Tíminn - 04.08.1974, Blaðsíða 1
............. "
SLÖNGUR
BARKAR
TENGI
a ..........— ■«-. . ii. i —
” .... .
13!). tölublað — Sunnudagur 4. ágúst — 58. árgangur
Landvélar hf
Dömur!
Nýjung!
DRESSFORM fatnaður loks á
tslandi
Pantið bækling núna
33373
Sjálfvirkur simsvari allan
sólarhringinn.
Póstverzlunin
Heimaval/ Kópavogi.
Reykjavík
Þar fornar súlur flutu á land
við fjarðarsund og eyjaband,
þeir reistu Reykjavik.
Hún óx um tiu alda bil,
naut alls, sem þjóðin hafði til,
varð landsins högum lik, —
og þó vor höfn sé opin enn
og ennþá vanti knerri og menn,
við vonum fast hún vaxi senn
og verði stór og rik.
En þó við Flóann byggðist borg
með breiða vegi og fögur torg
og gnægð af öllum auð, —
ef þjóðin gleymdi sjálfri sér
og svip þeim týndi, er hún ber,
er betra að vanta brauð.
— Þeir segja, að hér sé hættan mest
og hérna þróist frónskan verst
og útlend tizka temjist flest
og tungan sé i nauð. — «
Nei, þegar öldin aldna flýr
og andi af hafi kemur nýr
að vekja land og lýð, í
er vikka |ún og breikka ból
og betri daga morgunsól
skin hátt um strönd og hlíb,
skal sjást, að bylgjan brotnar hér. —
— Við byggjum nýja sveit og ver,
en munum vel, hvað islenzkt er,
um alla vora tið.
Einar Benediktsson.
Þjóðminningar-
daginn 1897
REYKJAVÍK