Tíminn - 19.05.1974, Síða 26

Tíminn - 19.05.1974, Síða 26
26 TÍMINN Sunnudagur 19. mai 1974. A myndinni sjást garðhús hótelsins, en þau eru sambyggö og taka fimmtán gesti „SELFOSS ER HEPPILEGUR ÁNINGARSTADUR" í^'röm Immk iiYiYiVtVi. úíMWú líiifttm II — segir Steinunn Hafstað, sem rekur Hótel Þóristún sinni alkunnu lipurð og gestrisni. Húsið er stórt og stendur nálægt bakka ölfusár, og á lóð hússins standa snotur garðhús, með fjór- um anddyrum. — Hvað hefur þú mikið gisti- rými, Steinunn? — 1 þessu húsi eru niu herbergi, fimm á efstu hæð, fjögur i kjall- ara og á miðhæðinni er borðstofa og setustofa. t húsunum hérna á lóöinni eru átta herbergi, — þannig að alls eru þetta sautján herbergi fyrir 35 manns. Við gengum út i góða veðrið með Steinunni til að skoða „garð- húsin”, eins og frúin kallaði þau. t hverju húsi eru tvö herbergi með sameiginlegum inngangi. Það vakti strax athygli mina, hversu innréttingum er haganlega fyrir komið. 1 hverju herbergi er sturtuklefi, og húsin eru upphituð með hitaveitu. — Ég tók helminginn af þess- um húsum i notkun 4. ágúst á sið- astliðnu sumri, og afganginn i byrjun nóvember, þannig að enn er ekki komin nein veruleg reynsla af rekstri þessara húsa. Þeir gestir, sem hafa búið i hús- unum. láta vel af dvöl sinni, og ég bind miklar og góðar vonir við þessi hús, enda er hér alltaf frið- sælt og rólegt. Þessi hús teiknaði Bjarni Páls- son og þegar við Timamenn höfð- um litazt um i krók og kima héld- um við aftur inn i „stóra” hótelið, þar sem rjúkandi kaffi beið okkar i mjög vinalegri borðstofu. — Hótel Þóristún er ekki veit- ingastaður, segir Steinunn Haf- stað, hér er gisting og morgun- verður. Þetta er þó aðskilin þjón- usta, þannig að gestir minir ráða þvi, hvort þeir borða morgunverð hér eöa annars staðar. — Telur þú, Steinunn, að Hótel Þóristún geti annað allri eftir- spurn eftir gistirými hér á Sel- fossi? — Yfir mitt sumarið getur hótelið yfirfyllzt, en það er lika eini timi ársins. Já, ég tel að hótelið nægi eftirspurninni fyrst i stað. Það er mikið um gestakom- ur i júli og ágúst, og þá eru ferða- menn i miklum meirihluta, en á vetrum kemur oft fólk til að hvila sig. Veiðimenn eru hér algengir gestir, enda býður staðurinn upp á nálæg stangveiðimiö. Sagðist Steinunn gera sér góöar vonir um að fá fleiri gesti með til- komu hringvegarins, þar sem ferðafólk á leið til Suðurlands gæti allt að einu búið á Selfossi, „i túnfæti Reykjavikur”, eins og hún orðaði það. —- Mér er það engin launung, að gisting á hóteli minu verður alltaf ódýrari, vegna þess að ég hef ekki matsölu. Ég vil sérstak- lega vekja athygli Austfirðinga, sem ætla að leggja land undir fót og heimsækja Suðurland, á þess- ari starfsemi. Selfoss er mið- svæðis á Suðurlandi, og vegir liggja hér til allra átta. Gullfoss, Geysir, Þingvellir og Skálholt eru alltstaðir, sem enginn ferðamað- ur á leið um Suðurland, getur gengið framhjá, og þvi er Selfoss ákaflega heppilegur áningarstað- ur. Þú hefur ung ákeðið að leggja Að Þóristúni 1 á Selfossi býr kona nokkur rausnarbúi. Hfeitir hún Steinunn liafstaö og rekur eina bótelið i Selfossborg, Hótel Þóris- tún. I þessu myndarbúi þykir ferða- mönnum gottað hvila lúin bein og sofna við vögguvisur ölfusár, sem rennur mikilfengleg og straumþung við bæjardyrnar. Steinunn Hafstað er mörgum tslendingum að góðu kunn fyrir starf sitt. Hún hefur rekið greiða- sölu viða um land, allt frá árinu 1944, þegar hún var á Hellu. A ár- unum 1945-1947 lagði Steinur.n stund á nám i hótelrekstri i Washington, höfuðborg Banda- rikjanna, og siðan hefur hún starfað á Akureyri, I Borgarnesi, á Blönduósi, Varmalandi og við- ar. A Selfossi hefur um langt árabil verið starfrækt Hótel Tryggva- skáli, en þeirri starfsemi hefur nú verið hætt. Hótel Selfoss hefur eingöngu verið meö matsölu, og allar lfkur eru á, að innan skamms verði sú starfsemi lögð niður. Og þá er Hótel Þóristún eina gistihúsið á Selfossi. Við litum inn á hótelið til Stein- unnar, sem tók á móti okkur af mffnjí ® Mtim i 1 þessu myndarlega húsi rekur Steinunn Hafstað eina gistihúsið á Selfossi. Garðhúsin sjást til vinstri á myndinni. Timamyndir Róbert

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.