Fréttablaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
FYRIRLESTUR UM NAUÐGUN
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir heldur fyrirlest-
ur í Lögbergi, stofu 101 klukkan 12.15 í dag,
um efni kandidatsritgerðar sinnar til emb-
ættisprófs í lögfræði og ber ritgerðin heitið
„Nauðgun frá sjónarhorni kvennaréttar“.
DAGURINN Í DAG
4. febrúar 2005 – 33. tölublað – 5. árgangur
HAFNAR KLÓRVINNSLU Bæjarráð
Kópavogs samþykkti á fundi í gær að fyrir-
tækið Mjöll Frigg fengi ekki tímabundið
starfsleyfi í Kópavogi. Sjá síðu 2
SKATTSVIK VERÐUR AÐ UPPRÆTA
Geir H. Haarde segir eðlilegt að einstaklingar
og fyrirtæki nýti sér löglegar leiðir til að lág-
marka skattgreiðslur sínar. Sjá síðu 4
BOÐSFERÐIR LÆKNA Á FIMMTA
HUNDRAÐ Íslenskir læknar fóru í 469 ut-
anlandsferðir í boði lyfjafyrirtækja í fyrra.
Þingmaður segir reglur skorta um slíkar
boðsferðir. Sjá síðu 6
ÁHRIFIN GETA ORÐIÐ VERULEG Á
50 ÁRUM Vísindamenn hafa kortlagt
hversu mikil áhrif loftslagsbreytingar kunna
að hafa á lífríki jarðar. Sé tekið mið af
síðustu rannsóknum geta áhrifin orðið veru-
leg um miðja öldina. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 26
Tónlist 28
Leikhús 28
Myndlist 28
Íþróttir 22
Sjónvarp 32
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Útsölulok
90% AFSLÁTTUR
ALLT A‹
út helgina
18-40 ára
Me›allestur dagblaða
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004
MorgunblaðiðFréttablaðið
62%
38%
VEÐRIÐ Í DAG
SKOÐANAKÖNNUN Skoðanakönnun
Fréttablaðsins um fylgi stjórn-
málaflokkanna er á svipuðum nót-
um og aðrar kannanir, að öðru leyti
en því að Framsóknarflokkurinn
tekur mikla dýfu. Þetta segir
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í
stjórnmálafræði, en samkvæmt
könnuninni styðja átta prósent
kjósenda flokkinn. Hann segir
möguleika á að sá styr sem hefur
staðið um flokkinn að undanförnu
geti valdið þessu. Hann bendir á að
Framsóknarflokkurinn komi oft
illa út í könnunum, þó að hann fái
sjaldan svona lítið fylgi. Á síðasta
ári fékk flokkurinn tvisvar svipað
fylgi og nú í könnunum Frétta-
blaðsins. Í júní fékk flokkurinn 8,1
prósents fylgi og í júlí sögðust 7,5
prósent styðja flokkinn.
Sjálfstæðisflokkurinn eykur
fylgi sitt nokkuð frá síðustu könn-
unum og fær nú stuðning hjá 35
prósentum kjósenda, eða álíka mik-
ið fylgi og Samfylkingin fær sam-
kvæmt könnuninni.
Stjórnarflokkarnir tveir fá ekki
meirihlutafylgi samkvæmt könn-
uninni, heldur njóta þeir stuðnings
43 prósenta kjósenda. Flokkarnir
tveir myndu fá 28 þingmenn yrði
boðað til kosninga nú, Framsókn
fengi fimm en Sjálfstæðisflokkur-
inn 23 þingmenn. Ólafur segir að
fylgið við stjórnina hafi verið í
kringum 50 prósent það sem af er
kjörtímabilsins og þetta sé því ekki
út úr korti miðað við það sem verið
hefur.
Vinstri-grænir njóta nú 14,4 pró-
senta fylgis sem er nokkuð meira en
flokkurinn fékk í kosningum. Í
könnunum blaðsins hefur flokkur-
inn samt ekki notið minni stuðnings
síðan í maí á síðasta ári. Miðað við
þetta fylgi fengi flokkurinn níu
þingmenn, í stað fimm
Stuðningur við Frjálslynda
flokkinn rúmlega tvöfaldast miðað
við könnun blaðsins í nóvember og
mælist nú 6,7 prósent. Það er aðeins
minna en flokkurinn fékk í kosn-
ingunum en flokkurinn héldi sínum
fjórum þingmönnum.
- ss/Sjá síðu 4
METÞÁTTTAKA VAR Á FUNDI FÉLAGS FRAMSÓKNARMANNA Í KÓPAVOGI Í GÆRKVÖLD Siv Friðleifsdóttir þingmaður og Páll
Magnússon, varaþingmaður og aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, mættu á aðalfund Félags framsóknarmanna í Kópavogi í gær. Alls
mættu um 250 félagar á fundinn og var sitjandi stjórn endurkjörin. Í gær höfðu borist um 150 nýskráningar í félagið og hafa því um 250
nýir framsóknarmenn bæst við í framsóknarfélögin þrjú í Kópavogi undanfarna daga. Sjá síðu 2
LANDLÆKNIR Líknarskrá þar sem
fólk getur skráð og undirritað
hinsta vilja sinn varðandi læknis-
meðferð er í smíðum hjá Land-
læknisembættinu, að sögn Sig-
urðar Guðmundssonar landlækn-
is. Hann tjáði Fréttablaðinu að
gert væri fyrir að hún yrði tilbú-
in eftir nokkrar vikur.
„Líknarskráin er plagg þar
sem fólk gefur upp þá meðferð
sem það vill að sé ekki veitt
undir ákveðnum kringumstæð-
um,“ sagði landlæknir. „Þar er
hægt að taka fram, að fólk vilji
ekki láta endurlífga sig eða
hnoða sig í gang ef hjartað stopp-
ar. Jafnframt, að það vilji ekki
fara í öndunarvél fái það mjög al-
varlegan öndunarsjúkdóm sem
ekki er líklegt að sé hægt að
lækna, að það vilji ekki fara í
blóðskilun, vilji ekki láta gefa
sér sýklalyf sé það komið með
krabbamein á lokastigi og svo má
áfram telja. Það vilji sem sagt fá
að eiga síðustu dagana, vikurnar
eða mánuðina í sínu lífi á eins
virðulegan hátt og kostur er og
að eigin vilja.“
Líknarskráin tekur einnig til
líffæragjafa að sögn landlæknis.
Þá útnefni viðkomandi fulltrúa,
ættingja eða vin, sem hann
treystir til að fara með sín mál á
grundvelli undirritaðrar vilja-
yfirlýsingar, geti hann sjálfur
ekki tekið ákvörðun. - jss
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Spá um krónuna:
Líkur á
lækkun
EFNAHAGSMÁL Krónan er ofmetin
og veiking hennar rökrétt skref
að mati greiningardeidar Ís-
landsbanka.
Íslandsbanki kynnti í gær
skýrslu um gengi krónunnar.
Þar er því spáð að krónan muni
leita jafnvægis í fimmtungi
lægra gengi en nú.
Gengi krónunnar er nú afar
hátt og raungengið nálægt
sögulegu hámarki.
Greining Íslandsbanka telur
líkur á því að leiðréttingin geti
orðið hröð með skammvinnu
verðbólguskoti sem fari langt
yfir þolmörk Seðlabankans. Ís-
landsbanki telur að verðbólga
geti orðið meira en átta prósent
um mitt árið 2006. - hh
sjá síðu 20
Vinnsla á lokaspretti hjá Landlæknisembættinu:
Líknarskrá yfir hinsta vilja fólks
LÆKNISMEÐFERÐ
Í líknarskrána getur fólk skráð þá læknis-
meðferð sem að það vill að sé ekki veitt
undir ákveðnum kringumstæðum.
SÍÐA 30
● í aðalhlutverki í idol
Stjörnuleit:
▲
SÍÐA 34
Bítlabærinn
Keflavík
Björgvin Richter bakari:
▲
Í miðju blaðsins
Bolluhelgin
fram undan
● matur ● tilboð
tónlist fólk tíska dans krossgáta heilsa persónuleikapróf
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
4.
feb
– 1
0.
feb
+
Sálumessa
Pelsar
Baunir
HJÓNASVIPURINN
LEYNIR SÉR EKKI
Í STJÖRNULEIT
»
SI
M
M
I
»
JÓ
I
Hjónasvipurinn
leynir sér ekki
Simmi og Jói:
▲
Fylgir Fréttablaðinu í dag
● pelsar ● baunir
Tískusýning
hunda
● haldin í iðu á morgun
▲
Dýraföt:
FROST Á FRÓNI Norðlæg átt.
Snjókoma og síðar él á Norð-
austur- og Austurlandi en bjartviðri
syðra. Frost 0 -8 stig, kaldast til landsins
fyrir norðan. Sjá síðu 4
Framsóknarflokkurinn
tekur mikla dýfu
Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins segjast aðeins átta prósent kjósenda styðja Fram-
sóknarflokkinn yrði kosið nú. Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin mælast svo til jöfn.
B D F S U
17,7
8
35
33,7
30,9
8,87,4
6,7
35,2
14,4
FYLGI FLOKKA Í PRÓSENTUM
Skv. síðustu kosningum og samkvæmt
könnun 1. febrúar 2005.
Skv. könnun 01.02.2005
Eftir kosningar 2003
01 Forsíða 3.2.2005 22.55 Page 1