Tíminn - 02.10.1974, Side 17
Miðvikudagur 2. október 1974.
TÍMINN
17
Hadjuk Split er frábært
knattspyrnulið
★ Það sterkasta sem ég hef
leikið gegn, segir Karl
Hermannsson, sem hefur
,/HADJUK Spliter frábært geysilega fljótir og leiknir vík, Karl Hermannsson, að
knattspyrnulið — það með knöttinn, og það er segja um Hadjuk Split-lið-
sterkasta sem ég hef leikið erfitt að eiga við þá." ið, sem KefIvikingar léku
gegn í Evrópukeppni. Þetta hafði landsliðs- gegn i Evrópukeppni
Leikmenn liðsins eru maðurinn kunni frá Kefla- meistaraliða. Karl hefur
leikið 12 leiki í Evrópu
keppni
leikið 12 leiki í Evrópu-
keppni, gegn sterkustu lið-
um Evrópu — liðum eins og
Ferenevaros frá Ung-
verjalandi, Real Madrid
frá Spáni, Tottenham og
Everton frá Englandi og
Hibernian frá Skotlandi.
iþróttasiðan lagði nokkrar
spurningar fyrir Karl eftir
leik Keflavíkurliðsins og
Hadjuk Split.
— Ertu ánægður með árangur
Keflavlkurliðsins gegn Hadjuk
Split, Karl?
— Já, ég getekki annað sagt, en
að ég sé nokkuð ánægður með
árangur liðsins. Sérstaklega er
það er tekið með i reikninginn, að
miðverðirnir Guðni Kjartansson,
Einar Gunnarsson og Lúðvik
Gunnarsson léku ekki meö Kefla-
vikurliöinu gegn Hadjuk Split —
en þeir hafa allir meiözt I sumar.
Þaö hefur verið mikil blóðtaka
fyrir liöiö að missa þessa menn,
þvi að það hefur þurft að láta
miövallarspilara leika stöður
þeirra i liðinu. Okkur tókst ekki
sem bezt upp i fyrri leiknum gegn
Hadjuk og ei bætti úr skák, aö
Grétar Magnússon meiddist. í
fyrri leiknum reyndum við aö
leika maður á mann — en okkur
tókst illa aö halda hinum frábæra
Oblak i skefjum. Hann var
potturinn og pannan i sóknarleik
Hadjuk — v.ið það, að hann fékk
oft að leika lausum hala, opnaöist
vörnin hjá okkur oft illilega. Aftur
<- —■ ■■■
TREVOR BROOKING...og
félagar han.s I West Ham hafa
hrellt markverði upp á sfðkastið.
betur á skotskónum
Marsh, sem sendi gömlu
félagana sina á botninn i
deildinni.
Everton lék vel á móti
Leeds, þar til Terry Yorath
minnkaði muninn i 2-3, u.þ.b.
15 min. fyrir leikslok. Var þá
sem Leeds vaknaði af vondum
draumi, sóknarloturnar buldu
á Everton það sem eftir var
leiksins, og með mikilli heppni
tókst Everton að halda þessu
forskoti sinu út leikinn. Leeds-
maskinan fór sem sagt i gang,
en aðeins i 15 minútur. Þá var
lika leikin knattspyrna eins og
Leeds liðið varð frægt fyrir i
íyrra, þótt ekki gæfi hún af sér
mark. f fyrri hálfleik voru
skoruð 3 mörk á 7 minútum.
Fyrst skoraði Steve Sargent
sitt fyrsta deildarmark fyrir
Everton á 27. minútu, en Alan
Clarke jafnaði þremur minút-
um siðar. Lyons tók svo for-
ystuna fyrir Everton aðeins
fjórum minútum siðar, með
skalla eftir hornspyrnu, og var
staðan 2-1 i hálfleik fyrir
Everton. Á 56. minútu skoraði
svo Dave Clements fyrir
Everton, og hafði Everton öll
völd i leiknum, þar til Yorath
skoraði fyrir Leeds.
Birm.h. átti ei i erfiðleik
um með hið lélega Arsenal-1.
Andrews. 1 hálfleik var staðan
2-0 fyrir Birmingham, með
mörkum Burns og Hatton, og
þó að Arsenal minnkaði mun-
inn i 2-1 með góðu skoti frá
Charlie George, var varla lið-
in minúta, þar til Birmingham
hafði aftur náð tveggja marka
forystu. Eftir mikil mistök i
vörn Arsenal barst boltinn
fyrir fætur Hatton, sem þakk-
aði fwrir gott boð, og innsiglaði
sigu’r Birmingham, 3-1.
Arsenal liðið er nú i einu af
fallsætunum, og má mikið
vera, ef þeir verða ekki þar,
það sem eftir er af keppnis-
tlmabilinu.
Leicester-liðið er á hraðri
leið niður töfluna. Þrátt fyrir
að Peter Shilton kæmi aftur i
mark Leicester tókst þeim
ekki að forðast tap á móti
Coventry, sem vann sinn
annan sigur á 4 dögum, með
marki, sem Holmes skoraði
seint i leiknum. Fyrirliði
Leicester, Keith Weller, var
bókaður i annað sinn á fáum
dögum i þeim leik.
Luton-liðið vann sinn fyrsta
sigur I deildinni á laugar-
daginn, þegar „The Hatters”
kepptu á móti Carlisle. Ander-
son náði forystunni i fyrri
hálfleik, en Laidlaw jafnaði
fyrir Carlisle fyrir hlé. I seinni
hálfleik sáu þeir Alston og
Ryan um að Carlisle-menn
færu tómhentir heim. Luton-
liöið seldi bezta framherjann
sinn, Barry Butlin, til Notting-
ham á laugardaginn fyrir
110,000 pund. Ekki virtist það
þó koma að sök á móti
Carlisle.
Tottenham-liðið á ekki
bjarta framtíð fyrir sér, nema
framkvæmdarstjórinn, Terry
Neill, kaupi sem fyrst a.m.k.
tvo stjörnuleikmenn, og jafni
ágreininginn við þá Chivers og
Pratt, sem báðir vilja fara.
Meira að segja áhangendur
Tottenham viðurkenna, að lið
þeirra sé lélegt, eins og
árangurinn á móti Middles-
borough sýnir, en þetta var i
annað skipti á 17 dögum, sem
Middlesborough fór með sigur
af hólmi á White Hart Lane.
Armstrong tók forystu fyrir
„Boro” snemma i leiknum, en
Neighbour jafnaði fyrir
„Spurs” eftir skemmtilegan
einleik. Rétt fyrir hlé náði
Mills forystunni aftur fyrir
Middlesborough, og Totten-
ham sýndi ekkert i seinni hálf-
leik, sem réttlætti það, að
þeim tækist að jafna leikinn,
þvert á móti átti Middles-
borough skilið að komast i 3-1.
Stoke og Derby gerðu jafn-
tefli, 1-1, i Stoke, og voru það
réttlát úrslit. Hurst skoraði
fyrir Stoke i fyrri hálfleik, en
gamall félagi hans i enska
landsliðinu, Francis Le'e,
jafnaði fyrir Derby i seinni
hálfleik.
Chelsea-liðið á ekki sjö
dagana sæla um þessar
mundir. Það tapaði nú sinum
þriðja leik i röð. Það var John
Richards, sem skoraði fyrir
Clfana á þriðju minútu
leiksins. Áhangendur liðsins
eru ekki alls kostar ánægðir
með það um þessar mundir,
og þegar Chelsea gekk af leik-
velli eftir leikinn við Wolves,
ómuðu hrópin „What a load of
rubbish” um allan völlinn, en
það mætti útleggjast „þvilik
endemis vitleysa”.
1 2. deild tapaði Manchester
Utd. sinum fyrsta leik á
keppnistimabilinu. Norwich
vann með tveimur mörkum,
sem fyrrverandi leikmaöur
Manch.Utd., Ted McDougall,
skoraði. En Norwich má
þakka markverði sinum, Ind-
verjanum Kevin Keelan, fyrir
bæði stigin, þvi þrivegis I fyrri
hálfleik varði hann skot, sem
áhangendur Manch.Utd. voru
farnir að fagna sem mörkum.
Leikur Sunderland og Notting-
ham fór 1-1, og voru bæði
mörkin skoruð úr vita-
spyrnum, — Hughes fyrír
Sunderland og Lyall fyrir
Nottingham. Buliock skoraði
fyrir Orient, Brown, Merrick
og Cantello fyrir WBA og
mark Oldham á móti Fulham
var sjálfsmark Bobby Moore.
—ÓO.
á móti tókst okkur betur upp i
siðari leiknum. Við náðum þá aö
halda knettinum og leika með
hann.
— Telur þú, að lladjuk Split sé
sterkasta liðið, sem Keflavik
hefur leikið gegn i Evrópu-
keppni?
— Já, Hadjuk-liðið er tvimæla-
laust það sterkasta, sem Kefla-
vikurliðið hefur leikið gegn. Með
þessum orðum vil ég þó ekki lasta
Tottenham-l;ðið, sem var geysi-
lega sterkt, þegar við lékum gegn
þvi. En þessi lið leika mjög ólika
knattspyrnu. Tottenham byggði
leik sinn á mjög sterkum
framlinuspilurum. Aftur á móti
leikur Hadjuk-liöiö svipaða knatt-
spyrnu og Real Madrid. Hadjuk-
liöið er þó mun sterkara, þvi aö
það hefur betri og skemmtilegri
einstaklinga Leikmenn liðsins
eru geysilega leiknir með knött-
inn og ofsalega fljótir, bæði I viö-
bragði og á ferö. Hadjuk-liðið er
svo hreyfanlegt, að það er mjög
erfitt að dekka upp leikmenn
þess, sem eru sifellt að skipta um
stöður.
— Nú hefur þú leikiö tólf
Evrópuleiki. Hvaða leikmenn eru
þér minnis&tæöastir úr þessum
tólf leikjum?
— Það eru margir leikmenn,
sem eru mér minnisstæðir — leik-
menn eins og Martin Chivers og
Martin Perers i Tottenham,
Buljan og Oblak i Hadjuk Split,
svo að einhverjir séu nefndir. En
beztu leikmennirnir, og þeir sem
verða mér alltaf minnis-
stæðastir, eru: Florian Albert I
Ferencvaros, Alan Ball i Everton
og Sirjak I Hadjuk Split. Þessir
þrir leikmenn eru snillingar á
sinu sviöi.
— Að lokum Karl, misstu
islenzkir knattspyrnuunnendur af
miklu að fá ekki að sjá Hadjuk
Split leika hér á laugardalsvell-
inum?
— Já, þeir misstu af mjög miklu
— Hadjuk Split er frábært lið.
Allir leikmennirnir taka virkan
þátt i leiknum og vita hvað þeir
eiga að gera hverju sinni. Ég tel
samt, aö þeir heföu aldrei getað
sýnt sitt rétta andlit á Laugar-
dalsvellinum —hann er ekki nógu
góður fyrir lið, sem leika
skemmtilega knattspyrnu.
—SOS
Valur
°g
Fram
leika til úrslita
í kvöld
ÚRSLITALEIKURINN I Reykja-
vikurmeistaramótinu i hand-
knattleik fer fram í Laugardals-
höllinni I kvöld. Þá leika gömlu
keppinautarnir Fram og Valur,
og hefst sá leikur kl. 20.30. Það
má búast við spennandi og tvls-
fnum leik, eins og alltaf, þegar
þessi lið madast.
t kvöld leika einnig Þróttur og
Armann um 5. sætið i Reykja-
vikurmótinu. Sá leikur hefst kl.
20.15.