Tíminn - 28.07.1974, Blaðsíða 25

Tíminn - 28.07.1974, Blaðsíða 25
Sunnudagur 28. jlill 1974. ItMINN 25 Jón Sigtryggsson: Ellefu alda afmœli íslenzku þjóðarinnar 1974 EUefu hundruð ár að baki á nú litla þjóðin min. Þegar er nú margs að minnast, minning fjölmörg guliin skin. Sigidu hetjur Atlantsála unnarfáki um sumarstund, eftir himins Ijúfum Ijósum, luku ferð við islenzk sund. Fluttu hingað fljóð og búslóð, frækni norska, keltnesk Ijóð, höfðu með sér hóp I friðu. Hugumstórir mynda þjóð. A Þingvelli Alþing stofna, alþjóð gera lögleg skil. Af norrænum eðlisþáttum, islenzk tunga verður til. Arið þúsund Alþing býður: Allir játi kristna trú, svo að friður verði virtur, verði hún þjóð til himins brú. Sagnarik er söguöldin, sögur ritar mannaval, afreksverk á alheimskvarða, aðalsmerkið vernda skal. Ónefndum hér allir þakki afbragðsverkin, sagnamerk. Ara og Snorra allir þekki ódauðlegu snilldarverk. Siðar koma sálmar Hallgrims, svo kvað enginn vitt um lönd. Þótt skelfdu manninn skæðar raunir, skáldið heftu engin bönd. Yfir féllu ýmsir skuggar, oft var þjóð i raunum stödd. Þá kom Skúli, þá kom Eggert, þ'jóðmenning til starfa kvödd. Fjölnismenn um fagra tungu fagurt sungu, og nýja öld. Forsetinn Jón, frelsishetjan! forustunnar tók þá völd. Skáldin kváðu kjark I fólkið, kváðu bezt á nitjándu’ öld. Þá var gullöld þeirra fegurst — þó fékk enginn kvæðagjöld. Þjóðin reis úr ógnar örbirgð. „Aldamóta kynslóð” fædd, sem að færði fólki tslands frelsið aftur djörf, óhrædd. Dragið fánann hátt að húni! hetjur byggja landið enn. Gangið fremst I flokki þjóða, fagrar dyggðir göfgi menn. Hér er frelsi I fögru landi, fólkið gáfað, efni góð. island rækti dáð og drengskap, Drottinn blessi litla þjóð! Jón Sigtryggsson: Til Fjallkonunnar 1974 Fagra, tigna Fjalladrottning, fylgir þér min ást — min lotning! Börn þin aldrci gleymt þér geta — gefist þroski rétt að meta. Fjöllum, eyjum, fjörðum, dölum, fossum, lækjum, töðubölum, gleymir aldrei islendingur! Um þig hugljúf minning syngur. Búa I minni: Bjartar nætur, bergmál, fuglakliður mætur, silungsá, er sifellt niðar, sól, er aldrei gekk til viðar. Gamanleiki, glimuskelli, glöggt ég man á hörðum velli. Bát, er hryggi brýtur drafnar, brýzt svo hlaðinn inn til hafnar. Sagan fylgir Fjallkonunni, fögur ljóð af skálda munni, tignarmál! þótt tali fáir, töframál! ef að þú gáir. Þetta’ eru hennar þjóðargjafir — þjóðarinnar geislastafir. Fagra, tigna Fjalladrottning, fylgir þér min ást — min lotning! STANLEY Næst þegar þú kaupir verkfæri, vertu viss um að þaðsé VEITINGASALA í skaLboLfi í nýju og glæsilegu húsnæði Lýðháskólans OPIÐ ALLA DAGA ALLAN DAGINN Timlnner peningar Auglýsltf iTimanum RAFVIRKJA NUMER Hey-yfirbreiðslur BÆNDUR! — Er nauðsynlegt að kaupa hey-yfirbreiðslur árlega? Svo er ekki — þar sem við bjóðum hey-yfirbreiðslur, sem hafa flesta eigin- leika striga — nema þær fúna ekki. POKAGERÐIN BALDUR Simi 99-3213 — Stokkseyri. Klæðskeri — Verkstjóri Prjónastofan Dyngja h.f., Egilsstöðum, óskar eftir að ráða klæðskera eða aðila vanan verkstjórn og módel-gerð á saumastofu fyrirtækisins. Liflegt og skapandi starf i góðu umhverfi. Tilboð, er greini menntun, aldur og fyrri störf, sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 3. ágúst n.k., merkt 1825. rar ILG WESPER hitablásararnir henta viða, t.d. fyrir verzlanir, vörugeymslur og Iþrótta- hús. Þeir eru ekki einungis hljóðlátir, heldur lika fallegir og svo eru afköstin óumdeilan- leg. Þeir eru fáanlegir fyrir gufu, mið- stöðvarhitun og svo „Type Islandais” sem er sérstaklega smiðuð fyrir hitaveitu. Pantanir, sem afgreiðast þurfa fyrir haustið, verða að berast sem fyrst. — Vinsamiegast skrifið, vegna óstöðugs viötalstima. HELGI THORVALDSSON Háageröi 29 — Reykjavfk — Slmi 3-49-32.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.