Tíminn - 19.05.1974, Síða 16

Tíminn - 19.05.1974, Síða 16
16 TÍMINN Sunnudagur 19. mai 1974. „Nýja leiklistarhreyf ingin mesta átak í félagsmálum hér á Akranesi í mörg ár" GUNNAR Sigurðsson heitir ungur athafnamaður á Akranesi. Hann er formaður æskuiýðsráðs Akraness og varaformaður knatt- spyrnuráðs staðarins. Viö Tima- menn hittum Gunnar að máli, viidum fræðast um starfsemi æskulýösráðs og um gang knatt- spyrnumála á Skaga. „Æskulýðsráð Akraness er ráðgefandi aðili" — Æskulýðsráð vinnur sem minnst að sjálfstæðum verk- efnum, heldur er ráðið, — eins og nafniö ber raunar með sér, — ráð- gefandi aöili fyrir félögin, sem starfa i bænum. Árlega höldum við fund með öllum félögunum og ræðum samstarfið. Stærsti hlutinnafþvi fjármagni, sem við höfum til ráðstöfunar, fer til þess að styrkja félögin á einn eða annan hátt. Oft er peningunum varið til félagsmálaþjálfunar og til aö félögin fái hæfa leiðbein- endur til starfa. Sem dæmi get ég nefnt að æskulýðsráö styrkti KFUM til Noregsfarar á félags- málanámskeiö, skátafélagið var styrkt til farar aö Úlfljótsvatni, og fleiri félög hafa fengið styrk frá ráðinu. t ár höfum við fengið sjö hundruð þúsund króna styrk frá bæjaryfirvöldum, sem ber vissulega vott um skilning á starfsemi okkar. Það er stefna æskulýðsráðs að vera ekki i beinni samkeppni við frjálsu æskulýðsfélögin i bænum, heldur að styrkja þau og styðja við bakið á þeim við ýmis verk- efni. ,/Mesta átak i félags- málum". — Fyrir tveimur árum skaut sú hugmynd upp kollinum, að nauð- syn bæri til að endurvekja Leik- félag Akraness. Siðan hefur þessi hugmynd fengið á sig æ' skýrari mynd, og um siðustu áramót þótti rétt að taka þessi mál föstum tökum. Árangurinn af þvi starfi var uppfærsla leikritsins Járn- hausinn, eftir þá bræður Jónas og Jón Múla Árnasyni, núna i vor. Um sjötiu manns taka meira og minna þátt i leikritinu, og það sem kannski er hvað merkilegast, er sú staðreynd, að það var ekki talið, að þessi stóri hópur af leik- listarunnendum væri til i bænum Gisli Alfreðsson leikari var stjórnandi hópsins, og margar næturnar var æft af kappi, þegar frumsýningin nálgaðist. Það er og rétt að geta þess, að almenn- ingur virðist kunna vel við þessa tilbreytni,og sýningar urðu fleiri, en menn þorðu að vona i upphafi Leikfélag hefur verið stofnað, og voru stofnfélagar 96. Félagið hlaut nafngiftina Skagaleikflokk- urinn. Leikhúsmálin og þessi nýi og ferski andi, sem hefur sprottið upp hér á Akranesi i sambar.di við leiklist, er efalitið mesta átak i félagsmálum hér i bæ i mörg ár. Um sýningu Undirritaður blaðamaður Timans brá sér á sýningu á Járn- hausnum og það er ekki annað hægt að segja, en að unga fólkið, sem þar átti hlut að máli, hafi skilað sinum hlutverkum með sóma. Eðlilega voru leikendur misjafnir i sinum hlutverkum — eins og gengur og gerist — enda ekki hægt að gera sömu kröfur til fóks, sem er að stiga sin fyrstu spor á sviði leiklistar, og til full- reyndra atvinnuleikara. Þó mátti sjá, að allflestir tóku vinnu sina alvarlega, og i heild var sýningin góð skemmtun. Uppfærsla Járn- haussins gefur góðar vonir um árangursrikt framhald á þessari starfsemi, ef vel er haldið á leik- listarmálum á Skaga. En vikjum aftur að Gunnari Sigurðssyni Æsku lýössta r f sem i í skólum — Við i æskulýðsráði Akraness kynntum okkur starfsemi æsku- lýðsráðs Reykjavikur og starf- semi þess i gagnfræðaskólum borgarinnar, þar sem það hefur með höndum leiðsögn i ýmis konar tómstundaiðkun. Að okkar mati hefur þessari starfsemi verið of litill gaumur gefinn, og raunverulega vantað i gagn- fræðaskólann'hérna. Við ræddum þessi mál við skólastjóra gagn- fræðaskólans, sem tók mjög vel i okkar hugmyndir. Það verður þvi stefna æskulýðsráðs að koma þessu máli i höfn, og að þessi starfsemi komi til framkvæmda strax næsta haust. Við fáum skólann að láni og útvegum leið- beinendur. Ég er þess fullviss, að starfsemi sem þessi verður vel þegin, og við i æskulýðsráði bindum miklar og góðar vonir við hana. George Kirby, þjálfari I.A., ásamt konu sinni. Timamynd: Jim Eins og áður segir, er Gunnar Sigurðsson varaformaður knatt- spyrnuráðs Akraness, og þvi þótti okkur tilhlýðilegt að ræða við hann um gang þeirra mála „Vinnan stendur árangrin- um fyrir þrifum" — I fyrsta skipti i sögu knatt- spurnuráðs hefur fengizt þekktur erlendur þjálfari til meistara- flokks og mun hann starfa allt keppnistimabilið. Hann heitir George Kirby og er Englend- ingur. Kirby kom hingað i febrúar og siðan hefur verið æft mjög vel. Með tilkomu þessa snjalla þjálfara hefur skapazt nýtt viðhorf i knattspyrnumálum hér á Akranesi, og það er allt önnur og betri hreyfing i knatt- spyrnumálum hér en áður. Á undanförnum árum hafa venju- lega mætt tiu til tólf meistara- flokksmenn á æfingarnar i febrúar og marz, en æfingasókn hefur tekið svo miklum stakka- skiptum að i vor mættu strax á fyrstu æfingarnar á milli þrjátiu og fjörutiu. Við bindum að sjálf- sögðu miklar vonir við þennan þjálfara og fyrstu deildar liðið i knattspyrnu. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að kostnaðurinn við að fá erlenda þjálfara til starfa uppi á íslandi er mjög mikill, en við megum ekki eingöngu horfa i kostnaðar- og peningahliðina. Þó langar mig i þessu sambandi, að geta þess, að bæjarfélagið hefur verið ómetanlegt og skilningsrikt i okkar garð með rausnarlegum fjárstyrk Með bættri þjálfun, og um leið betra liði lifnar áreiðanlega meiri áhugi hjá bæjarbúum á liðinu, og þar af leiðandi, má ætla að aðsókn að leikjum liðsins aukist verulega. Aðrir tekjuliðir eru happdrætti og auglýsingar á búninga meistaraflokks. Við komum á fót happadrætti, gáfum út fimm hundruð miða, sem hver kostaði eitt þúsund krónur. Vinningar voru þrjár ferðir með Sunnu til sólarlanda. Þá höfum við auglýst fyrir Sunnu á búningum meistaraflokks og sú auglýsing gefur okkur dágóðar tekjur i aðra hönd. Þá er það okkur utanbæjar- mönnum sérstakt gleðiefni, að boðsmiðafarganið verður af- numið að mestu leyti. Þetta mál hefur verið eitt helzta baráttumál utanbæjarfélaganna á siðustu árum, og á ársþingi Knattspyrnusambands Islands siðastliðið haust var samþykkt að draga verulega úr þessum ósóma — utanbæjarfélögunum til mikillar gleði. Fólk gerir sér ekki almennt i hugarlund, hve stórar peningaupphæðir hafa farið forgörðum vegna þess arna, og ég vil undirstrika ánægju okkar með úrslit þessa máls. Það er eins hér á Akranesi og annars staðar, þar sem áhuga- mennska i knattspyrnu er rikjandi, að vinnan stendur árangrinum fyrir þrifum. Að minum dómi væri æskilegt, að þeir menn, sem standa i eld- linunni i knattspyrnunni, vinni tveimur til þremur timum minna á dag. Þetta er hlutur, sem verð- ur að komast á, og ég er þess full- viss, að það gerist inna fárra ára. „Vantar fleiri leiki fyrir yngri flokkana". — Við verðum að gæta þess, að vanrækja ekki yngri flokkana, minnug þess að þeir eiga i fram- tiðinni að halda uppi sóma okkar I knattspyrnunni. Það vantar fleiri leiki og fleiri mót fyrir yngri strákana. Þeir æfa mjög mikið, „Það er stefna æskulýðsráðs, að vera ekki i, beinni samkeppni við frjálsu æskulýðsfélögin i bænum, heldur að styrkja þau og styðja við bakið á þeim við ýmis verkefni”. Timamynd: Gunnar. — Rætt við Gunnar Sigurðsson, formann æskulýðsráðs Akraness og varaformann knattspyrnuráðs en fá þvi miður of fáa leiki yfir knattspyrnutimabilið. 1 sumar er ráðgerð ferð með fjórða flokk til Kaupmanna- hafnar, og fimmti flokkur fer i æfingabúðir að Laugarvatni, sem þar eru á vegum Iþróttasam- bands íslands. Athyglisverð nýjung var hafin i fyrra. Þá var komið i fram- kvæmd bæjarkeppni við Kópavog i öllum flokkum, heima og heiman. Þá er vert að geta þess i lokin, að skiptiheimsóknir eru alltaf nokkrar, og mér er engin launung á þvi, að ég tel þær alveg nauðsynlegar. Það er flokkur frá Torstrup i Danmörku, sem kemur til okkar i surnar. Þá er þessu viðtali lokið. Við kveðjum Gunnar Sigurðsson og þökkum fyrir okkur. —Gsa.l. Frakkland: FORSETAEFNIN HNÍFJÖFN NTB—Paris — Úrslit forseta- kosninganna i Frakklandi eru nú óvissari en nokkru sinni fyrr. Skoðanakannanir sýna, að fram- bjóðendurnir eru hnifjafnir, og er jafnvel talið, að nokkur þúsund atkvæði kunni að ráða úrslitum. Það ræður úrslitum i forseta- kosningunum, hvernig Gaullistar kjósa. Þeir hafa ekki lýst yfir opinberlega, hvorn fram- bjóðendann þeir styðja, og vitað er að margir þeirra munu kjósa sósialistann Mitterland, en aðrir hægri manninn Giscardd Estaing. Tæp 3% franskra kjós- enda búa utan Frakklands og ekki er vitað hvort þeir styðja annan frambjóðandann fremur en hinn. Húsnæði vantar Mann, sem vinnur hjá ríkisfyrirtæki, vantar herbergi nú þegar. Þarf ekki að vera stórt. Tilboð, merkt Húsnæðislaus 1805, leggist inn á afgreiðslu blaðsins.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.