Tíminn - 28.07.1974, Blaðsíða 12

Tíminn - 28.07.1974, Blaðsíða 12
12 TÍMINN Sunnudagur 28. júli 1974. Menn og máUfni Hátíð undir hamra- veggjum Almannagjár Á hátíðastundu tökumst við öll í hendur Ellefu hundruð ár eru að baki — ellefu hundruð ár liðin siðan við teljum, að hafizt hafi til landsins þeir mannflutningar, sem urðu upphaf islenzks mannfélags. Fyr- ir ellefu hundruð árum ætlum við, að Ingólfur Arnarson og föruneyti hans hafi stigið fyrstu sporin á þeim slóðum, þar sem löngu siðar reis höfuðborg tslands við fornan túngarð hins fyrsta landnáms- manns. Alls þessa höfum við tslendingar minnzt i sumar, og þó einkum á þeim degi sem nu er runninn upp, með þjóðhátið á Þingvöllum. i þriðja sinn á þessari öld flykkjast islendingar tugþúsundum saman á hinn fornhelga stað, þar sem þjóðarstolt okkar hefur risið hæst og niðurlægingin orðið sárust á liðnum öldum, til þess að fagna áfanga i sögu þjóðarinnar og gleðjast á virðulegan og hófsam- an hátt, þar sem niður aldanna blandast niði Oxarár og blátært vatnið i gjánum hefur i senn speglað „höfðingjans stolt og tötraþrælsins tár” oftar og skýrar en annars staðar, Með lotningu rennum við enn einu sinni augum upp hamraveggi Almannagjár, virðum fyrir okkur Armannsfell, sem forfeöur okkar helguðu hollvættum þingstaðarins og troðum þá velli, sem tugir kynslóða hafa fetað á undan okk- ur. Við erum rik að eiga þennan stað, þar sem allir geta tekizt i hendur á hátiðlegri stundu, cg farsæl að hafa stýrt málum okkar á þann hátt, að i hverju brjósti býr sú vissa, að forfeður okkar hafi ekki til ónýtis þraukað langar og myrkar aldir við áþján og hörmungar heldur fleytt lifi þjóð- ar yfir erfiðan hjalla til mikilla sigra — sigra, sem fáar jafnsmá- ar þjóðir hafa átt að hrósa. Ólík kjör, en somi arfur Þó að við vanmetum ekki, hve miklu siðustu kynslóðir, sem lifað hafa og starfað i landinu, hafa komið til vegar á skömmum tima, skulum við ekki láta okkur sjást yfir það, að dáðir þeirra, sem fyrr hnigu að velli, voru engu minni, þótt sumum þeirra entist ekki einu sinni hamingja til þess að vinna varnarsigra, heldur urðu að lifa svo lifinu, að hvergi sást rof. Það þarf engu minna þrek og seiglu, nema siður sé, til þess að standa ætið áveöurs án vonar um veðrahlé, heldur en sæta laginu, þegar það gefst. Þess vegna hljótum við ekki siðui; að dá þá, sem hömuðu sig, þegar naprast blés um land og þjóð, og gáfu aldrei allt frá sér, heldur en hina, sem nýtt hafa gefin tækifæri með atorku og þreki. Reyndar getum við aðeins að litlu leyti sett okkur i spor geng- inna kynslóða. Hvað vitum við um, hvaða harðfylgi landnáms- menn þurftu til þess að rifa sig upp með rótum, sigla á smáskip- um með föruneyti sitt, konur, börn og kvikfénað yfir úthafið og reisa bú i ókunnu óbyggðu landi, þar sem að engu var að hverfa nema óvissum gjöfum náttúrunn- ar, og reisa allt frá grunni við frumstæðasta kost tækja? Svarið við þeirri spurningu, hvernig þetta mátti takast, felst kannski i þessari setningu: „Allt var þá kyrrt i veiðistöð, er það var óvant manni”. Hversu glöggt skynjum við, hvað undir þvi var að búa, er allt logaði i ófriði höfðingja á milli, iðulega mátti vera ránsm.anna að vænta i búfjárhaga eða gripahús og menn voru hundruð saman kvaddir til herferðar i önnur héruð, hvernig sera á stóð? Hvaða sálarstyrk þurfti fólk að vera gætt ■ til þess að horfast i augu við hroðalegt mannfall i stórsóttum eins og svartadauða og miklubólu eða það afhroð, sem móðuharð- Kagurt er um að litast af barmi Almannagjár. indin höfðu i för með sér? Og hvað um þá seiglu, sem var forsenda þess, að fólk þraukaði af nær tveggja alda verzlunareinokun útlendra manna, sem höfðu það aö markmiði að ná öllu, sem af- gangs var af striti landsmanna i sinri sjóð, án þess að hirða einu sinni um, nema með höppum og glöppum, að láta landsm. i té þann varning, sem þeir urðu að fá, ef þeir áttu að geta dregið fisk úr sjó eða nagað grasstrá af bala og yfirleitt dregið fram lifið? Slikt lifsstrið er óneitanlega .orðið býsna” fjarlægt i friðsamlegu samfélagi nútimans, þar sem á er að skipa læknum með hina við- tækustu þekkingu og fullkomn- ustu læknisúrræði, skuttogarar eiga heimahöín i flestum sjóþorp- um landsins og völlurinn er sleg- inn með dráttarvélum og hey- þyrlum, sem sópa grasið jafnóð- um á vagn, ef menn kjósa svo við að hafa. Og ekki siður er ævi skrifstofumannsins orðin önnur en forfeðranna er reistu frá grundvelli bæi með langelda i skála og ruddu merkur til. heyskapar. En allt um það erum við eitt meö þessum gengnu kynslóðum, Við stöndum á herðum þeirra, og þær eru rótin, sem við sjúgum úr næringu. Landið og sagan, menningin og tungan, er sameign okkar með þeim, og án þeirrar sameignar værum við ekki stréngur i hörpu þjóðanna, heldur aöeins rúmlega tvö hundruð þús- und hræður, sem allan heim mætti einu gilda, hvorum megin hryggjar lægju — fólk án sérstaks gildis og sérstaks réttar til þess aö ráða sér sjálft. „Þetta land a þig Svo vel sem okkur vegnar nú i þessu landi, sem landnámsmenn- irnir helguðu sér og niðjum sin- um, fer þvi þó fjarri, að við séum komnir i eilifa sæluhöfn við . rafljós okkar óg stofuofna, e'nda væri slik sæluvist visastur vegur til dáðleysis og andvaraleysis er til lengdar léti. Við eigum margt óhreppt,-og vonandi eygjum við ný og ný markmið að keppa að um ókomna tið An sliks lifsstriðs myndum við koðna niðub. Við eig- um lika um alla framtið margt að verja og vernda — margt, sem lif og heill liggur við, að við vökum yfir. „Tungan geymir i timans straumi trú og vonir landsins sona”, og spillist hún eða glatist, höfum við fyrirgert þjóðréttind- um okkar. „Landið mitt og landið þitt, laugað bláum straumi”, er sú eign, sem dauðasök er að ljá öðrum fangstaðar á. Frelsi og forræði landsins er undirstaða alls annars, og fari þar eitthvað úrskeiðis, köllum við yfir okkur þann voða, sem torvelt er gegn að spyrna. Það verður að vera fyrsta boð- orð litillar þjóðarinnar, að hún á landið.og landið á hana, og þar mega engir aðrir hreppa neina hlutdeild. Yfir hverri vöggu i landinu ætti að raula hendingar Guðmundar Böðvarssonar við mömmu ljúf og pabba stúf: „En þú átt að muna alla tilveruna, að þetta land á þig.” Þeim mun betur mun okkur farnast sem slikt hugarfar er fastar grópað i hvern og einn. Fdmenn þjóð í veðurnæmu landi Þvi er ekki ósjaldan á loft hald- ið, að við séum fá og smá og eig- um heima á yzta hjara hins byggilega heims. Hvort tveggja má til sannS vegar færa. Samt er það svo, að okkur hefur betur farnazt en fjölda þjoða, sem búa við mildara veðurfar, og það er að minnsta kosti örugg sönnun þess, að við höfum ekki hlotið iand utan hins byggilega heims. Við þurfum ekki að ala kviðá i brjósti. Við getum með góðum og gildum rökum, sem alls staðar blasa við okkur og birtast okkur daglega i lifi okkar, trúað á land okkar, gagn þess og gæði, enda mun mála sannast, að farsæld þjóða er meira undir hugarfari og Íifsviðhorfum mannfólksins kom- in heldur en þvi, hvort löfthitinn er nokkrum stigum hærri eða lægri. Svo lengi sem við iifum og störfum með þvi hugarfari, sem veitir brautargengi, getum við vænzt þess, að landið verði okkur gott, þrátt fyrir margs konar veðrabrigði. Og smæð þjóðarinnar er þá fyrst viðsjárverð, ef við miklum hana fyrir okkur og látum hana smækka hvert eitt okkar, slæva vilja okkar og varpa skugga á tilveru okkar. Jafnvel fámennið hefur sina kosti, og þá mikla. Okkur riður bara á þvi að láta ekki minnimáttarkennd gera okkur hugdeig, heldur bæta fámennið upp með þvi að hver og einn skipi sem bezt sitt rúm, hvert svo sem það er Við verðum öíl i sameiningu að vilja staðfast- lega vera við sjálf, ráða högum okkar i bliðu og striðu, treysta á okkur en ekki aðra. Enginn muri bera’teljandi umhyggju fyrir ok- ur, ef við gerum það ekki sjálf, og okkur veitist ekki reisn og áræði nema heimafengið sé. Það eru viturs manns orð, að óttinn sé slæmur ráðgjafi, og svo mun reynast bæði þjóðum og einstakl- ingum, hvenær sem nokkurs þarf við, og á sama hátt er minni- máttarkennd reikull áttaviti. Það gildir að treysta sjálfum sér og halda jafnan vöku sinni. Sjálf er saga þjóðarinnar til vitnis um það, til hvers dró, þegar hún vantreysti sér að fara $inar götur á trú á getu sina og leitaði i. annarra skjól. Friðarsamning arnir miklu við fósturjörðina Um þessaf mundir eru um sjö aldir siðan þjóðinni var sundrað með innanlandsdeilum og lands- forræði lagt i hendur Hákonar gamla. Af þvi supu tslendingar seyðið langar aldir, og var nærri hvort tveggja gengið, mannfólk- inu og laridinu. Þessa ber landið menjar, þó að mannfólkið hafi rétt sig úr kútn- um. En ékki er við þá að sakast, er börðust fyrir lifi sinu, þótt sambúð þeirra við landið yrði ekki ákjósanleg. Við getum ekki kastað steini á þá. Og raunar erum það við sjálf, sem nú erum uppi, sem eigum landinu ógreidda skuld. Það var flegið sverði á fyrri öldum, svo að fólkið mætti hjara, og ekki slitnaði þráður kynslóðanna. Við, sem nú erum uppi, eigum tilveru okkar að þakka þeim skatti, sem af landinu var tekinn. Fram til þessa hefur engan veginn verið saminn fullur friður I sambúð lands og þjóðar, né það endurgreitt i neinum mæli, er frá landinu var tekið. Þess vegna er það timamótaatburður, að i dag veröa staðfestir hinir miklu friðarsamningar, er landið hefur beðið éftir, og hafnar afborganir af striðsskuldum liðins tima. A sjálfum Þingvöllum gerist sá sögulegi atburður, að forráða- menn lands og þjóðar á alþingi stiga á stokk meiri, skipulegri og viðtækari landgræðslu en áður eru dæmi um. Þvi skal lokið, að við tökum meira frá landinu en við gefum þvi, og gróðrinum i þess stað hjálpað til þess að nema á ný margan reit, sem farið hefur i sand eða orðið örfoka á annan hátt. A þeirri stundu, er alþingi sam- þykkir landgræðsluáætlunin i dag, getur þjóðin andað léttar og rétt enn betur úr sér en áður. Hún hefur ásett ser að inna af höndum manndómsverk, sem i fyllingu timans mun gera landið betra, fallegra og byggilegra og arð- samara niðjum okkar, sem ávaxtanna munu njóta, og von- andi munu siðan græða fleiri og stærri landflæmi en okkur auðn- ast að þekja gróðri. í upphafi þessarar aldar sáu skáldin i draumum sinum þá „tið er sárin foldar gróa”. Ung- mennafélagarnir hétu I eldmóði á sjálfa sig að skrýða landið skógi. Þar var sáð frækorni nýrra hugsjóna. Við höfum þreifað fyrir okkur um framkvæmd þessara drauma. Nú er sú stund komin, að við ætlum að leggja okkur fram af alefli. Sú ákvörðun má ekki vera alþingis eins og þeirra, sem stjórna málum okkar. Hún verður að eiga hljómgrunn í hverri ein- ustu sál, og allir verða að finna og skilja, að þetta er okkur land- varnamál — okkar herskylda, sem enginn má skorast undan, enda herkvaðning, sem öllum ber að gegna ljúfu geði — i senn miklu ljúfari og göfugri en venjulega er táknuð með þessu orði. Ný þjóðhótíð — ný vakning Arið 1874 var i fyrsta skipti haldin þjóðhátið á íslandi. t kjölfar hennar varð mikil vakn- ing meðal þjóðarinnari, enda fengu tslendingar þá stjórnar- skrá og visi að heimastjórn. Vissulega hafði jarðvegurinn lengi verið urinn, og sjálf var stjórnarskráin árangur af ára- tuga langri baráttu Jóns Sigurðs- sonar og fylgismanna hans. En all- ar sýnilegar framfarir i landinu hafa o.rðið á þessum hundrað ár- um, er liðin eru frá þjóðhátiðinni 1874. Nú er«aö okkar og þó einkum hinna yngri kynslóða, að láta landnámshátiði,na 1974 einnig marka tímamót i þjóöarsögunni: Láta hana verða aflvaka, sem gagnsýrir þjóðfélagið, eflir nýjar hugsjónir og eykur framkvæmda- hug, svo að enn megi ný stór- merki gerast og við eigum nýjum stórbrotnum sigrum að fagna, er næst verður þjóðhátið á Þingvöll- ■um — kristnitökuhátiðin árið 2000. En svo mjög sem hugur okkar stefnir til verklegra framkvæmda, þá er hitt ekki sið- ur að vona, aðandlegarframfarir verði i landinu, svo að ýmsir mis- bresíir i fari þjóðarinnar, sem um skeið ollu ugg um sómasamlega framkvæmd þeirrar þjóðhátiðar er nú er haldin, verði burtu máð- ir. Þvi að háar hallir, greiðir vegir og stórfengleg orkuver munu þá fyrst færa okkur fulla hagsæld og hamingju er fólkið, sem þessa nýtur.hefur hlotið þá andlegu kjölfestu, sem gefur heill og heiður. — JH.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.