Tíminn - 19.05.1974, Side 31

Tíminn - 19.05.1974, Side 31
31 Sunnudagur 19. mai 1974. Þær sögusagnir fljúga oft um bæ- inn, að þessi og hin kvikmynd, sem hér er tekin til sýningar i kvikmyndahúsum borgarinnar, sé þetta og þetta mikið klippt, þ.e. nokkur atriði vanti I það eintak, sem sýnt er hérlendis. Oftast, ef ekki alltaf, eru það menn, sem séð hafa tjáðar myndir erlendis, sem koma þessum orðrómi af stað. En á orðrómurinn við rök að styðjast? Hver hefur vald til að fella burtu atriði úr kvikmynd? Hver er réttur höfundar? Eflaust myndu margir skella skuldinni á kvikmyndaeftirlitið, en eftir þeim upplýsingum, sem Hulda Valtýsdóttir, starfsmaður eftirlitsins, hefur látið okkur i té, hefur slikt aldrei komið til þeirra kasta. — Það hefur aldrei verið gert fyrir okkar tilstilli, sagði Hulda. Okkar eftirlit er fyrst og fremst fólgið i að banna kvikmyndir inn- an tólf fjórtán og sextán ára. Þeg- ar myndir eru þannig eðlis, að þær gætu hugsanlega varðað við lög, óskum við eftir þvi, að full- trúi lögreglustjóra sjái myndina. I leiðinni var freistandi að spyrja, hvað það þýddi að mynd væri bönnuð börnum. — Ég hef litið þannig á, sagði Hulda að kvikmynd sem er bönn- uð börnum, sé. bönnuð innan fjórtán ára aldurs þ.e. fermingar- aldurs. Sagði Hulda, að það væri alltaf matsatriði hverju sinni, hvort banna ætti mynd innan tólf ára, fjórtán ára eða sextán ára. — Ég álit, að fólki sé ljóst, að eftirlits er þörf með kvikmynd- um, sagði Hulda, þvi að það eru margar myndir, sem eru ekki beint við hæfi unglinga. En spurningunum er enn ósvar- að. Næst leituðum við til fulltrúa lögreglustjóra. Sagði hann, að i þau fáu skipti, sem lögreglan hefði afskipti af kvikmyndum, væri aldrei um neinar breytingar á myndunum að ræða. — Hins vegar gerum við við- komandi kvikmyndahúsaeigend- um grein fyrir, að þeir megi búast viö kæru, ef kvikmyndin reynist brjóta i bága við almenn hegningarlög. 1 þeim tilfellum, sem við höfum sent frá okkur neikvæðan dóm um kvikmynd, hafa myndirnar verið sendar utan án sýningar hérlendis, sagði fulltrúinn. Hvar er þá svarið að finna? Hvergi? Eru myndirnar kannski klippt- ar erlendis? Eða klippa kvikmyndahúsa- eigendur þær sjálfir, til að forðast árekstra við lögregluna? Þorvaldur Thoroddsen, for- stjóri Tónabiós, var næstur fyrir svörum. — Ég las um það i einhverju dagblaðanna, sagði Þorvaldur, að kvikmyndin Clockwork Orange hefði verið eitthvað stytt. Ég þekki dálitið til þessa máls og mér er kunnugt um, að framleið- andi myndarinnar hafði harð- bannað allar klippingar á mynd- inni eftir beiðni leikstjórans Kubricks. Myndin var ekki klippt hérlendis og eintakið alveg full- komlega óhreyft, hvað viðkemur þessu atriði. Hins vegar var eintakið, sem Austurbæjarbió fékk,mikið sýnt i Englandi og þvi nokkuð rispað. Sagði Þorvaldur, að barna- myndir væru einstaka sinnum litillega klipptar, af hérlendum kvikmyndahúsaeigendum og þá I þeim tilgangi einum, að sýna þær á barnasýningum. — Ég man aðeins eftir einni mynd, sem við létum klippa, sagði Þorvaldur. Það var kvik- myndin Hunting party, og þá hafðikvikmyndaeftirlitið visað til lögreglunnar. Þeim likaði ekki alls kostar sum atriðin, sem voru hrottafengin, svo við klipptum þau úr myndinni. — Var leitað til framleiðanda myndarinnar um heimild til að fella þessi atriði úr myndinni? — Nei, við gerðum það ekki. Héldum að það væri óþarfi. Sumir framleiðendur eru mjög andvigir öllum klippingum á myndum sin- um, en meirihluta framleiðenda stendur nokkuð á sama. öðru máli gegnir um kvikmyndir, sem flokkast gætu undir listaverk. Þær eru undantekningalaust sýndar, eins og þær koma til landsins. Ef slik mynd fengi ekki góðan hljómgrunn hjá lögreglu- yfirvöldum, myndum við að sjálf- sögðu leita til framleiðanda. Sagði Þorvaldur, að þegar mynd væri eitthvað klippt, þá væri aðeins um stuttar hrotta- eða klámfengnar senur að ræða, sem ekki breyttu neinu til eða frá. Sá orðrómur hefur heyrzt, að eitt kvikmyndahúsanna hafi klippt það mikið eina mynd, að þegar átti að senda hana til næsta lands, hafi þarlent kvikmynda- fyrirtæki neitað að taka við myndinni. Islenzka bióið varð að sitja uppi með myndina og greiða hana að fullu. Ég lagði þennan orðróm i eyru Þorvalds: — Þetta er fáránleg saga. I fyrsta lagi höfum við i flestöllum tilfellum heimild til að brenna eintökin, sem við fáum, vegna þess að myndirnar hafa verið sýndar alls staðar i viðkomandi landi og margar kópiur til. Við verðum að gera okkur grein fyrir þeirri staðreynd að islenzk kvik- myndahús fá myndir yfirleitt eft- ir að þær hafa verið sýndar er- lendis. 1 öðru lagi er bætt inn i flestar myndir islenzkum texta, og hann settur i filmuna. Hvaða erlendir biógestir myndu þá hafa gagn eða ánægju af lestri text- ans? Vildi Þorvaldur, að það kæmi fram, að klippingar á kvikmynd- um heyrðu til undantekninga og væru afar sjaldgæfar. Benti hann á eigin reynslu máli sinu til stuðn- ings og sagði: — Ég hef um tuttugu ára skeið starfað við kvikmyndasýningar og á þessum langa ferli, veit ég aðeins um eitt dæmi, Hunting party. Jæja, — svarið er fengið. Kannski lýgur almannarómur eftir allt saman, — alla vega ýkir óþarflega mikið. — Gsal. gHúsfroyjustóll Hægindastóllinn vinsæli frá Módelhúsgögnum. Hlýlegur stóll, sem sæmir sér vel hvar sem er. 0Holsingi Frábært sófasett fyrir vandláta. íslenzk eða erlend áklæði eftir eigin vali. 2,3, eða 4 sæta sófi. Velja má um stál eða tréfætur. Húsbóndastólinn má kaupa sérstaklega. °6ommoda Sófasettið, sem endist helmingi lengur. Formfagurt og sérlega þægilegt. Nýtízkulegt í hönnun: tveir púðar í baki; allir slitfletir viðsnúanlegir. CtUSVI. 3 sk£tFAK' ©omino Snfas^ttifí vin<;apla er komifí MlKLARRAUT Sófasettið vinsæla er komið aftur. Eldri pantanir óskast endurnýjaðar. Takmarkaðar birgðir. HUSGAGNAVERZLUN GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR Skeifan 15 Sími 82898

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.