Tíminn - 28.06.1974, Síða 24

Tíminn - 28.06.1974, Síða 24
 fyrir góóan mat ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Sóknarhugur á fundi B-listans WCmn- pT J^000f*^L Tj w jfeMTjÉ rlW 'Jj. 1000 i-ýj E| é% .Ll- 5 BLiff Jip HCSFYLLIR VAR I gærkvöldi á framboðsfundi B-listans I Reykjavik I Háskólabbiói. Þar fluttu ræður þeir Þórarinn Þórarinsson ritstjóri, Sverrir Bergmann læknir, Einar Ágústs- son utanrfkisráðherra og ólafur Jóhannesson forsætisráðherra. Var máli þeirra afbragösvel tekið af fundarmönnum og urðu sumir ræðumanna hvaö eftir annað að gera hlé á máli sinu vegna lófaklapps. Fundurinn i Iláskólablói hófst kiukkan niu, og samtimis hófst kosningahátlð Félags ungra Framsóknarmanna I Reykjavik i Borgartúni 32, og var þar einnig fjölsótt. Myndin hér að ofan var tekin i Háskólablói laust eftir að fundur hófst. Timamynd: Gunnar. Úrskurður Haag-dómstólsins um 10. júlí: Geir og Gunnar berir að fleipri og undanbrögðum í áheyrn og augsýn alþjóðar um mesta lífshagsmunamál þjóðarinnar HÖFUÐFOR- SPRAKKAR Sjálf- stæðisflokksins, Geir Hallgrimsson og Gunnar Thoroddsen, hafa hvað eftir annað verið krafðir sagna um það i sjónvarpi, hvort þeir stæðu enn við fyrri yfirlýsingar um, að islendingar skuli hlita úrskurði Haag-dómstólsins, sem kveðinn kynni að verða upp á grund- velli afsalssamnings þess, sem Sjálfstæðis- flokkurinn og Alþýðu- flokkurinn gerðu við Breta og Vestup-Þjóð- verja árið |1961, ef dómurinn gengi gegn ís- GEIR HALLGRIMSSON — vill hann hllta úrskurði Haag- dómstólsins, hver sem hann veröur, eða vill hann þaö ekki. GUNNAR THORODDSEN — ber að fleipri I mikilvægasta lifshagsmunamáli þjóðarinn- ar eins og Geir og veit ekki, hverju svara skal. lifshagsmunum lendinga. Einu svörin, sem fengust við þessum spurningum af hálfu Geirs og Gunnars voru þau, að þeir treystu þvi, að Haagdóm- stóllinn myndi ekki kveöa upp neinn úrskurð I fiskveiðideil- unni, heldur biða eftir þróun mála á hafréttarráðstefnunni i Caracas, og ætti þetta mál þess vegna ekki að þurfa að vera lengur til umræöu. Þann- ig hafa þeir reynt að flýja frá - hugsanlegum afleiöingum af- salssamnings sins. Þetta endurtók Geir Hall- grfmsson siðast I áheyrn og augsýn alþjóðar á miðviku- daginn. Degi siöar, i gær, barst hins vegar svolátandi fréttatilkynning frá utanrikis- ráðuneytinu: „Samkvæmt upplýsingum, sem sendiráð íslands i London hefur aflaö, mun alþjóöadóm- stóllinn i Haag væntanlega kveða upp úrskurð um fisk- veiöilögsögu íslands um 10. júli næstkomandi”. Gunnar Thoroddsen og Geir Hallgrimsson eru þess vegna berir að þvi að fara með fleip- ur eitt og gersamlega staö- lausa stafi i mesta lifshags- munamáli landsmanna, þegar bornar eru upp við þá spurn- ingar um örlagarika afstöðu þeirra rétt fyrir kosningar. Þeir Geir og Gunnar eiga þvi enn ósvarað, hvað þeir hyggist gera, ef úrskurður Haagdóm- stólsins veröur okkur andsnú- inn, og eru það þó að verða siðustu forvöð, aö þeir fari að leiöa hugann að þvi, hvernig þeir ætla að bregðast við, ef Haagdómstóllinn metur af- salssamning þeirra á þann veg, að hann hafi bundið hend- ur okkar Islendinga til fram- búðar, þar eö nú hefur verið kveöið ótvirætt upp úr með það, aö ekki er nema á að gizka hálfur mánuður til stefnu fyrir þá. Hitt er þjóðarinnar aö meta, hvaða trausts þeir leiðtogar eru verðir, er hagað hafa mál- flutningi sinum i þessu máli á þann veg, sem Geir og Gunnar eru berir að.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.