Fréttablaðið - 18.01.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 18.01.2005, Blaðsíða 6
H alldór Ásgrímsson for-sætisráðherra hefur ít-rekað haldið því fram, bæði í fjölmiðlum og á Alþingi, að Íraksmálið svokallaða hafi verið rætt í ríkisstjórn sem og í utanrík- ismálanefnd og á Alþingi. Hann dregur þó ekki dul á það að ákvörðunin um stuðning Íslend- inga við innrásina í Írak í mars fyrir tæpum tveimur árum hafi verið tekin af tveimur mönnum, honum sjálfum sem þáverandi ut- anríkisráðherra og Davíð Odds- syni, þáverandi forsætisráðherra. Engar samþykktir liggja því fyrir um ákvörðunina, hvorki í ríkis- stjórn né í utanríkismálanefnd. Guðni segir málið rætt eftir á Guðni Ágústsson, landbúnaðar- ráðherra og varaformaður Fram- sóknarflokksins, hefur hins vegar haldið því fram í fjölmiðlum á undanförnum dögum að Íraksmál- ið hafi ekki verið rætt í ríkisstjórn fyrr en eftir að ákvörðun Halldórs og Davíðs lá fyrir. „Auðvitað var oft búið að ræða um Íraksmál en þessa ákvörðun tóku þeir og af hverju þeir gerðu það með þess- um hætti kann ég ekki að segja frá. Þeir verða auðvitað bara að verja sig í því,“ sagði Guðni í Sunnudagsþættinum á Skjá einum síðastliðinn sunnudag. Halldór svarar ekki spurningum Halldór Ásgrímsson sendi frá sér yfirlýsingu vegna umræðunnar um Íraksmálið í gær en neitaði að veita viðtöl. Í yfirlýsingunni kem- ur ekki neitt nýtt fram, heldur ít- rekar Halldór einungis það sem hann hefur áður haldið fram opin- berlega, meðal annars það að Íraksmálið hafi verið rætt „nokkrum sinnum í utanríkismála- nefnd og á Alþingi veturinn 2002- 2003“. Halldór bendir jafnframt á í yfirlýsingu sinni að 12. mars 2003 hafi meirihluti utanríkismála- nefndar fellt tillögu Vinstri- grænna um að „ríkisstjórnin beitti sér gegn áformum um innrás í írak og að Ísland standi utan við hvers kyns hernaðaraðgerðir gegn Írak“. Þá kemur fram að málið hafi verið rætt á Alþingi daginn eftir og að þar hafi Halldór sagt: „Nú liggur fyrir að meirihluti þingsins útilokar það ekki að valdi verði beitt í þessum málum. ... en það liggur alveg ljóst fyrir af hálfu ríkisstjórnarinnar að það er ekki hægt að ná friði og friðsamlegri lausn varðandi Írak nema að baki liggi alvarleg hótun.“ Segir málið rætt fyrir ákvörðun- artöku Þingi var slitið 14. mars vegna komandi alþingiskosninga en Hall- dór heldur því fram í yfirlýsing- unni frá í gær að Íraksmálið hafi verið fyrsta mál á dagskrá ríkis- stjórnarinnar á fundi 18. mars. Í kjölfar ríkisstjórnarfundarins hafi hann og Davíð síðan ákveðið að styðja innrásina í Írak. Í yfirlýsingunni er enga út- skýringu að finna á því hvers vegna sjálf ákvörðunin var ekki rædd á ríkisstjórnarfundi – né heldur hvers vegna Halldóri og Davíð þótti ekki ástæða til að kalla saman utanríkismálanefnd til að ræða jafn afdrifaríka og viðamikla ákvörðun. Fréttablaðið sendi forsætisráð- herra formlega ósk eftir svari við þessum spurningum í gær en fékk aðeins þau svör að hann veitti ekki viðtöl við fjölmiðla. Þá óskaði Fréttablaðið eftir því að fá afrit af fundargerð ríkisstjórnarfundar- ins sem forsætisráðherra vísar til, frá 18. mars 2003, en var neit- að um það með þeim skýringum að þær væru trúnaðarmál. Í fréttatilkynningu frá forsætis- ráðuneytinu að loknum ríkis- stjórnarfundi 18. mars 2003 kem- ur fram að „ófriðarhorfur“ var annað tveggja mála sem á dag- skrá voru. Þrennt stendur eftir Af þessum ágreiningi um ákvörð- unina um stuðning við innrásina í Írak stendur þrennt eftir. Í fyrsta lagi sú staðreynd að tveimur ráð- herrum í ríksisstjórn Íslands beri ekki saman um hvort Íraksmálið hafi verið rætt í ríkisstjórn fyrir eða eftir að ákvörðunin sjálf var tekin. Í öðru lagi það, að ákvörð- unin var hvorki rædd í ríkis- stjórn, utanríkismálanefnd né á Alþingi Íslendinga. Í þriðja lagi, að Halldóri og Davíð þótti ákvörð- unin ekki það veigamikil að ástæða væri til að kalla saman ut- anríkismálanefnd til að fjalla um hana. Að lokum má spyrja að því hvers vegna ekki er hægt að fá hreinskiptin svör við því hvers vegna ákvörðun um jafn mikilvægt mál og þetta var ekki tekin á hefð- bundinn, lýð- ræðislegan hátt á Al- þingi? ■ 6 18. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR Verktaki um útboð í Garðabæ: Óheilbrigðir viðskiptahættir ÚTBOÐ „Þetta er óréttlátt gagnvart öðrum bjóðendum og óheilbrigðir viðskiptahættir,“ segir Bergþór Jónsson annar eigenda verktaka- fyrirtækisins Mótás sem hefur sent bæjarráði Garðabæjar skrif- legar athugasemdir við útboð á byggingarlóðum við Bjarkarás í Garðabæ. Alls bárust 49 tilboð í lóðirnar en í síðustu viku ákvað bæjarráð Garðabæjar að hefja viðræður við forsvarsmenn Frjálsa fjár- festingarbankans hf. vegna til- boðs í tvær fjölbýlishúsalóðir við Bjarkarás sem nemur rúmlega 175 milljónum króna. Hæsta til- boðið kom frá Fasteignafélaginu Hlíð ehf. og var upp á rúmlega 200 milljónir en fyrirtækið féll frá því og því sneru bæjaryfir- völd sér að Frjálsa fjárfestingar- bankanum. Sömu eigendur eru hins vegar að þessum félögum og við það hefur Bergþór gert at- hugasemdir auk annarra tilfella þar sem fyrirtæki sendi inn fleiri en eitt tilboð. Bergþór segir að nauðsynlegt sé að setja fyrir fram leikreglur á útboð sem þessi. Hann hefur ekki fengið nein viðbrögð frá yfirvöld- um í Garðabæ vegna athuga- semdarinnar. Ekki náðist í Ásdísi Höllu Bragadóttur, bæjarstjóra í Garðabæ vegna málsins. - bs Forsætisráðherra hvergi haggað Halldór Ásgrímsson hvikar hvergi frá ummælum sínum um Íraksmálið og segir að málið hafi verið rætt í ríkisstjórn daginn sem ákvörðunin var tekin. Guðni Ágústsson segir málið ekki hafa verið rætt í ríkisstjórn fyrr en eftir á. FIMMTÁN Í HALDI Yfirvöld í Kúveit hafa handtekið fimmtán Kúveita og Sádi-Araba í kjölfar átaka milli lögreglu og íslamskra vígamanna í síðustu viku. Menn- irnir eru taldir hafa lagt á ráðin um árásir á vestrænt fólk í Kúveit. ANDÓF Í HERNUM Þúsundir ísra- elskra hermanna hafa undirritað yfirlýsingu þar sem þeir heita því að taka ekki þátt í aðgerðum hersins til að reka ísraelska land- nema frá landnemabyggðum á Gaza. Þetta segja leiðtogar land- nemanna sem eru mjög ósáttir við áætlunina um brotthvarf frá Gaza. Tollstjórinn í Reykjavík: Greiði bætur DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur hefur dæmt Tollstjórann í Reykjavík til að greiða Kolbrúnu Björnsdóttur grasalækni 200 þús- und krónur í miskabætur fyrir að leggja hald á jurtir sem hún hafði pantað frá Bretlandi árið 2001. Starfsmenn Tollstjóra töldu að það þyrfti að skrá jurtirnar í ann- an tollflokk og fá samþykki Lyfja- stofnunar fyrir þeim. Forsendur dómsins voru að Kolbrún hefði ekki verið látin vita að jurtirnar hefðu verið haldlagð- ar fyrr en sjö mánuðum eftir að það var gert og gat hún því ekki nýtt sér rétt sinn til að kæra hald- lagninguna til viðeigandi yfir- valda. - bs SÓTTI HJARTAVEIKAN MANN TF-LIF, þyrla Landhelgisgæsl- unnar, sótti hjartaveikan mann, sem þurfti nauðsynlega að kom- ast á sjúkrahús í Reykjavík, til Stykkishólms í gær. Læknir og stýrimaður þyrlunnar sóttu manninn á sjúkrahúsið og hjálp- uðu til við flutning hans á flug- völlinn þaðan sem flogið var með hann til Reykjavíkur. FORSETAKOSNINGAR FYRIR RÉTTI Janúkovitsj, sem bauð sig fram í embætti forseta í Úkraínu, hefur ekki gefist upp þrátt fyrir að niður- stöður endurkosninga annan í jól- um segi að mótframbjóðandi hans, Júsjenko, hafi unnið. Janúkovitsj hefur krafist ógildingar kosning- anna og ber því við að þær hafi borið svo brátt að, að margir veikir og sjúkir hafi ekki haft tækifæri á að kjósa. SKYLDUGIR AÐ AÐSTOÐA Forsæt- isráðherra Ungverjalands, Ferenc Gyurchsany, sagði á mánudag að landinu bæri skylda að aðstoða Rúmena til að ganga í Evrópusam- bandið. Innganga nágrannaríkisins myndi stuðla að frið og velsæld á svæðinu. Þá bæri þeim söguleg skylda að aðstoða Rúmena. ■ SJÚKRAFLUG ■ EVRÓPA ■ MIÐ-AUSTURLÖND Á Ísland erindi í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna? SPURNING DAGSINS Í DAG: Eiga fyrrverandi ráðherrar að fá eftirlaun meðan þeir gegna enn opinberum störfum? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 60,2% 39,8% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN Gi ld ir til 6. fe br úa r eð a á m eð an b ir g ð ir en d as t. Tilboðsstaðir: Apótekarinn Akureyri Hagkaup Skeifan Hagkaup Smáralind Lyf & heilsa Austurstræti Lyf & heilsa Kringlan Lyf & heilsa Melhaga TILBOÐá augnskuggum, naglast yrkingu m og vara litum. í völdum línum L ’Oréal2 1fyrir SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING UMMÆLI RÁÐHERRA UM ÍRAKSMÁLIÐ STANGAST Á BERGÞÓR JÓNSSON Vill skýrari leikreglur fyrir útboð. Telur óréttlátt að fyrirtæki geti dregið tilboð sín til baka eftir hentugleika. Ummæli stangast á Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra í Kastljósi 6. desember 2004: „Það liggur náttúrlega alveg ljóst fyrir að þetta mál var margrætt á Alþingi. Það var rætt í utanríkismálanefnd, það var rætt í þinginu en að lokum var það að sjálfsögðu utanríkisráð- herra og forsætisráðherra sem gerðu tillögu í þessum efnum.“ [...] „Þetta var rætt í ríkisstjórn og það var fullur einhugur í þessu máli meðal ráðherra ríkisstjórnarinnar. Sigmar Guðmundsson: Og var þetta rætt áður en að svarið var gefið út, já við erum á listanum? Halldór Ásgrímsson: Jú, ég meina auðvitað var þetta rætt á milli okkar. Sigmar Guðmundsson: Og samþykkt? Halldór Ásgrímsson: Það var engin formleg samþykkt gerð um það í ríkisstjórn.“ Jónína Bjartmarz, situr í utanríkis- málanefnd Alþingis, í Íslandi í dag á Stöð 2 6. janúar 2005: „Ég tók aldrei ákvörðun um að vera á þessum lista. Það liggur alveg ljóst fyr- ir.“ [...] „Þetta var ekki rætt í utanríkismála- nefnd, þetta var ekki borið undir hana.“ Guðni Ágústsson, landbúnaðarráð- herra og varaformaður Framsóknar- flokksins, í Sunnudagsþættinum á Skjá einum 16. janúar 2005: „Þessir leiðtogar ríkisstjórnarinnar, Halldór Ásgrímsson og Davíð Odds- son, þeir tóku þessa ákvörðun. [...] um að vera á þessum lista.“ Guðmundur Steingrímsson: „Og það er þá rétt sem Kristinn [H. Gunnars- son] segir, að hún var ekki rædd fyrir- fram í þingflokknum?“ Guðni Ágústs- son: „Þeir tóku það, það er alveg við- urkennt, þeir tóku þessa ákvörðun. Auðvitað hefur hún síðan oft verið rædd í ríkisstjórn og í utanríkismála- nefnd og þinginu.“ Guðmundur Steingrímsson: Já síðan, en hún var ekki rædd fyrir í utanríkismálanefnd og ekki fyrir í þingflokknum?“ Guðni Ágústsson: „Auðvitað var oft búið að ræða um Íraksmál en þessa ákvörðun tóku þeir og af hverju þeir gerðu það með þessum hætti kann ég ekki að segja frá. Þeir verða auðvitað bara að verja sig í því.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.