Tíminn - 14.05.1974, Síða 24
fyrirgóóan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
r
Voriö brosir til okkar Ur öllum áttum, og vorhugurinn hefur gripiö baeöi menn og dýr og birtist I
ýmsum myndum. Hér sjáum viö kátar telpur, sem varla geta hamiö fögnuö sinn yfir sólskininu
Timamynd: GE.
og veöurblóöunni.
Danmörk:
Verkföll og mótmælafundir
vegna sparnaðarfrumvarps
NTB-Kaupmannahöfn. — Um 60
þúsund verkamenn vfös vegar um
Danmörku lögöu niöur vinnu i
gær til aö mótmæla frumvarpi
stjórnarinnar um sparnaö og
liækkun söluskatts. 40 þUsund
manns söfnuöust saman viö þing-
hUsiö til aö mótmæla frum-
varpinu.
Flestir verkamannanna sem
lögöu niöur vinnu, hófu ekki störf
aftur eftir hádegi, en matar-
timinn var notaöur á vinnu-
stöövunum til aö halda fundi um
frumvarpiö. 011 vinna lagöist
niöur viö höfnina I Kaupmanna-
höfn og ekkert var unnið við
hUsabyggingar i landinu. Þeir
sem mótmæltu utan viö
Christiansborg kröföust þess, aö
fulltrúar sósiölsku flokkanna
þriggja kæmu út og gerðu grein
fyrir afstöðu sinni til sparnaðar-
frumvarpsins. Anker Jörgensen,
formaöur jafnaöarmanna-
flokksins, neitaði aö tala á fund-
inum, og var þvi þeirri afstööu
hans harölega mótmælt. Hins
vegar lofaði hann þvi, að flokkur
sinn myndi taka „sósialska”
afstööu til frumvarpsins. Hinn
nýkjörni formaöur Sósialska
þjóöarflokksins, Petersen, réðst
harkalega að jafnaðarmönnum
fyrir að standa I samningamakki
viö borgaralega stjórn og Jesper-
sen, formaöur Kommúnista-
flokksins, sagði að nú væri um
þaö aö velja að gera þúsundir
manna atvinnulausa eða koma
Hartling forsætisráöherra úr
embætti sinu.
Þingfundir lágu niðri i gær, en
forystumenn flokkanna réöu
ráöum sinum i þinghúsinu, og
veröur frumvárp stjórnarinnar
rætt I þinginu i dag.
JARÐSKJALFTAR
í BORGARFIRÐI
HARÐUR jaröskjálftakippur
varö f Borgarfiröi siðast liöinn
laugardagsmorgun. Upptök
skjálftans voru I Siðufjalli, og
nötruöu öll hús i Hvitársiðu, og
lausir munir á hillum og i skápum
féllu um koll. Kippurinn var svo
harður, aö hann fannst viða ui t
Vesturland, og varö hans grein i
lega vart i Reykjavik. Kippur
þessi mældist 4,5 stig á Richters-
mælikvarða.
Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðingur sagði
Timanum i gær, aö jarðskjálfta-
kippa hefði orðið vart á þessum
slóöum um siðustu mánaðamót,
og hafi þeir dunið yfir öðru hverju
allt siöan. En sá á laugardags-
morgun var þeirra haröastur. Á
sunnudagskvöld kom annar
haröur kippur, sem vel fannst i
Reykjavik. Mældist hann 4 stig.
Atti hann upptök sin norður af
Kirkjubóli. Margir smærri kippir
hafa mælzt og fundizt. Ekki hafa
orðið jafnmiklir jaröskjálftar á
þessu svæöi siðan farið var að
mæla jarðskjálfta hér á landi.
Ragnar sagði, að ekkert benti
til aö menn þyrftu að óttast meiri-
háttar jarðskjálfta i Borgar-
firðinum. Þar eru öfl að leysast úr
læðingi og kvaðst hann búast við
að hræringarnar héldu áfram i
nokkrar vikur, en færu dvinandi
úr þessu.
AFRETTARAAALINU
VÍSAÐ FRÁ DÓMI
— þar eð það taldist ranglega upp tekið
JH-Reykjavik. — Máli þvl, sem
rcis út af eignarumráðum yfir
Holtamannaafrétti, hefur verið
vísað frá á þeim grundvelli, að
það hafi ranglega verið tekiö upp
sem eignardómsmál með opin-
berri stefnumeðferð, er eigi hafi
átt við i þessu tilviki. Verður
úrskurði þessum áfrýjaö til
hæstaréttar, að þvi er Siguröur
Ólason lögmaður tjáði blaðinu.
Aftur á móti kvað hann óvist, að
önnur réttarfarsmeðferð en sú,
sem við var höfð, ætti við, og
kynni máliö þvf að verða látið
niður falia.
Rikiðlýstiá sinum tima eignar-
umráðum sinum yfir Holta-
mannaafrétti, og eru um tvö ár
slöan málið hófst. Gáfu sig þá
fram bæði forráðamenn hreppa
og jarðeigendur, bæði sunnan
fjalla og norðan, er töldu gengið á
rétt sinn. Aðilar i Rangárvalla-
sýslu höfðu lengi farið með
þennan afrétt sem sina eign, og
meðal annars höfðu þeir á sinum
tíma selt Titanfélaginu, sem
hugðist virkja Þjórsá, viss
réttindi, og rikið siðan keypt þau
afturafTItanfélaginuuppúr 1950.
Eins og áður er sagt var ekki
kveðinn upp efnisdómur i málinu
og óvist, að það veröi nokkurn
tima gert. Meðdómendur voru
Þórhallur Vilmundarson
prófessor og Steingrimur Gautur
héraðsdómari.
INNRÁSARLIÐIÐ STAL
PENINGUM, BANKA'
BÓK OG MÁLVERKI
TVEIR karlmenn og ein kona
ruddust s.l. sunnudag inn i Ibúð 83
ára gamals manns, sem býr við
LAXASTIGI I TUNGUFLJOTI
OPNAR LAXVEIDIPARADÍS
—hs—Rvik. Síðast liðinn föstu-
dag, þann 10. mal, var hafizt
handa við að sprengja fyrir laxa-
stiga við Faxa, eða öðru nafni
Vatnsleysufoss, i Tungufljóti. Það
er Stangveiðifélag Reykjavlkur,
sem stendur fyrir þessum fram-
kvæmdum.
Að sögn Baröa Friðrikssonar,
sem er formaður Stangveiði-
félags Reykjavlkur, eru þetta
Kópavogur
Timann vantar umboðsmann i Kópavogi
Upplýsingar veitir Gunnlaugur Sigvalda-
son i sima 26500.
nokkuð miklar framkvæmdir,
sprengingar og siðan steypu-
vinna, og veltur það á ýmsu,
hvenær unnt veröur að ljúka
þeim, m.a. á þvl hvernig gengur
að fá mannskap. Stefnt er þó að
þvi að ljúka þessu fyrir lok júni-
mánaðar, áður en aðal laxveiði-
timinn byrjar þarna.
Fyrir ofan Faxa eru sex
þverár, mismunandi stórar, sem
Stangveiðifélag Reykjavikur
hefur undanfarin þrjú ár sett
mikið af seiðum i, að sögn Baröa,
og vonuðust menn til aö fara aö
sjá einhvern árangur af þvi
starfi. Sagði Baröi, að sumar af
þessum þverám væru býsna álit-
legar, og reyndar hafi Tungufljót
verið mikil laxá, áður en jökullinn
komst i hana.
1 samvinnu við sandgræðslu-
stjóra og jafnvel vegamálastjóra
verður væntanlega reynt að stifla
kvisl, sem gengur úr Sandvatni i
Tungufljótið og menn halda að
skemmi fljótið mikið sem lax-
veiðiá. Er ástæðan einkum sú, að
framburöur þessarar kvislar er
vikurblandinn, og álitiö að hann
sé mjög slæmur. Baröi sagði, aö
efunntyrðiað veita þessari kvisl
yfir I Sandá, þá væru góðar vonir
með, að Tungufljót gæti oröið
verulega góð laxveiöiá. Fljótið
yrði þá bergvatnsá eins og áður.
Barði sagði, að kostnaður við
þessar framkvæmdir yrði milli 2
og 3 milljónir, sem ætti þó ef til
vill eftir að hækka eitthvað, en til
framkvæmdanna hefur fengizt
lán úr Stofnlánadeild og úr Fiski-
ræktarsjóði.
Guðmundur Gunnarsson verk-
fræðingur hefur teiknað laxa-
stigann, en fossinn Faxi er um 11
km fyrir ofan ármót Tungufljóts
og Hvitár.
I stangveiðifélagi Reykjavlkur
eru um 1400 meðlimir, og sagöi
Barði Friðriksson aö lokum, aö
menn væru mjög spenntir og
væntu mikils af þessum fram-
kvæmdum, þarna ætti að geta
skapazt sannkölluð paradis fyrir
laxveiöimenn.
Eskihllð. Meinuðu þau gamla
manninum að fara út, slitu sima
hans úr sambandi og heimtuðu af
honum mat og peninga. Sátu þau
þarna fram eftir degi og höfðu
siðan á brott með sér allt lausafé
húsráðanda, bankabók hans og
málverk, sem rifið var ofan af
vegg.
Um kvöldið tókst lögreglunni að
ná I konuna og annan manninn, en
hinn náðist ekki fyrr en siðar.
Ekki lagöi innrásarliðið hendur á
gamla manninn að öðru leyti en
þvi, að honum var meinað að fara
út úr ibúð sinni.
Lögreglan hafði i mörgu að
snúast um helgina, enda var
drykkjuskapur meö mesta móti.
Á einum stað varð að kalla til
lögreglu og sjúkrabil, þar sem
maður varð ósáttur við sambýlis-
konu sina. Létu þau afl ráða, og
reyndist karlmaöurinn sterkari.
Honum tókst að viðbeinsbrjóta
sambýliskonuna, og var hún blá
og marin eftir barsmiðar hans,
þegar nágrönnum tókst að ganga
á milli, en varla sást á karl-
menninu.
Brotizt var inn i bilaverkstæði
við Sundlaugaveg og stolið þaðan
miklu af verkfærum, bæði hand-
verkfærum og rafmagnstólum.
Magnið, sem stolið var, er svo
mikið, aö þjófurinn eða þjófarnir
hafa haft vélknúiö ökutæki til
umráða.