Tíminn - 28.06.1974, Blaðsíða 8
8
TÍMINN
Föstudagur 28. júnl 1974.
VIÐTÖL VIÐ VESTMANNAEYINGA
iöfrekar en hann. Þau kynni, sem
ég hef haft af honum, hafa sann-
fært mig um þaö, aö hann ber
okkar mál fyrir brjósti af áhuga
og einurö, og þekking hans kemur
aö góöu gagni fyrir okkur.
— Hvert telur þú helzta hags-
munamál Vestmannaeyinga, sem
koma þarf I framkvæmd I ráinni
framtiö?
— Ja, þaö er náttúrulega höfn-
in, þaö þarf aö ganga frá henni,
koma skolpinu út fyrir Eiöiö.
Þetta er ekki hægt aö hafa svona.
Og svo er það ferjan, og þaö fer
nú aö veröa hitamál, ef ekki verð-
ur fariö að gera eitthvað. Þaö hef-
ur engan veginn veriö nógu vel aö
þessu staöiö, og þaö er náttúr-
lega viö bæjaryfirvöld að sakást.
En þetta verður að komast I
kring, og þaö er sannfæring min,
aö dugnaðarmaður eins og Guð-
mundur G. Þórarinsson geti talað
máli okkar á þann hátt, að hrlfi.
AAórallinn einhvern
veginn orðinn
losaralegri
Asdls Þorvaldsdóttir er 18 ára
ungmey, sem situr á kosninga-
skrifstofunni I Eyjum, og svarar
öllum fyrirspurnum viökomandi
kosningunum af einstakri alúö og
elskulegheitum. Við hrifumst af
heillandi brosi hennar og biðjum
hana að rabba við okkur smá-
stund.
Ásdls er innfæddur Vestmanna-
eyingur og skipstjóradóttir, fabir
hennar gerir út bát I samvinnu
við Einar Sigurðsson, og er af-
skaplega heppinn, eins og Asdls
orðaði það.
A veturna er Ásdls I skóla að
Laugarvatni. Hún var þar, þegar
eldur kom upp I Heimaey, en hún
hefur skroppið heim til Eyja,
hvenær, sem hún hefur haft tæki-
færi til, og hún flýtti sér út I vor,
þegar skólanum lauk.
— Eyjarnar eru mln heima-
byggö. Þaö er dásamlegt aö vera
hérna.
— Hvað ætlar þú að læra, As-
dís?
— Mig langar til að læra bók-
menntir, — en þetta er bara löng-
un. Maður veit svo sem aldrei,
hvað verður.
— Finnst þér hugsunarháttur
unga fólksins hérna I Eyjum hafa
Lltill drengur með bók — legsteinn Sigurbjarnar Sveinssonar
kominn undan öskunni.
breytzt mikið við gosið?
— Ekki endilega unga fólksins.
Mér finnst bara allur mórall ein-
hvern veginn losaralegri. Já, viö-
horfin hafa breytzt. Viðhorf fólks
til verðmæta, alls konar verð-
mæta er allt annað en það var.
— Er mikill áhugi á kosningun-
um meðal ungs fólks?
— Já, það er kosningaáhugi.
Það hefur ýmislegt gerzt, sem
hefurýtt við fólki. Ég held nú, aö
það séu aðallega öfgaflokkarnir,
sem hafa vakiö menn, hvað svo
sem fólk kýs. Við tslendingar er-
um fyrst og fremst varkárir, og
ég er ekki viss um, nema unga
fólkinu finnist stjórnin hafa verið
helzt til djörf. Hitt er annað mál,
aö unga fólkið hefur snúizt á sveif
með henni I mörgu, sem hún hef-
ur gert vel.
— Nú er kominn nýr frambjóð-
andi I spilið?
— Já, ég hef ekki heyrt I honum
ennþá, og ég hlakka alveg óskap-
lega til að hlusta á hann Guðmund
annað kvöld.
Við erum
vongóðir núna
Sigurður Gunnarsson, skip-
stjóri, er llklega búinn að stunda
sjóinn I hálfan fjórða áratug,
byrjaði ellefu ára gamall. Hann
er búinn að gera út I á annan ára-
tug. Það er þvi eðlilegasti hlutur I
heimi að ræða sjómennsku og út-
gerð við hann, og fyrst spyrjum
við hann að þvi, hvort Eyjabátar
séu allir komnir heim, þ.e.a.s.
hafi verið gerðir út frá Eyjum á
slðustu vertlð.
— Það vantar ennþá eitthvað
af minni bátunum, og held, aö
einn af þeim stærri hafi verið
gerður út úr landi.
— Hvernig var svo vertlðin?
— Vertiðin var lélegri en efni
stóðu til, og það varð að gera út á
togveiðar nokkra báta, sem ann-
ars heföu farið á net. Það er að
verða algerlega vonlaust að gera
þessa báta út — það er eiginlega
ekki hægt lengur að manna þá.
— Þið fáið ekki lengur mann-
skap á minni bátana?
— Millistærðina, 100 tonna bát-
ana. Bátaflotinn hérna hefur liðið
alveg stórkostlega fyrir þetta. Við
teljum, að of ör skipakaup séu á-
stæðan fyrir þessu. Þaö má ekki
henda eöa hálfnýta góö skip. Þaö
er svo sem nógu gott I sjálfu sér,
ef þjóðin getur söölaö yfir I skut-
togara, en hvaö á aö gera viö bát-
ana, ef við getum ekki mannað
þá, — á kannski aö henda þeim?
— Aður en við snúum okkur að
hugsanlegum úrræðum, langar
mig til að forvitnast: Er minni
fiskur á miðunum?
— Nei, alls ekki. Það er alls
ekki minni fiskur á miðunum I
vetur en undanfarna vetur. Þaö
eru bara litil afköst og færri róör-
ar.
— En úrræðin?
— Mér finnst úrræðin liggja
ljós fyrir. Það þarf að vekja á-
huga fleiri manna á þvi aö stunda
sjóinn. Það þarf að búa þannig að
sjómennskunni, að fleiri vilji
stunda sjóinn — blátt áfram langi
til a6 komast á bátana. Viö verð-
um að gera okkur ljóst, hversu
mikilvægar fiskveiðarnar eru
fyrir þjóðarbúskapinn. Það er á
þeim, sem afkoma þjóðarinnar
byggist, en það er bara eins og öll
stjórnvöld, hverjunafni, sem þau
nefnast, loki augunum fyrir þess-
ari staðreynd. Við skulum bara
gera okkur ljóst, að ef fiskveið-
arnar legðust niöur, þá getum viö
lagt upp laupana, a.m.k. er ég
hræddur um, að það kæmi við
kjör einhverra.
— Hvernig verður slfkur áhugi
heppilegast vakinn?
— Það verður að bæta hag sjó-
manna, betri kjör eru eina úrræð-
ið. Það er alltaf vanreiknaður
hlutur sjómanna, þegar verðið er
að skipta. Það kemur llka til
greina að koma á hækkun raun-
tekna, og þar á ég við skattfríð-
indi. Við óbreyttar aðstæður ger-
ist ekkert til bóta.
— Sigurður, þessi skoðun ykk-
ar er þekkt i sjávarplássunum.
Hefur ykkur gengið illa aö koma
henni á framfæri.
— Við erum ekkert auðugir af
talsmönnum. Þaö eru aðrar stétt-
ir, sem bera okkur ofurliði I þeim
efnum. En mig langar til að segja
þá skoðun mlna, að við erum von-
góðir núna. Við erum þeirrar
skoöunar, að frambjóðandinn
okkar, hann Guðmundur G. Þór-
arinsson, sé maður, sem leiðir
skynsamleg mál til sigurs. Hann
er fljótur að glöggva sig á mála-
vöxtum og þekktur að atorku, og
hann hefur orðið að vinna fyrir
sér. Ég þekki hann ekki persónu-
lega, en ég treysti honum samt til
allra góðra verka.
■
••
Hreinsunin er komin aö hraunveggnum—og innrásin á hrauniö hafin. Stórvirkar vinnuvélar hreinsa hroöann I burtu
ATVINNUMIÐLUN STUDENTA
SVOLATANDI fréttatilkynning
hefur blaöinu borizt frá SINE.
VÍÐA erlendis reka stú-
dentar umfangsmiklar
atvinnumiðlanir. Hlut-
verk þeirra er tviþætt,
annars vegar hafa þær
milligöngu um vinnu
stúdenta i leyfum eða
fastavinnumeð námi, og
hins vegar er alltaf á
skrá ihlaupavinna,
þannig að stúdentar
geta fengið vinnu i stutt-
an tima, þegar að
kreppir í fjármálum.
Hið siðarnefnda kemur
sér einnig mjög vel fyrir
vissa tegund atvinnu-
rekstrar (t.d. uppskip-
un).
Stúdentaráö hefur undanfarin
ár verið með nokkra tilburði I
þessa átt. Það hefur þó háð starf-
semi þessari, hversu óreglulega
og skipulagslaust hún hefur verið
rekin, og fólk þar af leiöandi ekki
vitað af henni, eða ekki búizt við
árangri I störfum hennar. SHI
hefur nú I hyggju aö gera at-
vinnumiðlun að föstum þætti i
starfsemi ráðsins og væri æski-
legast, að hún þjónaði þvi tvi-
þætta hlutverki, sem getið var
um. Þessi ákvörðun er tekin
núna, ekki sizt, vegna þess, hve
margir námsmenn hafa haft
samband við skrifstofu ráðsins nú
i vor, i atvinnuleit. Þessi atvinnu-
miðlun mun hafa aðsetur I Stú-
dentaheimilinu við Hringbraut.
S-15959.
Þess má einnig geta, að fjöldi
erlendra stúdenta hefur haft
samband við SHl bréflega i von
um fyrirgreiðslu varðandi at-
vinnu hér á landi. Þeir hafa helzt
áhuga á landbúnaði, fiskveiðum
og þess háttar.