Tíminn - 28.06.1974, Page 10
10
TÍMINN
Föstudagur 28. júnl 1974.
Stórfelld upp-
bygging atvinnu
lífs, sem veldur
aldahvörfum
austan lands
FRÉTTAM,AÐUR Tim-
ans hitti Tómas Árnason
að máli og spurði hann
frétta af uppbyggingu
atvinnulifs og fleira á
Austurlandi. Tómas
Árnason er fram-
kvæmdastjóri i Fram-
kvæmdastofnun rikisins
og skipar 2. sætið á
framboðslista Fram-
sóknarf lokksins i
Austurlandskjördæmi.
— Varðandi togarana hefur
rlkisstjórnin samþykkt rlkis-
ábyrgð i hverju tilfelli. Fisk-
veiöasjóður lánar sem svarar
67% af kaupverði. En segja má,
að hinn nýi byggðasjóður hafi i
mörgum tilfellum tryggt skut-
togarakaupin úti um landið. Hann
hefur I öllum tilfellum lánað 5%
af kaupverði og á fjölmörgum
veikum stöðum lánað viðbót til að
gera kaupin möguleg.
Byggðasjóður hefur einnig lán-
að til innlendrar fiskiskipasmíði
og til bátakaupa, en það hefur
mikla þýðingu fyrir líflegt at-
vinnulíf við sjóinn.
Atvinnuleysistryggingasjóður
H'óhmatindur frá Eskifiröi.
— Rlkisstjórnin hefur beitt sér
fyrir uppbyggingu skuttogara-
flotans. Hvernig standa þau rhál
eystra?
— Keyptur hefur verið skuttog-
ari til Vopnafjarðar, Seyðisfjarð-
ar, tveir til Neskaupstaðar, einn á
Eskifjörð og annar sameiginlega
fyrir Eskifjörð og Reyðarfjörð og
einn sameiginlega fyrir Stöðvar-
fjörð og Breiðdalsvlk. Seyð-
firöingar eiga annan skuttogara I
smlðum, og mun hann koma
snemma á næsta ári. Þeir á
Djúpavogi og Hornafirði hafa
mikinn áhuga á að eignast sinn
skuttogarann hvor.
Kaup skuttogaranna hafa
glfurlega þýðingu fyrir útgerðar-
bæina. Þeir veita sjómönnum
meiri möguleika til góðs aflahlut-
ar og betri vinnuskilyrði. Þá
tryggja þeir nokkurn veginn
öruggt hráefni til fiskvinnslunnar
I landi. En það þýðir samfelldari
vinnu I frystihúsunum og meira
atvinnuöryggi. Ennfremur trygg-
ir stöðugt hráefni betri afkomu
húsanna. CJtgerðin og fiskvinnsl-
an styður hvað annað.
—- Eiga fiskiskip framtíðarinn-
ar þá nær eingöngu að vera skut-
togarar?
— Nei, þvi fer viðs f jarri. Það er
bráönauðsynlegt, að fiskiflotinn
sé blandaður skipum af ýmsum
stærðum og gerðum. Auk þorsk-
veiöanna eru humar- og rækju-
veiðar, loðna, sild, grálúöa og
margt fleira. Nú eru menn mjög
áhugasamir um smiði fiskiskipa,
sem eru jafnvlg á tog- og nóta-
veiði.
— Hvað hefur verið gert til að
byggja upp fiskiskipaflotann?
hefur einnig lánað til þessarar
uppbyggingar.
— Hvað segirðu um frystihúsin
og fiskiðnaðinn?
— Framkvæmdastofnun rlkis-
ins hefur gert áætlun um upp-
byggingu hraðfrystihúsanna I
landinu, svo sem sagt var frá
i blaðinu I gær. Þessi áætlun
spannar I aðalatriðum yfir tima-
bilið 1972-1976. Hún gerir ráð fyrir
vélvæðingu, endurbyggingu og
nýbyggingu um 100 fiskiðjuvera I
landinu. Aætlunin mun kosta 6-7
milljaröa króna, miðað við verð-
lag fyrri hluta árs 1974.
Á Austurlandi er þessi áætlun
mjög myndarleg. Verið er aö
byggja nýtlzku hraðfrystihús á
Hornafiröi, Djúpavogi, Fáskrúðs-
firði og Vopnafirði. Nánast nýtt
hús á Breiðdalsvik og miklar
endurbætur á öllum öðrum frysti-
húsum hér eystra.
Þessi uppbygging mun kosta
allt að 1100 milljónum króna og I
mörgum tilfellum kosta fram-
kvæmdir frá 50-100 milljónir
króna.
Þessi uppbygging fiskiflotans
og frystihúsanna táknar byltingu
við sjávarsíðuna og leggur grund-
völl að nýtizku fiskvinnslu. Hrá-
efnið er nýtt til hins Itrasta.
Vinnuaðstaða fólksins á að gjör-
breytast, þannig að fiskiðjuverin
verði aölaðandi vinnustaður.
Fiskveiðasjóður lánar til þess-
arar uppbyggingar. En byggða-
sjóður hefur einnig komið við
sögu. Þá hefur atvinnuleysis-
tryggingasjóður lánað nokkuð I
samráði við byggðasjóð.
Þessi uppbygging mun I fram-
tlöinni treysta mjög byggðirnar
og efla. Ennfremur framleiða
verðmæta vöru til útflutnings og
styrkja þannig efnahagsllf
þjóðarinnar I bráð og lengd.
— Hvaö segir þú um loðnu-
veiðarnar?
— Loðnuveiðarnar eru orönar
snar þáttur I atvinnullfi hér
eystra. Frá Vopnafirði allar götur
til Hafnar I Hornafirði er loðna
unnin til útflutnings, bæði brædd
og fryst. Rikisstjórnin hefur haft
forgöngu um að dreifa loðnunni til
ýmissa vinnustaða. Ætla má, að
útflutningsverðmæti sjávaraf-
urða nemi á þessu ári 22-23 mill-
jöröum króna yfir landið. Loðnu-
afurðir eru milli 15-20% þessa út-
flutnings.
Það er nú af sem áður var að
kalla uppbyggingu frystihúsa og
slldarverksmiðju pólitlska fjár-
festingu eins og gert var á árum
„viöreisnarinnar”. Það kostaði
nokkurt fé að gera verksmiðjurn-
ar vinnsluhæfar á nýjan leik.
Loðnuvinnslan hefur stórbætt af-
komu þessara fyrirtækja og orðið
veruleg lyftistöng I atvinnullfi
margra byggðarlaga.
— Hvað viltu segja um land-
búnað á Austurlandi?
— Landbúnaður er og hefur
jafnan verið einn helzti atvinnu-
vegur eystra. Nú eru menn lausir
við kalið I túnunum og grasið
grær I stað eyðingar áður.
Verðlagning landbúnaðarvara
hefur verið hagstæð og hagur
bænda farið batnandi. Búnaðar-
samband Austurlands hefur haft
forgöngu um ýmis framfaramál.
Nefna má sæðingu nautgripa,
menntun bænda með þvl að halda
námskeið I sauðfjárrækt, með-
ferö véla og fleira.
Byggingarframkvæmdir I
sveitum hafa verið miklar og
ræktun aukizt jafnt og þétt.
Sömu sögu er að segja af starfs-
svæði Búnaðarsambands Austur-
Skaftfellinga. Stórfelld ræktun
sandanna hefur gjörbreytt bú-
skapnum. Þar sem áður voru
Rætt við Tómas Árnason, 2. mann
ó B-listanum á Austurlandi
eyðisandar eru nú grænar grund-
ir. Nálgast það ævintýri. Þá er I
undirbúningi bygging grasmjöl-
verksmiðju I landi Flateyjar á
Mýrum.
— En hvað viltu segja um
iðnaðinn?
— Iönaðurinn er tiltölulega ný
atvinnugrein hér eystra. Báta-
smlði hefur verið talsverð á
Fáskrúðsfirði og Seyðisfirði.
Einnig á Norðfirði og smábáta-
smiöi á Borgarfirði. Vélsmiðja
Seyðisfj. hefur smiðað marga
stálbáta og hefur forystu I þess-
um efnum hér um slóðir. Aðstaða
hennar er nú mjög að batna, þar
sem stór skemma er að rlsa á
Seyðisfirði, svo unnt verður að
vinna að smlðinni inni. Þá er nýr
iðnaður á Egilsstöðum, skóverk-
smiöja og prjóna- og saumastofa.
Þar er einnig byggingarfélagið
Brúná, sem sifellt hefur verið að
eflast.
Þá má nefna margháttaðan
þjónustuiðnað hér á Austurlandi,
svo sem véla-, viðgerða og bila-
verkstæði og margt fleira.
Byggðasjóður hefur stutt upp-
byggingu margra fyrirtækja og
einnig haft samráð og samvinnu
við fleiri fjárfestingarsjóði um
uppbyggingu.
— Er fólk bjartsýnt á framtíð-
ina?
— Hin öfluga framfara- og
byggðastefna hefur breytt
hugsunarhætti fólks þannig, að
það hefur meiri trú á framtlð og
þróun byggðanna. Það, sem stað-
festir þetta öðru fremur, eru
miklu meiri Ibúðarhúsabygging-
ar en áður hefur verið. Þetta sýn-
ir, að unga fólkið vill I vaxandi
mæli setjast að I heimabyggð
sinni. Þessa framfaraöldu má
ekki stöðva, heldur halda þannig
áfram til að treysta enn framtíð
og styrk byggðar á Austurlandi.
— Og hringvegurinn?
— Já, lokum vildi ég minnast á
hringveginn. Það er mikil breyt-
ing, að hægt skuli vera að aka til
Austurlands sunnan fyrir land.
Fyrir allan suðurhluta fjórðungs-
ins og raunar f jórðunginn allan er
hér um aö ræða mikla framför.
Brúun hinna miklu fallvatna,
bæði á Skeiðarársandi og alla leið
austur til Jökulsár I Lóni er mikið
afrek, unnið á tiltölulega stuttum
tlma. Landið hefur þannig gjör-
breytzt og batnað til búsetu.
Aldaeinangrun hefur verið rofin
og opnaðar nýjar leiðir til búsetu
og betri tíma.
Frá Hornafiröi.