Tíminn - 28.05.1974, Síða 15
Þriðjudagur 28. mai 1974.
TÍMINN
15
Fáskrúðsfirði
Opnum útibú
miðvikudaginn 29. maí
Afgreiðslutími mánudaga fil föstudaga
kl. 9,30 til 12,30 og 13,30 til 15,30
SÍMI 02-127
%
Jafnframt hefur bankinn tekið við starfsemi
Sparisjóðs Fáskrúðsfjarðar
Útibúið annast öil innlend og
erlend bankaviðskipti
Gengið upp að Skaftafelli I öræfum.
Fyrsta skólaferðin
umhverfis
JH— Reykjavik. — Það voru glað-
ir „hringfarar”, sein komu hcim
um daginn eftir sex daga ferð.
Þetta voru þrjátiu og tveir
nemendur úr Laugagerðissköia i
Unappadalssýslu, þrettán og fjór-
tán ára gamlir, sem farið höfðu
landið
hringinn i kringum landið, fyrstir
slikra hópa, ásamt skólastjóran-
um, Rúnari Friðriki Guðmunds-
syni, sem annaðist fararstjórn,
ásamt einum kennara, Þorleifi
Jónssyni, og matráðskonunni,
Klisabet Hallsdóttur.
— Krakkarnir voru búnir að
safna i ferðasjóð i tvö ár, sagði
Rúnar Friðrik við Timann, og allt
var vandlega undirbúið. Til ferð-
arinnar fengum við ágætan bil-
stjóra, Hilmar Helgason, með
eina af hópferðabifreiðum Helga
Péturssonar. Við fórum norður
um, og gististaðir okkar voru
Hrafnagil i Eyjafirði, Hallorms-
staður, Höfn i Hornafirði, Kirkju-
bæjarklaustur og Flúðir i Hruna-
mannahreppi. Sofið var i skólum i
svefnpokunum, og nesti höfðum
við til ferðarinnar, nema hvað
eldaðar voru léttar máltiðir, sem
börnin sáu um i sameiningu við
umsjá matráðskonunnar. Ferðin
gekk öll einstaklega vel, og veg-
irnir voru svo frábærlega góðir,
að varla var nokkurs staðar hola,
ef undan er skilin leiðin vestan úr
Laugagerðisskóla að Borgarnes-
vegamótum.
Ég held, að það sé ekki neitt
skrum, að börnin hafi haft bæði
gagn og gleði af þessu ferðalagi,
og allir hafi komið heim harla
ánægðir, sagði skólastjórinn að
lokum.
Auglýsið í Tímanum
F/estar stæröir BARUM hjó/baröa
fyrir vörubi/a og vinnuvé/ar
einnig fáan/egar.
BARUM BREGST EKK/
EINKAUMBOD:
TÉKKNESKA BIFREIDAUMBOÐID Á ÍSLANDI H/F
SKODA BÚÐ/N
AUDBREKKU 44-46 SÍM/ 42606
NÝBARÐI í GARDAHREPP/.
Klifið upp I Paradisarhelli
Ljósm. Friðrik R. Guðmundsson
Nýr umboðsmaður í
Kópavogi
Frá og með 17. mai byrjar nýr umboðs-
maður i Kópavogi, Hólmfriður Jónsdóttir
og Þórmundur Hjálmtýsson,
Bræðratungu 7, Kópavogi, simi 42073.
Æskilegt er að kvartanir út af blaðinu
berist fyrir kl. 11,00 f.h., og verða þær
keyrðar út milli kl. 11,00 og kl. 13.00.
Viö birtum hér BARUM verö
svo aÖ hægt sé aö sjá hve ótrú/ega
góö kaup er hægt aÖ gera á hjó/böröum
- BARUM HJÓLBÖRÐUM.
560 - 15/4 KR. 2490
750 - 16/6 KR. 4160