Tíminn - 19.05.1974, Blaðsíða 14

Tíminn - 19.05.1974, Blaðsíða 14
14 TÍMINN Sunnudagur 19. mai 1974. BANDARÍKJAMENN HAFA EYÐILAGT MIKINN HLUTA GRÓÐURLENDIS í VÍETNAM íslendingar langlífir Bandarikjamenn hafa ausiö ógrynni af gróftureyöandi efnum yfir gróðurlendi i Vietnam, og tal- ið er að áhrifa þeirra muni gæta næstu hundaö árin, að þvi er segir i skýrslu sautján visindamanna frá Bandarikjunum, Bretlandi, Sviþjóð og Suður-Vietnam. Geigvænleg gróöureyðing hefur hlotizt af eituraustrinum, en auk þess hefur f jöldi barna beðið bana af þvi að hafa neytt eitraðrar fæðu. Aður hefur þvi verið haldið fram, að eiturefnin hafi valdið þvi, að fjöldi kvenna i Vietnam hafi látið fóstri, en ekki er vikið að þvi í skýrslu þessari. Eitrið hefur valdið miklum skemmdum á gróðri, að þvi er segir i skýrslu visindamannanna sautján. Hitabeltisskógarnir inni i landinu hafa orðið fyrir miklum áföllum, og 36% mangróveskóg- anna við sjávarsiðuna hefur verið eytt. Visindamennirnir eru hins vegar ekki á eitt sáttir um hversu miklum hluta hitabeltisskóganna hafi verið eytt. Skógarhögg er mikilvæg atvinnugrein i Vietnam, og mikill hluti viðarins er sóttur i hitabeltisskógana, þannig að fjárhagslegt tjón af eitrinu er mikið á þvi sviði. Rannsókn visindamannanna sautján var gerð að tilhlutan bandariska þingsins og hermála- ráðuneytisins. Háttsettir bandariskir herfor- ingjar telja, að tjónið sé ekki eins mikið og alvarlegt og visinda- menn álita. A árunum 1961-’71 vörpuðu Bandarikjamenn úr flugvélum rösklega fimmtiu milljónum kilóa af eitri yfir gróðurlendi i Suður- Vietnam, en það svarar til þriggja kilóa á hvert mannsbarn i landinu. Um það bil sjöundi hluti landsins var úðaður með gróður- eyðandi efnum. NTB-New York. Jarðarbúar voru 3,8 milljarðar i júni árið 1972, samkvæmt skýrslum Sameinuðu þjóðanna. Jarðarbúum hefur fjölgað um 76 milljónir á einu ári. Ef sama hlutfall verður i mann- fjölguninni, verða jarðarbúar tvöfalt fleiri árið 2007. Tiu fjölmennustu riki heims eru: Kina 800,7 milljónir, Indland 563.4 milljónir, Sovétrikin 247,4, Bandarikin 208,8, Indónesia 121,5, Japan 109, Brasilia 98,8, Vestur- Þýzkaland 61,6, Bangla Desh 60,1 og Nigeria 58 milljónir. Tiu stærstu borgir i heimi eru talið i milljónum: Shanghai 10,8, Tokyo 8,8 (1971), New York 7,8 (1970), Peking 7,5 (1970), London 7.4 (1971), Moskva 7,1 (1972} Mexico City 6,8 (1970), Bombay ÓPÍUMVALMÚI er nú aftur ræktaður I Tyrklandi eftir tveggja ára hlé. Landbúnaðar- ráðuneytið i Ankara hefur til- kynnt opinberlega, að ópiumval- múinn sé nú ræktaður i sex stöð- um i Suðvestur-Tyrklandi, og er það gert á vegum ríkisins og und- ir ströngu eftirliti. Hin nýja stjórn i Tyrklandi hef- ur lofað að standa við það heit, sem Bandarikjamönnum var gef- ið, að einkaaðilar fái ekki leyfi til að rækta valmúann. Þúsundir 5,9 (1971), Seoul 5,5 (1970), Sao Paulo 5,1 (1970). I þessum tölum er aðeins átt við hinar eiginlegu borgir, en ekki út- borgir þeirra. Samkvæmt skýrslum frá Sameinuðu þjóðunum hafa hol- lenzkar konur lengstan meðalald- ur kvenna heimsins. Meðalaldur þeirra er 76,6 ár, Sænskar, is- lenzkar, franskar og rússneskar (Hvita Rússland) koma næstar með meðalaldur um 76. Sænskir karlmenn hafa lengst- an meðalaldur I heimi, eða 71,69 ár. íslenzkir, norskir, danskir, hollenzkir og israelskir hafa einn- ig háan meðalaldur, um 70 ár. 1 aðeins sjö löndum heimsins lifa menn lengur en konur. Þessi lönd eru Nigeria, Efri Volta, Ind- land, Ceylon, Kambodia, Paki- stan og Jórdan. bænda biða eftir að fá leyfi til að hefja á ný ræktun á ópium, en það var bannað árið 1972 vegna ein- dreginna óska Bandarikjamanna, en mikið af þvi heróini, sem selt er ólöglega þar i landi, er unnið úr ópiumvalmúa, sem ræktaður er i Tyrklandi. Búizt er við, að brátt muni tyrk- neskir bændur fá leyfi til að rækta ópiumvalmúa, en stjórnin hefur heitið þvi, að bændurnir selji ópi- um ekki til smyglara, sem selja það úr landi. Bandariskar flugvélar úða eitri yfir skóga I Vietnam. ÓPÍUMVALMÚI RÆKTAÐUR í TYRKLANDI Á NÝ Einræðisstjórnir Suður-Ameríku ó sakborningabekknum í Róm Otlægir stjórnmálamenn frá flestum löndum Suður-Ameriku komu saman i Róm i aprilbyrjun til að taka þátt i Russelréttar- höldum um stjórnmálaástandið i löndum sinum. Fjöldi iðnaðarmanna, blaða- manna, verkamanna, stúdenta og stjórnmálamanna vitnuðu þrjá fyrstu daga réttarhaldanna um pyndingar og pólitisk morð i Brasiliu. Þeir hafa einróma vitn- að um afrifnar neglur, rafmagns- högg gegnum munn og kynfæri, læknisfræðilegar pyndingar, út- rifin innyfli, barsmið, — allt undir eftirliti nútima læknavisinda til að hindra fórnarlömbin i að deyja of snemma. Pyndingar sem stofnun Eitt vitnanna, kvikmyndatöku- maðurinn Wellington Deniz, skýrði frá hvernig karlmenn, konur og börn frá heilu þorpi á svæðinu Oalma Ribeiro, hefðu verið brennd með napalmi. ,,En við viljum ekki, að pyndingarnar verði sögulega merkilegar fyrir Suður-Ameriku”, sagði eitt vitn- anna, brasiliski félagsráögjafinn Maya Dulce. „Við viljum skýra frá, að pyndingarnar eru orðnar pólitisk stofnun hjá rikisstjórnum þessara landa”. Maya Dulce var látin laus úr fangelsi ásamt 40 öðrum pólitisk- um föngum i skiptum fyrir þýzk- an sendiherra, sem skoðanabræð- ur hennar rændu i júni 1970. Hún fór til Chile, en flúði þaðan, þegar herforingjabyltingin var gerð gegn Allende. Fleiri vitni voru úr hópi þessara fanga. Það eru ekki margir, sem eru i þvi ástandi að þeir geti vitnað. Fyrrverandi landstjóri i rikinu Pernambuco I Brasiliu, Miguel Arraes lagði fram kæru gegn rikisstjórn Brasiliu. Hann er einn af 40 manna hópnum, var dæmd- ur i 24 ára fangelsi, en lifir nú i út- legð i Alsir. Hann var útnefndur sem fulltrúi allra útlægra Brasi- liumanna, sem upphaflega báðu Russel-stofnunina um réttarhöld. Einnig hafa verið lagðar fram ákærur gegn Chile og Uruguay, Haiti, Paraguay, Guatemala, Puerto Rico og Bóliviu. í ákæru sinni benti Arraes á, að hið svokallaða efnahagslega kraftaverk i Brasiliu undir her- foringjastjórninni siðan 1964 er heldur vafasamt. Þjóðartekjurn- ar hafa vaxið gifurlega, en aukn- ingin hefur gerzt innan eins pró- sents ibúanna. Kjör bænda og verkamanna, sem eru 60% þjóðarinnar, hafa sama og ekkert batnað. Samkvæmt opinberum, brasiliskum tölum, hefur hluti þessa fólks af þjóðarframleiðsl- unni fallið frá 25% i 20% frá 1965. Arið 1965 varð verkamaður i Brasiliu að vinna sjö klukku- stundir og 40 minútur til að kaupa sex kiló af brauði. Nú verður hann að vinna 13 tima og 30 minútur til að kaupa sama brauðmagn. „Brasilianska einræðisstjórnin stefnir tilveru okkar sem þjóðar i hættu”, sagði Arraes. „Efnahag og framleiðslu er stjórnað af auð- hringum. Hinar gifurlegu námu- auðlindir okkar hafa verið af- hentar félögum. Þessi stefna breiðist frá Brasiliu til annarra rikja Suður-Ameriku og einnig flytjast út villimannlegar aðferð- ir til að koma á nýjum einræðis- stjórnum, eins og gerðist i Chile i september siðastliðnum.” Akærandinn frá Chile, sendi- herra Allendes i Róm, Carlos Vasallo, endurtók i ákæru sinni, sömu ásakanir um erlendan — ameriskan og brasiliskan — stuðning við byltinguna i Chile. 5000 drepnir í Uruguay Akærandinn frá Uruguay, fyrr- verandi sósialistiskur iðnaðar- ráðherra, Zelmer Michelini, sem nú er i útlegð, hafði mjög mikil áhrif á áheyrendur. Kannske vegna þess, að hann sagði frá harmleik, sem heimurinn hefur hingað til verið næsta fáfróður um. Hann lýsti landi sinu, sem lýðræðisþjóðfélagi i framför, þangað til utanaðkomandi öfl komu einræðisstjórn á laggirnar árið 1968. Siðan þá hafa 5000 póli- tiskir fangar verið pyndaðir til dauða (ibúarnir eru tvær og hálf milljón) og i fangelsum landsins eru 40.000 pólitiskir fangar. „Það er á þeirra vegum, sem við tölum hér — við erum raddir hinna dauðu og þöglu”, sagði hann. Fyrstu réttarhöld dómstólsins i Róm rannsaka aðeins ákærur um fótumtroðin mannréttindi. Á tveimur næstu fundum (næsti verður haldinn i Bruxelles), verð- ur fjallað um ákærurnar um hina amerisku „fótunitroðandi heims- valdastefnu” i Suður-Ameriku og útrýmingu Indiána. Víðtækari réttarhöld Suður-Ameriku-réttarhöldin eru frábrugðin Russel-réttar- höldunum um Vietnam i Stokk- hólmi og Hróarskeldu fyrir nokkrum árum. Þau hafa öðlazt breiðari grundvöll. Nokkrir mannanna i dómstólnum eru þeir sömu, t.d. forsetinn, italski þjóð- réttarfræðingurinn Lelio Basso, heiðursforsetinn Jean-Paul Sartre, sem gat ekki verið við- staddur vegna veikinda og júgó- slavneski sagnfræðingurinn Vladimir Dedijer. En dómstóllinn hefur einnig fengið til liðs við sig mikla per- sónuleika á sviði heimspeki, stjórnmála og trúmála, m.a. fjóra ameriska og franska Nóbelsverðlaunahafa, fyrrver- andi forseta i Dóminikanska lýð- veldinu, Juan Bosch, suðurame- risku rithöfundana Gabriel Marques og Julio Cortazar, ame- riska barnalækninn Benjamin Spock og tungumálavisinda- manninn Noam Chomsky, auk fjölda forystumanna kaþólskra og mótmælanda og suðurame- riskra og evrópskra lögfræðinga. —gbk Uruguay: Fangelsin fyllast. EKKI EINS ORT OG AÐUR EVRÓPUMÖNNUM FJÖLGAR Fámennari fjölskyldur og hærri meðalaldur valda lægri fólks- fjölgunarprósentu i Evrópu næstu árin, segir i skýrslu frá hag- vaxtarnefnd Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu. I byrjun 21. aldar verða ibúar Evrópu um 70 milljónum fleiri en nú. Ef Sovétrikin eru meðtalin, verðurtalan 135 milljónum hærri. Þetta felur i sér minni eða jafn- mikla fólksfjölgun næstu 30 árin, en átt hefur sér stað siðastliðin 20 ár. Prósenttala barneigna lækkar, og tuttugasta hver manneskja verður rúmlega 75 ára. Arið 2000 verða 14% ibúa heimsins búsett i Evrópu, en nú eru i Evrópu 20% ibúa heims. Ef Sovétrikin eru ekki talin með, verður hlutur Evrópu i byrjun aldarinnar niu prósent. Aukning fæðinga i Austurriki, Belgiu, Finnlandi, Vestur-Þýzka- landi, Austur-Þýzkalandi og Svi- þjóð er nú undir 14 af 1000, sem er það lægsta, sem hefur verið skráð. gbk

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.