Tíminn - 19.05.1974, Qupperneq 37

Tíminn - 19.05.1974, Qupperneq 37
Sunnudagur 19. mai 1974. TÍMINN 37 George Best á einnig við sln vandamál að strfða. George Best er einmana maður HIN umtalaða stjarna, George Best, er í raun og veru einmana maður, segja þeir, sem standa honum næst. Vandræði hans stafa af hæfileika- skorti til að ná sambandi við folk. George Best er orðinn frægt kyntákn, og engin önnur fótbolta- stjarna heimsins hefur slegið hann út á þvi sviði. Hann hefur verið i kunningsskap við fegurðardrottingu Englands, og „ungfrú alheim”, Majorie Wallace, en það var kunnings- skapur, sem fékk ekki sérlega gæfulegan endi. I hópi vinkvenna hanshafa verið leikkonan Sinead Cusack, hinn aðlaöandi rit- höfundur Jackie Glass og söng- konan Lulu. Auk þess hefur sézt i fylgd með honum heill herskari ljósmyndafyrirsæta. Eins og allir vinir, sem Best hefur átt, hverfa stulkurnar einnig fljótt úr lifi hans. Sam- böndin hafa aldrei verið langlif, og hann veit vel af þvi sjálfur. — Ég er hræddur við að trúiofast, sagði hann einu sinni sialfur. Sannleikurinn er sá, að ég hef ekki svo mikla þörf fyrir annað fólk. Ég álit erfitt að treysta al- gjörlega á aðra manneskju. Ég veit, að ég verð ekki raun- verulega hamingjusamur, fyrr en ég er giftur og búinn að eignast börn. Ég hef gaman af börnum, en ég er ekki viss um, hvort ég vil einhvern tima eignast börn. Ég fer út með stúlkum, en ég nálgast þær aldrei eins og manneskjur. Sá, sem sér mig i Manchester, gæti haldið að ég ætti hundruð vina. En það er ekki rétt. Það eru aðeins tveir eða þrir, sem ég get kallað raunverulega vini mina. Þeir, sem standa honum næst, félagar hans i Manchester United o.s.frv., álita að hæfileikaskortur hans til að ná sambandi við annað fólk, sé undirrótin að erfiðleikum hans. Þrátt fyrir hinn irska, ytri „sjarma” getur hann verið kald- lyndur, tortrygginn og stundum beinlinis árásargjarn. Þegar Bestbyrjaöi að leika fót- bolta, voru Denis Law, Pat Crerand og Bobby Charlton aðal- persónurnar. Best hreifst mjög af Law og Crerand, og var á tima- bili undir sterkum áhrifum frá þeim. Law var einnig mjög heillaður af þessari upprennandi stjörnu. Hann sagði eitt sinn, að Best væri mesti hæfileikamaður, sem hann hefði kynnzt. — Biðið i eitt ár, sagði hann. Þá verðum við hinir eins og byrjendur við hliðina á honum. En þegar timinn leið, fór „ein- leikur” Bests að fara i taugarnar á Law. Law á eitt sinn að hafa hrópað, þegar hann gekk út af vellinum: — Hvers vegna látið þið hann Best ekki hafa eigin bolta að leika sér að? En það var ekki bara þessi vöntun á samleik, sem angraði Law. Honum féllu ekki i geð aðdáendurnir, sem tóku þátt i næturlifinu með þessu fyrrver- andi eftirlæti hans. öðru hvoru hefur verið talað um hjónaband i sambandi við George Best. Þegar hann var i Kaupmannahöfn árið 1969, bað dönsk ljóska hann um eigin- handaáritun. Best skrifaði bréf, sem hann afhenti dönskum blaða- manni og bað hann um að hafa upp á stúlkunni. Blaðamanninum tókst það, og Best trúlofaði sig i fyrsta skipti á ævinni. Aðeins þrem mánuðum seinna var hann kærður fyrir heitrof. Ennþá ein manneskjan hafði komið og farið i'lifi hans. Pamela Ewart, ljósmynda- fyrirsæta, sem var eitt sinn i kunningsskap við hann, hefur sagt: — Vandamál hans er, að hann elskar sjálfa tilfinninguna að verða ástfanginn. Svo er það horfið. Hann er ágætis náungi, ef maður er ekki ástfanginn af hon- um. Jackie Glass sagði — Hann kynni vel við sig i andrúmslofti heimilisins, umkringdur börnum. Hin ótalmörgu ástarævintýri hans sanna þetta, en hann er ekki reiðubúinn að giftast ennþá. George Best verður 28 ára i mai. Hann er enginn strákur lengur, kannski ekki einu sinni knattspyrnumaður. Það er ekki hægt að segja, að hann standi á krössgötum, þvi það hefur hann gert i mörg ár. En timinn fer að hlaupa frá hinni frægu irsku fót- boltahetju. Fallegar stúlkur munu enn um sinn kasta sér i fangið á honum. En þær staldra aldrei lengi við. (Þýtt og endursagt -bgk) HEYTÆTLUR OG STJÖRNURAKSTRARVÉLAR N/ gerð af rakstrarvél Lyftutengd og aflúrtaksdrifin. Vinnubreidd 2.80 m. hæfilegt fyrir heyhleðsluvagna og bindivélar. Þrjár gerðir af heytætlum Vinnubreiddir: 2.70, 3.80 og 4.60 mtr. Afkastamiklar, velvirkar og sterkar vélar með margra ára reynslu við íslenskar aðstæður. Afburða vélar á hagstæðum verðum. Leitið nánari upplýsinga. FELLA — merkið sem tryggir gæðin. G/obus/ véladeild, Lágmúla 5, simi 81555 Félag jói naðarmanna FÉLAGSFUNDUR Verður haldinn þriðjudaginn 21. mai 1974 kl. 8.30 e.h. i Lindarbæ, niðri. Dagskrá: 1. Félagsmál 2. önnur mál 3 . „H e y r n a r m æ 1 i n g a r járniðnaðarmanna”. Skúli Johnssen aðat.borgarlæknir og Gylfi Baldursson forstöðum. Heyrnardeildar. 4. Erindi: „Mennt er máttur” Stefán Ögmundsson forstöðum. M.F.A. flytur Mætið vel og stundvislega. Stjórn Félags járniðanaðarmanna.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.