Fréttablaðið - 18.01.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 18.01.2005, Blaðsíða 8
1Hversu margir fyrrverandi ráðherrareru komnir á eftirlaun en eru samt áfram í opinberu starfi sem þeir fengu eftir að hafa hætt á þingi? 2Rúmensk kona varð elst kvenna til aðeignast lifandi barn, hversu gömul er hún? 3Hvað heitir heimildarmyndin sem ver-ið er að vinna um Quarashi? SVÖRIN ERU Á BLS. 30 VEISTU SVARIÐ? 8 18. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR Abbas skipar öryggissveitum að hafa hemil á vígamönnum: Komi í veg fyrir árásir á Ísrael PALESTÍNA, AP Mahmoud Abbas, for- seti palestínsku heimastjórnar- innar, fyrirskipaði palestínskum öryggissveitum í gær að reyna að koma í veg fyrir árásir á Ísrael. Hann fyrirskipaði þeim einnig að rannsaka skotárásina á Gaza í síð- ustu viku sem kostaði sex ísra- elska verkamenn lífið. Óvíst er hvaða áhrif fyrirskip- un Abbas hefur. Ekkert var gefið út um hvernig öryggissveitirnar ættu að koma í veg fyrir árásir og talsmaður Hamas sagði að sam- tökin myndu halda áfram árásum á Ísraela. Ofbeldi á Gaza og Vesturbakk- anum undanfarna daga hefur dregið úr bjartsýni á að semja megi um frið milli Ísraela og Palestínumanna. Palestínskir vígamenn myrtu sex ísraelska verkamenn í árás á fimmtudag og síðan þá hafa sextán Palestínu- menn, níu vígamenn og sjö óbreyttir borgarar, fallið fyrir hendi ísraelskra hermanna. Háttsettur ísraelskur embætt- ismaður sagði í gær að Ariel Shar- on, forsætisráðherra Ísraels, hefði ákveðið að hefja ekki stór- sókn hersins á Gaza-svæðinu. Áður hafði Sharon veitt hernum ótakmarkaða heimild til að skjóta alla vopnaða vígamenn og þá sem skytu eldflaugum að landnema- byggðum. ■ Kaupmenn ánægðir: Rífandi gangur í útsölum VERSLUN Kaupmenn eru allflestir ánægðir með gang á útsölum sem nú standa yfir. Sigurður Jónsson, forstjóri Samtaka verslunar og þjónustu, kvaðst hafa tekið stöð- una hjá nokkrum þeirra í síðustu viku og svo virtist sem rífandi gangur væri í þeim. „Útsölurnar hafa færst fram og byrja milli jóla og nýárs,“ sagði hann. „Kaupmenn sem ég ræddi við sögðu að janúar væri betri sölumánuður heldur en febrúar og mars. Að vísu verður þetta að- eins öðruvísi í ár því páskarnir eru í lok mars og þeir hleypa þessu aðeins upp miðað við í fyrra, því þá voru þeir í apríl. Ég held að það sé almennt bjartsýnis- hljóð í mönnum.“ Varðandi jólaverslunina sagði Sigurður að hún hefði aukist um rúmlega tíu prósent frá því í fyrra, þegar öll kurl væru komin til grafar. „Menn halda alltaf að toppnum sé nú náð, en það virðist vera stöðug aukning og alltaf að bætast við,“ sagði hann. - jss Rifbrotinn og lurkum laminn Nói Marteinsson, bifreiðastjóri á Tálknafirði, var hætt kominn í gær þegar flutningabíllinn sem hann ók fór út af veginum í blindbyl og niður 150-200 snarbratta hlíð. Bíllinn er gjörónýtur. Nói rifbrotnaði og er lurkum laminn eftir að hafa barist í bílhúsinu niður í árfarveg, þar sem bíllinn stöðvaðist. SLYS „Það er eitthvert lán yfir mér,“ sagði Nói Marteinsson, flutningabílstjóri á Tálknafirði, sem lenti í alvarlegu bílslysi í blindbyl í gærdag. Bíllinn sentist niður snarbratta hlíð og stöðvað- ist ekki fyrr en í farvegi Mikla- dalsár. Nói var á leiðinni frá Patreks- firði yfir á Tálknafjörð þegar slysið varð á tólfta tímanum í gærdag. Hann var kominn rúm- lega kílómetra fram í Mikladal þegar það átti sér stað. Á bílnum voru 5-6 tonn af fiski. „Það var þreifandi bylur, svo ég stoppaði. Bíllinn hefur verið kominn alveg út í kantinn, því þegar ég ók af stað aftur hélt hann áfram niður. Það er alveg snar- bratt þarna niður, 150-200 metrar niður í árfarveginn.“ Nói sagði að bíllinn hefði aldrei oltið á allri þessari leið, heldur hefði hann „skrönglast niður á hjólunum“. Það hefði ekki verið fyrr en hann stoppaði í árfarveg- inum sem hann fór á hliðina. Nói kvaðst hlutina hafa gerst svo hratt að hann hefði tæpast gert sér grein fyrir því sem hefði ver- ið að gerast. Hann kvaðst hafa setið í bílnum allan tímann. Nói var með farsíma í vasanum á kuldagalla sem hann var í. Þeg- ar hann reyndi að ná sambandi reyndist það ekki hægt niðri í ár- farveginum. Hann þurfti því að skreiðast langleiðina upp á veginn og þaðan gat hann hringt. Lög- reglan á Patreksfirði kom á stað- inn og flutti hann rakleiðis á sjúkrahúsið Patreksfirði. Þaðan fékk hann að fara heim eftir að gert hafði verið að meiðslum hans. „Það eru víst eitt eða tvö rif brotin,“ sagði hann. „Svo er ég all- ur lurkum laminn í skrokknum eftir að hafa barist í húsinu niður. Það eru engin bílbelti í þessum bíl. Hann er ónýtur eftir þetta, það er ekkert öðruvísi en það.“ Fleiri voru í vandræðum vegna veðurs og hálku í gær og fyrra- dag. Kona með tvö börn í bíl sín- um lenti utan vegar á Holtavörðu- heiði í gær. Bíllinn valt en engin slys urðu á fólki. Þá fór flutninga- bíll út af veginum á heiðinni og aðstoðaði lögreglan á Hólmavík við að koma honum upp á veginn aftur. jss@frettabladid.is 200 SLÖSUÐUST Hálfs árs gömlu neðanjarðarlestakerfi Bangkok, höfuðborgar Taílands, hefur ver- ið lokað um vikuskeið eftir að meira en 200 manns slösuðust þegar tvær lestir skullu saman í gærmorgun. Mannlegum mistök- um er kennt um slysið sem varð þegar tóm lest rann á aðra sem var drekkhlaðin farþegum. Rútuslys í Fagradal: Fékk hjól af tengivagni á sig UMFERÐARSLYS „Það sluppu allir ómeiddir því dekkið lenti sem bet- ur fer bara utan á rútunni en fór ekki inn í bílinn, það hefði getað kostað mannslíf,“ segir Sveinn Sigurbjarnarson eigandi rútu sem varð fyrir bíldekki sem losnaði af tengivagni sem var að koma úr gagnstæðri átt í Fagradal í Suður- Múlasýslu á laugardag. Um borð í rútunni var knatt- spyrnulið í Fjarðabyggð sem var á leið til Akureyrar en önnur rúta kom á slysstað og ók þeim áleiðis til Akureyrar. Sveinn segir að það hafi verið hægt að aka rútunni tómri af slysstað en það eigi eftir að meta hversu miklar skemmd- irnar séu. ■ ■ ASÍA – hefur þú séð DV í dag? Kafteinn Kókaín Beinbraut konuna og kýldi úr henni tennur BRESK DAGBLÖÐ Fjaðrafokið út af prinsinum með haka- krossinn varð til þess að íhugað er að banna notkun hakakrossa. Evrópusambandið: Vilja banna hakakrossinn BELGÍA, AP Franco Frattini, sem fer með dómsmál í framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins, íhug- ar að banna notkun hakakrossins, tákn þýskra nasista í tíð Adolfs Hitlers. Frattini sagðist reiðubú- inn að taka málið upp á fundi framkvæmdastjórnarinnar í næstu viku. Verði bannið sett gild- ir það í öllum 25 ríkjum Evrópu- sambandsins. Orð Frattinis koma í kjölfar þess að Harry prins í Bretlandi var myndaður með hakakrossinn á furðufataskemmtun. Athæfið olli miklu fjaðrafoki og kepptust stjórnmálamenn og fleiri einstak- lingar við að fordæma hann. ■ PILTAR GRÝTA HERBÍL Palestínskir drengir í flóttamannabúðunum Balata grýttu ísraelska herbíla sem keyrt var inn í búðirnar. Alþýðusambandið: Mætir fyrir fé- lagsmálanefnd KÁRAHNJÚKAR Fulltrúar ASÍ munu mæta fyrir félagsmálanefnd í dag til að ræða um aðbúnað og kjör starfsmanna á Kárahnjúkum. Upphaflega átti að kalla verka- lýðshreyfinguna og fulltrúa Im- regilo fyrir nefndina samtímis. Því höfnuðu fulltrúar Impregilo og báru fyrir sig að að fyrirtækið hefði viljað útskýra mál sitt í friði og ró. ■ RÍFANDI GANGUR Kaupmenn eru ánægðir með ganginn í jólaverslun og síðan útsölum. FÓR BETUR EN Á HORFÐIST Nói Marteinsson bifreiðastjóri fékk að fara heim til sín eftir slysið í gær eftir að hann hafði verið skoðaður og fengið aðstoð á sjúkrahúsinu á Patreksfirði. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /F RÍ Ð A H R U N D

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.