Tíminn - 28.06.1974, Síða 13
Föstudagur 28. júnl 1974.
TÍMINN
13
HRINGVEGURINN er ef til vill
þaö verk rikisstjórnar ólafs Jó-
hannessonar, sem mestum
sköpum skiptir, ef frá er talin 50
miina landhelgin og endurreisn
atvinnulifsins.
Frá þvi aö vegagerö hófst á
tslandi, hafa menn látiö sig
dreyma um færan veg yfir
Skeiöarársand, en þaö er hins
vegar staöreynd, aö viö réöum
hvorki yfir fjármagni, né tækni,
þar til rikisstjórn Ólafs Jó-
hannessonar beitti sér fyrir
þessari stórframkvæmd, — sem
er stærri en allar aörar I vega-
málum.
Veginum var lokiö á aöeins
tveim árum sem er mikiö afrek
vegageröarmanna og verkfræö-
inga.
i /// /■ • 'v* J, rJör ’ §f g ' • *|- )
Það hefur aldrei þótt vænlegt að
fela þeim forystu, sem ekkert
sjó nema ófarir framundan
— segir Jón Helgason ó Seglbúðum, annar maður
g lista Framsóknarflokksins í Suðurlandskjördæmi
Jón Helgason, bóndi á Seglbúöum. Hann skipar nú 2. sætiö á iista
Framsóknarflokksins i Suöurlandskjördæmi. Jón gegnir fjölmörgum
trúnaðarstörfum innan landbúnaöarins og i samtökum bænda og er
talinn mikill fengur aö þvi aö fá hann til starfa á alþingi. Jón hefur búiö
aö Seglbúöum i Landbroti fööurleifð sinni frá þvi aö hann lauk
stúdentsprófi frá MR áriö 1950. Jón er 42 ára og kvæntur Guörúnu Þor-
kelsdóttur, sem ættuð er úr Arnessýslu (Bergsætt)
Jón Helgason bóndi á
Seglbúðum, skipar nú
annað sætið á framboðs-
lista Framsóknarflokks-
ins i Suðurlandskjör-
dæmi.
Jón hefur um langt
skeið tekið virkan þátt i
stjórnmálum og er tal-
inn hógvær umbótamað-
ur, og þó fastur fyrir.
Hann er vel menntaður,
lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum i
Hringvegurinn: Tel
hringveginn vera eitt
bezta verk rikisstjórn-
ar ólafs Jóhannesson-
ar.
Reykjavik, en kaus að
hefja búskap á Seglbúð-
um i stað þess að stunda
langskólanám. Hann
vildi ekki skipta á föður-
léifð sinni, afskekktri
jörð austur i Skaftafells-
sýslú og þeim tækifær-
um, sem langskólanám-
ið hefði ef til vill fært.
Seglbúðir i Landbroti
(skammt frá Kirkju-
bæjarklaustri) eru i ægi-
fögru umhverfi. Þar ólst
Jón upp hjá foreldrum
sinum, Gyðriði Páls-
dóttur og Helga Jóns-
syni. Helgi varð
skammlifur og Jón tók
við búsforráðum með
móður sinni til ársins
1959, er hann tók með
öllu við búinu. Jón er
bróðir Margrétar
Helgadóttur, konu Er-
lendar Einarssonar for-
stjóra SÍS.
Jón á Seglbúðum hefur áður
verið á framboðslista Fram-
sóknarflokksins i Suðurlands-
kjördæmi og sat á alþingi um
tima sem varamaður og hann
gjörþekkir málefni kjördæmisins.
Kosningabaráttan
og framboðin
Nú þegar þeir Agúst á Brúna-
stöðum og Björn sýslumaður á
Hvolsvelli gefa ekki lengur kost á
sér til þingmennsku, var það tal-
inn milill fengur fyrir Fram-
sóknarflokkinn að fá Jón á Segl-
búðum til framboðs og þing-
starfa.
Við hittum Jón á Seglbúðum að
máli, i miðri kosningabaráttunni
og báöum hann segja okkur ögn
frá sjálfum sér og kosningabar-
áttunni og fórust honum svo orð:
— Það er rétt, ég hefi áður verið
á framboðslista fyrir Fram-
sóknarflokkinn. Arið 1967 var ég i
fyrsta skipti á listanum og þá i
sjötta sæti, en i siðustu kosníng-
um skipaði ég fjórða sætið. Ég
hafði starfað nokkuð lengi i
Framsóknarflokknum, en megnið
af félagsmálastörfunum voru þó
fyrir ýms félög og samtök bænda.
— Hvernig var útkoman hjá
Framsóknarflokknum i Suður-
landskjördæmi i bæjarstjórnar-
kosningunum?
— Flokkurinn var yfirleitt með
sambræðslulista, eða haföi verið
það, svo það er erfitt að geta sér
Hagur bænda: Aldrei
hefur fjárþörf verið
eins mikil til bygginga-
framkvæmda i sveit...
órækasta vitnið um af-
komu i sveitum ....
til um stöðu flokksins i kjördæm-
inu með hliðsjón af bæjar-
stjórnarkosningunum.
Þetta er allt á huldu enn. Að
minnsta kosti hefur ekki komið
upp ný staða i stjórnmálunum,
eins og sumstaðar hefur gerzt hjá
þingflokkunum.
— Hvenær hófst hin eiginlega
kosningabarátta?
— Framboð flokksins hér var
ákveöið i mailok og siðan má
segja að kosningabaráttan hafi
staðiö látlaust. Það hafa veriö
haldnir allmargir fundir á vegum
flokksins og siðastliðinn sunnu-
dag hófust fyrstu eiginlegu fram-
boðsfundirnir, þar sem frambjóð-
endur allra flokkanna koma. Var
byrjað austur i Skaftafellssýslu,
þar sem haldnir voru tveir fundir.
Umræður um stjórn
Ólafs Jóhannessonar —
hagstæður samanburður
— Ilvað hefur helzt verið rætt
um?
— Mest hefur verið rætt um
mismuninn á ástandinu, eins og
það er nú og þvi ástandi, sem rikti
i tið viðreisnarstjórnarinnar.
Umræöur hafa þvi snúizt um
stjórn ólafs Jóhannessonar og
viðreisnarstjórnina.
Málefnaleg staða Framsóknar-
flokksins er mjög góð i þessum
umræðum. Munurinn á lifskjör-
um, — lifinu i strjálbýlinu er svo
mikill, að um árangur stjórnar-
stefnunnar verður ekki villzt.
Staða rikisstjórnarinnar er ekki
einasta góð i sjávarplássum og
útgerðarbæjum, hún er lika góö
meðal bænda i sveitum landsins.
Bændur finna allir hversu afkom-
an er betri undir þessari stjórn.
Þessu get ég borið vitni sjálfur,
sem bóndi i sveit og einnig af
þekkingu minni á kjörum bænda
almennt og sveitafólks, og þá
einnig sveitunga minna. Hugur er
mikill i bændum, sem sést bezt á
þvi, að ár frá ári hefur vaxið þörf-
in fyrir fjármagn til lána út á
byggingaframkvæmdir i sveit.
Uppbyggingin i sveitunum er
órækasta vitnið um hag og af-
komu i sveitunum.
Stórhugur i
uppbyggingu
— Hvað um stórframkvæmdir.
Hafa bændur áhuga og skilning á
stórhug rikisstjórnarinnar i
enduruppbyggingu sjávarútvegs-
ins og atvinnulífsins?
— Já menn skilja, að það þurfti
að fjárfesta mikið i sjávarútvegi
Framhald á bls. 19
Volvo stýrisbúnaður
Ef til árekstrar kemur, gefur stýrisbúnaðurinn á Volvo
eftir á þrem stöðum, og sjálft stýrishjólið lagar sig
eftir líkama ökumannsins. Volvo öryggi.