Tíminn - 22.03.1974, Síða 13
Föstudagur 22. marz 1974
TÍMINN
13
Gisli Alfreösson býr innan
þessara veggja og hann er eini af
lcikurunum i „Hollywood” sem
býr nútimaiega.
;:«ít
A húsi Fiosa Ólafssonar er mikið
af útskornum ufsum, bæði á þak-
skeggi og fyrir ofan glugga, eins
og þessi mynd ber giöggt með sér.
i þessari höll býr þjóðleikhússtjóri, Sveinn Einarsson...
Gsal-Reykjavik. — Gömul hús
höfðu um langan aldur lítíð sem
ekkert aðdráttarafl, og fáa fýsti
að hýsa í þeim fjölskyldur sinar.
Þá voru mörg falleg timburhús i
mikilli niðurniðslu og settu ljótan
svip á bæinn, — einnig fengu sum
þeirra skjót emdalok, þegar stór-
virkar vélar með gapandi kjafta
gleyptu þau i sig og möluðu þau
mélinu smærra.
Nú virðist áhugi á þessum
gömlu húsum vera að vakna til
muna, og margir lita á þau eins
ogx dýrmætar perlur, sem beri
vott um ákveðna sögu i islenzkri
byggingarlist. Alkunna er fram-
tak Torfusamtakanna, þegar þau
máluðu Bernhöftstorfuna i
Reykjavik einn morguninn, og
vist er, að sá verknaður opnaði
augu margra fyrir áður leyndri
fegurð húsanna.
Leikarastéttin hefur ekki farið
varhluta af þessari stefnubreyt-
ingu, sem sjá má á þvi, að marg-
ir leikarar búa i sama hverfinu,
þar sem gömul og falleg hús eru i
miklum meirihluta. Að visu eiga
þau tignarlegu hús litið sem ekk-
ert skylt við húsin á Bernhöfts-
torfunni, en margir leikaranna
hafa komið auga á þessar gömlu
perlur og þeir reyna eftir mætti
að halda gamla stilnum innan
veggja sem utan. Eðlilega eru
húsin mismunandi vel farin og
sum hver hafa tapað stórum hluta
af sinum gömlu fallegu einkenn-
um, en önnur eru svo til ósnortin.
Hér er um að ræða húsin við
Fremst á myndinni er húsið hans Flosa, stórt og tilkomumikið að sjá. Baldvin Halldórsson býr i húsinu
við hliðina.
Tjarnargötu norðan Skothúsveg-
ar og húsin við Suðurgötu næst
Skothúsvegi. Margir hafa nefnt
þetta hverfi i gamni: „Holly-
wood”, og það ekki að ósekju, þvi
að sennilega búa hvergi i bænum
fleiri leikarar i sama hverfi.
Eftirtaldir leikarar búa i
„Hollywood”: Baldvin Halldórs-
son, Sveinn Einarsosn, þjóðleik-
hússstjóri, Flosi Ólafsson, Gisli
Alfreðsson og Helgi Skúlason ku
ætla að flytja inn næstu daga.
Þetta er álitlegur hópur og við
höfum vitneskju um fleiri leikara,
sem vilja og hafa fulla huga á, að
fá inni I leikaraparadisinni fyrir
ofan Tjörnina.
i náinni framtið mun Helgi Skúlason og fjölskylda hreiðra um sig I þessu myndarlega húsi við Suöur-
götu.
...og hér sést baksvipur hússins.