Tíminn - 19.05.1974, Page 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 19. mai 1974.
Börnin
þroskast
við listnám
Þó að teiknikennsla sé nú orðiö í
flestum barnaskólum um viða
veröld.þá er það viðurkennt að
mörg börn hafa svo skapandi
listgáfu og fá mikla gleði og
ánægju af ýmiss konar listnámi,
svo sem leirmótun og málun
með oliulitum og fleira, að æski-
legt er að þau fái meiri kennslu.
Einnig eru mörg börn, sem
stunda músiknám með venju-
legu barnaskólanámi, og ná
furðu langt undir handleiðslu
góðra kennara. t sovézkri borg
sem heitir Orjonikidze og er i
Norður-Ossetianfylki hefur
verið komið upp sérstökum
listaskóla fyrir börn á aldrinum
10 til 15 ára. Er þar bæði kynnt
og kennd alls konar tónlist,
aðallega er lögð áherzla á si-
gilda tónlist og einnig þjóðlög,
og þá einkum rússnesk þjóðlög,
iÞar fóll kempan hann Killy?
Margir muna enn eftir fræga
skiðakappanum Jean-Claude
Killy, sem fékk þrenn gullverð-
laun á Vetrar-Olympiuleikunum
áriö 1968. Hann varð á stuttum
tima heimsfrægur, og þótti
einnig mjög glæsilegur ungur
maður. Hann fékk tilboð um að
leika i kvikmyndum, og þá
auðvitað sérstökum skiða-
myndum. Hann stóð sig bara vel i
leikarastarfinu og lék i kvik-
mynd, sem á ensku nefndist
„Snow Job”. A móti honum i
þeirri mynd lék leikkona, sem
Héitir Daniele Gaubert og er 29
ára gömul. Killy sjálfur er 30 ára.
Siðan þau léku saman hafa þau
verið óaðskiljanleg, og um ára-
mótin siðustu gengu þau i hjóna-
band. Aður var Daniele gift syni
Trujillos einræðisherra i Dómini-
kanska lýðveldinu, sem var
ráðinn af dögum, en sonurinn
heitir Rhadames Leonidas
Trujillo, og áttu þau Daniele tvö
börn saman. Skiðahetjan Killy
vann hug hennar og hjarta, svo
hún skildi við dóminikanska
einræðisherrasoninn. Killy hefur
ekki verið kvæntur áður, og
siðustu árin hefur verið talað um
hann sem eftirsóttasta pipar-
sveininn i Evrópu, — en nú er sem
sagt kempan fallinn!
Tannhirðing fyrr og
1 blöðunum sjáum við oft aug-
lýsingar um tannkrem, og þar
er sýnt brosandi fólk, með glitr-
andi hvitar tennur brosandi út
að eyrum, og notendum er bent
á að nota einmitt þessa tegund
af tannhreinsiefnum þá fái þeir
slikar tennur. 1 Banda-
rikjunum, þar sem auglýsinga-
strið herjar á öllum sviðum, er
samt ekki nema sex manns af
hverjum tiu, sem nota tann-
krem til hreinsunar tönnum
sinum. Sumir vilja heldur nota
salt eða sápu, og aðrir segjast
hreinsa tennurnar með þvi að
borða epli I eftirmat, eöa aðeins
stanga úr tönnunum með þar'til
gerðum tannstöngli. 1 gömlum
pýramita i Egyptalandi frá þvi
3500 árum fyrir Krist hefur
fundizt tannstöngull úr gulli, ’
svo að egypzku faróarnir hafa
hirt tennur sinar með pomp og
prakt. Á leirtöflu frá Babýlon
nú
frá þvi árið 700 f.K. er sagt frá
aðferð, sem þarlendir notuðu til
að hreinsa tennur sinar, og var
þá smábómullarhnoðra snúið
utan um teinung. Cesar og
hersveitir hans notuðu duft til
tannhreinsunar, sem búið var
til úr ösku af uxahófum, brunnu
eggjaskurni, reykelsi og ilm-
efnum. Tannkrem, eins og við
notum nú til dags kom fyrst á
markaðinn um aldamótin
siðustu. Það er hægt að fá tann-
hreinsiefni með margvfslegu
bragði. Algengt er að af þvi
séu ávaxtabragð td. banana eða
jarðarberjabragð og einnig meö
súkkulaðibragði og meira að
segja whisky-bragði, og nú ný-
lega er komið á markaðinn i
Ameriku tannkrem með
kokkteil-bragði, — heitir sú
tegund Dry Martini og er það
rándýrt i notkun, en mikið eftir-
spurt og keypt!