanir, 448 nöfn fólks, sem ekki
hafði náö tvitugsaldri 1. marz og
nokkur fölsuð nöfn, sem fundust.
„Undirskriftir Reykvikinga,
Hafnfirðinga, Keflvikinga, Akur-
eyringa og Kópavogsbúa voru
bornar saman við íbúaskrár”,
segir i greinargerðinni. Nokkur
nöfn, sem bera með sér útlendan
uppruna, eru á skránum, og var
ekki kannað til hlitar, hvort þeir
hefðu allir islenzkan rikisborg-
ararétt.
Undirskriftirnar skiptast þann-
ig á milli lögsagnarumdæma,
samkvæmt greinargerðinni:
Reykjavik 26.416
Kópavogur 2.505
Hafnarfjörður 3.480
Akranes 919
tsafjörður 831
Sauðárkrókur 397
Siglufjörður 487
Ólafsfjörður 275
Akureyri 2.989
Húsavík 342
Seyðisfjörður 233
Neskaupstaður 146
Vestmannaeyjar 798
Keflavik 2.000
Kaupstaðir alls: 41.818
Gullbringusýsla,
Kjósarsýsla 4.273
Mýra- og
Borgarfjarðarsýsla 621
Snæfellsnes- og
Hnappadalssýsla 749
Dalasýsla 171
Barðastrandarsýsla 408
ísafjarðarsýsla 558
Strandasýsla 63
Húnavatnssýsla 565
Skagafjarðarsýsla 462
Eyjafjarðarsýsla 691
Alfreð kvaðst ekki ver. að
Alíreð kvaðst ekki vera að
ljóst, að nú bæri að fara nýjar, og
jafn mörg iþróttahús og nú væru i
teiknun eða byggingu, væri
nauðsynlegt að fá fram
viljayfirlýsingu i þessum efnum.
— Það er sannfæring min, sagði
Alfreð Þorsteinsson að lokum, að
nái þetta mál ekki fram að ganga,
verðum við innan fárra ára
sakaðir um að hafa ekki verið
nógu framsýnir i þessum efnum.
Við höfum efni á að byggja stærri
hús en gert hefur verið — og það
er núna, sem við eigum að stfga
þetta skref.
Tillögu Alfreðs var vísað til
Iþróttaráðs með samhljóða at-
kvæðum.
Þingeyjarsýsla 571
Norður-Múlasýsla 218
Suður-Múlasýsla 702
Skaftafellssýsla 527
Rangárvallasýsla 975
Árnessýsla 2.063
Sýsluralls: 13.617
Óþekktheimilisföng 87
Undirskriftarskrár þessar
munu verða látnar liggja frammi
i gæzlu forsætisráðuneytisins.
Skólahljóm-
sveitin í
Hlégarði
SKÓLAHLJÓMSVEIT Mosfells-
sveitar á II) ára starfsafmæli um
þcssar mundir. Hljómsveitin
hefur viða komið fram opinber-
lega, m.a. I útvarpi og sjónvarpi,
og farið nokkrar hljómleikaferðir
um landið.
Stjórnandi hljómsveitarinnar
frá upphafi hefur veriö Birgir D.
Sveinsson, kennari, en auk hans
starfa nú við hljómsveitina Lárus
Sveinsson og Reynir Sigurðsson
hljóðfæraleikarar.
t tilefni afmælisins heldur
hljómsveitin tónleika i Hlégarði
n.k. laugardag 23. marz og
hefjast þeir kl. 15.
Leiðrétting
Mishermt var i frétt i blaöinu i
gær I grein um komu nýs skut-
togara til Keflavikur nafn fyrsta
vélstjóra, hann heitir Páll Karls-
son og er Grundfirðingur og Vest-
firðingur að ætt.
[ALFNAÐ ER VERK
ÞÁ HAFIÐ ER
^SAMVINNUBANKINN
Þorsteinn Sæmundsson afhendir forsætisráðherra og þingforseta
plöggin. —Tfmamynd Gunnar
55.522 Á SKRÁM
VARINS LANDS
Verður efnt til
alþingiskosninga?
i Degi á Akureyri er birtur
kafli úr ræðu, er Ingvar
Gislason, alþingismaðui; flutti
á k j ö r d æ m i s þi n g i
Framsóknarmanna i Norður-
landskjördæmi eystra, sem
haldið var á Akureyri sl.
laugardag. i þessari ræðu
gerði Ingvar grein fyrir
stjórnmála viðhorfinu nú og
ræddi m.a. um þann mögu-
leika,að þing yrði rofið og efnt
til kosninga til Alþingis fyrr
cn siðar. i lok ræðu sinnar
sagði Ingvar ma.:
„Eg hóf mál mitt með þvi
að benda á, að eftir núverandi
rikisstjórn liggur mikið og
merkilcg uppbyggingarstarf ,
sem lcngi mun sjá staö i
landinu, og sum verk hennar
eru svo mikils háttar, að þau
verða sett á bekk ineð stórvið-
burðum islandssögunnar. Það
er enginn kotungsbragur á
hugsjónum þessarar rikis-
stjórnar. Hcnni hefur farnazt
vel i ýmsum grundvallaratrið-
um. Ég nefni sérstaklcga
landhelgis málið, atvinnu-
uppbyggingu, byggðastefnu
og margháttaðar félagslegar
umbætur. En ég hef ekki
dregið dul á neitt þaö, sem af-
laga hefur farið. Ég hef gert
grein fyrir hinni veiktu aö-
stöðu rikissl jórnarinnar i
neðri deild Alþingis og þeim
erfiðleikum, sem framundan
eru I efnahags- og fjármálum.
Ég hef sagt, að rikisstjórnin
standi á vegamótum.
Veik staða
stjórnarinnar
Vegna hinnar veiktu aðstöðu
er óvist hvernigtakast megi að
koma fram nauðsynlegum
þingmálum. Af þessum sökum
má ’enginn láta sér koma á
óvart, þótt alþingiskosningar
verði á þessu ári. Ég vil
einnig segja það sem mina
skoöun, aö eölilegast væri, að
F r a m s ó k n a r m e n n h e f ð u
frumkvæöi að þvi,að stjórnar-
flokkarnir sameinuðust um
ákvörðun um þingrof og
kosningar, sem fram færu
annað hvort strax i vor eða i
septembermánuði. Þá yrði að
leggja þær kosningar þannig
fyrir, að kosið væri um áfram-
haldandi samstjórn vinstri
flokkanna undir forystu
Fra msókna rflokksins. Að
öðrum kosti væri veriö að
leiða ihaldið i valdastólana að
nýju.
Vinstra
samstarf
Akvörðun uni þingrof og
kosningar er þó slikt stórmál,
að það þarf náninnar ihugunar
við. Ég vil fyrst benda á það,
að slik ákvörðun er eklsi á
valdi Framsóknarflokksins
eins. Forsætisráðherra hefur
ekki einn vald til þess að velja
kjördag. Ef þessi hugsun mfn
ætti að verða að veruleika, þá
yrði ekki hjá þvi komizt að
hafa fullt samráð við aðra
stjórnarflokka, Alþýðubanda-
lagið og Samtök frjálslyndra
og vinstri manna.”
Þannig fórust Ingvari
Gislasyni orð. Alit fulltrúa á
þinginu var á eina lund um
nauðsyn áframhaldandi
vinstra samstarfs. Sú skoðun
átti fylgi aö fagna, að ríkis-
stjórnin ætti að styrkja að-
stöðu sina á Alþingi með þvl
að cfua til alþingiskosninga á
næstunni.