Tíminn - 19.05.1974, Page 28

Tíminn - 19.05.1974, Page 28
28 TÍMINN Sunnudagur 19. mai 1974. 1 Trésmiðjari Akur h.f. á Akranesi. „Hér er betra vinnuafl en í segir Stefán Teitsson framkvæmdastjóri og þakkar það því, að Trésmiðjan Akur hf. hefur getað byggt einstakiega ódýrar íbúðir á Akranesi höfuðborginni" Trésmiðjan Akur h.f. á Akranesi hefur vakið á sér athygli vegna þess, að á vegum hennar hafa verið byggð fjölbýlishús með ibúðum, sem eru miklu ódýrari en ibúðir gerast hér á höfuðborg- arsvæðinu. í fyrirtækinu eru einnig smiðaðar alls kyns innréttingar, viðarþiljur svo og hús- gögn, einkum stöðluð skrifstofuhúsgögn, en einnig t.d. hjónarúm og kommóður. Fjölbýlishús þau, sem Akur h.f. byggir, standa við Garðabraut á Akranesi. Þriðja húsið var afhent 4. mai sl., og nýlega var verið að byrja á fjórða húsinu af sömu gerð. I húsunum eru 3-4 herbergja ibúðir af tveim stærðum, 80 og 87 fermetrar að stærð. Hús þessi voru teiknuð á Verk- fræði- og teiknistofunni s.f. á Akranesi. — Við erum að láta teikna nýja gerð af fjölbýlishús- um með stærri og minni ibúðum. En ef stjórnvöld gera ekki ein- hverjar aðgerðir i efnahagsmál- unum, gefumst við upp, sagði Stefán Teitsson, framkvæmda- stjóri Akurs h.f. i viðtali við Timann nú fyrir skömmu. — Við þökkum teikningunni það mjög mikið, hvað ibúðirnar i þessum húsum hafa verið ódýrar, sagði Stefán. En þó kannski fyrst og fremst þvi að hér er betra vinnuafl og allt annar mórall en i Reykjavik. Þar fer ákaflega mik- ill timi i ódrýgindi i byggingar- iðnaðinum, sérstaklega i kringum matartima og i byrjun vinnutima. Ég hef grun um, að á sumum vinnustöðum I Reykjavik ódrýg- ist vinnutiminn um 20%. Þetta gerir einnig það að verkum, að við höfum getað tekið að okkur innréttingar úti um allt land, þótt flutningskostnaður á efni sé meiri hér en hjá fyrirtækjum á höfuð- borgarsvæðinu. — Svo við snúum okkur aftur að ibúðunum. Hafa þær fallið fólki vel i geð? — Já, það tel ég. Þær eru ei’nfaldar og öllu vel fyrir komið. Og margar dýrari ibúðir og þyngri i vöfum hafa ekkert fram yfir þær. Við afhendum ibúðirnar fullbúnar með innréttingum, hreinlætistækjum girtri lóð og sá- inni grasflöt. Með þessu höfum við m.a. vilj- að leggja áherzlu á að útiloka það vandamál, að sumir ibúar séu að vinna i húsinu, þegar aðrir eru búnir. Ennfremur komast með þessu móti allir kostnaðarliðir á eitt bretti, sem verður oftá tiðum ódýrara. Viðskiptavinir okkar hafa verið mjög ánægðir með þennan hátt mála. Byggingartimi þessara fjölbýlishúsa okkar hefur verið um ár. Þau eru með tólf ibúðum Fjölbýlishúsin þrjú viö Garðabraut. Timamyndir Gunnar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.