Fréttablaðið - 18.01.2005, Blaðsíða 19
3ÞRIÐJUDAGUR 18. janúar 2005
Borgartúni 24
Opið virka daga kl. 10–20
laugardaga kl. 10–16
Heilsuvörur
og matstofa
Borgartúni 24
Opið virka daga kl. 10–20
laugardaga kl. 10–16
Heilsuvörur
og matstofa
SÓMABAKKAR
Nánari uppl‡singar á somi.is
*Gildir a›eins ef panta› er fyrir meira en 3.000 kr.
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
FJÖLVÍTAMÍN
MEÐ GINSENG
Aukin
líkamleg orka
og andleg
vellíðan
FÆST Í APÓTEKUM,
HAGKAUP, NETTÓ,
SAMKAUP, SPARKAUP,
NÓATÚNI, ÚRVALI
OG STRAX
,
, ,
, ,
,
Einföld, mjúk og áhrifarík meðferð sem farið
hefur sigurför um Evrópu. Virkar vel á hverskonar
vandamál. Kennt á Íslandi 21. nóv - 24. nóv 2003
á AKUREYRI. Íslenskt námsefni og íslenskur kennari.
Námskeið í
Bowen Tækni
Upplýsingar og skráning:
Margeir s. 897-7469 og 421-4569
jmsig@simnet.is
www.thebowentechnique.com
Einföld, mjúk og áhrifarík meðferð
sem farið hefur sigurför um Evrópu.
Virkar vel á hversko ar vandamál.
Kennt í Reykjavík 25.-28. feb. 2005
Íslenskt námsefni og íslenskur kennari.
Uppl. og skráning • símar 421 4569 og 897 7469 • Margeir
www.bowentaekni.com • jmsig@simnet.is
SÖLVI GEFUR GÓÐ RÁÐ
Porsche eða Trabant
– okkar val...
Nú verð ég að biðja þig, kæri les-
andi, að nota ímyndunaraflið.
Þú þarft að gera þér í hugarlund að
þú eigir heima talsvert úr alfaraleið
þar sem engin bensínstöð er ná-
lægt. Einnig að þú eigir tvo bíla,
glænýjan Porsche og gamlan
Trabant.
Sveitasæla?
Það kemur upp sú staða að þú bók-
staflega verður að komast í „bæinn“.
Þú ferð út en kemst að því að báðir
bílarnir eru nær algjörlega bensín-
lausir. Þú ert að falla á tíma og veist
ekki alveg hvað þú átt að gera. Það á
enginn heima það nálægt þér að þú
getir „reddað þessu“ með því að fá
far eða fengið bensín annars staðar.
Slæm hugmynd?
Allt í einu manst þú eftir því að þú átt
gamlan brúsa sem í er dísilolía. Þar
sem þú veist að Porsche’inn þarf
bensín og Trabantinn notar blöndu af
bensíni og tvígengisolíu mun það fara
vægast sagt illa með bílana að reyna
að keyra þá á dísilolíu – þó að bíllinn
myndi hökta á því á áfangastað – það
myndi líklega eyðileggja þá.
Þú verður að velja!
Nú þarf að „fórna“ öðrum hvorum
bílnum og spurningin er hvorum
bílnum þú vilt fórna. Ekki er ólíklegt
að við myndum flest kjósa Trabant-
inn þar sem Porsche’inn er mun
verðmætari, að minnsta kosti í pen-
ingum talið, nema að Trabantinn
hafi þeim mun meira tilfinningalegt
gildi fyrir okkur...
Spurning um val...
Þetta er kannski hæpin dæmisaga
en eftir situr að líf okkar snýst um
að velja og hafna. Hvernig við velj-
um og hverju við höfnum hefur
mest um það að segja hvar við
erum stödd í lífinu núna sem og
hvar við verðum stödd í framtíðinni.
Dæmisaga um bíla?
Þessi dæmisaga snýst samt ekki um
bíla heldur mataræði. Ímyndum okk-
ur að óhollt fæði og ruslfæði sé
dísilolía en hollfæði svo sem gróft
kornmeti, grænmeti, ávextir, fitulítið
kjötmeti, fiskur og þess háttar sé
bensín.
Gættu þín!
Þá situr eftir spurningin: Hvort lítur
þú á þig og líkama þinn sem
Porsche eða Trabant?
Þetta er gildruspurning. Ef þú lítur á
þig sem Porsche frekar en Trabant,
sem ég held að við gerum flest, en
ert að troða óhollustu og/eða rusl-
fæði ofan í þig alla daga er hægt að
spyrja aftur: Hvers vegna ert þú að
setja dísilolíu á Porsche’inn þinn?
Þetta og fleiri hollráð er einnig að
finna á heimasíðu Heilsuráðgjafar
www.heilsuradgjof.is
Sölvi Fannar Viðarsson
Er framkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar.
Hann hefur starfað við einkaþjálfun
og heilsuráðgjöf um árabil.
Hjartasár á
heilalínuriti
Rannsóknir á ástarsorg gætu
komið að gagni við þunglynd-
isrannsóknir.
Ástarsorg kemur fram á heilalínu-
riti samkvæmt rannsókn sem gerð
var við Læknaháskólann í Suður-
Karólínufylki í Bandaríkjunum.
Konur sem eru miður sín vegna
þess að slitnað hefur upp úr ástar-
sambandi sýna meiri frávik í heila-
starfsemi á þeim svæðum sem
tengjast tilfinningum og athygli en
ella. Þessar niðurstöður munu
koma að gagni við rannsóknir á því
hvernig heilinn bregst við sorg og
hvernig sorg getur leitt af sér
þunglyndi þegar heilinn verður
ófær um að vinna úr erfiðum til-
finningum. Þátttakendur í rann-
sókninni voru níu
konur sem allar
voru að ná sér
eftir endalok ást-
arsambanda sem
höfðu varað í sex
mánuði eða lengur.
Hjartaknúsarinn
Colin Farrell
hefur valdið
breytingum á
margri heila-
starfseminni. Með Fréttablaðinu
alla fimmtudaga