Fréttablaðið - 18.01.2005, Blaðsíða 38
...fær Viggó Sigurðsson, þjálfari
karlalandsliðsins í handknatt-
leik, sem stefnir ótrauður á gott
sæti á heimsmeistaramótinu
í Túnis sem hefst 23. þessa
mánaðar.
30 18. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
– hefur þú séð DV í dag?
Nanna í Idol Pabbinn ekki
sáttur við keppnina
og ættingjar
hennar
grétu
HRÓSIÐ
Bryndís Jakobsdóttir er ungur
söngfugl enda dóttir Ragnhildur
Gísladóttur og Jakobs Frímanns
Magnússonar. Hún virðist hafa
fengið tónlistaráhuga í vöggugjöf
og eins og kom fram í DV í gær er
hún á leið til London í vikunni að
syngja fyrir nokkra í bransanum.
„Þetta eru einungis frumþreifing-
ar kornungrar stúlku á þessu
sviði. Áhugi landans á hljómi
raddar hennar er ef til vill skiljan-
legur en þetta er gríðarleg pressa
á ungan og óharnaðan ungling og
því viljum við sem minnst að um
þetta sé fjallað á þessu stigi, þó að
DV hafi haft eyrað jafn nálægt
grassverðinum og raun ber vitni,“
segir Jakob Frímann Magnússon.
Jakob segir fyrirtækið Sony
Music Publishing hafa sýnt áhuga
á að vinna með henni. „Svona ferli
getur tekið allt frá einu ári og upp
í fimm ár svo þetta er rétt að
byrja. Þetta eru allt einungis hug-
myndir og drög og það kemur í
ljós hvort þetta verður að veru-
leika. Menn geta orðið sammála
því að semja en svo getur það
gerst að ekkert verði af samning-
um.“
Bryndís hefur verið syngjandi
síðan hún var lítil og lærði bæði á
píanó og selló. Hún var einnig orð-
uð við Nylon hópinn þegar hann
var skipaður. „Það kom til tals að
hún væri í Nylon en kaus að feta
sína eigin leið. Einari Bárðarsyni
hugnaðist mjög vel það sem hann
sá og heyrði og í kjölfarið fórum
við að skoða hvað hægt væri að
gera. Hún kaus svo að gera þetta
og semja þá tegund af músík sem
er byggð á hennar eigin músík-
áhrifum. Þetta er samt allt nýtt og
skammt á veg komið. Það gæti
verið hálft ár eða lengra í að komi
út lag,“ segir Jakob. ■
Stuðmanna-söngfuglinn fer sína eigin leið
BRYNDÍS JAKOBSDÓTTIR Dóttir Stuð-
mannanna Ragnhildar Gísladóttur og
Jakobs Frímanns Magnússonar hefur feng-
ið tónlistaráhuga í vöggugjöf.
Kristjáni Magnússyni, sundlaug-
arverði í Vesturbæjarlaug, tókst
fyrir skömmu hið ótrúlega þegar
hann fann augnlinsu í lauginni
sem ítalskur ferðamaður hafði
týnt.
Ítalinn bað starfsmenn sund-
laugarinnar um að koma sér til
hjálpar enda var um svokallaða
„eilífðarlinsu“ að ræða, linsur
sem eiga að endast von úr viti.
„Þetta eru sextíu tonn af vatni
sem ég leitaði í. Við erum með
sérstakar ryksugur til þess að
hreinsa sandinn úr botninum á
lauginni. Ég vissi af þessari týndu
linsu svo ég fór vandlega í gegn-
um ryksugusíuna og fann lins-
una,“ segir Kristján. „Þetta er víst
svona linsa sem fólk á ekki að
taka úr sér.“
Aðspurður hvort hann hafi
ekki orðið hvumsa við beiðninni
um að finna augnlinsu í sundlaug-
inni segir Kristján: „Mér brá ekk-
ert við það að vera beðinn um að
finna linsu í lauginni. Ég er vanur
svona ævintýrum og í fyrra fann
ég lítinn demantseyrnalokk. Þeir í
afgreiðslunni sögðu því Ítalanum
að hann þyrfti ekki að hafa
áhyggjur af þessu því að á staðn-
um væri maður sem hefði fundið
ótrúlega hluti. Hann var auðvitað
ánægður þegar ég fann linsuna og
sagðist alltaf ætla að koma í Vest-
urbæjarlaugina í sund.“
Kristján hefur unnið sem sund-
laugarvörður síðastliðin þrjú ár.
„Ég vann áður hjá Slysavarna-
félaginu þar sem ég var vélstjóri
á björgunarbátnum. Núna er ég
orðinn svo gamall að það er voða-
lega þægilegt að vera þarna í
sundlauginni.“
Kristján hefur komið við sögu
á fleiri sviðum því hann sinnir
einnig myndlistinni sem áhuga-
máli. „Jú, ég hélt málverkasýn-
ingu fyrir nokkrum árum, við vél-
stjórarnir, við getum allt,“ segir
hann og hlær. hilda@frettabladid.is
KRISTJÁN MAGNÚSSON Sundlaugarvörður í Vesturbæjarlaug var beðinn um að leita að augnlinsu í lauginni. Hann gerði meira en það, hann fann hana!
KRISTJÁN MAGNÚSSON: SUNDLAUGARVÖRÐUR Í VESTURBÆJARLAUG
Fann augnlinsu í sundlaug
Dótið? Sushi-gleraugu.
Sem er? Venjuleg gleraugu sem nýtast
einnig sem verkfæri til að borða sushi
eða annan austurlenskan mat með.
Gleraugun virka eins og öll venjuleg
gleraugu, fyrir nærsýna og fjærsýna.
Það sem þau hafa hins vegar umfram
önnur er að það er hægt að taka
spangirnar af og nota sem prjóna til
að borða með.
Hugmyndin? Þýska fyrirtækið Ic!Berlin
er framleiðandi þessara fjölnota gler-
augna. Hugmyndasmiðurinn er Ralph
Anderl en hann fékk hugmyndina að
gleraugunum þegar hann sá hversu
vinsælt það er orðið að borða mat á
ferðinni. „Fólk hefur ekki lengur tíma
til að setjast niður og borða. Þess í
stað vill það borða meðan það gengur
á milli vinnustaða,“ segir Anderl um
þessa stórkostlegu hugmynd sína.
Gleraugun virðast vera orðin nokkuð
vinsæl, ekki síst í Austurlöndum.
Gallar? Gleraugun eru afar einföld í
notkun. Spöngunum er einfaldlega
kippt af þegar nota á þær í matinn og
þeim síðan smellt aftur á eftir notkun.
Gleraugun er hins vegar ekki hægt að
nota þegar búið er að taka spangirnar
af svo það getur reynst erfitt fyrir
sjóndapra að sjá góðgætið. Spangirn-
ar verða líka skítugar eftir matinn en
sem betur fer er auðvelt að hreinsa
þær.
Verð? Gleraugun kosta 180 pund eða
um tuttugu þúsund krónur, sem hlýt-
ur að teljast nokkuð billegt miðað við
hversu notadrjúg þau eru. Hægt er að
nálgast upplýsingar um gleraugun á
vefslóðinni www.ic-berlin.de.
DÓTAKASSINN
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Sjö.
66 ára.
Skæruliðadiskó.
Lárétt: 2 lipurð, 6 bardagi, 8 rýja, 9 mikill
vindur, 11 einkennisstafir, 12 mittismjó,
14 armur, 16 prófgráða, 17 snjó, 18
ólma, 20 númer, 21 skipta.
Lóðrétt: 1 óhljóð, 3 bogi, 4 viðskiptavin-
urinn, 5 verkur, 7 gat borðað, 10 sængur-
lega gamalmennis, 13 tangi, 15 fæða, 16
fleti, 19 til.
Lausn.
Lárétt: 2mýkt,6at,8rúa,9rok,11nk,
12grönn, 14grein, 16ba,17snæ,18
óða,20nr, 21liða.
Lóðrétt: 1garg,3ýr, 4kúnninn,5tak,7
torgaði,10kör, 13nes,15næra,16ból,
19að.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR