Tíminn - 22.03.1974, Page 19
Föstudagur 22. marz 1974.
TÍMINN
19
..Ef Dietzenbach
heldur sér uppi
fer ég þangað"
— segir Axel Axelsson, sem hefur skorað 105 mörk í I.
deildarkeppninni
„Ef SG Dietzenbach
heldur sér uppi, þá
reikna ég fastlega með
því, að ég fari þangað,
heldur en til Hutten-
berg", sagði Axel
Axelsson stórskyttan í
Fram, þegar við spurð-
um hann, hvort hann
væri ákveðinn í því að
fara til V-Þýzkalands
næsta keppnistimabil.
Axel sagðist hafa
fengið bréf frá for-
ráðamönnum Dietzen-
bach sl. mánudag, þar
sem þeir segjast ganga
að öllum kröfum hans.
Nú bíður Axel bara
svars við þvi, hvort
Dietzenbach heldur sér
uppi í v-þýzku suður-
deildinni, og ef liðinu
tekst að halda sér uppi
þá má búast við þvi, að
Axei pakki niður hand-
knattleiksdótinu sínu og
haldi til V-Þýzkalands í
haust til þess að leika
m------►
AXEL AXELSSON...sést hér
skora 101. markiö sitt úr vita-
kasti. (Tímamynd Kóbert)
með liðinu næsta
keppnistímabil.
Axel braut blað i Islenzkri
h a n d k n a 111 e i k s s ö g u á
miðvikudagskvöldið, en þá
varð hann fyrstur manna til að
skora yfir 100 mörk i 1.
deildar keppninni, siðan
byrjað var að leika i stórum
sal. Axei skoraði 101. mark sitt
úr vitakasti, og hann skoraði 6
úr vitakasti, og hann skoraði
6 önnur mörk i leiknum gegn
þrumuskotum, sem hann er
þekktur fyrir. Axel hefur nú
skorað 105 mörk i 1. deildar
keppninni, og þar að auki hef-
ur hann matað Björgvin
Björgvinsson, linumanninn
snjalia, sem hefur skorað 56
mörk i deildinni. -SOS.
ÍR-RISINN
SKORAÐI
2000.
AAARKIÐ...
Íll-RISINN, Ágúst Svavarsson, skoraði 2000.
mark I. deildarkeppninnar i handknattleik,
þegar i R vann Ármann 14:11 i írekar lélegum
leik i Laugardalshöllinni á miðvikudagskvöldið
Mörkin i leiknum skoruðu þessir leikmenn: ilt: Vilhjálmur 6
(2 viti), Ágúst 5, bórarinn 2 og Gunnlaugur 1. ARMANN:
Hörður 3 (1 viti), Jón 3. Vilberg 2. Stefán, Olfert og Björn eitt
hver.
-SOS
6 AAÖRK
í LEIK
Geoff Hurts (nú Sloke)
hefur skorað 6 mörk i 1.
deildar leik. Hann skoraöi 6
mörk fyrir VVcst Ham á Upton
Park i Lundunum, þegar West
Ham vann Sundcrland 8:0 20.
október 1968.
Alf Wood <nú Millvvall)
hefur skorað 5 mörk i deildar-
leik. Hann skoraöi 5 mörk
fyrir Shrewsbury gegn
Blackburn Rovers i 3. deild
1971.
ÓLAFUR FÆRÐI VALS-
MÖNNUM SILFRIÐ...
— hann var óstöðvandi gegn Fram og skoraði 8 mörk með sínum
frægu undirskotum
ÓLAFUR JÖNSSON
handknattleiksmaðurinn
snjalli úr Val, færði
Valsmönnum silfurverðlaunin
i 1. deildar keppninni i hand
knattleik á miðvikudags-
kvöldið. ólafur lék frábærlega
vel gegn Fram og hann skor-
aði 8 stórkostleg mörk i leikn-
um — öll með undirskotunum,
sem hann er einn frægur fyrir.
Ólafur var óstöðvandi undir
lok leiksins og hann átti mest-
an þátt i þvi, að Valsmönnum
tókst að breyta stöðunni úr
16:16 i 22:18, en þannig lauk
leiknum. Ólafur sannaði það
enn einu sinni, að hann getur
skorað með langskotum. llann
á að gera meira af þvi að
skjóta, þegar honum tekst upp.
Annar Valsmaður, Jón
Karlsson,átti góðan leik, sinn
bezta á keppnistimabilinu.
Björgvin Björgvinsson var
beztur i Framliðinu, en félagi
hans, Axel Axelsson, náði sér
ekki á strik.fyrr en 9 min. voru
til leiksloka, en þá var það of
seint.
Það voru einnig tveir aðrir
menn, sem voru áberandi i
leiknum, en þaö voru dómar-
arnii; Björn Kristjánsson og
Óli Ólsen, sem dæmdu leikinn
mjög illa. Þeir túlkuðu regl-
urnar mjög einkennilega —
dæmdu smábrot og slepptu
siðan grófum brotum stuttu
siðar. Þeir áttu það til að visa
leikmönnum út af leikvelli
fyrir brot, sem voru mjög væg,
og stundum. græddu þeir
leikmenn, sem brutu af sér. á
brotunum og saklausir
leikmenn fengu .áminningu
fyrir brot andstæðinganna.
Finda var það orðið þannig
undir lok leiksins. að menn
skildi hvorki upp né niöur i
dómum þeirra.
Mörkin i leiknum. skoruöu
þessir leikmenn: VALUR:
Ólafur 8, Jón K. 5. Bergur 4.
Agúst 2. Gisli 2(2 viti) og
Stefán 1. FRAM: Axel 7 (1
viti). Björgvin 5, Pétur 2,
Ingólfur. Sigurbergur, Hannes
og Andréas.eitt hver. — SOS.
GEOFF HURST.