Tíminn - 02.10.1974, Side 20
Ttminn er
peningar
Auglýsítf
_______iTtmanmn
i—r?----------,
GHÐI
fyrirgóóan ntai
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Deilur forseta og
þings í Bandaríkjunum hefjast að nýju:
ADSTOÐ VIÐ CHILE SKORIN NIÐUR
— FORD BEITIR NEITUNARVALDI
NTB/Reuter-Washington. —
öldungadeild Bandarikjaþings
samþykkti i gær aö hætta allri
fjárhagsaöstoð viö herforingja-
stjórnina I Chile, vegna ógnar-
stjórnar hennar.
Þaö var Edward Kennedy, sem
bar fram tillögu þessa efnis, og
var hún samþykkt með 47 at-
kvæöum gegn 41. (100 þingmenn
eiga sæti i öldungadeildinni).
Kennedy sagði i framsöguræðu
sinni, að fjárhagsaðstoð við Chile
ætti ekki rétt á sér og væri þvi
óheimil eyðsla á almannafé.
Hann lét þess getið, að i ár hefði
aðstoðin numið 12 millj. dollara
(u.þ.b. 1500 millj. isl. króna).
Astæðan til þess, að bandarfska
öldungadeildin stöðvar nú fjár-
framlög til Chile, er eflaust sú
uppljóstrun, að bandariska leyni-
þjónustan, CIA, hafi varið
ógrynni fjár — auk annars beins
stuðnings — til að koma löglega
kjörinni stjórn Salvadors Allende
frá völdum. (Sem kunnugt er
hefur öldungadeildin fyrirskipað
rannsókn á starfsemi leyni-
þjónustunnar — ekki aðeins i
Chile, heldur um allan heim).
Gerald Ford Bandarikjaforseti
lýsti yfir þvi i gær, að hann myndi
beita neitunarvaldi til að stöðva
framgang fyrri samþykktar
öldungadeildarinnar um að
stöðva alla hernaðaraðstoð við
Tyrkland. Ford kvað stöðu
Bandarikjamanna I samning-
unum um Kýpur versna til muna,
ef aðstoðinni yrði hætt.
Formælandi Henry Kissingers
tók i sama streng og sagði, að t.d.
væri óliklegt, að Kissinger yrði
beðinn um að miðla málum milli
deiluaðila. (Henry Kissinger er
nú staddur i New York, þar sem
hann á viðræður við griska og
tyrkneska stjórnarerindreka).
Deilur Fords forseta og
öldungadeildarinnar verða þvi
hatrammari með degi hverjum.
Hvernig þeim lyktar, er erfitt að
spá um, en Ford fer með sigur af
hólmi i fyrstu lotu, þar eð
neitunarvald hans er endanlegt.
Hins vegar er þess skemmst að
minnast, að stirt samband
Richard Nixons við bandariska
þingið varð honum — e.t.v. öðru
fremur — að fótakefli.
SPRENGDI SJÁLFAN
SIG í LOFT UPP
gggp mm
Gestur Fanndal
• Grímur & Arni
ipfélag Skagfirðinga
• Kaupfélag Eyfirðinga
Kaupfélag
• • >
Kaupfélag 9
Héraðsbúa*
Verzlunin Þór>
Kaupfélag
Borgfirðinga
Verzlunin
Strandgata 39
Reuter, Rocheford — Fjórar
manneskjur létust i sprengingu I
bænum Rocheford I Vestur-
Frakkiandi á mánudag, þegar
maöur nokkur sprengdi sjáifan
sig I loft upp, vegna þess aö eigin-
konan haföi yfirgefiö hann. Þetta
geröist á fjölfarinni götu f bæn-
um.
Maöurinn, sem hét Ciaude
Coutron, haföi fest viö sig dýna-
mitstangir og sprengdi sjálfan sig
i loft upp, ásamt tveim lögreglu-
þjónum og konu, sem var vegfar-
andi á götunni.
Lögreglumaður slasaðist
hættulega, svo og nokkrir aðrir
vegfarendur, þegar sprengingin
varð.
Að sögn lögreglunnar hafði
Coutron sagt vinum sinum, að ef
kona hans kæmi ekki til hans
aftur, myndi hann fremja sjálfs-
morð.
A mánudagsmorguninn fór
Coutron til opinbera saksóknar-
ans og sagði honum frá sjálfs-
morðsáformi sinu. Saksóknarinn
reyndi að koma vitinu fyrir
Coutron, sem brást illur við ogt
hljóp út á götu, með tvo lögreglu-
menn á hælunum. Þegar svo lög-
reglumennirnir nálguðust Cout-
ron, kveikti hann i dýnamitinu,
með fyrrgreindum afleiðingum.
HHJ—Rvik — Morgunblaöiö birti
fyrir skömmu frétt þess efnis, aö
Bandarfkjamenn hygöust verja
76 miiljónum dollara, eöa sem
svarar um niu milljöröum
fslenzkra króna, til framkvæmda
á Keflavikurfiugvelli i samræmi
viö samninga þá um herstööina,
sem nú standa yfir. Hér var hins
vegar fariö meö rangt mál, sam-
kvæmt uppiýsingum talsmanns
bandariska sendiráösins hér á
iandi, Roberts Diekermans.
Hið rétta er, aö áætlaö er að
verja 16 milljónum dollara til
framkvæmda i sambandi við
flugvöllinn og flugiö og 22,5 til
ibúðarbygginga. Samtals verða
þetta 38,5 milljónir dollara, eða
sem svarar röskiega 4,5
milljöröum Islenzkra króna.
Fréttamaður sá, sem Morgun-
blaðið gerði út af örkinni til
Washington, mun hafa lesið I
Washington Post og Herald
Tribune, að verja ætti 60
milljónum dollara til fram-
kvæmdanna. Þá sagði i frétta-
skeyti frá Reuters-fréttastofunni,
að kostnaðurinn við Ibúöahúsa-
byggingar yrði 16 milljónir doll-
ara.
— Þetta hafa þeir Morgun-
blaðsmenn lagt saman, sagði
Dickermann, og þannig fengið
þessar 76 milljónir dollara, að þvi
er ég bezt fæ séö.
Hins vegar hefur farið fram hjá
þeim að Washington Post birti
leiðréttingu á þessu daginn eftir
og nefndi þá 16 milljónir dollara,
sem raunar er sú upphæð, sem
bandarisk yfirvöld hafa lýst sig
fús til að verja til flugvallarfram-
kvæmdanna. Heildarupphæðin er
sem fyrr segir 38,5 milljónir doll-
ara.
HEIMSHORNA Á MILU
NTB—Lagos —Y. Gowon, for-
seti Nigeriu, hefur gert aö
engu vonir iandsmanna um aö
borgaraleg stjórn taki við
vöidum I landinu að tveimur
árum liðnum.
Gowon sagði i ræðu I gær, að
slik breyting á stjórn landsins
gæti valdið hörðum deilum —
jafnvel borgarastyrjöld. (Eins
og mörgum er i fersku minni,
geisaði blóðug borgarastyrj-
öld I Nigeriu á árunum 1967-
1970 milli hersveita Lagos-
stjórnarinnar og sveita Bi-
afrahers undir forystu O.
Ojukwu.) Gowon hét þvi þó i
ræðu sinni, að fleiri ráðherrar
— af borgaralegum uppruna
— tækju sæti ni nýrri rikis-
stjórn, er mynduð verður um
næstu áramót.
Þá boðaði Gowon fimm ára
áætlun i efnahagsmálum —
áætlun, sem koma á efnahag
landsins á ‘ réttan kjöl. í henni
er m.a. gert ráð fyrir miklum
framförum I landbúnaði, en
matvælaframleiðsla Nigeriu-
búa hefur hingað til ekki nægt
til að fæða alla ibúa landsins.
NTB—Stokkhólmi — Sænsk
yfirvöld komust I gær yfir
stærsta skammt af herófni,
sem reynt hcfur veriö að
smygla inn f Svíþjóö.
Lögreglan i Gautaborg lagði
hald á eiturlyfin, en þau fund-
ust i fórum ungra hjóna frá
Stokkhólmi. Markaðsverð
smyglvarningsins er talið
nema u.þ.b. 150 millj. Isl.
króna.
Lögregluyfirvöld I Sviþjóð
eru áhyggjufull vegna þessa
fundar, þvi að vitað er, að mun
meira magn eiturlyfja hefur
borizt inn i landið að undan-
förnu. ^
Reuter—Moskvu — Henry
Kissinger, utanrfkisráöherra
Bandarfkjanna, heldur f opin-
bera heimsókn til Sovétrfkj-
anna 23.-27. október n.k.
Skv. frétt Tass-fréttastof-
unnar er gert ráð fyrir, að
Kissinger ræði mál, er snerta
stórveldin tvö, við rússneska
ráðamenn. (Búast má við, að
Kýpur-deilan og samningar
um gagnkvæma afvopnun
veröi ofarlega á baugi) För
Kissingers til Moskvu er upp-
haf á löngu ferðalagi hans til
Asfu og Suður-Evrópu.
★
NTB—Kaupmannahöfn —
Danskur rfkisborgari var
handtekinn I Kaupmannahöfn
s.l. laugardag, sakaöur um
njósnir f þágu erlends stór-
veldis. Hvorki nafn mannsins
né þess rfkis, er f hlut á var
birt.
Sá ákærði hefur gegnt
herþjónustu, en dönsk yfirvöld
fullyrða, að hann hafi ekki
komizt yfir hernaðarleyndar-
mál. Rannsókn I máli hans
hófst I gær, og má búast við,
að hún standi nokkurn tfma.
★
NTB—Brussel.— Skv. upplýs-
ingum EBE-nefndarinnar i
gær hefur nokkuð dregið úr
verðbólgu I löndumEfnahags-
bandalagsins í júli og ágúst.
Þetta þýðir þó ekki, að
verðbólga sé með öllu úr
sögunni — aðeins aö verð-
hækkanir voru ekki eins
miklar og fyrr á árinu.
t gær voru 25 ár liöin frá valdatöku kommúnista undir stjórn Maó-tse-tungs I Kfna. t þvf tilefni voru
mikil hátiöahöld I Peking. Þaö bar til tföinda, að hvorki Maó né Chou-en-lai forsætisráöherra létu sjá
sig. Hér I Reykjavik tók kfnverski sendiherrann á móti gestum I tilefni dagsins. A myndinni sjást
Eysteinn Jónssons og frú heilsa hér sendiherra Kfna á tslandi. Chen Tung. Tfmamynd: Gunnar.
Slí
Stapafell
* >
Electrolux
i Kaupfélag
Austur-
Skaftfellinga
REIKNIMEISTARAR MORGUN-
BLAÐSINS HLUPU Á SIG