Fréttablaðið - 04.02.2005, Síða 19
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 7
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 134 stk.
Keypt & selt 41 stk.
Þjónusta 37 stk.
Heilsa 6 stk.
Skólar & námskeið 3 stk.
Heimilið 15 stk.
Tómstundir & ferðir 4 stk.
Húsnæði 17 stk.
Atvinna 24 stk.
Tilkynningar 5 stk.
Skransala Skipholti 29 A
Föstudag frá 12-18. laugard og
sunnud 10-14 S.694-6016. Komið og
gerið góð kaup.
LAGERSALA
4. febrúar – 12. febrúar
(inngangur hægra megin)
Góðan dag!
Í dag er föstudagurinn 4. febrúar,
35. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 9.58 13.42 17.26
AKUREYRI 9.54 13.26 16.59
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Bolludagurinn er draumur hvers sælkera.
Þá er hægt að úða í sig bollum með sultu,
rjóma og súkkulaði og vera laus við sam-
viskubit því það er jú eftir allt bolludagur.
Sumir kjósa að baka bollurnar sjálfir en
aðrir nýta sér þjónustu bakaríanna. Mörg
afbrigði eru til af gömlu, hefðbundnu boll-
unni með súkkulaði, rjóma og sultu og hafa
mörg bakarí þróað bolluna á hina ýmsu
vegu.
Björgvin Richter, bakari hjá Kökubank-
anum í Garðabæ, tók sig til og bakaði boll-
ur fyrir Fréttablaðið og lét því einnig í té
uppskriftir af bæði gerbollum og vatns-
deigsbollum. Bakararnir hjá Kökubankan-
um baka ýmsar tegundir af bollum og leika
sér með innihaldið. „Við erum með danskar
vínarbrauðsbollur, púnsbollur, bollur með
bæði súkkulaði- og karamelluglassúr, boll-
ur eingöngu með súkkulaði, bollur bara
með karamelluglassúr og síðan auðvitað
bollur með jarðarberjaglassúr. Síðan getur
fólk að sjálfsögðu fengið gerbollur og
vatnsdeigsbollur,“ segir Björgvin en allt
stefnir í mikla bolluhelgi hjá Kökubankan-
um. „Fólk er byrjað að kaupa sér eina og
eina bollu en þetta byrjar af alvöru um
helgina. Það er sko aldrei neinn vandi að
koma bollunum út,“ segir Björgvin og hlær.
lilja@frettabladid.is
Stórar, litlar,
bleikar og brúnar
Bolludagurinn er á mánudaginn og því ekki seinna vænna en að huga að
bollunum því margir kjósa að taka smá forskot á sæluna og gæða sér á
þeim um helgina.
tilbod@frettabladid.is
Stórútsala er nú í Toppskón-
um í bláu húsunum að Suð-
urlandsbraut 54. Þar eru skór
af öllum mögulegum stærð-
um og gerðum seldir á 60%
afslætti. Toppskórinn er opinn
virka daga frá 12-18 og 10-16
á laugardögum.
Miele
ryksugur
eru seldar
nú á 30% af-
slætti í Eirvík,
Suðurlandsbraut, Geisla, Vest-
mannaeyjum og Ljósgjafan-
um, Akureyri. Ryksugurnar
fást nú á 14.910 krónur í stað
21.300 áður.
Vörur frá Rosenthal, hinu
danska þekkta fyr-
irtæki eru á fimmt-
án prósenta af-
slætti í versluninni
Kúnígúnd á Lauga-
vegi 53 í dag og á
morgun og þess
ber að geta að
langur laugardag-
ur er á Laugaveg-
inum. Frá
Rosenthal koma
vasar, vínglös,
rekkar fyrir vín
og blöð, flöskur
fyrir öl og edik
og fleira slíkt
sem telst til
fagurra muna
á hverju heim-
ili.
Sjónvörp, geislaspilarar og
fleiri hljómflutningstæki eru
nú á útsölu í Radíóbæ í Ár-
múla 38, ásamt ýmsum
heimilistækjum. Mestur er af-
slátturinn á Elfunk LT 27“
breiðtjaldssjón-
varpi sem lækkar
um heil áttatíu þús-
und, úr 199.995 í
119.995. Geislapil-
ari sem áður kost-
aði 15.995 fæst
nú á 8.995 og
DVD-spilari sem
áður var á 7.995
lækkar um 38%
niður í 4.995.
Baðinnréttingar eru á vetrar-
tilboði hjá versluninni Innrétt-
ingar og tæki í Ármúla 31. All-
ar innréttingar eru lækkaðar
um 25-40% en mestur er af-
slátturinn á nokkrum sýning-
arinnréttingum sem nú eru
seldar á hálfvirði. Innrétting-
arnar eru í ýmsum litum og
með margskonar plötum á
borðum.
Björgvin er sveittur þessa dagana að baka bollur fyrir stóru bolluhelgina.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í tilboðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Litli bróðir minn
á skó en þeir
bara virka ekki
alveg enn þá!
Drykkir án aukefna
BLS. 2
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
GERBOLLUR
150 g vatn
375 g sykur
375 g smjörlíki
375 g egg
375 g pressuger
25 g salt
560 g smjörlíki (í rúllu)
3800 g hveiti
Appelsínubragðefni
Kardimommudropar
Öllu er blandað saman og unnið þangað til deigið
er orðið slétt. Hæfilega stórar bollur eru mótaðar,
settar á plötu með smjörpappír og bakaðar við 230
˚C hita þar til bollurnar eru gullbrúnar.
VATNSDEIGSBOLLUR
400 g vatn
200 g smjörlíki
200 g hveiti
200 g egg
Vatn og smjörlíki er soðið saman. Hveitinu er hrært
út í að lokum og eggjum hrært saman við. Hæfilega
stórar bollur eru mótaðar, settar á plötu með smjör-
pappír og bakaðar við 180 ˚C hita þar til bollurnar
eru gullbrúnar.
Það er um að gera að leika sér með það sem fer á
milli bollanna og það sem fer ofan á. Hægt er að
bragðbæta rjómann með hinum ýmsu bragðtegund-
um og prófa sig áfram í glassúrnum. Hægt er að
skreyta glassúrinn með ávöxtum, hnetum eða köku-
skrauti eða hverju sem þér dettur í hug.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
19 (01) Allt fors 3.2.2005 21:29 Page 1