Tíminn - 28.07.1974, Síða 1

Tíminn - 28.07.1974, Síða 1
óskar alþjóð ónægjulegrar þjóðhótíðar ________________j Ur Islendinga- dags ræðu Þótt þú langförull legðir sérhvert land undir fót, bera hugur og hjarta samt þins heimalands mót, frænka eldfjalls og ishafs! sifji árfoss og hvers! dóttir langholts og lyngmós! sonur landvers og skers! Yfir heim eða himin hvort sem hugar þin önd, skreyta fossar og fjallshlið öll þin framtiðar lönd! Fjarst i eilifðar útsæ vakir eylendan þin: nóttlaus voraldar veröld, þar sem víðsýnið skin. Það er óskaland islenzkt, sem að yfir þú býr, aðeins blómgróin björgin, sérhver baldjökull hlýr, frænka eldfjalls, og ishafs! sifji árfoss og hvers! dóttir langholts og lyngmós! sonur landvers og skers! Stephan G. Stephansson. Hátíðarávarp forsætisráðherra í dag er hátíð haldin á helgasta stað þjóðar- innar, Þingvöllum, þar sem á virðulegan hátt er minnzt ellefu alda búsetu i landinu. Á slikum degi leitar margt á hugann. Á þess- um ellefu öldum hafa skipzt á skin og skuggar, reisn og niðurlæging. Þjóðinni hefur auðnazt að vinna ódauðleg bókmenntaafrek, sem báru hróður hennar víða um lönd, og hún hefur einn- ig barizt svo i bökkum, að stundum mátti ótt- ast, að saga hennar væri senn öll. En á hverju sem gekk, lifði i glæðunum. Á öllum öldum sögu sinnar hefur þjóðin átt menn, sem ekki létu merkið falla, og bak við þá kynslóðir alþýðufólks, sem af frábærri seiglu og þolgæði stóðu af sér hinar hörðustu raunir. Hvað sem yfir dundi varðveittu íslendingar menningararf sinn, þjóðerni sitt og tungu. Við, sem höldum þessa hátið, erum fædd undir þeirri heillastjörnu, þegar bjartari timar eru upp runnir. Við höfum bolmagn til þess að auka hróður og gengi lands og þjóðar meira en aðrar kynslóðir hafa gert,og á okkur hvilir sú skylda að gera það. Það er ósk min á þessari stundu, að við berum gæfu til þess að skila þvi dagsverki, sem niðjar okkar minnist með þakklæti og virðingu. Ólafur Jóhannesson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.