Fréttablaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 4. febrúar 2005 13
800 7000 - siminn.is
hjá Símanum
GSM á
góðu verði
• Myndavél
• Litaskjár
• 3ja banda
• Útvarp
• 4 MB minni
• Dagbók o.fl.
• Myndavél
• Litaskjár
• Þyngd: 90 g
• Útvarp
• 3ja banda
• 1 MB minni
• Pólýtónar o.fl.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
15
0
8
3
Eingöngu fyrir GSM kort frá Símanum.
Nokia 6610i
1.980
Léttkaupsútborgun:
og 1.250 kr. á mán.
í 12 mán.
16.980 kr.
kr.
Verð aðeins:
Eingöngu fyrir GSM kort frá Símanum.
Nokia 3200
1.980
Léttkaupsútborgun:
og 1.000 kr. á mán.
í 12 mán.
13.980 kr.
kr.
Verð aðeins:
Áhrif tónlistar:
Djass gegn
svefnleysi
RANNSÓKN Fólk sem á erfitt með
svefn gæti gert margt vitlausara
en að hlusta á djass áður en það
fer að sofa. Samkvæmt nýrri taí-
vanskri rannsókn á fólk sem
hlustað hefur á djass í 45 mínútur
áður en það fer að sofa, auðveld-
ara með svefn en fólk sem hefur
ekki hlustað á djass eða hefur
hlustað á hraðari tónlist.
Vísindamenn fylgdust með 60
eldri borgurum sem áttu erfitt
með svefn. Fólkið sem byrjaði að
hlusta á djass eða aðra álíka ró-
lega tónlist áður en það fór að sofa
svaf mun betur í kjölfarið að því
er fram kemur á vef BBC. ■
Sænskur forstjóri:
Fékk frelsi
sitt á ný
SVÍÞJÓÐ, AP Fabian Bengtsson, for-
stjóri og erfingi sænska stórfyrir-
tækisins Siba, er laus úr haldi
mannræningja sem rændu honum
fyrir hálfum mánuði. Skokkari
fann Bengtsson þar sem hann lá í
garði í miðborg Gautaborgar.
Talsmenn sænsku lögreglunn-
ar segja að ekkert lausnargjald
hafi verið greitt fyrir lausn
Bengtsson. Fjölskylda hans, eig-
endur Siba, hafði lýst því yfir að
hún væri reiðubúin að greiða
lausnargjald til að tryggja að
Bengtsson sneri aftur heill á húfi.
Bengtsson er að sögn við góða
heilsu. ■
Skoskir þingmenn segja illa vegið að fyrrverandi konungi sínum:
Vilja uppreisn æru fyrir Makbeð
SKOTLAND Makbeð Skotakonungur
var alls ekki sá illvirki sem Willi-
am Shakespeare lýsti í leikriti
sínu og það er tími til kominn að
hann fái að njóta sannmælis segir
í þingsályktunartillögu sem tutt-
ugu þingmenn á skoska þinginu
hafa lagt fram. Þar leggja þeir til
að árið sem nú er hafið verði
kennt við Makbeð og að ímynd
hans verði bætt að því er The
Times greinir frá.
„Makbeð hefur hlotið slæma
umfjöllun vegna aðkomu
Shakespeare. Hann var að öllum
líkindum góður konungur og ætti
að fá sakaruppgjöf,“ hefur The
Times eftir Alex Johnstone, ein-
um þingmannanna sem vilja veita
Makbeð uppreisn æru.
Fyrirmyndin að Makbeð í leik-
riti Shakespeare er skoskur kon-
ungur sem fæddist árið 1005 og
ríkti frá 1040 til 1057. Hann mun
þó hafa átt lítið sameiginlegt með
Makbeð leikritsins. Í leikritinu
myrðir Makbeð hinn aldna, góð-
viljaða Duncan til að komast til
valda en í raunveruleikanum lést
hinn ungi konungur Duncan í or-
ustu þar sem Makbeð kann þó að
hafa átt hlut í máli. Makbeð tók við
konungsdæminu þar sem sonur
Duncan var of ungur til að gegna
embættinu og er sagður hafa kom-
ið á lögum og reglu í landi sem laut
engum lögum auk þess að hafa eflt
kristni í ríki sínu. ■
Í ATVINNULEIT
Fólk í atvinnuleit bíður á ráðningarstofu í
Duisborg í Þýskalandi.
Atvinnuástand:
Versta frá
stríðslokum
ÞÝSKALAND, AP Atvinnuleysi í
Þýskalandi hefur ekki verið meira
frá stríðslokum en það er nú og í
síðasta mánuði fór fjöldi atvinnu-
lausra Þjóðverja í fyrsta sinn yfir
fimm milljónir. Ástæðan er þó að
hluta til sú að breytt talning bætir
222 þúsund manns á atvinnuleys-
isskrá.
Atvinnulausum fjölgaði um
nær 600 þúsund milli mánaða, fór
úr 4,5 milljónum í rétt rúmar
fimm milljónir. Áður höfðu at-
vinnulausir mest verið 4,8 millj-
ónir eftir lok seinni heimsstyrj-
aldar, það var í janúar 1998 undir
lok valdaferils Helmut Kohl. Ger-
hard Schröder hét því að fækka
atvinnulausum í 3,5 milljónir en
hefur mistekist það. ■
Hýr hjónabönd:
Bæjarstjóri
fyrir rétt
BANDARÍKIN, AP Jason West, bæjar-
stjóri í New Paltz í New York ríki
í Bandaríkjunum, þarf að svara til
saka fyrir að hafa gefið saman
samkynhneigð pör. Samkvæmt
bandarískum lögum er einungis
heimilt að gefa saman karl og
konu en ekki einstaklinga af sama
kyni.
Máli á hendur West var vísað
frá þar sem dómari í því sagði
vafasamt að stjórnarskrá heimil-
aði bann við hjónaböndum sam-
kynhneigðra. Nú hefur annar
dómari komist að þeirri niður-
stöðu að málið snúist ekki um lög-
mæti bannsins heldur hvort West
hafi farið út fyrir valdsvið sitt. ■
Einhleypir Ítalir:
Flytja seint
að heiman
ÍTALÍA Meira en fjórði hver Ítali á
aldrinum 30 til 34 ára býr enn í for-
eldrahúsum. Mun fleiri karlmenn
en konur búa enn í foreldrahúsum
á þessum aldri, 18 prósent kvenna
eru enn í heimahúsum en 36,5 pró-
sent karlmanna búa enn á Hótel
mömmu samkvæmt útreikningum
hagstofunnar Eurispes.
Níu af hverjum tíu Ítölum á
aldrinum 20 til 24 ára búa enn í
foreldrahúsum, og hafði fjölgað
um tíu prósentustig á áratug. ■
MAKBEÐ Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI
Hinn raunverulegi Makbeð féll í orustu,
ekki fyrir hendi MacDuff heldur Malcolms.
12-13 3.2.2005 19:51 Page 3