Fréttablaðið - 18.01.2005, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 18.01.2005, Blaðsíða 12
FRELSUNAR MINNST Pólverjar minntust þess í gær að 60 ár voru liðin frá því að Rauði herinn sovéski frelsaði höfuðborgina Varsjá úr höndum Þjóðverja. Þá höfðu borgarbúar lengi barist gegn þýskum hersveitum og beðið mikið mannfall. Í tæpa hálfa öld eftir frelsunina var Pólland undir stjórn kommúnista. 12 18. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR BARNAVERNDARMÁL Bogi Nilsson ríkissaksóknari segir að saksókn- arar embættisins fari yfir rann- sóknargögn hvers máls og það þurfi að vera líklegt eða verulega líklegt að ákæra leiði til sakfell- ingar til að málið leiði til ákæru, jafnvel þó svo að um kynferðis- brot gagnvart börnum sé að ræða. Hann segir að ákæruvaldið teygi sig þó mjög langt í þessum málaflokki eins og sýknudómar benda til. Sakfelling fáist aðeins í um það bil 90 prósentum tilfella. Mál af þessu tagi sé látið niður falla ef aðeins helmings líkur séu á sak- fellingu enda eigi sýknudómar helst ekki að falla. Í barnaverndargeiranum gætir undrunar á þröngu viðmiði sak- sóknaraembættisins í kynferðis- brotamálum gagnvart börnum. Bogi neitar því að það sé mats- kennd og huglæg ákvörðun ein- stakra saksóknara hvort ákært verði. Starfsreglan sé sú að tveir til þrír saksóknarar fari yfir málið hver í sínu lagi áður en ákvörðun sé tekin. Sömu starfsreglur gildi um kynferðisbrot og önnur brot. Reglurnar miðist við lög og dómafordæmi. - ghs Lúðuseiði fyrir hundruð milljóna Fiskey hefur samið um sölu á 1,4 milljónum lúðuseiða til Noregs. Andvirði samn- ingsins er trúnaðarmál. Ljóst að fjárhæðin hleypur á hundruðum milljóna. LÚÐUELDI Fiskey, sem er dótturfélag Fiskeldis Eyjafjarðar, hefur selt 1,4 milljón lúðuseiða til Noregs. Kaup- andi er eldisfyrirtækið Nordic Seafarm og mun Fiske afhenda seiðin á næstu fjórum árum. Að sögn Arnars Freys Jónssonar, framkvæmdastjóra Fiskeyjar, er framleiðslugeta Fiskeyjar um millj- ón seiði á ári en markmiðið er að framleiða um 650 þúsund seiði í ár. „Fiskey er langstærsti framleið- andi lúðuseiða í heiminum en við framleiddum ríflega helming allra lúðuseiða sem framleidd voru í heiminum í fyrra og árið þar á und- an. Við erum með áframeldi á lúðu í Þorlákshöfn og er stefnt á að slátra þar um 350 tonnum eftir tvö til þrjú ár. Í fyrra slátruðum við þar 120 tonnum en það er of lítið með tilliti til arðsemissjónarmiða,“ segir Arn- ar. Í fyrra seldi Fiskey 25 þúsund seiði til Kína og segir Arnar að þar sé mjög áhugaverður markaður og hagstæðar náttúrulegar aðstæður til áframeldis á lúðu. Þar að auki er markaðsstærð lúðunnar í Kína að- eins hálft til eitt kíló sem þýðir styttri eldistíma en æskileg stærð á aðra markaði er 3 til 5 kíló. „Það eru mjög miklir tekjumöguleikar í eldi á lúðu og er lúða einn verðmætasti eldisfiskur sem framleiddur er í heiminum. Það er hins vegar kostn- aðarsamt að koma eldinu af stað og byggja upp starfsemina. Fiskeldi Eyjafjarðar var stofnað í kringum lúðueldi 1987 og hafa miklir fjár- munir farið í rannsóknar- og upp- byggingarstarf. Okkur hefur tekist að ná stöðugleika í framleiðslunni og stöndum vel tæknilega í saman- burði við aðra framleiðendur. Á næstu árum verður áherslan meiri á markaðshliðina og ég er sann- færður um að með áframhaldandi þolinmæði og þrautseigju starfs- manna og hluthafa þá mun þessi fjárfesting skila sér,“ segir Arnar. Fyrir þremur árum var Fiskey að selja 5 gramma lúðuseiði á yfir 400 krónur stykkið en verðið hefur heldur lækkað síðan. Fiskey er með 14 starfsmenn og starfsstöðvar á þremur stöðum á landinu: Seiðaeldisstöð á Hjalteyri í Eyjafirði, klakstöð á Dalvík og mat- fiskeldisstöð í Þorlákshöfn. Félagið er alfarið í eigu Fiskeldis Eyjafjarð- ar en þar eru stærstu hluthafarnir Hafrannsóknastofnun, Samherji, ÚA, Grandi og Afl fjárfestingafé- lag. kk@frettabladid.is Síðumúla 13 Opið 10 - 18 Sími 568-2870 TVEIR FYRIR EINN 60 – 80 % Ótrúlega lágt verð Dæmi um verð: Áður Núna Riffluð peysa 6.500.- 1.400 + ein frí Rennd peysa 5.900.- 1.900 + ein frí Rúllukragapeysa 6.200.- 1.900 + ein frí Vafin peysa 4.800.- 1.900 +ein frí Peysa m/V-hálsmáli 4.700.- 1.400 + ein frí Satín toppur 5.300.- 1.900 + ein frí Bolur m/perlum 6.600.- 1.900 + ein frí Bolur m/áprentun 3.700.- 900 + ein frí Skyrta 4.000.- 1.500 + ein frí Túnikublússa 4.700.- 900 + ein frí Hettupeysa 4.900.- 1.900 + ein frí Sítt pils 6.300.- 900 + ein frí Flauelsjakki 6.400.- 1.900 + ein frí Dömujakki 5.600.- 900 + ein frí Leðurbuxur 11.200.- 2.900 + ein frí Kvartbuxur 4.900.- 1.900 + ein frí Dömubuxur 5.800.- 900 + ein frí Og margt, margt fleira.                                       !    "   "  #$ #  #      "                     %  #    &                   !     "  #!                      SVEITARSTJÓRNARMÁL Í samþykkt sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveit- ar um sameiningarkosti á Eyja- fjarðarsvæðinu er skýrsla sem Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri (RHA) vann um sama mál gagnrýnd harðlega. Þar er sagt að skýrslan svari ekki þeim spurningum sem henni var ætlað að svara og hún hjálpi því ekki sveitarstjórnum á svæðinu að taka afstöðu um sameiningar- kosti. Þá segir einnig að óheppi- legt hafi verið að skýrsluhöfundar hafi kynnt skýrsluna ítrekað á op- inberum vettvangi og tjáð um leið afstöðu sína til málefnisins. Grétar Þór Eyþórsson, forstöðu- maður RHA, vísar ásökunum full- trúa Eyjafjarðarsveitar um hlut- drægni algerlega á bug í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér. Í yfir- lýsingunni segir meðal annars að skýrsluhöfundar hafi hvergi tekið afstöðu til sameiningarkosta á Eyja- fjarðarsvæðinu, hvorki í skýrslunni né á öðrum vettvangi. „Það er alvar- legt mál að liggja undir ásökunum um hlutdrægni og trúnaðarbrest og harmar Rannsóknastofnunin að kjörnir fulltrúar sveitarfélags sendi frá sér svo alvarlegar ásakanir að óathuguðu máli,“ segir í yfirlýsingu Grétars. - kk ARNAR FREYR JÓNSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI FISKEYJAR Eldislúðan fer einkum á markaði í Banda- ríkjunum og Bretlandi en einnig víða um Suður-Evrópu. Að sögn Arnars er vaxandi eftirspurn eftir eldislúðu. HÁSKÓLINN Á AKUREYRI Forstöðumaður Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri vísar á bug gagnrýni sveitarstjórn- ar Eyjafjarðarsveitar á skýrslu stofnunarinnar um sameiningarkosti á Eyjafjarðarsvæðinu. Sameining á Eyjafjarðarsvæðinu: Starfsmenn RHA sakaðir um hlutdrægni BOGI NILSSON Ríkissaksóknari segir að saksóknarar fari yfir gögn hvers máls. Líklegt eða verulega líklegt þurfi að vera að ákæra leiði til sak- fellingar til að ákært sé. Kjarabarátta: Undirlagt verkföllum FRAKKLAND, AP Viðbúið er að verk- föll hafi mikil áhrif á franskt þjóð- félag í vikunni. Lestarstarfsmenn hófu verkfall á miðnætti síðustu nótt og snúa ekki aftur fyrr en á fimmtudagsmorgun. Þeir vilja mótmæla áformum um að segja upp 3.500 starfsmönnum. Stjórn járnbrautanna kemur saman á morgun. Fleiri hafa boðað verkfall. Starfsmenn póstsins ætla í verk- fall í dag, skurðlæknar á morgun og í kjölfarið fylgja kennarar, sál- fræðingar og starfsmenn á bráða- deildum sjúkrahúsa svo nokkrir hópar séu nefndir. ■ Ríkissaksóknari: Miðast við lög og dómafordæmi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.