Tíminn - 02.10.1974, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 2. október 1974.
TÍMINN
19
Mark Twaín:
Tumi gerist
leyni-
lögregla
hálfa minútu kom hún
ekki upp nokkru orði,
og á meðan kleip ég i
handlegginn á Tuma i
laumi og hvislaði:
„Ertu a 1 v e g
genginn af göflunum,
Tumi? Ætlarðu að
ónýta annað eins
tækifæri og þetta”.
En hann var hinn
rólegasti og hvislaði
aftur að mér:
,,Nei, heyrðu nú,
Finnur, imyndarðu
þér, að ég ætli að fara
að sýna henni, hvað
ég er feginn þvi að fá
að fara? Þá yrði hún
bara óróleg og á
báðum áttum og færi
að hugsa um alls
konar sjúkdóma og
hættur og hindranir,
og áður en við vissum
af, væri hún farin að
sjá eftir öllu saman.
Nei, láttu mig um það,
ég kann lagið á
henni”.
Þetta hefði mér
aldrei getað dottið i
hug, en auðvitað hafði
Tumi rétt fyrir sér —
Tumi Sawyer hefur
alltaf á réttu að
standa. Hann hefur
þann skarpasta koll,
sem ég hef nokkurn
tima fyrir hitt, og
hann kemst aldrei i
klipu, heldur er hann
alltaf viðbúinn að
ráða fram úr hverju
sem að höndum ber,
jafnvel þó að það
komi honum alveg á
óvart.
En nú var Pollý
frænka búina að ná
sér, og nú skall óveðr-
ið yfir hann:
,,Jæja — þú segist
ekki geta farið i bráð?
Rett eins og þú getir
Sívaxandi fjöldi
háskólastúdenta
HJ-Reykjavik. Nemendur há-
skólans virtust kátir og hressir i
bragði, þegar þeir hófu skóla-
námið á ný i gær. Sumarleyfið-
hafði haft góð áhrif á þá, og virt-
ust þeir fyllilega sætta sig við þá
tilhugsun að setjast nú við
skruddurnar og takast á við erfið-
leika námsins. Ef til vill var það
þó ekki tilhlökkunin vegna þess,
sem ljómaði af þeim, — veður-
bliðan og endurfundagleðin hefur
vafalitið einnig haft sitt að segja.
Nemendum háskólans hefur
fjölgað mjög undanfarin ár, og
við náðum tali af Stefáni Sörens-
syni háskólaritara til að fá upp-
lýsingar um nemendafjölda innan
skólans þetta skólaárið. Skrán-
ingu átti að ljúka 30. sept. en eins
og oftast hefur viljað brenna við,
eru margir of seinir til að láta
skrá sig, og sagði Stefán, að enn
væru ekki fyrirliggjandi tölur um
endanlegan fjölda nemenda.
Nú þegar hafa u.þ.b. 2.100 stú-
dentar skráð sig til náms, en bú-
ast má við að 500-600 bætist i þann
hóp. I fyrra voru u.þ b. 2.400 stú-
dentar skráðir til náms við
háskólann. Sagði Stefán, að sam-
kvæmt reynslu fyrri ára væru það
yfirleitt nálægt 75% stúdenta,
sem skráðu sig til náms, áður en
innritunarfrestur rennur út, og
mjög margir þeirra væru á sið-
ustu stundu. T.d. hefðu 300 stú-
dentar innritazt þann 30. septem-
ber.
Búast má við, að endanlegur
fjöldi þeira, sem hyggja á há-
skólanám i vetur, liggi fyrir innan
10 daga, og þá jafnframt upp-
lýsingar um, hvernig skipting
milli deilda verður.
Iðnfræðslu-,
kjara- og
félagsmól
— helztu mól, sem rædd verða
á 32. þingi INSÍ
32. þing INSt verður haldið i
Reykjavik dagana 18., 19. og 20.
október n.k. Þingið verður i
salarkynnum Hótel Esju og verð-
ur sett kl. 14.00 föstudag með
setningarræðu Þorbjörns Guð-
mundssonar, formanns INSÍ og
ávörpum gesta.
Til þingsins koma fulltrúar frá
18 aðildarfélögum Sambandsins
vlðs vegar að af landinu og verða
þeir alls milli 60 og 70.
Helztu málaflokkar, sem fyrir
þinginu liggja eru: Iðnfræðslu-
mál, kjaramál, félagsmál og
ýmiss önnur mál, sem iðnnema
varða sem og aðra þjóðfélags-
þegna. Varðandi iðnfræðslumálin
verður fjallað um væntanlegar
breytingar á iðnnámi, en lög um
iðnfræðslu eru nú i endurskoðun.
Félagsmál iðnnema eru einnig
mjög til umræðu innan samtak-
anna um þessar mundir og verður
sérstaklega fjallað um þau mál
með tilliti til aukins fræðslu- og
upplýsingastarfs um málefni
samtakanna og iðnfræðslunnar i
landinu.
Á þvi starfsári, sem nú er að
ljúka hefur i fyrsta sinn verið
starfað eftir lögum, sem sam-
þykkt voru á siðasta þingi Sam-
bandsins og ollu verklegum
skipulagsbreytingum á öllu starfi
samtakanna. Þessi breyting hef-
ur þegar borið árangur með
árangursrikara starfi.
I lok þingsins verður kjörin
stjórn samtakanna fyrir næsta
starfsár.
Umbúdir
DAGANA 8.-13. október 1974
verður sýningin „Finnskar
umbúðir” haldin i sýningarsölum
Norræna hússins. Á bak við
sýninguna standa Samtök
finnskra umbúðaframleiðenda
(Finska förpacknings-
föreningen), og er hún haldin hér
á vegum Norræna hússins i sam-
vinnu við Félag islenzkra
iðnrekenda og Myndlista- og
handiðaskólann, o.fl.
Markmið sýningarinnar, og
þess sem henni er tengt, er að
kynna hérlendis finnska umbúða-
iðnaðinn og stuðla að bættri
umbúðagerð á íslandi.
1 tengslum við þessa sýningu
verður námskeið með erindum,
kynningum og myndasýningum,
og stendur það yfir miðviku-
daginn 9. október og
fimmtudaginn 10. október. Fyrir-
lesarar eru finnskir sérfræðingar
á sviði umbúðatækni. Fjalla þeir
um meginatriði vöruverndar,
umbúðir i heimilisrekstri og
— ndmskeið
og sýning
dreifingu, umbúðir, miðað við
nútima verzlunarhætti, hráefni i
umbúðir og innpökkun fyrir
útflutning.
Námskeiðið er einkum ætlað
auglýsingateiknurum, umbúða-
hönnuðum, starfsmönnum
umbúðafyrirtækja, prenturum,
verzlunarmönnum og áhuga-
sömum neytendum.
Þeir, sem viija taka þátt i
námskeiðinu, eru beðnir að láta
skrá sig i skrifstofu Norræna
hússins. Námskeiðsgjald er kr.
1.500,-. Siðari skráningardagur er
föstudagurinn 4. október.
Lausnarbeiðni
samþykkt
Reuter, Beirut — Stjórn Takiedd-
in Al-Dolhs i Libanon sagði af sér
á mánudag, og hefur forsetinn,
Suleiman Franjieh, samþvkkt
lausnarbeiðnina.
Frosthætta
Vörur sem liggja i vörugeymsluhúsum
vorum, eru ekki tryggðar gegn frosti, og
liggja þar á ábyrgð vörueigenda.
iii—
M
Rangæingar
Héraðsmót framsóknarmanna i Rangárvallasýslu verður haldið
i samkomuhúsinu Hvoli, Hvolsvelli, og hefst kl. 21. næstkomandi
laugardag. Ræðu flytur Vilhjálmur Hjálmarsson menntamála-
ráðherra. Jón Gunnlaugsson flytur gamanmál, og hljómsveit
Þorsteins Guðjónssonar leikur fyrir dansi.
Freyjukonur Kópavogi
Námskeið i myndvefnaði hefst fimmtudaginn 10. október.
Kennari verður Elinbjört Jónsdóttir. Nánari upplýsingar gefur
Guðný Pálsdóttir i sima 40690. Stjórnin.
J
Skólasjónvarp við teiknikennslu
— fyrirlestur í Norræna húsinu
Finnski lektorinn Inari Grön-
holm, teiknikennari frá Helsinki,
flytur fyrirlestur i Norræna
húsinu fimmtudaginn 3. október
kl. 20:00 um notkun skólasjón-
varps við teiknikennslu i
Finnlandi.
Með fyrirlestrinum sýnir hún
tvær kvikmyndir, sem heita:
„Hvernig ljós og skuggar mynda
form.” og er ætluö efri bekkjum
grunnskólastigsins, og „Skugga-
leikur,” ætluð yngri bekkjum
sama stigs. Myndir þessar eru
hluti úr röð kvikmynda, sem
finnska sjónvarpið hefur látið
gera fyrir teiknikennsluna.
Fyrirlesturinn er haldinn á
vegum Norræna hússins og
Félags íslenzkra myndlistar-
kennara, og er öllum heimill
aðgangur.
AFSALSBRÉF
innfærð 16/9-20/9 1974
Ólafur Ólafsson selur Óskari
Friðþjófssyni hluta i Efstasundi
37.
Byggingafélagið Afl h.f. selur
Gunnari Guðjónss. og Elsu
Jónasd. hluta i Hraunbæ 102.
Gunnar Vernharðsson o.fl. selja
Reykjavikurborg erfðafestu að
Sogamýrarbl. 47.
Guðlaug Astmundsdóttir selur
Jóhannsei Viði Haraldss. hluta i
Fellsmúla 7.
Marinó Sigurbjörnsson selur Erni
Scheving hluta í Hrisateig 11.
Geir Waage selur Ólafi Hauki
Simonarsyni húseignina Urðar-
stig 6B.
Málfriður Sigurðard. selur
Guðmundi Þorgrlmss. hluta i
Snorrabraut 34.
Háafell h.f. selur Pálma Ás-
mundssyni hluta I Dúfnahólum 4.
Einaf Sigurðsson selur Kára
Snorrasyni o.fl. m/b Aðalbjörgu
RE. 5.
Kristinn Hannes Guðbjörnss. o.fl.
selja Ebbu Valvesd. hluta i
Skeggjagötu 14.
Magnús Guðmundsson selur Eð-
varð Guðmundss. hluta I Alf-
heimum 50.
Ingibjörg Gislad. o.fl. selja Svein-
birni Óskarss. hluta I Hraunbæ 56.
Haraldur Lýðsson selur Róbert
s.f. hluta i Skeifunni 3C.
Leikvangur h.f. selur Bláfjöllum
h.f. hluta I Þórsgötu 14.
Þorsteinn Jónsson selur Ellnu
Friðriksd. hluta i Viðimel 36.
Sigriður Simonardóttir o.fl. selja
Arnlaugi Guðmundss. og önnu
Kristjánsd. húseignina Vestur-
götu 34.
Laufey Jóhannesd. o.fl. selja Geir
Waage hluta i Garðastræti 43.
Jón Pálsson selur Páli Helga
Guðmundss. hluta i Sogavegi 107.
Fjármálaráðun. f.h. rikissjóðs
selur Birni Vilmundarsyni hús-
eignina Ægissiða 94.
Gunnar Bernburg og Bergljót
Gislason selja Ágút Eyjólfss.
hluta i Lönguhlið 21.
Kristján Jónss. selur Stefáni
Kristmannss. og Guðlaugu
Richter hluta i Skaftahl. 16.
Aldis Ragna Gunnarsd. selur
Þórdisi Sæmundsd. hluta i Gnoð-
arvogi 42.
Þuriður Árnadóttir selur Þor-
valdi Tryggvasyni hluta i Eski-
hlið 16.
Þorsteinn Eirikss. selur Hjördisi
Hafsteinsd. og Magnúsi I.
Ágústss. hiuta i Rauðagerði 8.
Bjarni Halldórss. og Kristjana
Frimannsd. selja Alexander G.
Björnssyni hluta i Efstasundi 2.
Július Magnússon selur Björgúlfi
Andréssyni hluta i Viðimel 58.
Ólína Ágústsd. selur Ingibjörgu
og Þóru Sigurjónsdætrum hluta i
Safamýri 42.
Gyða Georgsd. McFarland selur
Skúla Marteinssyni hluta i Vatns-
holti 6.
Ari Garðar Georgss. selur Skúla
Marteinss. hluta i Vatnsholti 6.
Guðbjörg Guðjónsd. seiur Sigriði
Þ. Gestsd. hluta i Stóragerði 1.
Pétur Ingólfss. seiur Helga H.
Steingrimss. hluta I Hagamel 50.
Háafell h.f. selur Eliasi
Kristjánssyni hluta i Dúfnahólum
4.
Byggingafélagið Einhamar selur
Guðmundi Eyjólfss. hluta i Vest-
urbergi 142.
Björn Pétursson selur Guðmundi
Pálssyni hluta i Gautlandi 13.
Esther Sigurðard. o.fi. selja Ingi-
björgu Frimannsd. hluta i Goð-
heimum 22.
Bernharður Guðmundss. og
Guðm. Bernharðss. selja Gisla
Snorrasyni hluta i Stórholti 31.
Hrefna Jónsd. selur Kristinu
Guðbjartsd. fasteignina Baldurs.
37.
Ásta Andrésd. o.fl. selja Hrefnu
Kristjánsd. og Kjartani Sveinss.
hluta i Ægissiðu 98.
Jóhann Þórarinsson selur Óskari
Indriðasyni raðhús i smiðum að
Vesturbergi 73.
Breiðholt h.f. selur Ágústinu G.
Ágústz hluta i Æsufelli 4.
Kjartan J. Jóhannsson o.fl. selja
Ólafi Guðlaugss. hluta i Skóla-
vörðustig 17.
Aðalheiður Hafsteinsd. selur
Grétari Franklinssyni hluta i
Mariubakka 32.
Sigurbjörn Guðjónsson selur
Birni Helgasvni fasteignina
Rjúpufell 20.
Stefán Siggeirsson selur Sigrúnu
Arnadóttur hluta i Bólstaðarhlið
56.
Db. Ragnheiöur Guðjónsd. selur
Hjördisi Þorsteinsd. hluta i
Vifilsg. 7.
Breiðholt h.f. selur Skúla
Magnússyni hluta I Æsufelli 2.
Sigurður Helgason selur Þor-
steini Kristjánss. og Guðjóni
Ólafssyni hluta i Súðarvogi 20.