Tíminn - 14.05.1974, Qupperneq 13
12
TíMINN
Þriðjudagur 14. mal 1974.
Þriöjudagur 14. mai 1974.
TÍMINN
13
PALL Guðmundsson, skipstjóri á
Guðmundi RE-29, hinu fræga
aflaskipi, er meðal þeirra, er sæti
eiga á framboðslista Fram-
sóknarfiokksins við borgar-
stjórnarkosningarnar nú i vor.
Skipar Páll finimta sæti fram-
boðslistans.
Páll Guðmundsson er 46 ára að
aldri, önfirðingur að uppruna, en
foreldrar hans eru Guðmundur
Gilsson, bóndi og fyrrum skip-
stjóri á skútum og vélbátum og
móðir Páls var kona hans, Sigrlð-
ur Hagalinsdóttir frá önundar-
firði. Er Páll þvi bróðir Gils Guð-
mundssonar, alþingismanns.
Páll Guðmundsson hefur stund-
að sjómennsku lengi, bæði á fiski-
skipum og einnig á fragtskipum
Sambandsins þar sem hann sigldi
um árabil, en einkum er hann
kunnur fyrir afskipti sin af félags-
og öryggismálum sjómanna og
fyrir skipstjórn á nótaskipum og
þá ekki sízt á aflaskipinu Guð-
mundur RE 29, sem hann á og
stjórnar, ásamt Hrólfi Gunnars-
syni skipstjóra. Guðmundur RE
29 hefur verið aflahæsta loðnu-
skipið undanfarnar tvær vertiðir
og með hæstu skipum á Norður-
sjávarsíldveiðum.
Málefni fiskimanna
hugstæðust
Blaðið hitti Pál að máli, daginn
áður en hann hélt á skipi sínu til
slldveiða i Norðursjó (siðasta
vetrardag) og innti hann eftir
borgarmálum og til að forvitnast
um hvaða mál honum væru hug-
stæðust, þar eð Páll mun ef til vill
eiga eftir að setjast I borgar-
stjórn, og þá liklega sem vara-
borgarfulltrúi.
— Hvaða málum hyggst þú
helzt vinna aö?
— Þaö yrðu meðal annars mál-
efni fiskimanna og fiskiskipaút-
Rætt við
Pál Guðmundsson
skipstjóra,
sem skipar fimmta
sæti á framboðslista
Framsóknarflokksins
í Reykjavík
Páll Guðmundsson skipstjóriskipar fimmta sætið á lista Framsóknarflokksins við borgarstjórnarkosn-
ingarnar. Meðan aðrir borgarfulltrúar ganga um meðal kjósenda, stýrir Páll skipi sinu til sildveiða I
Norðursjó. Vonandi hefur þaðekki afdrifarlk áhrif I kosningabaráttunni.
Það nær vitanlega ekki nokk-
urri átt, að viðgerðarverkstæði,
sem vinna fyrir skip, hafi aðstöðu
i útjöðrum borgarinnar. Þetta
veldur meðal annars þvi, að við-
gerðir verða miklu dýrari, en
vera þyrfti og á vafalaust sinn
þátt I þvi, að flest skip leita til við-
gerða I erlendar hafnir, þar sem
aðstaða er betri.
íslenzku verkstæðin myndu
geta annað fleiri verkefnum og
mun ódýrara, ef aðstaða i landi —
bryggjuaðstaða — væri fyrir
hendi.
— Hvað telur þú brýnasta verk-
efnið I Vesturhöfninni nú?
Vesturhöfnin
er fiskihöfn
— Fiskimenn hafa alltaf gert
ráð fyrir þvi, að Vesturhöfnin sé
ætluð þeim, fiskiskipaflotanum
og skipum, sem koma til að sækja
afurðir. Það mun einnig hafa ver-
ið skoðun hafnarstjórnar, þar til
fyrir fáum árum, að strandhögg
var gert þarna, er Eimskipa-
félaginu og Hafskip var veitt
þarna dýrmæt aðstaða. Eim-
skipafélaginu var leigð þarna að-
staða á kostnað fiskiskipaflotans,
og dýrmætt athafnasvæði tekið
undir starfsemi skipafélaganna.
Þetta athafnasvæði, bryggjur,
vöruhús og opin svæði þyrfti að
skipuleggja fyrir fiskiskipin og
fiskiðnaðinn, til að greiða úr öng-
þveiti þvi, sem nú rikir. Gjald-
eyrisöflun verður að hafa ein-
hvern forgang, finnst okkur sjó-
mönnum.
— Þýðingarmest væri að fá is-
framleiöslustöð fyrir fiskiskipin
og 'fiskvinnslustöðvarnar á
bryggjuna, þannig að hægt sé að
fá Isinn beint i skipin, án þess að
þurfa að flytja hann gegnum
Eins og nú er ástatt, þá verða
hraðfrystihúsin að vinna dag og
nótt — þrjá til fjóra daga og eru
þá að bjarga aflaverðmætum
undan skemmdum. Á meðan
hrotan stendur, er litið, eða ekk-
ert unnið i öðrum hraðfrystihús-
um, þar til að þau fá sams konar
hrotu. Þetta stafar meðal annars
af þvi, að fiskgeymslur eru ekki i
höfninni, þar sem fiskurinn biður
óskemmdur I kössum og liggur
ekki undir skemmdum.
Ef þetta væri skipulagt skyn-
samlega, þá gætu frystihúsin
unnið með jöfnum afköstum allt
árið um kring, þvi að hráefninu
yrði dreift milli þeirra á hag-
kvæman hátt. Þetta þyrfti ekki að
hafa það I för með sér, að frysti-
húsin féllu frá úrræðum sinum og
útgerð, heldur yrði þetta eins
konar bankastarfsemi. M.ö.o.
þegar eitt frystihúsið hefur of
mikinn fisk, þá lætur það öðrum
eftir hlut aflans, og fær svo
endurgreitt i fiski, þegar ekkert
berst að.
Ófullkomin aðstaða
skipa kostar fé
— Þú hefur minnst hér á, að er-
lendis sé aðstaöa fiskiskipanna
mjög mikið fullkomnari, en hér I
Reykjavik?
— Já, þar sem íslenzku skipin
koma til viðgerðar er aðstaða
yfirleitt þannig, að smiðjurnar
hafa góða aðstöðu á hafnar-
bakkanum. Skipin fá rafmagn á
bryggjunni og verktakarnir fá
raforku niður i skipin. Ennfremur
hafa smiðjurnar aðstöðu á
bryggjunni til þess aö gera við
hluti, nema það alstærsta og litill
timi fer þvl i ferðalög með fólk og
hluti gegnum umferðarþunga
stórborganna. Þetta sparar allt
tima og fjármuni. Othaldsdagar
UTGERÐ OG FISKIÐNAÐUR
SKIPAR EKKI ÞANN SESS í
HÖFUDBORGINNI, SEM BER
gerðarinnar I höfuðborginni. Mér
hefur fundizt aðstaða skipa og
sjómanna og þá sér á parti fiski-
manna og fiskiskipa vera fyrir
neðan allar hellur. Útgerð og fisk-
iðnaður skipar ekki þann sess hjá
höfuðborginni, sem þeim ber. Það
mun t.d. vera mjög óvenjulegt, að
ekki skuli vera nein sjómanna-
stofa, eða annars konar afdrep
fyrir sjómenn I jafn miklum út-
gerðarbæ og Reykjavik óneitan-
lega er. Aðstaða fiskiskipanna er
einnig þannig, aö ekki verður
lengur við unað.
Búið er að þrengja svo að þess-
um skipum i Vesturhöfninni að
þar rikir á stundum hreint öng-
þveiti.
Engin bryggjupláss
til skipaviðgerða —
okrað á raforku til skipa
Skip sem t.d. þarfnast viö-
gerða, geta ekki fengið bryggju-
pláss og rafmagn fæst sjaldnast
um borð I skipin frá landi, sem er
mikið fjárhagslegt atriði, ekki
sizt vegna oliunotkunar og þess
gifurlega aukakostnaðar, sem
fylgir þvi að keyra ljósavélar
skipanna dag eftir dag I höfnum
inni, þegar auðvelt ætti að vera að
fá raforku frá raforkuverum i
landi, sem nota vatnsorku. Þetta
gerir reksturskostnað skipanna
meiri, en ella þyrfti að vera og
þjóðin tapar dýrmætum gjaldeyri
i oliu og vélarsliti.
Þá eru útgerðarmenn mjög
óánægðir með þaö, að þá sjaldan
aö það tekst að fá rafmagn frá
landi og þá fyrst og fremst til að
hita upp ibúðir skipanna, þá er
kilóvattið selt á 9 krónur, en til
húsahitunar i landi er kilóvattið
selt á eina krónu.
Skip verða að leigja
ljósavélar i landi
— Þetta er ekkert smá mál, þvl
á stundum liggja tugir stórra
fiskiskipa til viðgerða I Reykja-
vikurhöfn og keyra ljósavélar
sinar, eða leigja jafnvel ljósavél-
ar til þess að unnt sé að rafsjóða
um borð I skipunum og vinna þar
með nauðsynlegum rafknúnum
verkfærum.
— Aðstaða verktaka, sem taka
að sér verkefni um borð I skipun-
um er lika svo bágborin, að vart
verður unað við lengur. Við-
gerðarverkstæði, vélsmiðjur og
fl. hafa hvergi orðið aðstöðu við
Reykjavikurhöfn, heldur eru
þessar starfsstöðvar og önnur
þjónustufyrirtæki skipaflotans
með aðsetur langt inni i bæ og fer
oft mestur timinn i flutninga á
stykkjum og mannskap til og frá
vinnustað þ.e. skipunum og verk-
stæðisins.
Borgin beinir
viðgerðarvinnu
til útlanda
Loforð um fasta viðgerðar-
bryggju er búið aö gefa marg-
sinnis, en er ávallt svikið af yfir-
völdum og ekkert bendir til þess
nú, að úr þessu verði bætt.
umferöina i bænum á dýrum
flutningabifreiðum.
Þrefalt verð á is
til skipa i Reykja-
vik miðað við
erlendar hafnir
— Við, sem stundaö höfum
veiðar I Norðursjónum höfum
ágætan samanburð á Isverði til
skipa. í Danmörku þarf að fram-
leiða þennan is með rándýrri
orku, þ.e. oliu. Þar eru Isfram-
leiðslumannvirkin á hafnar-
bakkanum og kostar tonnið um
600 islenzkar krónur. Við hér
heima, sem búum við ódýra raf-
orku, getum keppt við Dani
þarna, þvi að hér á landi kostar
tonnið af Isnum á sama tima kr.
1500, (til skipa).
Isinn er, sem allir vita,dýrmæt-
ur, þvi með honum verja fiski-
mennirnir fiskinn skemmdum og
isnotkun flotans er mikil, sem
gefur auga leið.
Aðstaða fyrir
kassafisk er engin
i Reykjavik
— Einnig þyrfti að taka vöru-
húsin undir hráefnisgeymslur
fyrir hraðfrystihúsin og fisk-
vinnslustöðvarnar.
Núna er sú stefna að ryðja sér
til rúms, að setja allan fisk I
kassa, þar sem hann á að varð-
veitast betur en i kösinni. Þetta
er þvi miður óframkvæmanlegt,
ef aðstaða er ekki sköpuð I landi
fyrir fiskkassa. Þaö er Hfsnauð-
syn að koma upp sameiginlegri
fiskgeymslu á hafnarbakkanum,
þar sem hráefnið er geymt, þar til
það fer til vinnslu.
verða fleiri og rekstrarkostnaður
minni.
— Nokkuð, sem þú vilt segja að
lokum?
— Já. Framsóknarflokkurinn
vill berjast meðal annars fyrir
þvi, að þessi forna verstöð og út-
gerðarstöð, Reykjavik, megi
komast I hóp þeirra fullkomnustu
hér á landi. Reykjavikurhöfn og
skipulag fiskiönaðarins og fiski-
flotans er sameiginlegt verkefni
og mjög aðkallandi. Reykja-
vikurhöfn hefur ekki fylgzt meö
timanum. Við erum orðnir þvi
vanir, að sjá teikningar og tillög-
ur að einu og öðru, er höfnina
varðar, en þvi miður verður
aldrei neitt af framkvæmdum.
Þetta eru fallegir hlutir, en það er
þegar orðið ljóst, að ekkert raun-
hæft verður gert, nema nýr
meirihluti verði kosinn I borgar-
stjórn Reykjavikur, segir Páll
Guðmundsson að lokum.
Sjómaður og
stjórnmálin
Þetta viðtal er tekið siðasta
vetrardag og daginn áður en Páll
Guðmundsson heldur til sildveiða
I Norðursjó á skipi sinu Guð-
mundi RE 29. Hann mun þvi ekki
— um sinn að minnsta kosti —
geta tekið þátt I þeirri kosninga-
baráttu, sem fram fer að venju
fyrir borgarstjórnarkosningarn-
ar. Enda fyndist kannski mörgum
það dýrt, ef mestu aflamenn
nótaskipaflotans, færu I pólitikina
i stað þess aö færa heim björg i
bú. Þó er það svo, að það er ein af
undirstööum þess stjórnkerfis er
við búum við, að valdir séu hæfir
menn úr sem fjölbreyttustum
starfsgreinum, til að stjórna
borginni og landinu. Páll Guð-
Guðmundur RE 29heldur til veiða á Norðursjávarmiðum á sumardaginn fyrsta.
Guðmundur RE 29 á loðnumiðunum út af Jökli.
mundsson hefur með lifsstarfi mennsku, útgerð, og ekki sizt i
sinu til sjós og lands, I sjó- félagsmálum, sýnt, að hann er
verðugur fulltrúi sjómanna- flokksins I komandi borgar-
stéttarinnar á lista Framsóknar- stjórnarkosningum. JG
auðvitað þarf málninyin
ð þaki hðss yflar
ekki að þola eins mikið
og gðð skipamálning
en betra þó, að hún geri það
Rex-skipamálning er framleidd sérstaklega með tilliti til siglinga í norðurhöfum og umhverfis ísland í misjöfnum veðrum:
Vetrarstormum, stórhríðum, ísingu, rigningu og í sumarsól.
í þessum veðrum hefur Rex-skipamálningin ótvírætt sannað hið mikla slitþol sitt, og þetta getið þér með góðum árangri
hagnýtt yður á þaki húss yðar. Notið Rex-skipamálningu og þakið verður fallegra og endingin betri.
Skoðið nýja Rex-litakorfið með 30 glæsilegum litum, - þér fáið hvergi meira litaúrval.
REX SKIPAMÁLNING
á skipin - á þökin
mmsn
2 Txkniwof* b «uglý>ingaþ|ónutu (f.